Tíminn - 10.11.1983, Page 2
FIMMTUDAGUR 10. NÓVEMBER 1983
(Tímamynd: Árni Sæberb)
■ TF-RÁN þyrla Landhelgisgæsl-
unnar, sem fórst með Ijórum mönnum í
mynni Veiðileysufjaröar, reyndist mjög
vel síðan hún var keypt til landsins nv
árið 1980, en hún var skrásett hérlendis
það ár, þann 22, ágúst.
Þyrlan var af Sikorsky S-76 gerð og á
þeim tíma sem liðin er frá komu hennar
fór hún í 27 sjúkraflug með 28 sjúklinga,
þar af voru fimm sjúklingar sóttir uin
borð í skip. Þá fór hún alls í 23 leitarflug
en þeir sem flugu henni hafa hrósað henni
fyrir góða flugeiginleika við erfiðar að-
stæður.
Þyrlan var notuð við ýmis hættuleg
björgunarverkefni og með henni tókst
að bjarga fjölda n annslífa; á þessum 4
árum fór hún í fimm björgunarflug og
bjargaði alls 11 manns. Hið nýjasta
þeirra varbjörgun mannanna af bátnum
Haferninum. sein fórst við Breiðafjarð-
areyjar.
TF-RÁN gat tekið 12 farþega, vó
fullhlaðin 4,5 tonn og tvo þurfti til að
fljúga henni.
- FRI ■ Rán kemur með skipbrotsmenn af Haferninum til Stykkishólmsflugvallar.
■ Þyrla Landhelgisgæsl-
unnar TR-RÁN fórst
skömmu fyrir kl. 23 í fyrra-
kvöld skammt frá fjallinu
Kvíum austan til í mynni
Veiðileysufjarðar á Vest-
fjörðum. Ekkert er vitað
um orsakir þessa slyss, en
tildrög þess eru, að þyrlan
var í æfingum og fór í loftið
af varðskipinu Oðinn sem
þarna var statt um kl.
22.53.
„Þyrlan fór eðlilega í loftið og var
skipinu þá lagt til fyrir vind upp á
endurkomu. Skömmu síðar heyrðist
ógreinlegt kall frá þyrlunni og skipstjóri
Óðins sá um leið ljós eins og af lending-
arljósi þar sem þyrlan átti að vera en hún
svaraði hinsvegar ekki kalli skipsins"
sagði GuðmundurKjærnested skipherra
hjá Landhelgisgæslunni í samtali við
Tímann er við báðum hann að lýsa
atburðum.
„Þá var strax gert klárt til að setja út
gúmmibáta og varðskipið sigldi af stað í
áttina að þessum stað við mynni Veiði-
leysufjarðar. Um leið kölluðu þeir út til
báta í Djúpinu og báðu um aðstoð auk
þess sem samband var haft við björgun-
arsveitir í landi. Báturinn Orri kom
fyrstur á slysstað um kl. 24.30 og 40
mínútum síðar fannst fyrsta brakið en
það var brot úr þyrluspaða og hjólabún-
aði .fjögur björgunarvesti og sjúkra-
kassi“ sagði Guðmundur.
..-
jaabjV' jjvjj, ..
r///í0^Z"-
.,•
■-*,?%?*****>&■ ..
■ Þyrla frá danska eftiiiitsskipinu Vædderen leitaði á slysstað á Jökulfjörðum í gær. Varðskipið Óðinn er til vinstri á myndinni. Tímamynd Ámi Sæberg
Heyrdu ógreinilegt kall frá þyrlunni - en fengu síðan ekkert svar:
HAFA FIINMB BROT ÚR SPABANUM,
BJðRGUNARVESH 0G SIÚKRAKASSA
— ekkert liggur enn fyrir um orsakir slyssins
Hjá honum kom ennfremur fram að
18 manns leituðu fjörur um nóttina auk
um 20 skipa á þessum slóðum en síðan
komu fleiri björgunar- og leitarmenn
auk þess sem hin þyrla Landhelgisgæsl-
unnar og þyrla af danska varðskipinu
Vædderen tóku þátt í leitinni í dag. „Við
höfum þrautleitað þetta svæði en ekkert
fundið frekar" sagði Guðmundur.
„Við höfum staðarákvörðun á brakinu
og eru sérfræðingar frá Varnarliðinu í
Kcflavík nú komnir á staðinn með
sérstök tæki sem geta numið merki frá
neyðarsendinum í þyrlunni og eru þeir
þegar byrjaðir leit“ sagði hann en þar
sem brakið liggur er mjög mikið dýpi,
60-70 m.
Guðmundur sagði að þeir hefðu enga
hugmynd um orsakir þessa slyss.
TF-RÁN lagði upp frá Reykjavík um
kl. 3 á þriðjudag og leituðu þeir strönd-
ina hér fyrir utan vegna Sandeyjarslyss-
ins. Síðan var haldið til ísafjarðar og þar
tekið bensín og þaðan flogið út í
varðskipið. Ætlunin var að taka þar
nokkrar æfingar, lenda á skipinu í
myrkri og hífa menn frá borði en fara
síðan í gæsluflug. Sæmilegt veður var á
þessunt slóðum en gekk á með eljum.
Síðan var ætlunin að koma við á
Galtarvita í gærmorgun með vistir og
halda svo aftur í bæinn og átti þyrlan að
vera komin til Reykjavíkur id. 2. í
gærdag.
Leitað áfram í nótt
Síðustu fréttir af leitarsvæðinu voru
þær að Orri kom til Isafjarðar laust eftir
miðnættið með sjónvarpsmyndavél frá
Netagerð ísafjarðar sem leitað hafði
verið með á svæðinu frá hádegi. Að sögn
Guðmundar Sveinssonar netargerðar-
manns hafði verið leitað með henni á
öllu svæðinu frá Kvíum til enda Kvíar-
núps en aðstæður voru slæmar vegna
■ Á þessu korti, sem nær yfir
ísafjarðardjúpog Jökulfirði er stað-
urinn sem brak úr þyrlunni og þar
sem aðallega var leitað, merktur
með krossi.
lítils skyggnis og mikils sjávarlífs. Það
voru Einar Hreinsson tæknimaður og
Magni Guðmundsson sem stjórnuðu
myndavélinni. Bandarísku varnarliðs-
mennirnir ætluðu að leita áfram með
sónartækjunum að hljóðmerkjum úr
neyðarsendinum í nótt, ásamt varðskips-
mönnum. _ frj
■ TF-RAN tókeldsneytiáísafjarð-
arflugvelli á leið sinni frá Reykjavik
i Jökulfirði. Sýni voru tekin úr elds-
neytinu í gærdag ef eldsneytið gæti
varpað einhverju Ijósi á orsakir
slyssins. Tímamynd Árni Sæberg
TF-RÁN hafði reynst vel:
Bjargaði 11
mönnum í 5
björgunarflugum