Tíminn - 06.10.1983, Side 10
umsjón: Samúel Örn Erlingsson
íþróttir
Mikiil uggur
er í Bretum
- enn einn lét lífið
á áhorfendapöllunum
I
■ Mikill uggur er nú í Bretum vegna
óláta á knattspyrnuvöllum þar í landi.
Enn einn knattspyrnuaðdáandinn lét
lífið um helgina, á leik Chelsea og
Huddersfield á laugardag. Margt hefur
verið rætt og ritað í Bretlandi um þetta
vandamál, en minna verið um fram-
kvæmdir. Þó hafa verið sett strangari lög
um framferði á áhorfendapöllum iþrótta-
leikvanga, en þeim ekki verið framfylgt
af fullum krafti.
Mikill uggur var í mönnum á enskri
grundu fyrr í haust, vegna slæms fram-
ferðis áhangenda Chelsea. Nú bregður
öðru við, því pilturinn sem lést, Richard
Aldridge, var áhangandi Chelsea, og
líklegt verður að þykja að skoðanabræður
hans hafi ekki orðið honum að bana.
Morðið átti sér stað þegar slagsmál
upphófust víða um áhorfendapallana
eftir leikinn.
-SOE
Bikar-
keppnin
í sundi
- 2. deild í Sundhöllinni
■ Bikarkeppni Sundsambands íslands
Il.deild verðúr haldin í Sundhöll Reykja-
víkur helgina 21.-23. október 1983
Keppt verður í greinum samkvæmt
reglugerð SSÍ.
Skráningum skal skila á skrifstofu SSÍ
eigi síðar en föstudaginn 14. október
1983 þvf- tölvuvinnsla hefst strax á
laugardeginum 15. október. Skráning-
arnar skulu vera á þar til gerðum skrán-
ingakortum, ásamt nafnálista yfir kepp-
endur og þjálfara. Skráningagjöldin eru
kr. 30.00 fyrir hverja skráningu í ein
staklingsgrein og kr. 60.00 fyrir hverja
skráningu í boðsundsgrein
Skráningakortin skulu vera rétt
útfyllt, annars verða þau ekki tekin gild
Tölvunúmer skulu sett á hvert kort og
einnig á nafnalistann. Aðeins verður
tekið á móti vélrituðum kortum.
Óski félög eftir að SSÍ sjái um gistingu
skal hafa samband við skrifstofu SSl.
KR-ingar fengu lið frá Lúxemborg
■ „Við munum ekki svíkja okkar að-
dáendur, við stefnum á að leika annan
leikinn eða báða hér á landi“, sagði Egill
Bjarnason formaður handknattleiks-
deildar FH í samtali við Tímann í gær.
„Fjárhagslega gátum við ekki fengið
erfíðara lið en þetta lið frá ísrael, það
kostar einhver reiðinnar býsn að ferðast
þangað“, sagði Egill.
FH-ingar voru óheppnir, þegar dregið
var í aðra umferð IHF-Evrópukeppninn-
ar. Mótherjamir reyndust liðið Maccabi
frá ísrael. ísraelsmenn eru ágætir hand-
boltamenn, hafa t.d. sigrað oftar í
viðureignum sínum við íslenska landslið-
ið, en kostnaður við að ferðast þangað
er gífurlegur. „Við munum reyna allt
sem við getum til að ná kostnaðinum
niður“, sagði Egill Bjarnason, „en hve
langt það nær vitum við ekki.“
„Ég te! að við höfum verið mjög
heppnir", sagði Þorvarður Höskuldsson
framkvæmdastjóri handknattleiksdeild-
ar KR í samtali við Tímann í gær. „Við
fengum liðið HC Bercem frá Luxem-
borg, en það sló út hollenska liðið HV
de Gazellen í fyrstu umferð Evröpu-
keppni bikarhafa. Að vísu hefði verið
gaman að fá einhverja stóra karla, svo
sem Barcelona, en við eigum góða
möguleika á að komast áfram með því
að fá þessa mótherja."
Dregið var í aðra umferð allra Evr-
ópukeppnanna í handbolta í gærmorg-
un, og fengu mótherjar Víkings, Kol-
botn frá Noregi belgísku meistarana.
- SOE.
Fyrsta boðsmót Iþróttafrétta
manna f knattspyrnu innanhúss:
MARGIR BESTU
A SELFOSSI!
— Adidas-bikarinn á
sunnudaginn kemur
■ Á sunnudaginn kemur verður
haldið fyrsta stórmót íþróttafrétta-
manna í knattspyrnu innanhúss á
Selfossi. Þar munu keppa 8 valin-
kunn lið í útsláttarkeppni um hinn
glæsilega ADIDAS-bikar. Mótið er
hið fyrsta margra, þar sem íþrótta-
fréttamenn bjóða liðum til mótsins
hverju sinni. Nú taka þátt 8 lið.
íþróttafréttamenn hafa boðið lið-
um íslandsmeistara ÍA, Vals, Fram,
Víkings, Breiðabliks, KR og Selfoss
til mótsins, en auk þessara mun
harðsnúið lið íþróttafréttamanna
mæta til leiks. Mun það verða skipað
bæði gömlum og óuppgötvuðum
stjörnum. Mótið mun hefjast klukk-
an 19.30 á sunnudag, og mun sitthvað
óvænt verða augnakonfekt áhorf-
cnda- - SÖE.
Fréttir úr herbúðum Þróttar:
feö*JfDL
■ Örn Óskarsson, Eyjamaðurinn
sterki, nær hann sér á strik, að vori?
■ Ásgeir Elíasson, hinn spilandi þjálf-
ari 1. deildarliðs í knattspyrnu Þróttar
mun halda áfram með liðið. Honum
verður áfram til aðstoðar við þjálfunina
Theódór Guðmundsson. Þá er Ijóst að
liðið mun leika óskert að vori, og jafnvel
mun eitthvað bætast við af mönnum.
Ljóst er að Þorvaldur Þorvaldsson,
framlínumaður Þróttar mun leika með
liðinu áfram næsta sumar, en heyrst
hafði að hann væri á förum til Akur-
eyrar. Þá mun Páll Ólafsson, handknatt-
leikskappinn kunni, að öllum líkindum
mæta fyrr til leiks að vori en í sumar, þar
eð handknattleiksvertíðin er fyrr úti í
vor en oft áður. Páll mun hafa fullan hug
á að taka knattspyrnuna alvarlega að
vori samkvæmt heimildum Tímans, en
undanfarin tvö ár hefur knattspyrnan
verið grein númer tvö hjá Páli, og hann
einbeitt sér að handknattleiknum. -
Páll og Örn með
■ Ásgeir Elíasson slær sjaldan af,
hann þjálfar Þrótt áfram.
.
af fullum krafti
Þetta er fengur fyrir knattspyrnulið
Þróttar, því Páll hefur sýnt og sannað í
sumar að hann er mjög sterkur knatt-
spyrnumaður, enda á hann landsleiki að
baki í greininni, þó færri séu en í
handknattleiknum.
Örn Óskarsson, varnarmaðurinn
sterki úr Vestmannaeyjum, sem gekk til
liðs við Þrótt síðastliðið vor, gekkst
undir uppskurð nýlega, og er bati hans
„á góðri leið“, að sögn lækna. Örn var
skorinn upp vegna meiðsla sinna í hásin,
og fari svo sem horfir að hann nái fullum
bata, mun hann leika af fullum krafti
með liðinu, samkvæmt heimildum
blaðsins.
Þá hefur heyrst, að Jóhann Jakobs-
son, lykilmaður úr liði KA á Akureyri,
sem mun vera að flytjast til Reykjavíkur,
muni ganga til liðs við Þrótt. Ekki er það
þó selt dýrara en keypt. -SÖE
■ • '
23 valdir
- í enska landsliðshópinn
■ Bobby Robson, landsliðseinvaldur
Englendinga hefur valið 23 manna hóp
til æfinga fyrir landsleikinn gegn Ung-
verjum í næstu viku. Enginn úr liðinu
sem lék gegn Dönum á dögunum hefur
fallið úr, utan Phil Neal, Liverpool sem
meiddist í landsleiknum gegn Dönum og
hefur ekki getað leikið síðan. En það
geta samt orðið breytingar, þar eð 8
bætast við Hópurinn er svona:
Markverðir: Peter Shilton, Southampton,
Ray Clemence, Tottenham, Gary Bailey,
Man. Utd.
Aðrir leikmenn: Mike Duxbury, Man.
Utd., Kenny Sansom, Arsenal, Alan
Kennedy, Liverpool, Terry Butcher,
Ipswich, Alvin Martin, West Ham, Graham
Roberts, Tottenham, Russel Osman,
Ipswich, Bryan Robson, Man. Utd., Ray
Wilkins, Man. Utd., Sammy Lee, Liverpool,
Alan Devonshire, West Ham, Glenn
Hoddle, Tottenham, Trevor Francis, Sam-
pdoria, Tony Woodcock, Arsenal, Paul Mar-
iner, Ipswich, John Barnes, Watford, Luther
Blissett, AC Milan, Peter Withe, Aston
Villa, Mark Chamberlain, Sloke. -SÖE
SSÍ ræður
starfsmann
■ Sundsamband íslands hefur nú ráðið
starfsmann • til að vinna á skrifstofu
sambandsins í hlutastarfi. Viðverutími
hans verður frá kl. 15 til 17 þriðjudaga
og fimmtudaga, og frá klukkan 13 til 17
mánudaga og miðvikudaga.
Sundsambandið hefur fengið upplýs-
ingar um nokkur erlend sundmót, sem
haldin eru á ári hverju, og er þar ekki
um landskeppnir að ræða. Þeir sem vilja
fá upplýsingar um mótið af þessu tagi,
hafi samband við skrifstofu SSf í íþrótta-
miðstöðinni í Laugardal. -SÖE
Óvænt úrslit
í Mjólkurbikarnum
■ Óvænt úrslit urðu í Mjólkurbikarn-
um enska (deildarkeppninni) í fyrra-
kvöld, en þar var leikin ein umferð.
Fyrstu deildarlið steinlágu fyrir neðri-
deildarliðum, og bar þá helst á ósigri
West Bromwich Albion 0-3 fyrir þriðju-
deildarliðinu Millwall, og tapi Watford
1-2 fyrir Hudderfield sem leikur í annarri
deild. Þá lá Sunderland fyrir Carlisle,
Plymouth Argyle gerði jafntefli við
Arsenal, Nottingham Eorest tapaði fyrirg
Wimbledon, og Southampton lá fyriri
Carlisle. - En úrslitin urðu þessi:
Aldcrshot-Notts. C ...........2-4
Bury-West Ham ................1-2
Cambridge-Sunderland..........2-3
Carlisle-Southampton.....‘.... 2-0
Chesterfield-Evcrton .........0-1
Grimsby-Covcntry......‘.......0-0
Huddersfieid-Watford .........2-1
Plymouth-Arsenal..............1-1
Portsmouth-Aston Viila .......2-2
QPR-Crewe.....................8-1
Rotherham-Luton...............2-3
ShelT. Wed.-Darlington .......3-0
Shrewsbury-Sheff. Utd.... . '2-1
Swansea-Colchester............2-1
Wallsall-Barnsley.............1-0
Wolvcs-Preston................2-3
Brighton-Bristol R............4-2
Cardiff-Norwich ..............0-0
Wimbledon-Nott. For...........2-0
Nýir tímar
- hjá íþróttasambandi fatlaðra
■ Fráogmeð 1. septembersl. tók gildi
nýr opnunartími á skrifstofu íþróttasam-
bands fatlaðra. Framvegis mun skrifstof-
an að Háaleitisbraut 11 verða opin sem
hér segir: Mánudaga kl. 16:00 - 18:30.
Þriðjudaga kl. 16:00 - 18:30. Miðviku-
daga kl. 16:00 - 18:30. Fimmtudaga kl.
16:00 18:30.
Síminn á skrifstofunni er 91-86301.
Þó svo að skrifstofan sé til húsa að
Háaleitisbraut 11 þá skulu bréf til sam-
bandsins vera stíluð á:
íþróttasamband fatlaðra, íþróttamið-
stöðinni Laugardal, 104. Reykjavík.
Danir eiga mikilli velgengni að
fagna í Evrópukeppni landsliða, en:
öll dönsku
félagslM Jin
fallin úr ■i
■ Þó Danir þyki nú eiga eitt besta
landslið Evrópu í knattspymu, sem
undirstrikað var svo rækilega með sigri
þeirra á Englendingum á dögunum,
hrósa þeir ekki því happi að eiga félagslið
í sama gæðaflokki. Öll fjögur dönsku
liðin, sem tóku þátt í Evrópukeppnum
félagsliða í knattspyrnu í haust, féllu
nefnilega úr í fyrstu umferð, rétt eins og
lið okkar íslendinga.
Landslið Dana er nú komið langleið-
ina í úrslit Evrópukeppninnar í knatt-
spyrnu, sem leikin verða í Frakklandi
næsta sumar. Liðið hefur góða forystu í
riðlinum, og bar sigurorð um daginn af
aðalkeppinautunum Englendingum.
Hafa Danir þrjú stig út úr viðureignun-
um við Englendinga. Jafnvel þó Danir
komi til með að tapa fyrir Ungverjum
. síðari leiknum, þá verður að teljast
líklegt að breska ljónið reyni að reisa
makkann með sigri á þeim ungversku,
svo Danir standa vel.
Félagsliðin eru ekki eins vel á sig
komin. OB frá Óðinsvéum tapaði fyrir
Liverpool í Evrópukeppni meistaraliða
samanlagt 6-0. B 1901 tapaði saman lagt
3-9 fyrir Shaktyar Donetzk frá Sovétríkj-
unum í Evrópukeppni bikarhafa. B 1903
tapaði samanlagt 1-6 fyrir Banik Ostrava
frá Tékkóslóvakíu í UEFA keppninni,
og þar tapaði einnig AGF frá Árósum
1-5 samanlagt fyrir Glasgow Celtic.
Þessi útkoma Dana er dálítið í mót-
sögn' við velgengni landsliðsins, sem
hefur í ár lagt margar sterkar þjóðir að
velli. Hver er skýringin? - Ein gæti verið
sú, að 14 af 16 leikmönnum í landsliðinu
sem skellti Englendingum leika erlendis,
í Hollandi, Belgíu og V-Þýskalandi t.d.
-SÖE
■ FH-ingarnir Hans Guðmundsson, sem hér sést taka óþyrmilega á Hauki Ottesen KR ■ fyrstu deildinni í fyrra, Krístján
Arason og .Þorgils Óttar Mathiesen (nr. 2) geta átt von á að fara til ísrael alla leið, til að leika í annarri umferð
IHF-keppninnar í handknattleik (Evrópukeppni félagsliða“). Hætt er við að þessi óhappadráttur FH-inganna gangi nærri
þeim fjárhagslega. Haukur Ottesen sem einnig er á myndinni, er nú ekki lengur í KR, en félagar hans þar, sem eftir eru,
fengu lið frá Lúxemborg, og teljast tiltölulega heppnir. -SÖE/Tímamynd Róbert
Kristján Hjartarson, kom sá og sigraði Götu íFæreyjum:
„FRUMRAUN MÍN SEM ÞJÁLI FARI” 1
— Albert Eymundsson veitti ómetanlega hjálp
■ „Þetta er nú eiginlega frumraun mín
sem þjálfari“, sagði Kristján Hjartarson
þjálfari GÍ í Færeyjum í samtali við
Tímann, en Krístján lciddi lið sitt til
sigurs í færeysku meistarakeppninni og
bikarkeppninni í ár. „Ég hafði nánast
ekkert þjálfað heima, þegar ég fór
hingað og tók að mér þjálfun. Þegar til
kom var knattspyma hér á miklu hærra
stigi en ég hafði talið hana vera fyrír, og
þá kom sér vel viðkynning mín við hinn
kunna þjálfara, Albert Eymundsson.
Hann talaði ég mikið við í síma og þáði
af honum mörg ómetanleg ráð“, sagði
Kristján.
Kristján er frá Höfn í Hornafirði, og
lék þar áður með Sindra í 3. deildinni.
Þar kynntist hann Albert Eymundssyni
vel, en Albert þjálfaði þar fyrir nokkru,
og þótti lið Sindra þá sterkt, alla vega á
Austfjarðamælikvarða. - Kristján sagði
að færeysk knattspsyrna hefði komið sér
á óvart. „Þegar ég kom hingað fyrst“,
sagði hann, „þá voru einu kynni mín af
færeyskum knattspyrnumönnum þau, að
við í Sindra lékum við annarrar deildar-
liðið Röyn frá Færeyjum, þegar það var
á ferð heima. Við vorum þá í þriðju
deild og sigruðum 7-1. Eftir þessu mat
ég knattspyrnu í Færeyjum, og það kom
mér því mjög á óvart hve knattspyrnan
hér í Færeyjum er góð. Það eru ein þrjú
fyrstudeildarlið hér, sem mundu sóma
sér vel í fyrstu deildinni heima."
Með liði Gí léku tveir íslendingar í
sumar, Lárus Grétarsson áður í Fram,
og var hann næstmarkahæsti leikmaður
fyrstu deildarinnar í Færeyjum í sumar,
með 8 mörk. Þá lék með liðinu PáU
Guðlaugsson markvörður úr
Vestmannaeyjum, og þótti hann leika
mjög vel. f úrslitaleik mótsins, milli GÍ
og Klakksvíkur sigraði Gí 5-1, og skor-
aði Lárus eitt markanna, og átti stóran
þátt í þremur hinna. Páll átti þá stórleik
í markinu. Mikið var skrifað um leikinn
í færeyskum blöðum, og ekki síst það,
að GÍ vann nú Færeyjameistaratitilinn í
knattspyrnu í fyrsta sinn. Þá var frammi-
staða GÍ sérstaklega glæsileg, liðið varð
bikarmeistari og sigraði að auki í
-SÖE
. ■ Kristján Hjartarson frá Höfn í Hornafirði, þjálfari GÍ ásamt
fyrirliða liðsins eftir sigurinn á Klakksvík. Krístján vann sér gott
orð sem þjálfari í sumar með GÍ, en þess ber að geta, að hann
tók við góðum efnivið í liðinu sem þjálfað hefur veríð af
Islendingum. Þar þjálfaði Björn Ámason, sem hefur náð svo
góðum árangri með Þór frá Akureyri, sem raun ber vitni, áður.
-SÖE
Þessi úrklippa sýnir megnið af forsíðu færeyska blaðsins „Sósíalurinn“,
þar sem sagt var frá sigri GI á færeyska meistaramótinu. Á liðsmyndinni em
þrír íslendingar, Kristján Hjartarson í aftari röð iengst til hægri, Láms
Grétarsson fimmti frá vinstri í efri röð, og Páll Guðlaugsson fjórði frá vinstri
í neðri röð. -SOE
Þungt áfall fyrir handknattleiksdeild FH:
FENGU MÓTHERJA
FRA fSRAEI_________!
Búbbi gefur
ekkert eftir
- hefur skorað fjögur mörk
í 6 leikjum
■ Jóhannes Eðvaldsson, fyrrum lands- .
liðsfyrirliði, virðist vera í betra formi í
ár, en hann hefur verið lengi. Búbbi,
sem kom inn í landsliðið í sumar, eftir
alllangt hlé, og sýndi mjög sannfærandi
leiki, stjórnar vörn liðs síns, Motherwell
af mikilli röggsemi og bregður sér síðan
í sóknina öðru hvoru með góðum ár-
angri. Búbbi framdi eitt slíkt framhlaup
um helgina og skoraði eina mark Mot-
herwell í 3-1 tapinu gegn Dundee. Búbbi
hefur nú skorað fjögur mörk á keppnis-
tímabilinu, sem bætti víða gott í 6
leikjum af miðverði. -SÖE