Tíminn - 29.11.1983, Síða 1

Tíminn - 29.11.1983, Síða 1
Allt um íþróttir helgarirmar.Sjá bls. 11-14 FJÖLBREYTTARA OG BETRA BLAO! Þriðjudagur 29. nóvember 1983 277. tölublað - 67. árgangur Siðumúla 15 -Pósthólf 370 Reykjavik—Ritstjóm 86300- Auglýsingar 18300- Afgreiðsla og áskrift 86300 - Kvöldsímar 86387 og 86306 Skuldastada Arnarflugs við Flugleiðir orðin erfið: VERÐA AD STADGREHM FYRIR ALIA ÞJÓNUSTU ■ Skuldastaða Arnarflugs við Flugleiðir hefur undanfarnar þrjár vikur verið það slæm að Flugleiðir hafa kraflst stað- greiðslu eða fyrirframgreiðslu fyrir þá þjónustu sem Arnarflug hefur keypt af Flugleiðum. Herma heimildir Tímans að fyrir þremur vikum hafl skuldin verið nálægt 200 þúsund dollurum, eða 6 milljónum króna, en sé nú eitthvað á bilinu 160 til 180 þúsund doilarar, eða á milli 4.8 og 5.3 milljónir. Tíminn sneri sér í gær til Agnars Friðrikssonar fram- kvæmdastjóra Arnarflugs og spurði hann hverju þessi skulda- staða sætti: „Ég neita því að við skuldum Flugleiðum hátt í tvö hundruð þúsund dollara. Ég veit ekki til þess að skuldastaða okk- ar gagnvart Flugleiðum sé eitt- hvað verri núna, heldur en hún hefur verið um árabil," sagði Agnar. Agnar sagði jafnframt: „Það er rétt að við staðgreiðum núna þá þjónustu sem við kaupum af Flugleiðum, en það er að sjálf- sögðu þeirra mat hverjir eiga að borga á borðið og hverjir ekki. Það er hlutur sem ég get ekki kommenterað neitt á, eða gagn- rýnt þá fyrir.“ Agnar sagðist að öðru leyti ekki ræða fjárhagsstöðu fyrir- tækisins, en bent á að Arnarflug á gífurlega mikil viðskipti við Flugleiðir, og sagðist hann reikna með að þau viðskipti nálguðust um hálfa milljón doll- ara á ári, eða um 15 milljónir króna, þvt' öll afgreiðsla á flug- vélum Arnarflugs á Keflavíkur- flugvelli væri keypt' af Flug- leiðum, svo og allur matur sem framreiddur væri um borð í vélum Arnarflugs. „Við höfum því alltaf í gegnum tíðina skuld- að Flugleiðum," sagði Agnar, „eins og tíðkast í viðskiptum milli aðila.“ Þetta staðgreiðslukerfi hjá Flugleiðum hefur ekki áhrif á viðskiptavini félaganna, því eftir sem áður taka flugfélögin far- seðla þá sem hitt félagið gefur út góða og gilda. -AB |H| Medferd á ungum Reyk- vlkingi til rannsóknar hjá Rannsóknarlögreglunni: LÖGREGLUMENN KÆRÐIR FYRIR MISÞYRMINGAR VIÐ HANDTÖKU Fækkun fiskiskipa ofariega á baugi vid upphaf Fiskiþings í gær: ERFITT AÐ FÆKKA TOGURUMI FAMENNUM BYGGDARLÖGUM ■ Fækkun fiskiskipa, mótun flskveiðistefnu, nýir möguleikar í veiðum og vinnslu eru meðal þeirra málaflokka sem efst verða á baugi á nýsettu 42. Fiskiþingi hér í Rcykjavík. Eftir setningu þingsins ávarp- aði Halldór Asgrímsson sjávar- útvegsráðherra fundarmcnn og gesti og í ávarpi sínu fjallaöi hann m.a. um minnkun flski- skipastólsins. 1 máli hans kom fram að það væri fremur í þétt- býli en dreifbýli sem þessi fækk- un gæti orðið. „Þegar á að fækka skipum með skipulegum hætti getur reynst erfitt að gera það, vegna þess hvað hvert byggðalag er háð fáum skipum. Mörg dæmi eru fyrir því að aðeins eitt tog- veiðiskip stendur í reynd undir allri verðmætasköpun í viðkom- andi byggðalagi. Ef þessu skipi er lagt er grundvöllurinn í reynd hruninn. Þar sem þéttbýli er meira er þessu öðruvísi farið enda þótt fiskiskipin þar séu ekki síður mikilvæg því fólki sem hefur atvinnu í sjávarútvegi. Þar eru hinsvegar möguleikarnir meiri til uppbyggingar nýrra at- vinnuvega og stækkunar fyrir- tækja sem fyrir eru“, sagði Hall- dór Ásgrímsson m.a. í ávarpi sínu, og tók svo fram að þetta vildi hann segja vegna þeirrar umræðu sem orðið hefur um fækkunfiskiskipa. “Égsegiþað ekki vegna þess að ég hafi áhuga fyrir því að einu skipi sé lagt fremur öðru, heldur vegna þess að ég tel mikilvægara en flest annað að ekki komi til atvinnu- leysis í landinu. Það að koma í veg fyrir atvinnuleysi krefst skipulagðra vinnubragða," sagði hann. - Sjá bls 2 og 5. -FRI ■ Ungur Rcykvíkingur hefur kærf þrjá lögreglumenn i Rcykjavík fyrir misþyrmingar við handtöku. Atburður þessi átti sér stað eftir danslcik á cinum skemmtistað borgarinn- ar aðfaranótt sunnudags og var kærður til lögreglustjóra í morgun. Lögreglustjóri hefur sent Rannsóknarlögreglu ríkis- ins málið til meðferðar og rannsóknar. Tildrög þessa atburðar munu vera þau að maðurinn lenti í útistöðum við dyraverði á skemmtistaönum vegna mis- skilnings. Þeim stympingum lauk og ætlaði maðurinn þá að yfirgefa staðinn en á mcðan hafði dyravörður kallað á lög- rcglu. Hún tók sfðan manninn í anddyri hússins og handjárn- aði hann og setti inn í lögreglu- bíl. Maðurinn ber síðan, að á leiðinni á lögreglustöðina hafi einn lögrcglumaðurinn tekið í hár hans og barið andliti hans margsinnis við golf bílsins með þeim afleiðingum að maðurinn nefbrotnaði. Auk þess er mað- urinn allur marinn í andliti, snúinn á fæti og rispaður og marinn á öxlum og bringu. Þess má gcta að tvö vitni voru að þessu í lögrcglubílnum. Þegar Tíminn hafði sant- band við William Möller aðal- fulltrúa lögreglustjóra í gær sagði hann að rannsókn þessa máls væri á frumstigi. Að- spurður sagði hann að rann- sóknin væri það stutt á veg komiti að ekki væri hægt að draga þær ályktanir á þessu stigi sem réttlættu brottvikn- ingu viðkomandi lögreglu- manna. -GSH Jafntefli hjá Kortsnoj-Kasparov: JAFNT HJA RIBU—SMYSLOV ■ Fjórðu skák þeírra Riblis og Smyslov lyktaði með jafntefli í 42. leik en Ribli hafði hvítt á móti svörtu hjá Smyslov og er staðan því enn jöfn í einvígi þeirra eða 2:2. Kortsnoj og Kasparov sömdu um jafntefli í fjórðu skák sinni í London í gær áður en til þess kæmi að þeir tækju til við bið- skákina. Kortsnoj hafði allan tímann örlítið frumkvæði, svo að hinn ungi andstæðingur hans mátti hafa sig allan við að halda jöfnu. Næsta skák þeirra verður tefld á morgun. Sjá bls. 5. ■ Færö hefur veriö erfiö uin fjallvegi á Vestfjöröum undan- farið, en í gær höföu þeir veríö upnaöir og færð sæmileg milli þéttbýlisstaða en snjólétt er í byggð. Þessi mynd er tekin fyrir nokkrum dögum þar sem heitir Kinn á Breiðadalsheiði. Þar er snjóþungur kafli þar sem iðulega teppir þótt fært sé annars staðar á heiðinni. Veg- farendur hafa tekið þann kost- inn að moka sig í gegnum Kinnina til að geta komist leiðar sinnar. Tímamynd Finn- bogi Krísljánsson

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.