Tíminn - 07.01.1984, Blaðsíða 1

Tíminn - 07.01.1984, Blaðsíða 1
íþróttamaður ársins 1983 — Sjá bls. 9 Bta 1 ð 1 Tvö blöð í dag Helgin 7.-8. janúar 1984 6. tölublað 68. árgangur Siðumuta 15-Postholf 370Reykjavik-Ritstjorn86300-Augly&ingar 18300- Atgreiðska og askrift 86300 - Kvöidsimar 86387 og 86306 Tíðindalitlum álviðræðum lokið í bili: bOkt vw AB DMGITIL IfD- INM Á FUNNNUM EFHR MANUU Silungapollur verður rifinn ■ Borgarráð samþykkti á fundi sínum 30. desember s.l. að veita heimild til að rífa húsið á Silungapolli og mun það brátt verða auglýst til sölu og niðurrífs. Sem kunnungt er hefur SAA nú fyrir skemmstu hætt — „Fullviss um að endurskoðun samninga lýkur á þessu éri'% segir dr. Ernst einn aðalforstjóra Alusuisse starfsemi í þessu húsi og flutt hana í nýbyggingu sína að Vogi. Silungapollur hefur ver- ið bráðabirgðahúsnæði fyrir SÁÁ um hríð, en það stendur á vatnsöflunarsvæði borgarinn- ar og því hefur verið talið æskilegt að það hyrfi sem fyrst. ■ Fyrsta fundi samninga- nefndar um stóriðju og fulltrúa Alusuisse lauk uppúr hádeginu í gær, en fundurinn hófst síðdegis í fyrradag. Að sögn viðmælenda Tímans miðaði heldur í sam- komulagsátt , en þó voru skiptar skoðanir viðmælenda um hve árangursríkur fundur þetta hefði verið. Til að mynda sagði dr. Ernst, einn aðalforstjóra Alus- uisse að hann teldi að þessi fundur hefði verið mjög árang- ursríkur, og sagðist hann þess fullviss að endurskoðun samn- inganna yrði lokið á þessu ári. I fréttatilkynningu sem aðilar sendu sameiginlega frá sér, segir m.a.: „Rætt varum gagnasöfnun aðila vegna endurskoðunar á núgildandi samningum og nýjum samningi vegna stækkunar. Skipst var á skoðunum og ákveð- ið um framhaldsathuganir vegna næsta fundar að því er tekur til eftirfarandi atriða. a. Breytingar á rafmagnssamningi, þ.m.t. verðtryggingarákvæði. b. Hugs- anlegar breytingar á skattkerfi. c. Stækkuna álbræðslunnar í Straumsvík. d. Samkeppnis- stöðu álframleiðslu á íslandi." Formaður stóriðjunefndar, dr. Jóhannes Nordal sagði að lokn- um fundi í gær í samtali við Tímann: „Þessi fundur hefur verið svona grunnvinna, gagna- söfnun og samanburður á gögnum. „Við erum sammála um margt sem skiptir máli varð- andi staðreyndir í heiminum um raforkuverð til álvera, en það þarf að túlka fleiri atriði og meta.“ Dr. Jóhannes Nordal sagði að aðilar væru sammála um að verð- tryggja bæri raforkuverðið, en þeir væru ekki reiðubúnir að leggja fram tillögur í því efni, því það ætti eftir að athuga ýmsa möguleika í því sambandi. Samkvæmt heimildum Tímans var þetta átaka lítill fundur á milli aðila, en heimildarmenn blaðsins hallast jafnframt að því að til tíðinda dragi á næsta fundi aðila sem ákveðinn hefur vcrið í Zúrich fyrri partinn í næsta mán- uði. - Sjá nánar bls. 3. - JGK. Eitt prósent þjóðarinnar flaug innan- lands í gær ■ íslendingar héldu mikinn flugdag í gær. Nærri lætur að um 1% þjóðarinnarhafi brugð- ið sér í flugferð innanlands þennan eina dag. Með áætlun- arflugi fóru alls um 2.150 - 2.200 manns, en auk þess var töluvert um leiguflug og cinkaflug. Með flugvélum Flugleiða flugu alls um 1.500 farþegar í gær í alls 19 flugferðum innan- lands. Flugvélarnar komust til allra áætlunarstaða félagsins. Af þessum 19 ferðum voru 18 með Fokkervélum félagsins frá Reykjavík. Auk þess fór Boingþotan Frónfari frá Kefla- vík til Akureyrar kl. 18 í gærkvöldi, en hún tekur 164 farþega. Um kl. 17,30 í gær hafði Arnarflug flutt um 300 farþega í 10 ferðum til 7 staða á landinu: Suðureyrar, Flateyr- ar, Hólmavíkur, Gjögurs, Rifs, Stykkishólms og Reykja- ness. Tvær ferðir voru þá eftir, til Blönduóss og Sauðárkroks. Flugfélag Norðurlands gat flogið til allra áætlunarstaða nema Siglufjarðar og Kópa- skers. Félagið flutti um 220 manns milli staða í gær. Miklar annir voru einnig hjá Flugélaginu Örnum á ísafiröi. Um 50 manns flugu með félag- inu í 12 flugferðum til átta staða. Auk þess var eitt sjúkra- flug til Reykjavíkur frá ísa- firði. Var þar um aldraða konu að ræða, sem hafði lærbrotnað og var búin að bíða í sólarhring eftir flugi. Hjá Flugfélagi Austurlands var sömu sögu að segja af miklum umsvifum. Fiugvélar félagsins voru báðar í Reykja- vík í gærmorgun vegna sjúkra- flugs þangað daginn áður. Fé- lagið flutti um 55 farþega milli 5 staða á Austurlandi í gær, frá Egilsstöðum til: Breiðdalsvík- ur, Hafnar, Vopnafjarðar og Borgarfjarðar-eystra. - HEI. ■ „Það reis rosalegt brot og æddi yfir skipið. Krafturinn var svo ógurlegur að það komu stærðar dældir í brúna framanverða, bæði stjórn- og bakborðsmegin. Að auki skekktist brúarþakið framanvert og gluggar rífnuðu úr í heilu lagi.Einn hcntist aftur eftir brúnni eina fimm eða sex metra að stigaopinu niður á gang. Hann lenti í handriðinu, gerði á það stærðar gat og hentist svo niður á gang,“ sagði Gísli Jónmundsson, fyrsti vélstjóri á togaranum Otto N. Þorlákssyni, þegar Tímamenn hittu hann um borð í gær, en skipið liggur nú við Grandagarð í Reykjavík. Eins og greint var frá í blaðinu í gær, var togarinn staddur á Skerjadýpi, nánar til tekið á Fjöllunum, þegar brotið reið yfir snemma morguns í fyrradag. Togarinn Snorri Sturluson, sem staddur var á svipuðum slóðum, var fenginn til að fylgja Otto til Reykjavíkur, og komu þeir á ytri höfnina undir miðnættið í fyrrakvöld. „Ástæðan fyrir því að Snorri var fenginn til að fylgja okkur var sú, að það kolslúttaði allt í brúnni og næstum öll siglinga- tæki voru óvirk. Ég veit ekki hvort mikið af þeim er ónýtt, en það er búið að taka í land að minnsta kosti tvo lórana, tvo radara og tvær talstöðvar og mér skilst að það sé óvíst hvort hægt ■ Eins og sjá má er brúin illa farin að innanverðu, einangrun hangir niður úr loftinu og búið er að koma tréspjöldum fyrir tvo glugga. Gísli Jónmundsson, fyrsti vélstjóri, heldur um stýrið. - Tímamynd Ami Sæberg. „Það kolslúttaði allt fbrúnni og næstum öll siglingatæki voru óvirk”: SNjRINN DUNN A1. STÝRIMANNI — þegar brotsjórinn gekk yfir Ottó N. Þorláksson verður að gera við allt saman," sagði Gísli. Hann sagði að fyrsti stýri- Einarsson, hefði einn verið í brúnni þegar ósköpin dundu yfir. Það yrði að teljast mesta mildi að hann skyldi sleppa heill. „Sjórinn dundi á honum, en krafturinn var mestur sitthvorum megin við hann,“ sagði Gísli. Sturla sat í stól í miðri brúnni. Gísli sagði, að enn lægi ekki ljóst fyrir hve langan tíma tæki að gera við skipið. Það réðist nokkuð af því hvort fyrst færi fram bráðabirgðaviðgerð eða hvort alll sem aflaga fór yrði lagað. - Sjó.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.