Tíminn - 29.11.1983, Qupperneq 11
ÞRIÐJUDAGUR 29. NÓVEMBER 1983
15
bækur
SKUGGSJÁ
Benedikt Gröndal
Rit III
Út er komið hjá bókaútgáfunni Skuggsjá,
Hafnarfirði, þriðja bindi rita Benedikts
Gröndals. Fyrsta bindið kom út haustið 1981
og annað bindið 1982. Gils Guðmundsson
hefur annast þessa Gröndalsútgáfu fyrir
Skuggsjá.
Megin efni þessa þriðja bindis rita Grön-
dals er sjálfsævisaga hans, Dægradvöl. Sagan
gefur glögga mynd af Gröndal sjálfum, þvt
sem endranær er hann sjálfum sér líkur,
hispurslaus og óvæginn, gerir enga tilraun til
að sýnast, hefur hvorki löngun, vilja eða getu
til að vera annar en hann er í raun. Hugmynd-
ir okkar um Gröndal væru ófullkomnar ef
hann hefði ekki skráð þessar minningar
sínar, og ekki aðeins það, heldur væru
hugmyndir okkar um 19. öldina, samtíma-
menn hans og málefni þess tíma, fátæklegri
en ella, ef ekki nyti við frásagna hans í
Dægradvöl.
Ritgerðina Reykjavík um aldamótin 1900
skrifaði Gröndal að tilmælum Valtýs Guð-
mundssonar og birtist hún upphaflega í
tímariti hans, Eimreiðinni, en var einnig
gefin út sérprentuð. í þessari ritgerð tekur
Gröndal marga fjörspretti. Eru kaflarnir um
framfarir, félagslíf og ýmsa þætti bæjarlífsins
meðal þess skemmtilegasta, sem hann samdi
á efri árum. Auk þess geymir ritgerðin ýmsan
fróðleik um mannltf í Reykjavík undir lok
19. aldarinnar. '
Rit III eftir Benedikt Gröndal er 463 bls.
að stærð og er ýtarleg nafnaskrá yfir öll
bindin þrjú aftast í þessu bindi. Bókin er sett
og prentuð í Prentverki Akraness hf, en
bundin í Bókfelli hf.
Þorgils gjallandi
Ritsafn II
Bókaútgáfan Skuggsjá, Hafnarfirði, hefur
geftð út annað bindi af Ritsafni Þorgils
gjallanda. Alls verða bindin þrjú. Rit Þorgils
gjallanda hafa ekki verið fáanleg í áratugi í
heildarútgáfu. Þessa útgáfu verka hans ann-
ast þau Jóhanna Hauksdóttir og Þórður
Helgason.
Þorgils gjallandi var skáldaheiti Jóns Ste-
fánssonar, er fæddist 2. júní 1851 að Skútu-
stöðum í Mývatnssveit. Hann var bónda-
sonur og missti báða foreldra sína ungur.
Eftir það var hann vinnumaður á ýmsum
bæjum í sveitinni, en dvaldi þó sumarlangt í
Húnavatnssýslu sem vinnumaður og auk þess
hluta vetrar við nám hjá prestinum að
Skinnastað í Öxarfirði. Að þessu frátöldu
dvaldi hann allan aldur sinn í Mývatnssveit
og þar dó hann árið 1915.
Þær tvær sögur, sem prentaðar eru í þessu
bindi, Gamalt og nýtt og Upp við fossa, eru
lengstu sögur höfundarins og jafnframt þær,
sem umdeildastar voru. Sagan Gamalt og
nýtt birtist fyrst í sögusafninu Ofan úr
sveitum árið 1892 og þótti reginhneyksli,
bæði efni og búningur. Þorgils boðaði í
sögunni óskoraðan rétt ástarinnar, en ræðst
hins vegar á helgi hjónabandsins og boðar
raunar afnám þess. Þetta ofbauð grandvöru
fólki.
Tíu árum síðar, árið 1902, kom svo Upp
við fossa út og hefur verið fullyrt um hana að
ekki hafi orðið slíkur úlfaþytur um nokkra
bók hér á landi.
Þetta annað bindi Ritsafns Þorgils gjallanda
er 273 bls. að stærð, sett og prentað í Prisma
og bundið í Bókfelli hf.
PETER FREUCHEN
IARION
Peter Freuchen
Laríon
Bókaútgáfan Skuggsjá, Hafnarfirði, hefur
gefið út nýja bók eftir Peter Freuchen, sem
nefnist Laríon. Peter Freuchen er frægur vítt
um lönd vegna þekkingar sinnar og rann-
sókna - og vegna margra frábærra bóka.
Ævintýralega atburði, sem oft gerast í
raunveruleikanum, en fæstir kynnast af eigin
raun, leitaði hann uppi, skráði á bækur og
ivann sér hylli og aðdáun fjöldans. Þannig
varð til sagan af Laríon, síðasta mikla
indíánahöfðingjanum í Alaska.
Þetta er grípandi frásögn um hinar miklu
óbyggðir Alaska og frumstætt líf indíánanna,
sem landið byggðu, er fyrstu hvítu skinna-
kaupmennirnir komu þangað og frumbyggj-
arnir komust í fyrstu snertingu við menningu
hvíta mannsins.
Laríon er 270 bls. að stærð, þýdd af Sverri
Pálssyni, sett og prentuð í Prentsmiðju Árna
Valdemarssonar og bundin í Bókfelli hf.
>2 RXRBARA _
ttartland
Segðu já.
Samantha
Barbara Cartland
Segðu já, Samantha
Út er komin hjá bókaútgáfunni Skuggsjá,
Hafnarfirði, ný bók eftir Barböru Cartland,
sem nefnist Segðu já, Samantha. Þetta er 10.
bókin, sem Skuggsjá gefur út eftir Barböru
Cartland.
Samantha var ung og saklaus og full
umhyggju fyrir velferð föður síns og áhuga-
málum hans, sem fyrst og fremst snerust um
litlu sveitakirkjuna hans og það er hana
varðaði. En hún var einnig gædd sérstæðri,
meðfæddri fegurð og yndisþokka og það var
sem græn augu hennar hefðu að geyma alla
leyndardóma veraldar.
Segðu já, Samantha er 176 bls. að stærð,
þýdd af Sigurði Steinssyni, sett í Steinholti
hf, prentuð í Prenttækni og bundin í Bókfelli
hf.
Theresa Charies
Með einhverjum öðrum
Bókaútgáfan Skuggsjá, Hafnarfirði, hefur
sent frá sér nýja skáldsögu, Með einhverjum
öðrum, eftir Theresu Charles, en eftir hana
hafa áður komið út margar skáldsögur hjá
Skuggsjá.
Rósamunda Gregory hrökklaðist úr hlut-
verki „hinnar konunnar", og það varð degin-
um Ijósara, að Norrey mundi aldrei hverfa
frá hinni auðugu eiginkonu, - þrátt fyrir
loforð hans og fullyrðingar um að hann biði
aðeins eftir því að fá skilnað. Eftir að
Rósamunda hefur sloppið naumlega lífs úr
vandlega sviðsettu „slysi“, leggur hún á flótta
og hverfur á braut, sárreið og vonsvikin. En
óstýrlát og ráðrík ást hennar knýr hana til
þess að snúa aftur.
Með einhverjum öðrum er 176 bls. að
stærð, þýdd af Andrési Kristjánssyni, sett óg
prentuð í Prisma og bundin í Bókfelli hf.
Undarleg uppátæki
Bókaútgáfan Vaka hefur gefið út aðra bókina
í bókaflokknum Ævintýraheimur Ármanns.
Heitir hún Undarleg uppátæki og fjallar um
ævintýri félaganna Ola og Magga, og er eftir
Ármann Kr. Einarsson.
Á bókarkápu segir meðal annars: f þessari
líflegu bók gefst íslenskum börnum nýtt tæki-
færi til þess að skyggnast inn í ævintýraheim
verðlanahöfundarins Ármanns Kr. Einars-
sonar.
Þessi smellna saga, sem hét áður Óli og
Maggi, hefur verið uppseld um árabil og
kemur nú út með breyttum svip og nýjum
teikningum Péturs Halldórssonar, segir í
kynningu forlagsins á bókarkápu.
Undarleg uppátæki er sett og prentuð í
Prentstofu G.Benediktssonar, en Bókfell hf.
sá um bókband.
LÍKAMSRÆKT
Líkamsrækt með Jane Fonda
kemur út hjá Fjölva
Leikfimibók bandarísku kvikmyndastjörn-
unnar Jane Fonda er nýlega komin út á
íslensku í útgáfu Fjölva. Bókin hefur farið
eins og eldur í sinu um flest lönd á þessu ári,
verið þýdd og gefin út á ótal tungumálum.
í útgáfu Fjölva kallast hún „Líkamsrækt
með Jane Fonda“, en hún inniheldur lík-
amsæfingar fyrir ungar konur. Hún er gefin
út í samstarfi og samprenti Fjölva við aðrar
bókaútgáfur í öllum hinum Norðurlöndun-
um.
Líkamsrækt með Jane Fonda er 254 bls. í
mjög stóru broti. Hún skiptist í fimm kafla.
Tekið er tillit til þess hvort fólk er í þjálfun
eða ekki. Hluti æfinganna er fyrir byrjendur,
sem verða að fara varlega og annar hluti fyrir
þá sem eru í góðri þjálfun og mega því ætla
sér meira. Hvarvetna er lögð áhersla á að
fólk megi ekki ofgera líkamnum með æfing-
um sérstaklega ef það skortir þjálfun og því
fylgt eftir með ýmsum aðferðum m.a. með
upphitunaræfingum. Áhersla er lögð á rétt
mataræði og varað við því að ofreyna sig.
í ritgerðarköflum sem fylgja útskýrir Jane
Fonda svo grundvöll líkamsræktar og heil-
brigðs lífernis út frá ýmsum hliðum. Einkum
tekur hún fyrir næringarfræði, líkamshreyf-
ingu og útiveru. í lokaköflum, sem þykja all
harðskeyttir, afhjúpar hún svo hættuna sem
lífi og heilsu fólks stafar frá gerfifæðu í
pökkum og hættulegum efnum frá nútíma
efnaiðnaði, sem hafa valdið sjúkdómum og
dauða.
Steinunn Þorvaldsdóttir þýddi bókina, en
Ragna Lára Ragnarsdóttir leikfimikennari
var til ráðuneytis um útfærslu Itkamsæfing-
anna.
ESKJA
bókin um Eskifjöró
Eskja
- bókin umk Eskifjörð
Út er komið 4. bindi „Eskju - bókarinnar
um Eskifjörð" eftir Einar Braga. Fjallar það
um sögu verkalýðshreyfingarinnar á Eskifirði
og er 264 blaðsíður, prýdd 220 myndum. Á
n æsta ári eru 80 ár frá stofnun fyrsta
verkamannafélags á Eskifirði. Það varð
skammlíft, en haustið 1914 var stofnað
Verkamannafélagið Árvakur, sem enn
starfar. Verkakonur voru í sérstöku félagi,
Framtíð, frá 1918 til 1971, er félögin samein-
uðust undir nafni Árvaks. Er það eitt hið
elsta og langfjölmennasta félagið á staðnum
og gætir hagsmuna bæði sjómanna og verka-
fólks. Vegna fyrrnefndra tímamóta ákvað
Árvakur að standa straum af kostnaði við
útgáfu þessa bindis af Eskju.
Liðin eru 17 ár frá því er undirbúningur
hófst að skráningu á sögu Eskifjarðar og 12
ár síðan fyrsta bókin kom út. Hefur sérstök
byggðarsögunefnd, sem starfar í umboði
bæjarstjórnar, unnið að framgangi málsins í
nánu samstarfi við höfundinn. Alls eru þessi
fjögur bindi yfir 1200 síður og myndir á
sjöunda hundrað. Stefnt er að því að Ijúka
meginverkinu fyrir 200 ára afmæli kaupstað-
arins, en Eskifjörður var einn þeirra sex
verslunarstaða, sem fyrstir hlutu kaupstaðar-
réttindi 18. ágúst 1786. Síðan hafa menn hug
á að halda útgáfu söguritsins áfram um
ókomin ár, eftir því sem efni fellur til og
ástæður leyfa.
Á hlífðarkápu er litmynd af Hólmatindi
eftir Bolla Davíðsson. Útgefandi er Byggðar-
sögunefnd Eskifjarðar.
■ Þetta er nýja
Heidelberg offset
prentvélin okkar. Mjög
fullkomin vél og hentug
til prentunar litaverka. En við
prentum líka fleira, bæði stórt og smátt.
Við erum með hönnun, setningu, fúmu- og plötugerð,
prentun og bókband og notum góðar vélar
til þess að hjálpa okkur viðað skila PRENTSMIÐJAN f
góðu prentverki. Smiðjuvegi 3 - 200 Kópavogur - Sími 45000
N édddc