Tíminn - 06.10.1983, Blaðsíða 9

Tíminn - 06.10.1983, Blaðsíða 9
FIMMTUDAGUR 6. OKTÓBER 1983 á vettvangi dagsins Alyktanir Sambands sveitarfélaga í Austur- landskjördæmi Héraðsf undur Húnavatns- prófastsdæmis 1983 Ályktun um orku og iðnaðarmál ■ Aðalfundur S.S.A. haldinn á Seyðis- firði 25.-26. ágúst 1983, leggur ríka áhersiu á að haldið verði fast við sam- þykkt Alþingis um næstu þrjár stórvirkj- anir - þar sem Fljótsdaisvirkjun er sett næst á eftir virkjun í Blöndu. Haldið verði áfram undirbúningsframkvæmdum við Fljótsdalsvirkjun svo sem lög og fjáröflun framast leyfa. Fundurinn skorar á þingmenn kjör- dæmisins og iðnaðarráðherra að beita sér fyrir afgreiðslu málefna Kísilmálm- vinnslunnar á Reyðarfirði á Alþingi í haust, og væntir þess að sú könnun, sem nú fer fram á eignaraðild erlendra aðila, verði ekki látin tefja framgang málsins. Jafnframt ítrekar fundurinn þá ósk sína að hluti af aðstöðugj^ildi verksmiðjunnar renni til Iðnþróunarsjóðs Austurlands. Þá áréttar fundurinn ályktun síðasta aðalfundar um að stjórnvöld geri nú þegar áætlun um eflingu atvinnulífs í þeim byggðarlögum, sem liggja fjær hinni fyrirhuguðu verksmiðju, svo ekki komi til byggðaröskunar og fólksflótta frá jaðarbyggðum. FundurinnfelurstjórnS.S.A. aðfylgj- ast náið með framvindu þessara mála. Ályktun um stöðu landsbyggðarinnar Aðalfundur S.S.A. haldinn á Seyðis- firði 25.-26. ágúst 1983, vekur athygli á hinni alvarlegu búsetuþróun sem nú á sér stað í Iandinu og sem breytist í fólksflótta af landsbyggðinni verði ekki að gert. Þessi þróun stafar einkum af hinum gífurlega háa orkukostnaði, sem nú er að sliga heimilin og síversnandi fjárhagsstöðu sveitarfélaganna, sem all- flest eru þess vanmegnug að ráða við lögboðin verkefni hvað þá að sinna síauknum kröfum íbúanna urn nauðsyn- lega og vaxandi þjónustu. Fundurinn leggur höfuðáherslu á eftir- farandi: 1) Hinn óbærilegi húshitunarkostnaður verði jafnaður og þar með dregið úr þeirri mismunun sem öðru fremur hefur sogað fólk frá landsbyggðinni til höfuðborgarsvæðisins. 2) Sveitarfélögunum verði tryggðir tekjustofnar er nægi á hverjum tíma fyrir lögboðnum verkefnum og vax- andi þjónustu. 3) Atvinnurekstrinum verði tryggður starfsgrundvöllur til arðbærs reksturs og til að tryggja viðunandi launakjör. Jafnframt verði kerfisbundið unnið að aukinni fjölbreytni í atvinnuhátt- um og stóraukinn stuðningur við iðnþróun á landsbyggðinni. 4) Til að draga úr röskun á stöðu landsbyggðarinnar vegna minnkandi áhrifa hennar á Alþingi verði: a) Raunhæft átak gert í að dreifa framkvæmdavaldinu til sveitarfé- laganna og þeim fengin bæði fram- kvæmd verkefna og umsjón með starfsemi sem nú er rckin af ríkinu frá einni miðstöð fyrir allt landið, enda eru sveitarstjórnirnar mun nálægara stjórnvald íbúunum en ríkisvaldið og betur í stakk búnar til áð mæta óskum þegnanna og sinna framkvæmdum í heima- byggð: b) Starfsemi ríkisþjónustunnar færð nær fólkinu og henni dreift um landsbyggðina, enda. bendir flest til þess að staðarval þessarar þjón- ustu muni ráða miklu um búsetu- þróun næstu árin. Ályktun um samstarf Austurlands og Færeyja Aðalfundur S.S.A. haldinn á Seyðis- firði 25.-26. ágúst 1983, fagnar framtaki og góðu samstarfi, sem tekist hefur með Austfirðingum ogFæreyingum m.a. með föstum áætlunarsiglingum milli Austur- lands og næstu nágrannalanda s.l. 9 sumur. Þá er jafnframt lýst ánægju yfir til- raunum til fastra og beinna siglinga með vörur milli Austurlands ög Evrópu. Ljóst er að landfræðilega liggur Aust- urland vel við góðum markaðssvæðum á Norðurlöndum vegna nálægðar sem býð- ur upp á mikla möguleika til stóraukinna umsvifa og um leið bættra lífskjara íbúa fjórðungsins. Stjórn S.S.A. og iðnþróunarfélagi Austuriands er falið að fylgjast náið með og styðja við bakið á þessu athyglisverða máli. Tillaga um kjördag sveitarstjórna Aðalfundur S.S.A. haldinn á Seyðis- firði 25. og 26. ágúst 1983, leggur til að kjördagur til sveitarstjórna verði einn og hinn sami í öllum sveitarfélögum og telur að heppilegasti kjördagurinn sé annar laugardagur í júní. Vísar fundurinn þessari eindregnu ábendingu til þeirra aði|a sem fjalla nú um endurskoðun sveitarstjórnarlaga. Ályktun um Egilsstaðaflugvöll Aðalfundur S.S.A. haldinn á Seyðis- firði 25.-26. ágúst 1983, fagnar fram- komnum hugmyndum um endurbygg- ingu Egilsstaðaflugvallar, vestan núver- andi flugbrautar. Austfirðingar eru háðari flugsam- göngum en flestir aðrir og Egilsstaða- flugvöllur er miðstöð flugsamgangna á Austurlandi. Fundurinn væntir þess að samgöngu- ráðherra taki senr fyrst endanlega ákvörðun um endurbyggingu vallarins og skorar á þingmenn kjördæmisins að beita sér af alefli fyrir fjárveitingum til þessa brýna vefkefnis í samgöngumálum fjórðungsins, einnig verði gerðar sem fyrst úrbætur á öðrum flugvöllum Aust- urlands. ■ Sunnudaginn 2. október varð meiri háttar viðburður i tónlistarlífi bæjarins þegar Árni Kristjánsson og Erling Blöndal Bengtsson fluttu verk eftir Beet- hoven fyrir píanó’ og knéfiðlu. Tón- leikarnir sem voru á vegum Kammer- músíkklúbbsins, voru í Neskirkju, en sú kirkja hefur orðið sér úti um prýðilegan flygil og heppilegan fyrir kammertónlist, má líta á allt þetta sem lið í stórsókn Vesturbæjarins i mcnningarmálum. Það er ekki einasta alltaf gaman að heyra Árna Kristjánsson spila, heldur ennþá skemmtilegra að í hvert sinn sem hann kemur fram segja menn: „Árni spilar alltaf betur og betur", og töldu þó margir, að þar væri litlu á bætandi. Árni Kristjánsson hefur neínilega píanóstíl sem hæfir sérlega vel tónlist 19.-aldar jöfranna - hann er framhald af hinni evrópsku hefð í píanóleik. . Af þessum meiði er Erling Blöndal Bengtsson líka. en á þessum tónleikum gerði hann sig að vísu sekan um óþart'a hógværð. Bengtsson lagði allt upp úr ■ Sunnudaginn 4. sept. 1983 var hald- inn héraðsfundur Húnavatnsprófasts- dæmis á Hólmavík. - Mátti segja að það væri dýrðardagur, hlýtt í veðri og þurrt. Hið reisulega guðshús á klettinum, Hólmavíkurkirkja, við Steingrímsfjörð, bar sig vel í sólarbirtunni við lygnan sæ. En í slíku veðri er fagurt að líta Stein- grímsfjörð af kirkjuhlaði. Héraðsfundurinn hófst með messu- gjörð kl.,2. e.h. Bæn flutti sr. Einar Jónsson prestur í Árnesi. Prófastur sr. Róbert Jack setti inn í embætti Hólma- víkurprestakalls sr. Flóka Kristinsson með ræðu og mæltist vei. Las hann síðan vígslubréf biskups til hins unga prests og óskaði honum allra hcilla í starfinu. Sr. Flóki Kristinsson sté í stólinn og llutti sína aðfararæðu til safnaða sinna. Altar- isþjónustu önnuðust sr. Oddur Einars- son Skagaströnd og sr. Guðni Þ. Ólafs- fágun og fögrum tóni, en lét hinar stóru tilfinningar Beethovens lönd og leið. Á éfnisskrá tónleikanna voru fjögur verk: knéfiðlusónötur í g-moll óp. 5, í C-dúr óp 102 nr. 1 og í D-dúr óp. 102 nr. 2, og Tólf tilbrigði við lag Mózarts úr Töfraflautunni, „Ein Mádchen oder Weibchen". í lokin léku þeirsvo „auka- lag“, tilbrigði við dúett úr Töfraflaut- unni. Þessir tónleikar voru ekki einasta mjög fínir og ánægjulegir, heldur höfðu þeir einnig tónlistarsögulegt gildi, því hér vék hin harðsnúna menningarstofnun Kammermúsíkklúbburinn frá hefðbund- inni og markaðri stefnu sinni með því að flytja sónötur: Aldrei fyrr á 25 ára ferli hafa smærri hópar en tríó heyrzt hjá Kammermúsíkklúbbnum - það hefur verið vettvangur Tónhstarfélagsins. En Tónlistarfélagið hefur líka vikið af markaðri braut. því á fyrstu tónleikum þess í haust kom fram þýzk unglinga- hljómsveit á stærð við Sinfóníuhljómsveit Isl.ands - ég kunni ekki við að skrifa um son Melstað fyrir predikun og á eftir sr. Andrés Ólafsson og sr. Flóki Kristins- son Altarisganga var og gekk margt fólk til Guðsborðs. - I messunni ávarp- aði kirkjugesti sr. Andrés Ólafsson er alla sína tíð í þjónustu heilagrar kirkjú starfáði á Hólmavík. Orð hans báru þess vott að þar hafði hann unnið sitt lífsstarf sín bestu ár við góðar minningar. í lok guðsþjónustu flutti sr. Pétur Þ. Ingjalds- son fyrrverandi prófaslur kveðju frá sr. Þorsteini Jóhannessyni og konu hans Laufeyju Tryggvadóttur til safnaðanna, en frá 1924 - 28 voru þau prestshjón á Stað í Steingrímsfirði sín fyrstu prest - skaparár við góðan orðstír. - Kirkjukór- inn söng við undirleik organistans Ólafíu Jónsdóttur, er fór hið besta fram. Kirkj- an var þéttskipuð fólki. Að lokinni messu héldu fundarmcnn til Barnaskólans en þar beið þcirra þá tónleika vegna þeirrar virðingar sem Tónlistarfélagið nýtur meðal lesenda Tímans. , Loks má skyggnast bak við tjöldin hjá Kammermúsíkklúbbnum: Að vanda verðafernirtónleikarívetur. 13. nóvem- ber verður Brahms-kvöld, 4. mars verða tríó tónleikar, - efnisskrá óákvcðin - og 15. apríl flytur Sinnhoffer-kvartettinn strengjakvartetta eftir Mózart, Beetho- ven og Schostakovits. - 4.-10. Sigurður Steinþórsson messukaffi í boði sóknarnefndar Hólrna- Víkurkirkju. Að lokinni kaffidrykkju hófst Héraðs- fundurinn. Sr. Yngvi Þ. Árnason flutti bæn í upphafi hans. Sr. Róbert Jack setti fundinn og stjórnaði honum. Tilnefndi sr. Odd Einarsson fundarritara. Prófast- ur flutti yfirlistræðu sína er fjallar um helstu kirkjulega viðburði í prófast- dæminu. Messur voru 329- altarisgestir 641 fcrmingar 115. Sr. Ólafur Hallgrímsson í Bólstaðar- prestakalli hefur verið skipaður prestur í Mælifclísprestakalli. Sr. Andrés Ólafs- son hafði fengiö lausn frá embætti, að cigin ósk cftir 35 ára starf í Hólmavíkur- prestakalli við góðan orðstír. í hans tíð hefur verið byggð kirkja.hið veglegasta hús og einnig prestseturshús. Á síðasliðnum vetri hafði sr. Ingólfur Ástmarsson þjónað brauðinu, en hann hóf prestskap 'sinn í Staðarprestakalli 1942. En nú hefur sr. Flóki Kristinsson verið vígður til brauðsins. Tvær kirkjuhátíðir hafa verið haldnar rprófastdæminu. Á hundrað ára afmæli Bergstaðakirkju í Svartárdal 17. júlí. Þar voru mættir fimm prestar sem þjónað höfðu þessari kirkju, ásamt prestum prófastsdæmisins. - Þá.var hátíðamessa á Staðarbakka í Miðfirði 24. júlí tilefni þess að lokið var gagngerðri viðgerð er stóð í þrjú ár. Benedikt Guðmundsson Staðarbakka flutti erindi um kirkjuna og sr. Guðni Þ. Óiafsson og sr. Róbert Jack stéu í stólinn. Þá flutti sr. Árni Sigurðs- son erindi um Guðbrand Þorláksson biskup sr. Pétur Þ. Ingjaldsson um húnvetnsk fræði. Prófastur gat þess í lok ræðu sinnar að nú væri árið 1983 helgað siðábótamann- inum Marteini Lúther og hefði hann fengið sr. Pétur Ingjaldsson til að mæla fyrir minni hans. Pétur Ingjaldsson flutti erindi sitt um Martein Lúther. Síðar á fundinum urðu umræður um ýms mál viðvíkjandí kristni og kristindómi. Tóku margi.r til máls, - Fundinn sátu 8 prestar og 15 safnáðarfull- trúar, auk annarra sóknarnefndannanna, samtals 38 manns. - Prófastur sr. Róbert Jack lauk fundinum með ritningarlestri og bænagjörð. Þá beið kvöldverður fundarmanna í boði Sóknarnefndar Hólmavíkurkirkju. Formaður sóknarncfndar er Jóhann Guðmundsson. Móttökur allar voru hin- ar höfðinglegustu. BEETHOVEN-TÓNLEIKAR

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.