Tíminn - 22.11.1983, Qupperneq 12
ÍTtttmm
ÞRIÐJUÐAGUK 22. NÓVEMBER1983
16
heimilistíminn
umsjón B.St. og K.
L. '
Glerblástur, mynd-
vefnaður, söðlasmíði
og hestasmíði:
— er meðal efnis í riti
Heimilisiðnaðarfélags
íslands
Hugur
og hönd
■ Svo sem áður hefur verið getið um í
Tímanum varð Heimilisiðnaðarfélag ís-
lands 70 ára á þessu ári. Síðan 1966 hefur
félagið gefið út tímaritið HUGUR OG
HÖND, og er það mjög vandað tímarit.
Það birtir greinar um handverk og
listiðnað, mynstur og vinnuteikningar,
og er sameiginlegt rit fræðslustarfs og
verslunar félagsins.
í ritinu Hugur og hönd á afmælisárinu
kennir margra grasa. Það er mjög fjöl-
breytt að efni, og má t.d. nefna: Gler í
Bergvík, sem er kynning á starfrækslu
glersmiðju í Bergvík á Kjalarnesi. Sig-
rún Ólöf Einarsdóttir og Sören Larsen
reka glersmiðjuna. Margar fallegar
myndir eru í ritinu af verkum þeirra.
Guðrún Jónasdóttir skrifar grein um
Ragnhildi Pétursdóttur í Háteigi og
segir frá myndvefnaði hennar. Greininni
fylgja margar mjög fallegar myndir af
myndvefnaði Ragnhildar úr jurtalituðu
hcimaspunnu bandi. Saga félagsins er
rakin í grein eftir Stefán Jónsson arkitekt
og fylgir greininni listi yfir formenn H.í.
frá upphafi og til þessa dags.
Silfursmíðar Helga Þórðarsonar nefn-
ist frásögn Þjóðminjavarðar Þórs Magn-
ússonar og fylgja með myndir af nokkr-
um smíðisgripum hans.
íslensk nútímasöðlasmíð og „Gaman
er að skreppa á bak“ héita tvær greinar
í ritinu, og þar er kynnt söðlasmíð, bæði
ný og gömu I og eru margar myndir með.
„Komdu þá með
spýturnar“
Hcstasmiðurinn Júlíana er athygl-
isverð frásögn cftir Jóhönnu Kristjáns-
dóttur um Júlíönu Halldórsdóttur, sem
fæddist á Hóli á Hvilftarströnd við
Önundarfjörð árið 1864. Hún byrjaði á
því sem ung stúlka að gera eftirlíkingu
að hesti fyrir lítinn frænda sinn til að
leika sér að. Síðan fylgdu fleiri cftir.
Þegar Júlíana var orðin öldruð var hún
hvött til að byrja á hestagerðinni aftur.
Hún var treg til fyrst, en sagði svo við
viðmælanda sinn „Komdu þá með spýt-
urnar"
Greinarhöfundur segir svo frá: „...Ég
litaði fyrir hana ba.ðmullarefni í húðina
og svo fæddust hestarnir hjá henni,
rauðir, jarpir og leirljósir, brúnir
bleikir. moldóttir og mósóttir, henni
sjálfri og mörgum öðrum til ánægju."
Nokkrar hugleiðingar _um brúður
nefnist grein eftir Ragnheiði Helgu
Þórarinsdóttur, minjavörð, Safnastofn-
un Austurlands, Egilsstöðum og fylgja
margar skemmtilegar myndir bæði af
telpum með brúður sínar, brúðunt í
þjóðbúningum og dúkku-bollastellum
og matarstellum, sem flutt voru hingað
frá Þýskalandi á fýrstu árum aldarinnar,
og brúðuhugleiðingunum fylgir frásögn
af frægri brúðu Nóbelsskáldsins Fríðu
Rósu Hólmfríði frú Engilbert, sem sagt
er frá í bókinni í túninu heima.
Margvíslegar greinar, myndir og
mynstur eru um ýmiss konar hannyrðir,
svo sem prjónaðar draktir úr íslenskri
ull, knipl, prjónapeysur á böm og full-
orðna með tilsögn um prjónaskapinn,
skinnvesti og saumuð smábarnaföt.
Sníðaörk fylgir með.
HUGUR OG HÖND er hið vandað-
asta rit að allri gerð, fallegt og nytsamt í
senn.
■ Fyrir sítt, slétt hár kemur skemmtilega út, að taka hvern lokk og snúa upp á hann áður en hann er vafinn upp á vefjuna og hún brotin saman og lokað þannig. Mvndin
sýnir aðferðina og árangurinn. Ef engin hárþurrka er notuð þurfa vefjurnar að vera 1/2-1 klukkust. íhárinu en með hita um 10 mín. Með þessari aðferð verður hárið bylgjað,
en með því að vefja beint upp, án þess að snúa upp á lokkinn fyrst koma venjulegir liðir í hárið.
Molton Brown-snyrtivörur:
Fl jótvirk og þægi-
leg aðferð til að
halda hárinu fal-
legu og liðuðu
■ Fyrir skömmu var efnt til kynningar sem nefnast Molton Brown snyrtivörur. reglu, að hafa að leiðarljósi gamla og
hér á landi á snyrtivörum frá Bretlandi, Vörurnár eru framleiddar eftir þeirri nýja þekkingu á jurtum og náttúrlegum
■ Frá kynningunni á Molton Brown-vörunum, en í þeim er mest af náttúrulegum efnum. Flestar jurtirnar, sem notaðar
eru í snyrtivörurnar, eru ræktaðar á herragarði í Essex í Englandi í samvinnu við jurtafræðinga Molton Brown fyrirtækisins.
aðferðum við framleiðslu á snyrtivörum.
Molton Brown lét t.d. rannsaka og prófa
ýmsar gamlar grasauppskriftir til þess
að nota þær við framleiðsluna.
Það er fyrirtækið Lista-Kiljan s.f. sem
stóð fyrir kynningu nýlega á þessum
vörum, en kynningin fór fram í Studíó
Fjólu við Framnesveg.
Michael Collins heitir ráðgjafi Molton
Brown fyrirtækisins um hármeðferð.
Hann leggur mikla áherslu á sem
náttúrulegasta hármeðferð til að öðlast
reglulega þriflegt og fallegt hár. Hann
hefur látið taka upp þá gömlu aðferð á
Molton Brown snyrtistofunum, að hand-
þurrka hár, en þá er fingrunum rennt
hratt í gegnum hárið á sérstakan hátt í
nokkrar mínútur, í stað þess að nota
hárþurrkur eða blásara.
Hárgreiðslufólk Molton Brown hefur
einnig fundið upp aðferð til að leggja
þurrt hár með hinum svokölluðu Molton
Browners-vefjum.
Molton Browners-vefjurnarerumjúk-
ar og þægilegar í meðförum, og ekki þarf
neinar hárnælur eða pinna til að festa
þær og líkamshitinn nægir til þess að liða
hárið. Ef þarf að flýta hárliðuninni, þá
má setja þurrku eða blásara á í nokkrar
mínútur. 5-15 mínútur ættu að nægja
eftir hárþykkt. Vefjurnar á að setja í
hreint en þurrt hárið.
Við birtum hér með nokkrar leiðbein-
inga-myndir til að sýna hvernig hægt er
á bestan máta að nota Molton Browners-
vefjurnar. Þær fást orðið á nokkrum
stöðum, svo sem í Sápuhúsinu, Oculus,
Hár og snyrtingu, Topptískunni og í
Nönu, Völvufelli 15 í Breiðholti og fleiri
stöðum.
Leiðrétting
■ Á Heimilistíma-síðunni í fimmtu-
dagsblaði Tímans (bls. 24) vargreinar-
gerð frá Verðlagsstofnun um PÓST-
VERSLANIR hér á landi. Þau mistök
urðu í birtingu greinarinnar, að niður
féll nafn, Sigríðar Haraldsdóttur, full-
trúa í neytendamáladeild Verðlags-
stofnunar, en það átti að standa undir
greinargerðinni.
■ í stutt hár er hægt að setja vefjur í hluta hársins, og greiða svo úr hárinu upp með fingrunum, eða méð gróftenntri pinnagreiðu