Tíminn - 10.11.1983, Qupperneq 3
FIMMTUDAGUR 10. NÓVEMBER 1983
_____3
fréttir
■ Björgunarsveitarmennfráisafirði, Hnífsdal og Bolungarvík auk hjálpar-
sveitar skáta á ísafirði leituðu á svæðinu, bæði i landi og á sjó, frá miðnætti
til kl. 15.00 í gær. Hér sjást þeir koma að landi á Ísafirði eftir að þeir höfðu
hætt leit. Tímamynd Ámi Sæberg
Sigurjón Hannesson ásamt Rosasco flugmanni á ísafjarðarflugvelli
Tímamynd Arni Sæberg
FLUGUM MEDFRAM FJÖR-
UNUM í IHT AD BRAM'
ff
\ff
sagði Joa Rosasco, flugmaður
á dönsku þyrlunni frá
varðskipinu Vædderen
■ „Við flugum meðfram ljörunum í
grennd við slysstaðinn og leituðum að
braki úr þyrlunni“ sagði Joa Rosasco
annar flugmanna dönsku þyrlunnar frá
varðskipinu Vædderen í samtali við
Tímann en varðskipið er nú statt í
Reykjavíkurhöfn og léðu þeir þyrlu sín
til leitarinnar að TF-RÁN á Vestfjörð-
um.
f máli Rosasco kom fram að þeir hefðu
ekkert fundið en auk þess að leita braki
voru þeir öðrum leitairog björgunar-
mönnum innan handar í ýmsu. Hann
vildi ekkert segja um hugsanlegar ástæð-
ur þess að TF-RÁN fórst á þessum stað.
Þyrlan fór úr Reykjavíkurhöfn um 10
leytið í gærmörgun og með í förinni var
einn Islendingur, Sigurjón Hannesson.
Hann vildi ekkert tjá sig um þetta mál.
- FRI
Varnarliðið sendi hóp kafara
á slysstað TF-RÁN:
f
I!
■ Jósep Vernharðsson flokkstjóri
björgunarsveitarinnar í Hnífsdal.
Timamynd Árni Sæberg
■ Varnarliðið á Kcflavíkurflugvclli
sendi hóp sérþjálfaðra kafara til Vest-
fjarða, á slysstað þyrlunnar TF-RÁN.
Fóru þeir þangað skömmu eftir hádegið
með Fokker-vél Landhelgisgæslunnar.
Að sögn Bill Clyde upplýsingafulltrúa
varnarliðsins höfðu þeir með sér tæki til
að finna hinn svokallaða svarta kassa
þyrlunnar en talið er að hún liggi á miklu
dýpi í mynni Veiðileysufjarðar.
Clyde sagði í samtali við Tímann að
vamarliðið hefði strax sent á staðinn
stóra 4urra hreyfla AC-130 aðstoðarvél
og að þyrla þeirra hefði verið sett í
viðbragðsstöðu í fyrrinótt.
„Ég talaði við flugmennina í morgun
og sögðu þeir að svo mikið skýjaþykkni
hefði verið yfir staðnum að þeir hefðu
ekki séð neitt og lá það svo lágt að þeir
komust ekki undir það. Þegar þyrlan átti
svo að leggja af stað fannst brakið úr
TF-RÁN og því ekki talið nauðsynlegt
að senda hana á staðinn". sagði hann.
-FRI
■ Kafarar frá Vamarliðinu á Keflavikurfiugvelli fóru vestur í gær með
sónartæki til að reyna að greina hljóðmerki frá neyðarsendi TF-RÁN. Á
myndinni sjást kafararnir við Sundahöfn á ísafirði að flytja útbúnað sinn i
lóðsbátinn sem síðan fór með þá á slysstað. Tímamynd Ámi Sæberg
TtiKU MED TÆKIHL
AD MKM ÍT FLAKID
Gengnar
fjörur
en án
árangurs
— rætt vid
Jósep Vern-
harðsson,
Hnífsdal
■ „Við gerðum fyrst breiðleit á svæð-
inu og fórunt siðan í land við Kvíar og
gengum fjörur á iíklegu svæði til um kl.
6.00 um morguninn en ekkert fannst“
sagði Jósep Vemharðsson flokkstjóri
björgunarsveitar Slysavarnarfélagsins í
Hnífsdal í samtali við Tímann þegar
björgunarsveitarmenn komu til ísafjarð-
ar í gærdag.
„Það var hringt í mig um kl. 23.40 á
þriðjudagskvöld og ég hafði strax sam-
band við lögreglu og björgunarsveitir í
kring. Þá var nær allur rækjuflotinn
kallaður út og aðrir tiltækir bátar. Bát-
arnir voru síðan komnir á svæðið milli
kl. 1.00 og 1.30“
Þegar við höfðum leitað af okkur allan
grun á landi fórum við aftur um borð í
bátana og vorum á róli um svæðið og
útkíkki í morgun og dag. Það voru alls
30 björgunarsveitarmenn sem fóru á
svæðið en 19 sem leituðu í landi" sagði
Jósep en björgunarsveitarmenn gengu í
land á ísafirði um kl. 15.20 í gærdag.
GSH
Hrakfalla-
saga þyrlu-
flugs á íslandi:
■ Saga þyrluflugs á íslandi undanfarin
9 ár er öðrum þræði nokkuð samfelld
hrakfallasaga en á þessum tíma hafa
orðið hérlendis 9 þyrluslys eða að meðal-
tali 1 á hverju ári og alls hafa 13 manns
faríst í þessum slysum.
TF-RÁN er níunda slysið sem verður
á þessu tímabili en hið fyrsta þeirra varð
17. jan. 1975 er af Sikorsky-gerð, eign
Þyrluflugs hf. hrapaði til jarðar á Kjarl-
arnesi en með henni fórust 7 menn. Var
hún á leið upp á Snæfellsnes með 5
starfsmenn RARIK auk tveggja flug-
manna.
TF-GNÁ þyrla Landhelgisgæslunnar
hrapaði til jarðar í Skálafelli 3. okt.
þetta sama ár er hún var að flytja
Ijósastaura. Það var talið að snarræði
flugmannsins Björns Jónssonar hafi
Níu íslenskar þyrlur
f slysum á níu árum
bjargað lífi þeirra tveggja sem um borð
voru en hann er einn af þeim sem er
saknað af TF-RÁN.
Fjórum dögum fyrir þetta slys hafði
lítiili þyrlu TF-DLV hlekkst á við Fá-
skrúðsfjörð.
Árið 1977 voru tvö þyrluslys, TF-
AGN við Bláfjöll norðan Mýrdalsjökuls.
Mennirnir tveir sem voru í henni fundust
í 10 km og 12 km. fjarlægð frá slysstað
og höfðu orðið þar úti eftir slysið.
Árið eftir, 1978, varð eitt þyrluslys er
Andri Heiðberg varð að nauðlenda þyrlu
sinni 30. júlí í Álftakrók við Norðlinga-
fljót skammt norðann Eiríksjökuls.
Andri slasaðist talsvert og þyrlan
skemmdist mikið en hann var að sækja
þarna landmælingamann sem sá slysið
■ TF-GNÁ þyrla LHG hrapaði við Skálfell í okt. 1975.
og gekk til byggða en þeir voru það langt
frá alfaraleið að ekki var vitað um slysið
fyrr en 2 sólarhringum síðar.
Þriðja þyrla Landhelgisgæslunnar sem
fórst á þessum tímabili var TF-GRÓ
árið 1980 er hún var í flugtaki við
Búrfell. Flæktist stél hennar í rafmangs-
vír og steyptist hún til jarðar og brotnaði
mjög mikið. Flugmaðurinn slapp ó-
meiddur en farþegi hans slasaðist
nokkuð. f fyrra hrapaði svo þyrlan
TF-ATH við sjónvarpshúsið hér í
Reykjavík en um borð voru þrír menn,
tveir sjónvarpsmenn auk flugmanns.
Sluppu þeir allir ómeiddir ern þyrlan
stórskemmdist.
Níunda slysið var svo TF-RÁN í
fyrrakvöld.
- FRl