Tíminn - 30.09.1983, Blaðsíða 6

Tíminn - 30.09.1983, Blaðsíða 6
6 FÖSTUDAGUR 30. SEPTEMBER 1983 ■ Alain Delon taldi sér skylt ad segja skiliö við nýju vinkonuna, Anne Parillaud, eftir að Mireille lenti í slysinu. sinni. Þar sat hann við sjúkra- beð hennar á meðan hún var í lífshxttu og sá síðan um að koma henni á sjúkrahús í Genf, þar sem best er aðstaðan til að gera að slíkum hryggsköðum, sem Mireille hafði orðið fyrir, en þeir eru álitnir það alvarleg- ir, að vera kann að hún verði að eyða því sem eftir er ævinn- ar í hjólastól. Nú standa málin því þannig, að Alain hefur heitið Mireille eilífri tryggð, cn leikkonan unga, sem átti að verða arftaki hennar, er komin út á guð og gaddinn. , jSKSlílt ENGHUNN" ER ENGMN ÍSKLUMPUR ■ í heimalandi sínu, Frakk- landi, hefur hann oft verið kallaður „einmana úlfur“. Alain Delon hefur alla tíð verið cinn á ferð og látið sig litlu skipta, hvað aðrir segja eða gera. - Það er ágætt að eiga vini, en ég þarfnast þeirra ekki skil- vröislaust, sagði hann eitt sinn. Hann þykir hafa sýnt það og sannað í samskiptum sínum við konur að hann bcr ekki tilfinningarnar utan á sér. Enda hefur hann hlotiö viður- nefnið „Iskaldi engillinn“. Alain Delon hefur lítinn til- finningahita sýnt, þegar hann hefur sagt skilið við vinkonur sínar og ástmeyjar. Sú frægasta þeirra og fyrsta var Romy Schneider, sem hann var trúlofaður í mörg ár. Mörg- úm þótti honum farast illa við hana, þegar hann lét hana sigla sinn sjú. Samt sem áður var það hann, sem lét sér annt um hana síðustu árin, sem hún liföi, og sýndi henni fullan súma látinni. Ekki þótti hann heldur sýna tilhlýðilegar til- finningar, þegar upp úr hjóna- bandi hans og frönsku leik-• konunnar Nathalie slitnaöi. Hvað þá þegar hann sagði skilið við Mireille Darc eftir 13 ára sambúð og tók saman við aðra. Þá sagði hann einfald- lega: - Ég elska Mireille ekki lengur. Mireille fluttist þá út af heimili þcirra og nýja ástmær- in, leikkonan Anne Parillaud, sem er aöeins 22 ára, var óðar komin í hennar stað. Ekki var að sjá, að áhyggjur Mireillcs og auðsjáanleg hryggð hrærðu Alain hið minnsta. En nú hefur komið í Ijús, að „ískaldi engillinn“ er ekki sá ísklumpur, sem hann vill vera láta. I sumar er leið lenti Mircillc í alvarlegu slysi á Italíu og Alain hafði ekki fyrr haft spurnir af því en hann var kominn á staðinn í einkaþotu ■ í 13 ár bjuggu þau Mireille Darc og Alain Delon undir sama þaki. Nú er Alain aftur kominn til Mireille, eftir að hún lenti í alvarlegu slysi, sem kann að hafa í för með sér, að hún þurfi að nota hjúlastúl, það sem eftir er ævinnar. Frænka Nastössju Kinski vill líka veroa kvikmyndastjarna ■ Nastassja Kinski hefur þegar haslað sér völl sem kvik- myndastjarna. ■ -NúskalégsýnaNastössju í tvo heimana, segir náfrænka Nastössju Kinski, sem hcfur fengið sitt tækifæri til að verða kvikmyndastjarna eins og frænka hennar. Lara Naszinski heitir hin upprennandi stjarna, en Nasz- inski er einmitt hið rétta eftir- nafn Nastössju. Þær eru á svipuðum aldri og milli þeirra hefur alltaf ríkt mikill meting- ur. - Það hefur alltaf farið í taugarnar á mér að standa í skugga Nastössju, segir Lara. - Þegar ég var krakki varð ég meira að segja að ganga í fötum, sem Nastassja var hætt að vera í, þar sem foreldrar mínir voru svo fátækir. Nú eru þeir dagar liönir, þcgar Lara var upp á örlæti Nastössju komin. Lara fær cin- mitt sitt fyrsta kvikmyndatæki- færi í mynd með frænku sinni. Þar eiga þær að leika systur, sem hvor um sig hefur fullan hug á að koma hinni fyrir kattarnef til að sitja ein að stórum arfi. Lara verður fyrri til! Myndin hefur hlotið nafnið „Hass“ á þýsku, sem útleggst „Hatur” á íslensku og þykir þeim, sem til þeirra frænkna þekkja, nafnið vel við hæfi. ■ Lara Naszinski vill endilega feta í fótspor frænku sinnar og helst komast hærra á tindinn en hún. viðtal dagsins AUSIUIEÐ Hf 20 ÁRAÁKSSUÁRI ■ Það var 15. júní 1960 að Óskar Sigurjónsson tók við rekstri á sérleiðinni Reykjavík- Fljótshlíð af Kaupfélagi Rangæ- inga, sem það hafði rekið undan- farin 12 ár. Síðan hefur mikið vatn runnið til sjávar. Rekstur- inn sem Óskar tók við árið 1960 er nú lengsta sérleyfi landsins Reykjavík-Hvolsvöllur-Höfn- Egilsstaðir. 1963 var svo Aust- urleið h/i stofnuð og er því fyrirtækið 20 ára á þessu ári. í því tilefni tókum við Óskar * 'i. Hvaða bílakost byrjaöir þú með þegar þú tókst við rekstri á sérleiðinni Reykjavík- Fljótshlíð? „Ég keypti tvo bíla af kaupfé- laginu, Volvo 34 manna og Chevrolet 26 manna. Kaup- verðið var 550 þús. krónur. Pen- inga átti maður ekki mikla, svo ég seldi gamlan Willisjeppa sem ég átti, á 30 þús. krónur til að hafa upp í fyrstu útborgun.". Eitthvað hefur bflakosturinn aukist? „1 dag cru bílarnir 10 og sætin alls 400. Þar af eru tveir 60 manna bílar. í vor keypti ég 33ja manna bíl á 3,3 millj. Hvert sæti kostar því 100 þúsund krónur. Ferðatíðnin? „Við förum á milli Reykjavík- ur og Hvolsvallar alla daga allt árið. Á Höfn og Egilsstaði dag- lega yfir sumarið, en tvisvar á Höfn yfir vetrartímann og þá er 'ekki farið á Egilsstaði. Sætanýt- ingin er mjög góð yfir sumartím- ann. 90% á leiðinni Reykjavík- — rætt við Óskar Sigur- jonsson, sérleyfishafa Höfn-Egilsstaðir. 80-90% af því eru útlendingar. Yfir vetrartím- ann er sætanýtingin mjög léleg, nema þá helst um helgar“. Það vekur athygli hversu góða bfla þú hefur og hvað þeim er haldið vel við. Er ekki erfitt að endurnýja bflakostinn? „Þessi nýi bíll sem ég minntist á mun t.d. aldrei borga sig upp af sjálfsdáðun. Það eru eldri ■ Óskar Sigurjúnsson, sérlcyfishafi

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.