Tíminn - 07.01.1984, Page 7

Tíminn - 07.01.1984, Page 7
LAUGARDAGUR 7. JANÚAR 1984 Reykjavik, 4. janúar 1984. Frú Svala Thorlacius hdl., Húsi verslunarinnar, Kringlumýri, Reykjavík. Kær frú Thorlacius! Þann 27. desember s.l. hafið þér skrifað ríkissaksóknara Þórði Björnssyni bréf sem mig varðar að nokkru og degi síðar hafið þér sent út fréttatilkynningu til fjölmiðla um innihald þessa bréfs. Bréfið innhélt kæru (í formi beiðnar um „opinbera ransókn“) sem greint var frá mjög afbakað í fréttatilkynningu yðar. Allt þetta gerið þér vitaskuld fyrir hönd lögreglufélagsins í Reykjavík. Sem þér nú tiafið valið þá leið að syngja þennan einsöng yðar með Lög- reglukórnum í dagblöðunum sé ég mér naumast annað fært en gera mínar athugasemdir þar líka, enda þótt ég telji mig löngu vera búinn að gera skyldu mína við lögreglu þessa bæjar á þeim vetvangi. Úrþví þér stefnið mér í dag- blöðin mæti ég þar einsog hver annar löghlýðinn borgari og reikna með því að þau ljái pláss undir svar mitt einsog mórölsk skylda vitaskuld býður. Ég sendi þeim líka texta bréfs yðar til Þórðar og vænti þess að hann verði birtur óstyttur svo almenningur geti lesið það svart á hvítu um hvað er að ræða. Jafnframt vil ég mega gera fáeinar athugasemdir við skrifið. Um greinarnar tvær sem stefnt er útaf segir í bréfi yðar til Þórðar: „Stjórn lögreglufélags Reykjavíkur telur að hér sé um svo alvarlegar ásakanir að ræða í einu víðlesnasta blaði iandsins að brýna nauðsyn beri til að mál þetta verði rannsakað til hlítar svo að stétt lögreglu- nianna verði hreinsuð af áburði þessum.“ Það sem lögreglan hefur fengið yður til að kalla ásakanir birtist raunar í alvíðlesnasta blaði landsins og var ein- dregin ósk mín til dómsmálaráðherra um það að barsmíðamál lögreglunnar sem almennt ganga núorðið undir nafn- inu Lögregluvandamálið yrði ransakað til hlítar af hlutlausum aðilum. Hvers- vegna getið þér ekki bara tekið undir þá frómu ósk mína? Ég ræddi þann 28. desember við fulltrúa á lögfræðistofu yðar (þér tókuð ekki síma) og hann tjáði mér að meining- in væri að mál þetta gengi frá sak- sóknaraembættinu til Ransóknarlög- reglu ríkisins. Nokkuð góð hugmynd það, kanski jafnvel lögleg- en fyrirgefið mér líkinguna, kæra frú - væri það ekki glannaskapur að hafa lög um hunda- hreinsun í landinu þannig að hundarnir ættu sjálfir að sjá um þá framkvæmd. Mundi ekki sullaveikin þá breiðast útum landið á ný? Ég er hræddur um það. í þessum orðum mínum felst ekki nokkur aðdróttun, hvorki að lögreglunni né hundum alment, en hitt afturámóti að það er mín eindregin skoðun að lög- reglufélagið sé ekki réttur kæruaðili í þessu máli, síst af öllu væri þó rétt að kæra það til lögreglunnar sjálfrar. Gæti hún með nokkru móti stilt sig um það að snúa uppá hendurnar (í yfirfærðri merk- ingu náttúrlega) á vitnum og vottorðagj- öfum í þeirri stöðu? Kanski gæti hún það og húrra fyrir því! En hver mundi trúa slíku? Enginn nema sá einn sem lenti í þvílíku kraftastillingarverki. Og hver tryði honum svosem? Og það er náttúrlega fyrst og fremst lögreglunnar vegna sem ótækt verður að lögreglan kæri Lögregluvandamálið til umfjöllunar hjá lögreglunni? Má ég líka bæta því við að saksóknari er líkastil vanhæfur, einsog það mun heita á lögmannamáli, í þessu sambandi vegna fyrri skrifa minna um hann og embættið. Þeirri ábendingu vísa ég áfram til ráðherra sbr. grein Dr. Eysteins Sigurðssonar í Þjv. 21/12 1983. En það er nú bara smáræði sem rætt verður ef þar að kemur. Þér leggið meginþungan í bréfi yðar til Þórðar á meiðyrðaþátt þessa máls og væri því eðlilegra að beina málinu þær brautir sem meiðyrðamál alment fara. Hversvegna gerið þér það ekki? Ég held að lögfræðileg ráðgjöf yðar sé kanski að veita lagavörðunum þyngri högg en þeir áður hafa fengið í almenningsálitinu. Fólk er að spurja: Hversvegna vill löggan stefna málinu einmitt þangað? Hvaða tengsl eru þama á bakvið tjöldin? Eru þessir feðgar? Eru hinir gamlir starfsfé- lagar? Frímúrarar kanski? Oddfellowar? Lyons eða Kiwanis? Mágar kanski eða frændur? Lögregluvandamálið felst ekki hvað síst í brostnæum trúnaði milli almenn- ings og lögreglu og hræddur er ég um það að persónufræðingar Reykjavíkur færu nokkuð létt með það að finna slík tengsl hvort sem þau yrðu fyrir hendi eða ekki og hvert sem ríkissaksóknari mundi senda málið. Þvímiður. Það er beinlínis óráðlegt í þessari stöðu að lögreglan komi með beiðni um það að fá bæði að ráða umfangi og vetvangi þeirrar könnunar sem nú verð- ur trauðla umflúin lengur. Væri hér réttarríki en ekki lögregluríki þætti bréf yðar til Þórðar beinlínis siðferðilega galið. Það er skrifað í nafni rangra aðila til vanhæfrar persónu. Innihald þess er kámug ósk um vafasama „hreinsun" á kæruaðilanum. Dragið þetta bréf til baka, kæra frú, ef þér viljið lögreglu- kórnum yðar vel. Fyr mun hann aldrei syngja hreinan tón á almannafæri. Og sækið mig þá heldur fyrir meiðyrði eftir vanalegum leiðum ef yður sýnist það vænlegt ráð. En gerið þó eitt fyrir mig áðuren þér skrifið nýja meiðyrðakæru. Flettið upp í ■ Þorgeir Þorgeirsson. orðabók Menningarsjóðs á orðunum áburður, dylgjur, aðdróttun, ásökun og skoðið vel merkingu orðanna. Látið sérfróðan textagreinanda fara yfir það með yður hvort eitthvert þessara orða gæti átt við um svo mikið sem éina setningu í greinunum tveim sem kært er útaf. Þetta segi ég einkum vegna setningar- innar: „í greinum þessum báðum, eink- um þó þeirri fyrri kemur fram grófur áburður, dylgjur og ærumeiðandi að- dróttanir, í garð lögreglumanna". Þessi fullyrðing yðar í nafni lögreglusveitanna er dálítið raunaleg og mikið fljótræði. Lögreglan er nefnilega hvergi ásökuð í greinum mínum, a.m.k. ekki í þeirri fyrri. Þar er greint frá því heiðarlega og hispurslaust að mér þyki almenningsálit hér gagnvart lögreglunni orðið háskalegt og krafist er hlutlausrar könnunar á því hvort slíkt almenningsálit gæti átt við rök að styðjast. Fyrst er semsé að ransaka hvort það er söguburðurinn eða lögreglan sem er galin. Og sú ransókn þarf að vera hlutlaus. Niðurstaða slíkrar ■ Svala Thoriachis. könnunar skæri úr um það hvort ásakan- ir mínar eiga við lögregluna eða sögu- burðinn. Nema lögreglan vilji strax játa á sig þessa sök - einsog raunar gert er með fyrnefndri setningnu í bréfi yðar. 1 mínu bréfi (sem þér stefnið útaf) var alveg gjörsamlega vísvitandi sneitt hjá ærumeiðandi ásökunum. Þar er hvergi vitnað til hluta sem ég hef sjálfur séð til lögreglunnar, öllu slíku er viljandi slept vegna þess að þá hefði einmitt komið til meiðyrða. Gætum að því. Meiðyrðatal yðar byggist því á nokkuð veikum grunni. En að lokum þetta: Fyrir nokkru var hér á ferð vel þekktur bandarískur sérfræðingur í refsirétti. Hann mun hafa kynt sér stöðu sakborn- inga í fáeinum málum hér í dómskerfinu. Að loknum fyrirlestri sem þér hafið kanski hlustað á var hann spurður nánar útí þessi dæmi sem hann kynti sér hérna. Þau voru, trúég, nokkuð Ijót. Hann var spurður beint hvort hann áliti mögulegt að slík dæmi gerðust í nálægum löndum. Hann mun hafa svarað af bragði: - Ekki neinstaðar nær okkur en í Suður-Afríku! Þannig er staða sakbomings hérlendis. ■ Vitaskuld er yður mætavel kunnugt um þetta og því erað þér nú væntanlega að útvega mér þá stöðu með kæru yéar. Nýiega skrifaði lögregluvarðstjóri grein í DV og var þar með hótanir um það að taka af mér rithöfundartitilinn og láta mig hafa annan titil í staðinn. Þetta gengur víst upp. Þessum lögregluvarð- stjóra ætla ég að senda rithöfundartitil minn í bréfi. Það sparar honum aðgerð- iraar og titilgreyið er mér sama um. Hitt er svo annað mál hvort þessum Sturl- ungufróða lögga tekst að hemja titil- skömmina hjá sér. Greyið hefur einlægt skilað sér heim framað þessu. En sleppum því öllu. Máski tekst yður, frú Thorlacius, að bola mér inní þungbæra stöðu sakborn- ingsins í þessu máli, og þá með einhvers- lags rangindum. Vafalaust mætti þá lumbra á mér einhverjum til ærinnar gleði. En það „hreinsar“ bara ekki lögregluna. Þessvegna eruð þér vondur ráðgjafi lögreglunnar og valdið henni meiri skaða en nokkur ástæða sýnist til. Nema þarna sé jafnmikið að fela og almenningur núorðið gerir sér í hugar- lund. Þá væri að sjálfsögðu öllu til fórnandi útfrá sjónarmiði ykkar. Einhver skaut því að mér fyrir skemstu að plan ykkar mundi vera það að láta Þórð setjast á málið, jafnvel gleyma því. Skilja mig þannig eftir sem ákærðan glæpamar.n án þess að þurfa frekar við mig að glíma. Það væri svosem nógu góð hugmynd. Sé nú þannig í pottinn búið megið þér eins búast við því að ég komi öðru hvoru og klappi upp þennan einsöng yðar með Lögreglukórnum. Þó tónar séu óhreinir, þá sungið er. Með bestu kveðjum, Þorgeir Þorgeirsson. Bréf Svölu til saksóknara ■ Grcinarhöfundur óskaði þess ein- dregið við Tímannn að eftirfarandi bréf Svölu Thorlacius hdl. til Þörðar Björns- sonar ríkissaksóknara, sem hann lét fylgja skrifum sínum, verði Ijáð rúm við hlið greinarinnar, til að öll kurl komist örugglega til grafar. Embætti ríkissaksóknara, hr. Þórður Björnsson, ríkissaksóknari, Hverfisgötu 4-6, Reykjavik. Reykjavík 27. desember 1983. ■ Til mín hefur leitað stjórn Lögreglu- félags Reykjavíkur og falið mér að óska eftir því við yður að fram fari opinber rannsókn vegna eftirfarandi máls: Miðvikudaginn 7. desembers.l. birtist í Morgunblaðinu 281. tbl. 70. árg. grein eftir Þorgeir Þorgeirsson rithöfund undir fyrirsögninni: „Hugum nú að. Opiðbréf til Jóns Helgasonar dómsmálaráðherra." Þriðjudaginn 20. desember s.l. birtist í 292. tbl. Morgunblaðsins önnur grein eftir sama höfund undir yfirsögninni „Neyttu á meðan á nefinu stendur..." í greinum þessum báðum, einkum þó þeirri fyrri kemur fram grófur áburður, dylgjur og ærumeiðandi aðdróttanir, í garð lögreglumanna. Alvarlegasti áburður greinarhöfundar er sá að ungur maður hafi slasast svo af völdum lögreglu að hann hafi hlotið af mikla og varanlega örorku. Stjórn Lögreglufélags Reykjavíkur telur að hér sé um svo alvarlegar ásakan- ir að ræða í einu víðlesnasta blaði landsins að brýna nauðsyn beri til að mál þetta verði rannsakað til hlítar svo að stétt lögreglumanna verði hreinsuð af áburði þessum. Stjórn Lögreglufélags Reykjavíkur leggur einnig þunga áherslu á það, að leiði rannsókn í ljós að ásakanir þessar séu réttmætar, verði þeim seka eða þeim seku stefnt til fullrar ábyrgðar á verkum sínum. ítreka ég því hér með fyrir hönd stjórnar Lögreglufélags Reykjavíkur þá kröfu að fram fari opinber rannsókn vegna framannefndra-blaðagreina þann- ig að allir aðilar, sem hlut gætu átf að verði látnir standa fyrir máli sínu. Meðfylgjandi eru umræddar greinar úr Morgunblaðinu. Virðingarfyllst, f.h. stjómar Lögreglufélags Reykjavík- ur, Svala Toriacius hdl. Bréf til Svölu frá Þorgeiri Þorgeirssyni Neyttu á meðau á nefinu steB^Ssr'á • — - ~*1S i sjÓB- 13. aoeaf Uj&rnAiatti&r htw .ur^ssal. ,,í6 báöum s* niunar }*» mt'.ntamcnf* Kvöd«iu«‘st vl*> 8VO 4 eftir Vjemur ér áóraUK- ,r ijdf- ir.k-«a vi'Afit vtiriö ul& flhvtirrar $iOR' íor ftá ft? .... ivatíbú* birtísi GaiUHit8«rf! ;,’. miéikjuirt prjúr W«oS»>' i Viríftíl til — mu unt jogTLv, . iwits- voru t'AÓr ú nyöfgum í víkurUkír^urmi^ ^tw m k íriitsleysínu í>vi cr> Irífa urn tint” “ jí toVtö (ypt "k n„iu rr .WriWjiwltKl d»0Bl*r. nítmnt t'l fóíjludagi”” _ Oranir nú (rí> «5 Hðilálnli£[!r“(*ffran»,> un,laO|<eiW« '>k“7 ‘‘'UiPÍyfílSil. .Xlaosinr. «ÍB; birtisHraBOrbie 3 jt *■ mS tiverfa tíl inu «&*** y*. r r vy'd kom uft- * tewll. Erin* r . rgQir~ f„ir ,„ér skilal um MolUo.. <»■* 'áSr,li víírl«re»o- vaodamainolM • s «'^ rfÆtai nút hc,í Uf, UoffiSnMaöim' l>á oiovorbonRo s 1, iSat »vo afrbk- bréf. hrtor * f"> '■■*»« V , ntáb 0? » Ul«1*Ur .. *b«rð£ Uárt“«. A{ for, "'‘w nSZ "jörj, , « segu . > &.*** * **> 4 >fi.A yg-rt gatita 'Vr.— IwjiMr !.««oir»» Af viibtögéum í þessu**} má vel ráfta aö l>e,TO JónsThotoddsen.Gtoaa lciti kemut viOa fyr.r ' shtifum **?■%£* heir líka vcrt» »»‘ Grettlu? Trrteöt sýnastdnkumveraiMUu riemi viö S>aö «<TO’ É'r í‘teSvoUskal bölbæta aö biöa atutaö íneita. 1 &tíss5fc3,

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.