Tíminn - 08.10.1983, Page 5

Tíminn - 08.10.1983, Page 5
LAUGARDAGUR 8. OKTÓBER 1983 AUGLYSINGAR FA15% UT- SENDINGARIÍMA RASARII Tvær auglýsingastofur opna sem sérhæfa sig í auglýsingum fyrir rásma ■ Nú líður að þvi að Rás II hjá ríkisútvarpinu hefji útsendingar. Ætlun- in er að auglýsingar beri uppi allan kostnað af rekstri stöðvarínnar. Verða þær með nýju sniði, það er að segja leiknar, líkt og tiðkast viða erlendis. Þegar er vitað um tvær auglýsingastofur sem rnunu bjóða upptökur á auglýsing- um fýrir Rás II, tJtvarpsauglýsingar SF, sem. Ámi Gunnarsson, fýrrverandi al- þingismaður, mun veita forstöðu og Kvik hf., sem um 10 ára skeið hefur gert auglýsingar fyrir sjónvarp, mikið af heimildamyndum og sitthvað fleira. „Ég er alveg viss um, að það verður gífurlega mikið hlustað á Rás II og þar af leiðandi má búast við að auglýsendur sjái sér hag í að nýta sér þessa nýju möguleika,“ sagði Þórir Steingrímsson hjá Kvik hf. í samtali við blaðamann Tímans í gær. Hann sagðist þegar hafa orðið var við mikinn áhuga hjá viðskipta- vinum sínum. Það vefðist hins vegar nokkuð fyrir mönnum að ekki væri búið að ákveða verð á auglýsingatímanum þess vegna væru þeir tregari en ella að panta gerð auglýsinga. Árni Gunnarsson telur engan vafa leika á því að mikið verði hlustað á Rás II og að auglýsingagildið verði mikið. Hann hefur fengið til liðs við sig fjölda kunnra manna, sem munu vinna að gerð auglýsinganna. Meðal annarra eru út- varpsmaðurinn Hermann Gunnarsson, tónlistarmennirnir Magnús Kjartansson og Ólafur Gaukur, en Ólafur hefur um þriggja ára skeið verið við nám í Bandaríkjunum í studiovinnu og gerð útvarpsauglýsinga. Þá munu starfa hjá Útvarpsauglýsingum Helgi Sæmunds- son, rithöfundur, Gylfi Ægisson, söngv- ari og fjöldi lausamanna. Samkvæmt heimildum Tímans verður 15% af útsendingatíma Rásar II varið til auglýsinga, það er að segja 9 mínútur á hverri klukkustund. Auglýsingamínútan mun kosta 9.000 krónur samkvæmt sömu heimildum. í sjónvarpi kostar auglýsingamínútan 22.000 krónur. -Sjó ■ Ámi Gunnarsson, fýrrum alþingismaður, er forstöðu- ■ Kvik hf. kynnti nýjan útbúnað til upptöku á auglýsingum fyrir útvarp í gær. Fremst á myndinni em Ernst maður Útvarpsauglýsinga sf. Tímamynd Róbert Kettler og Þórir Steingrímsson, eigendur stofunnar. Mazda í aðalvinning ■ Happdrætti Styrktarfélags vangcf- inna er að fara af stað og verða vinningar tíu. Aðalvinningurinn er bifreið, Mazda 626 Hatcjtback I-X2 árgerð 1984 og kostar hún 370 þúsund krónur. Næstu vinningar eru bifreiðar að eigin vali aðupphæð.220þús. og 160 þús. og sjö húsbúnaðarvinningar að upphæð kr. 60 þúsund hver. Heildar- verðmæti vinninga er um 1170 þús. krónur. Ölium ágóða happdrættisins verður varið til byggingar fjögurra raðhúsa í Suðurhlíðum í Reykjavík én smíði þcirra hófst í vor og er stefnt að því að þau verði fokheid í þessum ntánuði. Þrjú húsanna eru ætluð undir sambýli, en hitt skammtíma fósturheimili. í frétt frá Styrktarfélagi vangefinna þakkar það stpðning almennings á liðnum árum um leið og það kveðst treysta á skilning fólks á nauðsyn þess að búa vangefnum sem best skilyrði. -BK fslenskir annálar í máli og myndum ■ Út er komin bókin fslenskir annálar eftir Anders Hansen blaðamann. Það er bókaforlag Arnar og Örlygs sem gefur bókina út. Hér er um að ræða rit þar sem atburðir íslandssögunnar eru raktir lið fyrir lið frá ári til árs. í þessu fyrsta bindi er tekið fyrir tímabilið 1400-1449, en á þessu tímabili gerðist það m.a. að Svarti- dauði gekk yfir landið og drap tugþús- undir manna, bólusótt geysaði og drap þúsundir manna, Englendingar hófu siglingar hingað til lands í stórum stíl o.fl. o.fl. Bókin er í stóru broti, 192 blaðsíður og prýdd fjölda mynda sem skýra þá atburði sem greint er frá. Það er Haukur Halldórsson teiknari sem annast hefur myndskreytinguna. Steindór Steindórsson frá Hlöðum segir m.a. um þessa bók: „Eftir að hafa kynnt mér hvernig til hefur tekist get ég óhræddur mælt með þessari bók. Hér er samanfléttað öllum þeim gífurlega fróð- leik, sem annálamir geyma, og skemmti- lega völdum þjóðsögum, fornbréfum og öðru efni, auk ómetanlegra skýringa- ritgerða, en varpa ljósi á hinar löngu liðnu aldir.“ Skipstjóra- og Stýrimanna- félagið Aldan 90 ára ■ Skipstjóra og stýrimannafélagið Aldan er 90 ára um þessar mundir og af því tilefni. verður opið hús fyrir félags- menn og velunnara félagsins á laugar- daginn kl. 14:00 í húsnæði félagsins, Borgartúni 29, Reykjavík. Félagið var stofnað 7. október 1893 og var gefið nafnið Skipsstj órafélagið Aldan. Það varð strax mjög virkt og voru menningarmál og móðurmálið tek- ið fyrir á fundum og í lögum félagsins var vikið að því að félagsmenn ættu að tala íslensku stórlýtalaust og oft var vikið að málhreinsun á fundum. Strax voru stofn- aðir sjóðir til að styrkja ekkjur og þá sem illa voru stæðir út af veikindum o.fl. og hefur það verið gert fram á þennan dag. Þá má nefna að félagið var einn helsti frumkvöðull að stofnun Slysavamar- félags íslands. Málefni Reykjavíkurhafn- ar létu Öldumenn sig miklu varða. í dag koma þar fáir sjómenn að. Af merkustu málum Öldunnar verður að telja siglingalöggjöf sem Öldumenn bjuggu til, og fóru þau óbreytt í gegnum Alþingi. Árið 1912 efndi Aldan til sam- skota til að styrkja ungan sjómann sem nam listanám í Danmörku og hafði sótt um styrk: tíl landsstjórnar en fengið synjun. Á þremur mánuðum söfnuðust 209 kr. sem sendar voru listamanninum, sem sendi þakkarbréf og árnaði félaginu heilla, undirritað Jóhannes Sveinsson Kjarval. Þetta voru miklir peningar þá sem sést á því að árgjald að Öldunni var þrjár krónur. Fyrsti formaður félagsins var Ásgeir Þorsteinsson, en formenn hafa alis verið 18. NúverandiformaðurerRagnarG.D. Hermannsson. í tilefni af afmælinu kem- ■ 6ARÐUBJAK0BSS0N Skipstjóra- og stýrimannafélagið ALDAN 1893 -1943 ■ Ritnefnd bökarinnar sem út verður gefin í tilefni 90 ára afmælisins. F.v. Þorvaldur Ámason, Bárður Jakobsson, sem tók bókina saman og Hróbjartur Lúthersson. ur út bók sem spannar sögu fyrstu 50 áranna. í dag kl. 15 verður fyrsti fáni félagsins, elsti stéttarfélagsfáni hér á landi, gefinn Þjóðminjasafninu. -BK ■ í tilcfni af 90 ára afmæii Öldunnar verður gefin út bók er geymir sögu fýrstu fimmtíu áranna. Bárður Jakobsson skráði söguna. Sjálfsbjörg á Akureyri: Skora á öryrkja að mótmæla bráða- birgðalögunum — óréttlát og ódrengileg ■ „Óskertur lífeyrir öryrkja (örorku- lífeyrir og tekjutrygging) var hinn 31. maí kr. 6.095, og hækkaði um 10,7%, eða í kr. 6.747. Það hlýtur öllum að vera það ljóst að enginn dregur fram lífið á slíkum tekjum í dag, þær duga alls ekki fyrir nauðþurftum, sérstaklega þegar það er haft f huga að fjöldi öryrkja á sáralítinn eða engan rétt á greiðslum úr lffeyrissjóðum og að í reglugerð 351 frá 1977 við 19. gr. almannatryggingarlaga er mjög óréttlátt skerðingarákvæði á tekjutryggingu, vegna tekna.“, segir í ályktun frá Sjálfsbjörg á Akureyri en aðalfundur samtakanna var haldinn á Akureyri 22. sept. sl. í ályktun fundarins er bráðabirgða- lögum ríkisstjórnarinnar harðlega mót- mælt og þau talin óréttlát og ódrengileg, þar sem skerðingin nái jafnt til nauð- þurftartekna sem umframtekna. „Því hvað segja þessi 2,7% kr. 165, sem örorkulífeyrir var hækkaður um umfram hin venjulegu 8%, þegar á móti kemur öll verðhækkunarskriða?" Þess er krafist að lögin verði afnumin hvað varðar nauðþurftarframfærslu og staðið verði við það að vernda hag þeirra sem við lökust kjör búa. Þá er skorað á öll öryrkjafélög að mótmæla þessari árás á kjör öryrkja og minnt á að þess sé varla að vænta að aðrir mótmaeli fyrir þá ef þeir sýni ekki tilburð til þess sjálfir. - BK Snyrt og skemmt í Broadway ■ Félag íslenskra snyrtisérfræðinga heldtr sinn árlega fræðslu og skemmtifund í Broadway, sunnudag- inn 16. október milli kl. 2 og 6. Þar munu snyrtisérfræðingar, verða að störfum og kynna flesta þætti starf- semi sinnar. Einnig munu helstu snyrtivörumerkin verða kynnt. Ýmislegt verður til skcmmtunar, meðal.annars verður hin árlega tísku- sýning félagskvenna; Jónína Benie- diktsdóttir heldur fyrirlestur og Aer- óbatic leikfimi verður sýnd; og Berg- þóra Árnadóttir syngur ásamt norska fiðluleikaranum SvenNymo. GSH

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.