Tíminn - 10.11.1983, Page 5
FIMMTUDAGUR 10. NÓVEMBER 1983
fréttir
Hjöðnun verðbólgu bætir fjárhag sveitarfélaga en
þyngir skattbyrði einstaklinganna:
LÆKKA SVEITARFÉLÖG
llTSVARIÐ NÆSTA AR?
■ Hvað þýðir það fvrir fjárhag sveitar-
félaganna ef áætlanir um lækkandi verð-
bólgu á næsta ári standast? Það liggur í
auguin uppi að raunvirði þeirra tekna
sem sveitarfélögin afla sér með innheimtu
úrsvars hækkar og að sama skapi hækkar
skattbyrði einstaklinganna. Þegar haft
er í huga að útsvar er lagt á miðað við
tekjur fyrra árs er Ijóst að með minnk-
andi verðbólgu hækkar útsvarið að raun-
virði, miðað við sama innheimtuhlut-
fall. Hvernig hyggjast sveitarfélögin
bregaðst við þessu í fjárhagsáætlunum
sínum fyrir næsta ár? Það verður m.a. til
umræðu ráðstefnu Sambands íslenskra
sveitarfélaga um fjármál sveitarfétag-
anna sem fram fer á Hótel Sögu í dag.
Framkvæmdastjóri sambandsins,
Magnús E. Guðjónsson sagði á samtali
við blaðið í gærkvöldi, að hafa yrði í
huga að fjármál sveitarfélaganna stæðu
yfirleitt illa á þessu ári. Útgjöld þeirra
hefðu yfirleitt farið langt fram úr áætlun
meðantekjurhefðuskilaðsérsamkvæmt
áætlun. Einhvern veginn yrðu sveitarfé-
lögin að bæta sér þetta upp, sum hefðu
orðið að taka á sig þunga byrði
skammtímalána. Sum gætu því ef til vill
lækkað innheimtuhlutfall útsvara en
önnur ekki. Hann kvaðst ekki geta nefnt
nein dæmi um hvað lækkandi verðbólga
þýddi fyrir sveitarfélögin almennt, en
benti á á móti að t.d. Reykjavík myndi
væntanlega fara út úr árinu með um 400
milljón króna halla.
„Það er alveg ljóst að Reykjavíkur-
borg þarf á öllum þeim tekjum að halda
sem hún getur aflað á næsta ári," sagði
Eggert Jónsson borgarhagfræðingur,
þegar þessi mál voru borin undir hann.
-JGK
Nokkrir bátar
búnir að fá slatta af
loðnu:
Engu verið
landað enn
■ „Síðast þegar ég frétti voru nokkrir
bátar búnir að fá slatta, frá 150 upp í
300 tonn og það fékkst allt snemma í
morgun," sagði Árni Sörenson, fram-
kvæmdastjóri Síldarvcrksmiðja ríkis-
ins á Raufarhöfn, þcgar Tíminn inriti
hann frétta af loðnuveiðum í gær-
kvöldi. Árni kvaðst ekki búast við að
loðnu yrði landað fyrr en í fyrsta lagi í
dag. Bátarnir, sem nú eru urn 20 á sjó,
eru flestir djúpt úti af Langanesi og
munu þcir eiga nokkurra klukku-
stunda siglingu í land eftir að þeir hafa
fyllt sig. Raufarhöín er sú löndunar-
stöð sem næst cr miðunum og því má
búast við að fyrstu loðnunni á þessari
vcrtíð verði landað þar.
-Sjó.
Nýtt frumvarp um virdisaukaskatt í skoðun hjá
stjórnarflokkunum:
Virðisaukaskattur skilar
sér betur en söluskattur”
— segir Albert Guðmundsson, fjármálaráðherra
■ F.v. Jón Karlsson framkvæmdastjóri Veraldar, Björgvin Halldórsson, sem
stjórnaði upptökum, Helga Hauksdóttir frá Sinfóníuhljómsveit íslands, Páll P.
Pálsson og Jón Sigurðsson, sem útsetti eitt íslensku laganna á plötunni - Tímam GE
Hljómplata með söng
Kristjáns Jóhannsson-
ar komin á markað
gerð við fullkomnustu
aðstæður með undirleik
Lundúnasinfóníunnar
■ Hljómplata sú með söng Kristjáns
Jóhannssonar óperusöngvara, sem
Bókaklúbburinn Veröld hefur látið gera,
er komin út og býðst meðlimum klúbbs-
ins á sérstökum kjörum fram til 15.
nóvember er hún verður sett á almennan
markað, og gildir það tilboð einnig fyrir
þá sem gerast meðlimir klúbbsins. Hing-
að til hafa íslenskir tónlistarmenn allt of
oft orðið að sæta því að útgáfur með list
þeirra væru gerðar af vanefnum, bæði
hvað aðstæður við upptökur og æfinga-
tíma varðar, en það gildir ekki um þessa
plötu Kristjáns. Veröld ákvað að spara
ekkert til, London Symphony Orchestra
var fengin til undirleiks, hæfustu útsetj-
arar fengnir til að útsetja lögin sérstak-
lega fyrir Kristján og ítalskur hljómsveit-
arstjóri, gjörkunnugur söngvaranum
fenginn til að stjórna. Þá var platan
tekin upp í digital í CBS stúdíóinu í
London, einu besta stúdíói heims til
upptaka á klassískri tónlist um þessar
mundir. Kristján mun syngja lög af
plötunni á sérstökum tónleikum, sem
Veröld efnir til í Háskólabíói 19. nóvem-
ber n.k. og þar leikur Sinfóníuhljómsveit
íslands undir.
Á plötunni syngur Kristján nær ein-
göngu ítölsk lög, en þrú íslensk lög eru
þó með á henni, í fjarlægð efitr Karl Ó.
Runólfsson og Sjá dagar koma eftir
Sigurð Þórðarson, bæði í útsetningu
Jóns Þórarinssonar og Harmaborgin eft-
ir Sigvalda Kaldalóns í útsetningu Jóns
Sigurðssonar. Sagði Jón Karlsson fram-
kvæmdastjóri Veraldar á blaðamanna-
fundi í gær, að íslensku lögin hefðu
vakið mikla hrifningu þeirra sem unnu
að gerð plötunnar og erlendir umboðs-
aðilar lagt mikla áherslu á að þau yrðu
með á því upplagi sem fer á markað
erlendis, en upphaflega var áætlað að
þau færu aðeins á markað hér innan-
lands.
ítalski hljómsveitarstjórinn Murizio
Barbachine, sem stjcrnar hljómsveitar-
undirleiknum á plötunni mun koma
hingað til lands í boði Flugleiða og
stjórna Sinfóníuhljómsveit íslands á
tónleikunum þann 15. ásamt Páli P.
Pálssyni. Jón Karlsson sagði að starfsfólk
Sinfóníuhljómsveitar íslands hefði sýnt
sérstaka velvild til að hægt væri að halda
þessa tónleika án þess að miðaverð færi
langt upp fyrir það sem venjulegu fólki
væri bjóðandi. Hins vegar væri ekki enn
hægt að segja um það hvort unnt yrði að
endurtaka hljómleikana vegna anna
Kristjáns og Sinfóníuhljómsveitar
íslands.
-JGK
■ Frumvarp um virðisaukaskatt í stað
þess söluskattskerfis sem er í gildi hér á
landi er nú fullgert og í skoðun hjá
ríkisstjórn og þingflokkum ríkisstjórnar-
innar, samkvæmt því sem Albert Guð-
mundsson fjármálaráðherra upplýsti
Tímann í gær, en þessi mál hafa verið í
skoðun í ráðuneytinu mörg undanfarin
ár.
„Ósk mín er sú,“ sagði Albert, „að
þetta komist í gegnum Alþingi nú fyrir
áramót, ef flokkarnir á annað borð
verða sammála um að bera það fram eins
og það er nú, eða með litlum breyting-
um, þannig að virðisaukaskatturinn gæti
gengið í gildi frá og með áramótum
1984-1985, því það er reiknað með að
það taki eitt ár að hrinda breytingunum
í framkvæmd."
í grófum dráttum ervirðisaukaskattur
skattur sem leggst á öll stig viðskipta, en
ekki aðeins á smásölustigið eins og
söluskatturinn. Skattur þessi leggst þó
einungis á virðisaukann sem myndast á
hverju stigi, og er gert ráð fyrir því í
frumvarpinu að virðisaukaskatturinn
verði innheimtur af öllum vörutegund-
um. Ákveðnar vörutegundir eru eins og
kunnugt er undanþegnar söluskatti.
Eins og kunnugt er hafa verið brögð
að því hjá mörgum að svíkjast undan
því að greiðasöluskatt í gegnum árin, og
telja margir að betri heimtur yrðu á
tekjum ríkisins ef þetta nýja kerfi yrði
tekið upp. Er gert ráð fyrir að þetta nýja
kerfi myndi skila ríkinu svipuðum tekj-
um og söluskattskerfið á að gera. „Það
er talið að skatturinn skili sér betur, cf
virðisaukskattkerfi verður tekið upp í
. stað söluskatts," sagði fjármálaráðherra
cr hann var spurður hver yrði aðalávinn-
ingurinn af þessari nýju gerð af skatt-
heimtu, „og skattheitan yrði á allan hátt
heilstcyptari og réttlátari." - AB
Skipverja af Akurey bjargað
úr ísköldum sjónum:
„Var að sökkva við
hliðina á bátnum“
segir Jón Haukur Hauksson,
skipstjóri á Akurey.
■ „Við náðum honum með krókst jaku
þegar hann var að sökkva við hliðina á
bátnum. Það var ekkert lífsmark með
honum þegar við náðum honum inn fyrir
borðstokkinn - enda búinn að vera 1(1
mínútur í sjónum ísköldum. Við höfum
strax lífgunartilraunir. í fyrstu virtust
þær ekki ætla að bera árangur, en þegar
við fengum gúmmígrímu gekk þetta bet-
ur og það færðist í hann líf, saðgi Jón
Haukur Hauksson, skipstjóri á Akurey
SF, reknetabáti frá Höfn í Hornaflrði í
samtali við Tímann í gær.
Á mánudagskvöldið, þegar vcrið var
að leggja netið skammt úti af Stokksnes-
inu, flæktist cinn skipvcrjinn í netunum
og fór með þeim í sjóinn. „Það var
dimmt og við sáum ekkcrt til hans en
hcyrðum hinsvegaröskur. Viðkveiktum
strax Ijós, cn misstum þó sjónar af
honum. Við lcituðum með Ijóskastara
um stund og að nokkrum mínútum
liðnum sáum viö hann á flota fyrir aftan
bátinn, „sagði Jón Haukur.
Strax var farið mcð skipverjann, sem
er á þrítugsaldri, í land. Þar tók læknir
á móti honum og rannsókn leiddi í Ijós
að hann var talsvert skaddaður á fæti, en
að öðru leyti varð honum ótrúlega lítið
meint af volkinu.
-SJÓ.
Verðhækkanir í október voru 2.75%:
Hraði verðbólgunnar
er nú kominn í 38.5%
— kemur til greina að endurskoða samningsbannid ef megin
verdbólgumarkmiðum verður náö, segir forsætisráðherra
■ „Miðað við að við náum okkar
megin verðbólgumarkmiði, þá finnst
mér koma til greina að endurskoða þetta
ákvæði um bann við kjarasamningum í
meðförum þingsins, eins og ég reyndar
sagði fyrst fyrir tveimur mánuðum síðan
á Patreksfirði,“ sagði Steingrímur Her-
mannsson forsætisráðherra m.a. í sam-
tali við Tímann í gær er hann var spurður
álits á því sem komið hefur fram um vilja
ákveðinna þingmanna stjórnarflokk-
anna að fella niður ákvæði það í bráða-
birgðalögunum sem bannar kjarasamn-
inga fram til 1. febrúar n.k.
Forsætisráðherra sagði jafnframt að
þetta myndi allt skýrast á næstu dögum
því nú væru vísitöluútreikningar og
endurskoðaðar áætlanir fyrir desember
og janúar að berast. Hann sagðist þó
vera ákaflega bjartsýnn varðandi verð-
bólgumarkmiðið. í því sambandi sagði
hann m.a.: „Vísitalan núna verður
2.75%, en það er 38.5% verðbólga á
ársmælikvarða, en vísital aí október-
mánuði er alltaf erfið, því þá koma inn
12 mánaða liðir eins og útgáfukostnaður
og sláturkostnaður. Það er því mjög
góður árangur að vísitalan skuli ekki
vera hærri en 2.75 í októbermánuði. Þá
tel ég tryggt að vísitalan verði fyrir
neðan 2% bæði í byrjun desember og
janúar, sem þýðir á ársmælikvarða verð-
bólgustig eitthvað fyíir neðan 30%.“
Aðspurður um hvort aðilum vinnu-
markaðarins yrðu sett einhver skilyrði,
hvað varðar samninga, ef bannákvæðið
verður fellt niður ságði forsætisráðherra:
„Ef það verður ákveðið að fella niður
þetta ákvæði, þá verður það ekki skilyrð-
um háð“. - AB.