Tíminn - 08.10.1983, Blaðsíða 7

Tíminn - 08.10.1983, Blaðsíða 7
LAUGARDAGUR 8. OKTÓBER 1983 umsjón: B.St. og K.L. Af hverju leið yfir Koo? ■ Ekki hafa allir enn sætt sig við að úti sé ástarævintýri Koo Stark og Andrews prins. En Koo hefur a.m.k. tileinkað sér eitt skilyrði, sem breska kon- ungsfjölskyldan setur þeim, sem vilja umgangast hana. Koo hefur lært að þegja! Ekki alls fyrir löngu var Koo á ferð í Astralíu. Þar lét hún svo lítið að koma fram í viðtals- þætti ■ sjónvarpi og þáði að launum yfir eina milljón ísl. króna. Eitt skilyrði setti hún fyrir því að koma fram í þætt- inum. Þar mætti ekki minnast einu orði á Andrew. Spyrillinn stóð við gefið lof- orð og nefndi ekki Andrew á nafn né ýjaði að vinskap hans og Koos. En í sakleysi sínu bar hann upp þá spurningu við ungfrúna, hvaða framtíðar- áætlanir hún hefði á prjónun- i|m. Þá brá svo við að hún féll sparlega í yfirlið! ' Ekki fór hjá því að áhorfend- ur' færu að velta því fyrir sér, hvað ylli því, að þessi spurning hefði haft þessi áhrif á Koo. Sumir vildu meina að með þessu hefði hún sýnt, að hún sé hreint ekki svo léleg leikkona, þegar öllu er á botninn hvolft. Aðrir álíta, að á þennan hátt hefði hún viljað koma sér hjá þvi að svara spurningunni. Enn aðrir hafa komið fram með þá kenningu, að ekki sé fráleitt að láta sér detta í hug, að Koo sé með barni. Koo er 27 ára gcjmul. ■ Koo Stark kom fram í sjónvarpi í Ástralíu. Að útsendingu lokinni yfirgaf hún upptökusalinn í fylgd tveggja sterkbyggðra lífvarða. r Ovenjulegt bónorð! ■ Þegar yfirlý singar Richards Parsons um ódauðlega ást hrærðu ekki hjartað í ástinni hans hið minnsta, ákvað hann að sýna riddaralega framkomu til að sýna henni, að honum væri alvara. Richard, sem er 18 ára, átti engan hestinn, en í staðinn geystist hann á skellinöðrunni sinni inn í búðina, þar sem hin dáða og dýrkaða Jenny Selley vann - og stansaði ekki fyrr en hann var kominn inn í miðjan bing af niðursuðudósum, sem innihéldu súpur! - Ég gerði þetta án þess að hugsa mig um, sagði aumingja Richard, þegar löggan dro hann undan dósabingnum. - Sjálfsagt var þetta alveg geggj- að uppátæki, en ég þorði ekki að biðja Jenny að giftast mér, svo að mér datt í hug, að þetta sýndi hvað ég er hrifinn af henni. Riddarar í gamla daga voru vanir að kippa elskunum sínum upp á reiðskjótana til. sín! Richard var sektaður um 6000 kr. fyrir tiltækið, en þegar allt kom til alls hlaut hann nokkra umbun fyrir fifldirfsku sína. Jenny bauðst til að taka þátt í að borga sektina með honum og féllst á að giftast honum. flókinn. Ég get nefnt fjölrása upptökutæki, tveggja rása upp- tökutæki, fullkomna hljóðbland- ara, hljóðnema, tæki til að mynda leikhljóð, svonefnda synthesizera, og ýmislegt fleira.“ Fyrst og fremst snjalla menn „Þó að mikilvægt sé að hafa góðan tækjakost er enn mikil- vægara að hafa góðan mannskap, sem kann til verka í súdíói, við textagerð við tónlist og annað sem þessu tengist. Hjá Útvarpsauglýsingum munu starfa margir kunnir menn, hver á sínu sviði. Ég get nefnt Ólaf Gauk, tónlistarmann, sem um þriggja ára skeið hefur verið í Bandaríkjunum að læra gerð leikinna augýsinga, Magnús Kjartansson, tónlistarmann, Hermann Gunnarsson, út- varpsmann, Helga Sæmundsson, rithöfund. Svo munum við njóta aðstoðar fjölda lausamanna." - Nú er ekki alveg ljóst hve- nær farið verður af stað með Rás tvö? „Það hefur nú verið talað um • miðjan nóvember og ég býst við að það standist. Hins vegar er því ekki að neita að við stökkv- um svolítið út í myrkrið því ég veit ekki til að ákveðið hafi verið hvað það muni kosta að senda út auglýsingar á rásinni, ekki held- ur hvert hlutfall auglýsinga í útsendingum verður." -Ert þú hættur afskiptum af stjómmálum? „Nei, menn hætta aldrei í pólitík. Ekki menn á besta aldri. Framtíðin mun hins vegar skera úr um það hvort ég fer aftur í framboð til Alþingis. Mér finnst mjög spennandi að fást við það sem ég er.að gera núna og ég hef hug á að takast á við fleiri verkefni sem ekki tengjast stjórnmálum. En pólitík er bakt- ería og það er spurning hvort það sem ég er að fást við núna virkar eins og penselín á þessa bakteríu, þannig að ég losni við hana“. Loks sagði Árni, að í næstu viku yrði fyrsta auglýsing Út- varpsauglýsinga gerð í stúdíói. Upptakan fer fram í Stemmu, stúdíói Sigurðar Jónssonar við Laufásveg, en Útvarpsauglýsing- ar sf. em með skrifstofu í „Karp- húsinu" svonefnda við Borgar- tún. -Sjó ■ Andstaðan gegn Marcosi forseta Filippseyja fer vaxandi með degi hverjum. Stjórnar- andstæðingar og trúarhópar hafa sameinast gegn honum og við liggur að styrjaldarástand ríki í landinu. Eftir morðið á Aquino, sem var leiðtogi stjórnarand- stöðunnar og var myrtur er hann kom til heimalands síns eftir þriggja ára útlegð í Bandaríkjun- um, var eins og öll öfl andstæð stjórninni leystust úr læðingi og uppþot og óeirðir eru nú daglegt brauð á Filippseyjum. Marcos og Ismelda kona hans ■ Lögregla sýnir óeirðaseggjum enga miskunn. Filippseyjar á barmi borgarastyrjaldar ■ Marcos og Reagan ræddust síðast við í Washington í fyrra. styðjast við öflugan her og hefur forsetinn látið í það skína að hann sé reiðubúinn til að beita heraflanum til að lægja ófriðar- öldurnar í landinu. Ráðgert var að Reagan Bandaríkjaforseti færi í opin- bera heimsókn til Filippseyja í næsta mánuði, en hefur nú ákveðið að fresta för sinni. Ekki þykir stætt á því að forsetinn lýsi yfir stuðningi sínum við Marcos og stjórn hans eftir morðið á foringja stjórnarandstöðunnar og þeirrar ókyrrðar sem nú ríkir í landinu. Þetta er mikill hnekkir fyrir Marcos, en hann hefur átt stuðning Bandaríkjamanna vís- an og hefur verið dátt með honum og Reagan, og reyndar hefur Marcos átt vingott við marga Bandaríkjaforseta. Leiðtogar stjórnarandstöð- unnar á Filippseyjum höfðu áður lagt fast að Reagan að hætta við för sína og lýsa þannig andúð sinni á stjórnarfari Marcosar. Vitað er að William P. Clark, ráðgjafi forsetans í öryggismál- um og náinn samstarfsmaður og George P. Schultz utanríkisráð- herra voru því mjög fylgjandi að Reagan héldi við þá ákvörðun að fara í heimsóknina og margir málsmetandi menn í Bandaríkj- unum hafa vítt forsetann fyrir að hætta við förina. Hin opinbera skýring á því að forsetinn hætti við ferðalagið er, að hann sé svo upptekinn heima fyrir að ekki geti orðið af Asíuför að sinni. En í leiðinni ætlaði Reagan einnig að heimsækja Indónesíu og Thailand. En það liggur í augum uppi að þetta er aðeins fyrirsláttur. Stjórnir síð- astnefndu ríkjanna taka ekki illa upp þótt Reagan fresti heimsókn þangað, þar sem vitað er að það er eingöngu vegna ástandsins á Filippseyjum sem hann hættir við ferðalagið. Þessi ákvörðun Bandaríkja- forseta er mikill sigur fyrir and- stæðinga Marcosar. enda sýnir hún glöggt að veldi hans er á fallanda fæti. En mæða einræðisherrans og konu hans, sem er atkvæðamikil í stjórnmálum og fjármálalífi landsins ekki síður. ríður ekki við einteyming. Kaþólska kirkj- an er styrk á Filippseyjum og studdi Marcos framan af, en er fyrir löngu farin að láta í sér heyra og hefur gagnrýnt einræð- ishneigðir Marcosarhjónanna og ofsóknir á hendur pólitískum andstæðingum. Og nú hefur kirkjan lagst gegn þeim af fullum þunga. í síðustu viku lagði erki- biskupinn í Manila til að þingið, kirkjan og leiðtogar stjórnar- andstöðunnar tækju höndum saman til að koma á lýðræðis- legum kosningum og endurreisa lýðræðið í landinu. Hann sagði, að núverandi ástand leiddi ekki til annars en blóðugrar borgara- styrjaldar. Marcos brást hinn versti við og sagðist mundi beita valdi sínu til að halda uppi lögum og reglu í landinu ef fara ætti að stofna til samsæris gegn sér. Síðar boðaði hann að lögleidd yrði dauðarefs- ' ing og yrði þeim hegnt sem ógnuðu öryggi ríkisins. Hann hefur einnig látið að því liggja að herlög yrðu sett, en andstæðing- ar hans segja, að það sé aðeins tímaspursmál hvenær þau gangi í gildi, og hafi verið meiningin að setja herlög og beita andstæð- inga fullri hörku eftir heimsókn Reagans. Einn er sá fjandi, sem hvorki her eða herlög fá ráðið við, sem plagar Marcos, en það er síhrak- andi efnahagur. I kjölfar óeirð-j anna hefur mikill fjármagnsflótti) gripið um sig frá Filippseyjum og; rúmlega 20% gengisfelling, sem; gerð var fyrr í vikunni, er ör- væntingartilraun til að rétta af ískyggilegan viðskiptahalla. Er- lendar skuldir eru yfir 18 millj- arðar dollara, sem kemur í veg fyrir að hægt sé að slá meiri lán og lagfæra efnahaginn. Allir hófsamir leiðtogar og kirkjan vara við því, að ef heldur sem horfir leiði það ekki til annars en byltingar. Múslimar og kommúnistar hafa árum sam- an haldið uppi skæruhernaði á einstökum eyjum og stefna opin- skátt að því að ná völdunum með byltingu. Ef Marcos herðir enn tökin og fer að beita hinum öfluga hergegn öllum þeim, sem honum eru ekki að skapi, er borgarastyrjöld yfirvofandi. Það vilja hin hófsamari öfl koma í veg fyrir og reyna því að koma vitinu fyrir Marcos og konu hans, sem sýnist hálfu herskárri. Filippseyjar eru sterkasta vígi Bandaríkjanna í Suð-austur- Asíu. Þar hafa þeir miklar flota- hafnir og flugvelli. Marcos hefur ávallt verið mikill stuðningsmað- ur þeirra og gagnkvæmt. Reagan var því mikill vandi á höndum þegar hann stóð frammi fyrir því hvort hann ætti að fara til Filipps- eyja eða fresta förinni. Ismelda Marcos sagði, áður en ákvörðun- in var tekin, að ef Bandaríkja- forseti kæmi ekki yrði það vatn á myllu andstæðinganna, efna- hagur landsins myndi hrynja og kommúnistar ná völdunum. Nú reynir á hversu sannspá frúin var. Málið er hreint ekki svo einfalt að kommúnistar séu einu andstæðingar Marcosar, og óhætt mun að slá föstu að þeir eru í miklum minnihluta í borg- unum og stærstu eyjunum. En þeír eru herskáir og háværir eins og annars staðar. Minna má á, að Benigno Aqujno, sem ótvírætt var sá leiðtogi stjórnarandstöðunnar sem naut mest fylgis, var ákveð- inn andstæðingur kommúnista og svo er um flesta aðra hinna hófsamari leiðtoga, og ekki verð- ur kaþólska kirkjan sökuð um vinstrivillu. En Marcos virðist staðráðinn í að halda völdum eins lengi og stætt cr, hvað sem síðar kann að verða. Oddur Ólafsson skrifar

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.