Tíminn - 08.10.1983, Page 20

Tíminn - 08.10.1983, Page 20
Opiö virka daga 9-19 Laugardaga 10- V6 H HEDD Skemmuvegi ?C Kopavogi Simar (91)7 75 51 & 7 80 30 Varahlutir Mikið úrval Sendum um land allt Ábyrgð á öllu Kaupum nýlega bíla til niðurrifs SAMVINNU TRYGGINGAR 8c ANDVAKA. ARMULA3 SIMI 81411 abriel y HÖGGDEYFAR QJvarahlutir .SSSS Hamarshöfða 1 ^TTOÍTOl Ritstjorn 86300- Augiysingar 18300- Afgreiðsla og askríft 86300 - Kvoldsimar 86387 og 86306 Laugardagur 8. október 1983 Starfar Islenska hljómsveitin í vetur? F BEÐIÐ ER SVARS STJORN- VALDA UM FJARVEITINGU LioriS' menn blód- ■ „Ef Uinlistiiriinnendur sýna okkur þann stuðning að sækja um áskril't á tónleika okkar, - ef 400 áskrifendur fást á tónleika okkar, þá er búið að sýna slíkan velvilja í okkar garð í verki, að stjómvöld geta ekki horft framhjá því,“ sagði Guðmundur Emilsson, formaður stjórnar ís- lensku hljómsveitarinnar á fundi með fréttamönnum, þar sem stjórn hljómsveitarinnar gerði grein fyrir þeirri stöðu sem hljómsveitin er nú í, þegar hún þarf að gera það upp við sig, hvort hún getur hafið annað starfsár sitt. Aðrir stjórnarmenn á fundinum voru Sigurður I. Snorrason, Ásgeir Sigurgcstsson og Þorsteinn Hannesson. „Ef við fáum einhverjar yfir- lýsingar frá opinberum aðilum um stuðning eða styrk, og ef við náum 400 áskrifendum," sagði Guðmundur. „þá er það engin spurning - við hefjum annað starfsárið, enda tilbúnir með þessa stórglæsilegu vetrardag- skrá. Á fundinum kom fram að (slcnska hljómsveitin fer nú fram á það við stjórnvöld að hún fái 800 þúsund króna styrk til þess að geta rekið starfsemi sína á samkeppnishæfum grundvelli við Sinfóníuhljómsveit Islands. Var ekki að heyra á ráða- mönnum hljómsveitarinnar að þeir væru bjartsýnir, því þeir sögðu að málið væri nú í höndum Alberts Guömundssonar fjár- málaráðherra, sem hefði heldur tekið dræmt í crindi þeirra. „Ef við leggjum árar í bát,“ sagði Guðmundur, „þá verður ekkert úr flutningi þessa glæsi- lega prógramms, þá verður ekk- ert úr því að við leikum á Myrkum músíkdögum í Reykja- vík, eða förum í boðsferðir þær til nágrannalandanna sem nú er vcrið að skipuleggja af opinber- um erlcndum aðilum." Tóku stjórnarmenn Islensku hljómsveitarinnar það mjög skýrt fram að með því að fara fram á þennan ríkisstyrk væru þeir engan veginn að vega að eða grafa undan starfsemi Sinfóníu- hljómsveitarinnar. Þeir vildu einungis að hljóm- sveitin sem þegar hefði sannað tilverurétt sinn fengi réttlátan stuðning hins opinbera. Á fundinum kom fram að áskrifendur að tónleikum hljóm- sveitarinnar í fyrra voru rúmlcga 400. Alls komu fram á tónleikum hljómsvcitarinnar á þessu fyrsta starfsári hennar rúmlega 60 manns og í samræmi við upphaf- legt markmið hljómsveitarinnar þá voru hljóðfæraleikurum greidd full laun samkvæmt launataxta. Greindu stjórnarmenn frá því að af viðbrögðum opinberra að- ila myndi það ráðast hvort (s- lenska hljómsveitin hefur uú annað starfsár sitt. Sögðu þeirað tilkynnt myndi verða um ákvörð- un þann 5. nóvember og hvöttu þá sem hefðu hug á að gerast áskrifendur að tilkynna slíkt á skrifstofuna fyrir 28. þessa mán- aðar í síma 22035. - AB Albert Gudmundsson, fjármálaráðherra: „Veiti ekki styrki komist ég hjá þvf’ ■ „Ef ég kemst hjá þvi að vcita styrki í hvað sem er, þá gerí ég það ekki,“ sagði Albert Guðmundsson ijármálaráð- herra þegar Timinn sneri sér til hans í gær, og spurði hann hvernig hann hygðist afgreiða eríndi íslensku hljómsveitar- innar, scm farið hefur fram á 800 þúsund króna fjárveitingu fyrir vetrarstarfið í ár. „Ástandið er þannig að það þýðir ekkert að tala um að iifa í lúxus áfram," sagði Albert, „og ég mun ekki mæla með því að bæta nýjum aðilum á styrkj- arlista ríkisins. Fólk verður að stóla á sjálft sig og sinn eigin samtakamátt og fara að iæra að haga sínum umsvifum nokk- urn veginn í samræmi við eigin !etu. Neyðin á cftir að kenna slendingum að sníða sér stakk eftir vcxti. og hætta að lifa sem kröfugerðarþjóðfélag.“ Það er þvf harla ólíklcgt, miðað við þessar undirtcktir fjármálaráð- herra að Islenska hljómsveitin fái nokkra fjárhagsaðstoð á fjárlögum þeim sem líta dags- ins Ijós næstu daga. - AB ■ Geir Hallgrímsson, utanríkisráðherra, tekur fýrstu skóflustunguna að nýrri flugstöðvarbyggingu. Tímamynd Ami Sæberg Nýja flugstödin: ■ Afmælishátíð Lionsmanna er um þessa helgi, og i Reykja- vík og Kópavogi hyggjast hinir ýmsu Lionsklúbbar halda upp á afmælið með ailsérstæðum hætti, þvi að frumvkæði fé- Tagsmanna ■ Lionsklúbbnum Fjölni þá gangast Idúbbarair fyrír því að félagar mæti á Lionshúsinu í Sigtúni 9 á tíma- bilinu 10 til kl. 4 í dag og gefi blóð, en starfsfólk Blóðbank- ans verður á staðnum, enda citthvað á annað hundrað Lionsmanna bónir að undirríta blóðgjafarloforð. Ólafur Briem formaður Lionsklóbbsins Fjölnir sagði í samtali við Tímann í gær, að þeir í Fjölni hefðu fengið þessa hugmynd að gefa blóð í dag, en þegar þeir hefðu farið að ræða málið sín á milli, þá hefðu þeir komist að þeirri niðurstöðu að heldur yrðu nó blóðgjafirnar fáar, ef þær ein- skorðuðust við félagsmenn Fjölnis, því Blóðbankinn þarf á 250 biódgjöfum að halda á viku. Því hefði verið haft sam- band ið stjórnir allra Lions- klúbba í Reykjavík og Kópa- vogi, og þar sem svo vel hefði verið tekið í þessa hugmynd, þá hefði verið ákveðið að ráð- ast í þessa fjöldablóðgjöf. -AB Geir tók skóflustunguna ■ Geir Hallgrímsson, utanrík- isráðherra, tók fyrstu skóflu- stunguna að nýrri flugstöðvar- byggingu við KeflavíkurflugvöU í gær, en sem kunnugt er hefur verktakafyrírtækið Hagvirki tek- ið að sér að annast fyrsta verk- hluta við smíði stöðvarínnar. „Með þessu fyrsta skerfi er lagður grundvöllur að verulegum umbótum á sviði íslenskra flug- mála og samgöngumála almennt," sagði Geir Hallgríms- son m.a. í ræðu, sem hann flutti við athöfnina. Geir rakti aðdrag- anda byggingarinnar og nefndi meðal annars að stöðin hefði verið minnkuð þrisvar frá fyrstu hönnun. Árið 1978 hefði viðmið- unarkostnaður verið 45 milljónir bandaríkjadala, en nú væri hann 42 milljónir, þrátt fyrir verð- bólgu í Bandaríkjunum á þessu tímabili. „Þegar rætt er um kostnað flugstöðvar er ekki úr vegi að benda á þá athyglisverðu stað- reynd, að netto hagnaður Frí- hafnarinnar á síðastliðnu ári 3,2 milljónir bandaríkjadala sem skilað var í ríkissjóð, myndi, miðað við svipaða árlega upphæð, nægja til að greiða afborganir og vexti af nauðsyn- legri lántöku íslands vegna bygg- ingarinnar, að upphæð 22 mili- jónir króna“ sagði Geir. -Sjó dropar Reagan varp- ar nýju Ijósi á söguna ■ Reagan Bandaríkjaforseti hefur lýst yfir að 9. október sé „Dagur Leifs Eiríkssonar“ og er það gjört til heiðurs hinum norræna sægarpa sem kannaði strendur Norður Ameríku, að' því er segir í fregn frá Menning- arstofnun Bandaríkjanna, og jafnframt fylgir texti yfirlýsing- ar forsetans, sem við megum til með að drjúpa að einhverju leyti, þar sem nýju Ijósi cr varpað á söguna: „Leifur Ei- ríksson, sem var sendur af Ólafi Noregskonungi hinum fyrsta til þess að boða kristna trú á meðal frumbyggja á Grænlandi er einnig útvörður hinna norrænu hefða sem göfg- að hafa hinn vestræna heim... Til vitnis hér um hefi ég sett undirskrift mína þennan fimm- tánda dag scptember mánaðar, ár vor Guðs nítjánhundruð og áttatíu og þrjú, hið tvöhundr- uðasta og áttunda frá því að Bandaríkin öðluðust sjálf- stæði.“ Veikindafrí skólastjórans ■ Einn þeirra furðufugla sem sjálfstæöisrncnn í Reykjavík hafa dubbað upp til æðstu metorða innan flokksins er Ragnar Júlíusson. Um árabil hefur hann verið nefndarkóng- ur í borgarkerfinu og jafnvel þjóðarinnar allrar. Á tímabili gegndi hann þannig for- mcnnsku í fimm nefndum og ráðum, auk þess að sitja í borgarstjórn, stundum borg- arráði, að ógleymdu starfi skólastjóra við einn grunn- skóla borgarinnar í hjáverkum. Til að drýgja tckjurnar enn frekar skrapp hann sem háseti á einum af togurum BÚR til Þýskalands eins og frægt varð. Dropar hafa lengi undrast hvað sumir menn geta komið í verk, og þó haft glöggt auga með því ef aðrir misstíga sig. Nú hefur Dropum verið tjáð að nefndarstörfin hafi lagst svo þungt á Ragnar að hann hafi orðið að biðja flokkssystur sína frú Ragnhildi Helgadóttur menntamálaráðherra um veik- indafrí frá starfi skólastjóra, væntanlcga á fullum launum eins og lög gera ráð fyrir. Ætla mætti að Ragnar notaði þetta gullna tækifæri til að hvflast og safna kröftum. Helst virðist þó að fríið sé notað til annars en hvfldar. Undanfarna mánuði hefur Ragnar sem formaður Útgerð- arráðs gengið hart fram í því að reka báða forstjóra BÚR. Þá vakti hann eftirminnilega at- hygli á sér á síðasta fundi borgarstjórnar, þegar hann lýsti því yfir að núverandi fræöslustjóri hefðl sýnl van- ræksiu í starfi. Ekki fylgdi þessari yfirlýsingu neinn rök- stuðningur, enda vakti hann upp með ummælum sínum ekki færri en fjórar valkyrjur í hópi borgarfulltrúa sem komu kynsystur sinni, Áslaugu Brynjólfsdóttur fræðslustjóra, til varnar og aöstoðar. Var svo hart sótt að Ragnarí að hann hélst ekki við í sæti sínu og hrökklaðist fram í dyr þegar aðsóknin var hvað hörðust. Dropar geta ekki annað en vonað að Ragnar nái sér hið fyrsta, þar sem umsóknarfrest- ur um stöðu forstjóra BÚR er að renna út um þessar mundir, og því ærinn starfi framundan á þeim vettvangi fvrir stjóra- arformanninn. Krummi . . . Beðið eftir Berta! IHHHHHHHHHHHSHBB

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.