Tíminn - 10.11.1983, Síða 10
Allskonar góðgæti
Ný matreiðslubók, „Allskonar góðgæti“, er
komin út hjá bókaútgáfunni Setberg.
Þetta er þriðja bókin sem sænski mat-
reiðslumeistarinn Agnetc Lampe og Guðrún
Hrönn Hilmarsdóttir húsmæðrakennari
senda frá sér. Hinar tvær voru: „Nú bökum
við“ og „Áttu von á gestum?".
I þessari nýju bók er allskonar góðgæli:
Grísakótelettur með rjómavínssósu, Kjúkl-
ingapottur, Fylltur fiskbúöingur, Veisluís
frá Sikiley, Smálúðuflök með krabbafyllingu,
Nautasteik með smjörsteiktum kartöflum,
Steiktur lax í hvítvínssósu, Fín fiskisúpa.
Ekta vínarsnitsel, Paj með skinku og blað-
lauk, Hamborgarhryggur í portvínshlaupi,
Innbakaður graflax og margskonar annað
góðgæti.
Mörg hundruð litmyndir sýna réttina og
handtökin við gerð þeirra.
Undraheimur
Indíalanda
Setberg hefur gefið út nýja fcrðabók cftir
Kjartan Ólafsson hagfræðing. Hún heitir
„Undraheimur Indíalanda - feröaþættir frá
Indlandi Gandhis". Kjartan er löngu kunnur
sem þýðandi og rithöfundur. Hann sneri til
dæmis hinni stórfenglegu sjálfsævisögu Max-
ims Gorkis beint úr rússnesku á íslensku og
hann hcfur meðal annars ritað tvær ferða-
•sögur, „Sól í fullu suðri" og„Eldóradó“,sem
hlutu lof gagnrýnenda. Báðar bækurnar eru
löngu uppseldar.
Auk þess að vera hagfræðingur að mennt
hefur Kjartan lagt stund á helstu tungur
heims og aðrar fleiri svo sem urdu í Pakistan
og afríkaans í Suður-Afríku. Kjartan hefur
dvalist í öllum álfum heims og telst að öllum
líkindum víðförlastur Islendinga. Til dæmis
heimsótti hann öll lönd rómönsku Ameríku,
yfir 20 aö tölu, þrátt fyrir byltingar í tveimur
þeirra. Þá mun Kjartan vera einn þeirra fáu
Islendinga cr ferðast hafa um Síberíu.
1 þessari nýju bók, „Undraheimi Indía-
landa", segir Kjartan frá ferð sinni um
Indland, meðal annars Kasmír. Ennfremur
heimsækir hann Amritsar, höfuðborg hinna
herskáu Sikha, lýsir gullnum hofurn og
heilögum musterum. Hann greinir frá hinu
einkennilega samfélagi Parsa í Bombay.
Kjartan lagði leið sína á helsty sögustaði
búddisma. Hann fór til Banares, hinnar
helgu borgar hindúa. Þar hitti hann Frakka
er hafði yfirgcfið ættland og fjölskyldu og
sest þar að hjá heilagri konu, „Hinni blessuðu
móður", knúinn slíkum ofurmætti sem stafar
af persónu hennar.
Þá segir höfundur frá Kasmír og langur
kafli er um Gandhi, frelsishetju Indverja.
Uppi í Himalayja dvaldist Kjartan hjá
Miru Behn, alúðarvinkonu Gandhis, en hún
er ein af helstu persónum í hinni víðfrægu
kvikmynd Richards Attenboroughs um Ma-
hatma Gandhi.
„Undraheimur Indíalanda"er2()0blaðsíð-
ur í stóru broti, en auk þess eru í bókinni
nærri 60 Ijósmyndir.
Á vina fundi
Komin er út bókin „Á vina fundi“ eftir
Guðmund Daníelsson, og er þetta sautján
samtöl við fólk úr öllum landshlutum, þótt
flest sé af Suðurlandi.
Heiti kafla og frásegjenda: Bjöm Guð-
mundsson: Síðasti bóndi á Rauðnefsstöðum.
Vigdís Magnúsdóttir: Égheflifað99jplanæt-
ur. Gissur Ævarr Jónsson: Austan við mána
og sunnan við sól. Jón Þorkelsson smiður: Úr
smádölum í smjördali. Jón Vídalín Sólveig-.
arstöðum: Utan af hafi - undir gler. Jón
Ingvarsson Skipum: Okkur skortir mest ætt-
jarðarást. Rut f Sólvangi: Kona frá Tíról.
Séra Stcfán Lárusson í Odda: Krókótt leið.
Markús Einarsson forstjóri á Litla-Hrauni:
Meðal frjálsra manna og fanga. Andrés
Jónsson bóndi og verkamaður: Sjá roðann í
austri. Kristín Jónsdóttir frá Gcmlufalli:
Kona að vestan. Haraldur Jónsson í Miðey:
Við vötnin ströng. Ólafur Jónsson Eystra-
Geldingaholti: Horft um öxl. Kristmann
Guðmundsson skáld: Gaman að heyra
hvurnig fer. Björn Guðmundsson Sleðbrjóts-
scli: Bóndi fyrir austan. Anna Margrét og
Friðrik Pétursson: Þau létu gömlu nöfnin
fyrir nýtt fósturland. Jónas Magnússon verk-
stjóri ogbóndi íStardal: Vertíðí Þorlákshöfn
1916.
„Á vina fundi" er 202 blaðsíður. Prentberg
h.f. prentaöi, en útgefandi er Sctberg.
K.M. PKYTON
glatnþards
setriö
GUÐMUNDUR DANÍELSSON
Avina
FUNDI
SAUTJÁN SAMTÖL
Flambardssetrið
Flambardssetrið, unglingabók eftir K.M.
Pcyton, er komin út hjá Máli og nicnningu.
Þetta er sjöunda skáldsagan eftir þennan
breska höfund sem kemur út á íslensku. Silja
Aðalsteinsdóttir þýddi.
Söguhetjan, Kristína Parsons, er tólf ára
þegar hún flytur til Russells móðurbróöur
síns á ættarsetrið Flambards. Síðan hún varð
munaðarlaus á barnsaldri hefur hún ævínlega
búið hjá frænkum sínum og henni finnst
kvíðvænlcgt að flytja nú á stað þar sem karlar
ríkja. Ekki bætir úr skák að frænkur hennar
telja fullvíst að Russell ætli að gifta hana eldri
syni sínum, Mark, til að komast yfir auðinn
sem hún á í vændum þegar hún verður
myndug. Russell er sjálfur búinn að sóa sínu
fé í hesta og veðreiðar.
Þetta er söguleg skáldsaga, gerist í upphafi
þessarar aldar, og átök gamals og nýs tíma
koma vel fram í bókinni. Sagan er afar
spennandi, og fólki og atvikum lýst á lifandi
hátt.
Bókin er 192 bls.. unnin í Hólum. Kápu-
teikningu gerði Sigurður Valur Sigurðsson.
3 bækur frá ísafold
(safoldarprentsmiðja h.f. hefur sent frá sér
frímerkjaverðlistann „fslensk frímerki
1984". Þetta er 28. útgáfa listans, og í þessari
útgáfu er í fysta skipti verðlagðir frímerkja-
miðar, en það eru miðar sem límdir eru á
póstsendingar, cins og um frímerki væri að
ræða. Bókin „íslensk frímerki 1984" er 87
bls., útsöluverð bókarinnar er 352 kr.
ísafoldarprentsmiðja h.f. hefur sent frá sér
Algebru fyrir framhaldsskóla 1. og 2. hefti
eftir bandarísku sagnfræðingana Róbert A.
Carman og Marily J. Carman og er hún þýdd
af nokkrum stærðfræðikennurum Mennta-
skólans við Hamrahlíð. Bókin er jafnt ætluð
þeim sem eitthvað kunna í algebru og
byrjendum, og er þannig uppbyggð, að beita
má mismunandi náms- og kennsluaðferðum,
en hentar einnig þeim sem hyggja á
sjálfsnám. Bókin er prentuð í tveimur litum,
hvort bindi er u.þ.b 300 bls. að stærð og er
útsöluverð hvorrar bókar 578 kr.
(safoldarprentsmiðja h.f. hefur sent frá sér
bókina „Ráð sem duga" fyrir þá er væta rúm, ■
eftir breska barnalækninn Roy Meadow.'
Bókinn er þýdd af Sigurði H. Þorsteinssynil
og Ragnhildi Ingibergsdóttur, yfirlækni. 1
Þýðendur segja í formála bókarinnari
„Reynslan er sú að þetta er vandi sem snerti
marga en fáir tali um. Börnin skammast sín
fyrir bleytuna og minnast ekki á hana utan
heimilis. Foreldrar hafa áhyggjur vegna
barna sinna, óttast um heilbrigði þeirra og
eins að þau séu bæld eða uppeldið hafi
mistekist á einhvern hátt“.
( bókinni er lýst á einfaldan og auöskilinn
hátt hvernig taka eigi á vandanum við
rúmvætingu.
Bókin er 47 bls. og er útsöluverð hennar
85 kr.
Litla rauða rúmið
Út er komin hjá Máli og menningu ný íslensk
bók fyrir yngstu börnin: Litla rauða rúmið.
Höfundur er Áslaug Ólafsdóttir, kennari á
Kirkjubæjarklaustri, en myndirnar gerði
Ragnhildur Ragnarsdóttir.
Eiginlega er Litla rauöa rúmið aðalpersón-
an í sögunni. Það er orðið gamalt rúm því
þrír bræður Ásu eru búnir að sofa í því og
kunnu ágætlega við sig. Nú er komið að Ásu.
En henni finnst svo þægilegt að sofa hjá
pabba og mömmu og alveg ástæðulaust að
flytja sig. Þangað til Pési kemur. Hann vill
endilega fá að sofa í litla rauða rúminu...
Litla rauða rúmið er sett og prentað hjá
Formprenti, en útliti hagaði Repró, Valgeir
J. Emilsson.
Við elda Indlands
2. útgáfa
Hjá Máli og menningu cr komin út í 2. útgáfu
ferðasaga Sigurðar A. Magnússonar frá
Indlandi: Við elda Indlands. Hún kom fyrst
út árið 1962, en hefur lengi verið ófáanleg.
Sigurður A. Magnússon ferðaðist árið
1960 um rúmlega þriggja mánaða skeið um
Indland og kynnti sér land og þjóð, siði,
trúarbrögð, menningu og daglegt líf. I
bókinni bregður hann upp persónulegum og
Ijóslifandi myndum af því sem hann upplifði
og leitast við að skilja og greina það sem
mætti honum í þessu fjarlæga og framandi
landi.
Fjöldi mynda er í þessari nýju útgáfu sem
ekki voru í hinni fyrri, og aftast er greinargott
kort af lndlandi þar sem helstu staðir og
áfangar á ferð höfundar eru merktir inn.
Bókin er 295 bls. og unnin að öllu leyti í
Prentsmiðjunni Odda hf.
Mannrán í El Salvador
Bókin er sönn frásögn manns sem var rænt í
E1 Salvador og haldið sem gísl í 47 daga..
Fausto Bucheli var verkfræðingur hjá banda-
rísku fyrirtæki er hafði útibú í San Salvador.
Þangað var hann sendur nokkrum sinnum og
haustið 1979 var honum rænt ásamt verk-
smiðjuforstjóranum. Var þeim haldið sem
gíslum og lýsir Bucheli í bókinni vist sinni í
prísundinni og hver áhrif hún hafði á hann
og fjölskyldu hans. Einnig greinir hann frá
samskiptum við vinnuveitanda sinn eftir að
hann var heimtur úr helju. (samvinnu við J.
Robin Maxson lýsir Bucheli þessum tíma á
áhrifamikinn hátt og inn í bókina er fléttað
æviatriðum hans í stórum dráttum. Bókina
þýddi Jónas Gíslason dósent og er hún 279
blaðsíður, unnin að öllu leyti hjá Prentverki
Akraness, en Auglýsingastofa Ernst Back-
man sá um útlit kápu. Útgefandi er bókaút-
gáfan Salt.
I rr'lir Rlillilm
Óstaðfest ljóð
Óstaðfest Ijoð
Komin er út önnur Ijóðabók Sigmundar
Ernis Rúnarssonar. Árið 1980sendi hann frá
sér Ijóðabókina Kringumstæður, en nú í ár
Ijóðabókina Óstaðfest Ijóð.
Sigmundur er Akureyringur, en starfar nú
sem blaðamaður við dagblaðið DV í Reykja-
vík.
J.LBRISLEY
SETBERG
Millý Mollý Mandý —
augasteinn allra
Nýlega er komin út fimmta og síðasta bókin
í bókaflokknum um telpuna Millý Mollý
Mandý eftir J. L. Brisley. Þessi síðasta bok
heitir „Millý Mollý Mandý - augasteinn
allra".
Bókin er 88 blaðsíður með mörgum
myndum. Þýðandi er Vilbergur Júlíusson
skólastjóri.
„Mánasilfur“, lokabindið
komið út
IÐUNN hefur gefið út fimmta bindi af
Mánasilfri, safni endurminninga sem Gils
Guðmundsson hefur valið. Er þetta lok-
abindi safnsins. (fimmta bindi eru minning-
aþættir eftir 34 höfunda, en alls er í safninu
efni eftir 152 höfunda, allt frá sautjándu
aldar mönnum til núlifandi manna. Skrá um
efni og höfunda alls safnsins er aftast í
fimmta bindi, en hverjum þætti fylgir stutt
æviágrip höfundar. Elstur þeirra sem efni
eiga í þessu bindi er séra Þorsteinn Pétursson
sem uppi var á átjándu öld, en yngstur
Þorteinn Antonsson, fæddur 1943, og er
hann jafnframt yngstur þeirra endurminnga-
höfunda sem teknir hafa verið í safnið.
Um efni fimmta bindis segirsvo á kápubaki
m.a.: „Hér er að finna áður óprentaða
frásögn um eitt mannskæðasta snjóflóð á
síðari tímum og minningar um skæðustu
drepsótt áöldinni. Hér eru einnig þættir með
IÐUNN
MANA
SILFUR
SAFN ENDURMINNINCA
CILS CUÐMUNDSSON
VALDI EFNIÐ
léttari svip: sagt frá metingi um skáld og
sjómenn á hafi úti, framboðsfundi þar sem
íhlutun kjósanda beindi málum í óvænt efni,
fyrstu söngför íselnsks kórs til annars lands.
Hér segja skáld frá minnisstæðri æsku-
reynslu, húsfreyjur og Ijósmæður frá striti og
áhyggjum, hér er sérkennileg ástarsaga og
minning frá fyrstu kynnum sveitadrengs af
Reykjavík, - og er þá fátt talið". - Mánasilf-
ur, fimmta bindi, er rúmlega-300 síður. Oddi
prentaði.
„Meðan eldarnir brenna“,
skáldsaga eftir Zaharia
Stancu
Iðunn hefur gefið út skáldsöguna Meðun
eldarnir brenna eftir rúmenska sagnaskáldið
Zaharia Stancu. Kristín R. Thorlacius þýddi,
- Sagan fjallar um sígaunaættbálk nokkurn
sem stjórnvöld í Rúmeníu reka í einangrun
á gróðursnauðum auðnum landsins. Þetta
gerist á tímum seinni heimsstyrjaldar. Ætt-
flokkurinn telur hundrað sálir, og stjórnvöld
neyða ættarhöfðingjann til að halda með fólk
sitt austur á bóginn. Að baki þeim geisar
stríðið, framundan bíður þeirra auðn og
dauði. Það vita sígaunarnir ekki en af
næmleika sínum lesa þeir dauðadóm sinn í
augum allra þeirra sem þeir mæta og reka þá
áfram til austurs.
Zaharia Stancu er eitt kunnasta og virtasta
sagnaskáld Rúmena á þessari öld. Eitt fræg-
asta verk hans er sagan Berfætlingar sem út
hefur komið á íslensku. Sagan Meðan eldarn-
ir brenna er afar lítrík frásögn af harðri
baráttu minnihlutahóps fyrir lífi sínu.
Meðan eldarnir brenna er stór saga, 344
bls.
„ída er einmana",
ný barnabók
IÐUNN hefur gefið út barnabókina ída er
cinmana eftir sænska höfundinn Maud Reut-
erswárd. Myndir í bókinni eru eftir Tord
Nygren, en Jóhanna Sveinsdóttir þýddi.
Þetta er sjálfstætt framhald bókarinnar Svona
cr hún ída sem út kom í íslenskri þýðingu í
fyrra. Sagan er ætluð yngri börnum.
Ida er einmana er 106 blaðsíður. Oddi
prentaði.