Tíminn - 07.01.1984, Side 8

Tíminn - 07.01.1984, Side 8
8 LAUGARDAGUR 7. JANUAR 1984 NÚ ER FROST OG SNJOR Á FRÓNI... SNJÓSLEÐAR ÞEYSAST UM LANDID <& VÉLADEILD SAMBANDSINS ^ Ármúla 3 Reykjavík Sími38900 TRAKTORAR Bændur Við getum afgreitt flestar gerðir FORD traktora með stutturti fyrirvara, með eða án framdrifs. Verðið hefur sjaldan verið hagstæðara. Hafið samband við okkur sem fyrst. ARMÚLA 11 SlMI S1500 bridge Reykjavíkur- mótið hafið ■ Reykjavíkurmótið í sveitakeppni átti að hefjast á miðvikudagskvöldið var, en eins og nú er orðinn árlegur viðburður, varð að fresta fyrstu umferð- unum vegna öveðurs. Fyrstu tvær um- ferðirnar voru því ekki spilaðar fyrr en kvöldið eftir. I7 sveitir taka þátt í mótinu nú en það er svipuð þátttaka og verið hefur undan- farin ár. Það eru því allóljósar línur eftir þessar tvær fyrstu umferðir en Sveit Gests Jónssonar hefur þó forustu með 37 stig. Síðan koma sveitir Guðbrands Sigbergssonar með 35 stig, og Úrval með 34 stig. Undankeppni Reykjavíkurmótsins verður spiluð í janúar en fjórar efstu sveitirnar komast síðan í úrslit sem verða spiluð fyrstu helgina í febrúar. Rétt er að taka það fram að fyrirhug- aðri spilamennsku í mótinu í dag hefur verið frestað, þar sem í Ijós kom að fótboltaáhugi bridgemanna reyndist spilaáhuganum yfirsterkari. Reykjanesmótið í tvímenning Reykjanesmótið í tvímenning verður haldið í Safnaðarheimilinu Ytri Njarð- vík dagana 21. og 22. janúar, og hefst spilamennska kl. 13.30 báða dagana. Keppt verður um glæsilegan farandbikar sem Samkaup hafa gefið. Vegna fyrirhugaðrar tölvugjafar verð- ur að tilkynna þátttöku með minnst viku fyrirvara, svo þátttaka sé trygg. Tilkynna skal til Gísla í síma 92-3345, Einars í síma 52941 eða Þórir í síma 41003. Bridgedeild Breiðfirðinga Síðustu tvær umferðir aðalsveita- keppninnar voru spilaðar síðastliðinn fimmtudag. Babb kom í bátinn því meðlimir sveitar Sigurðar Ásmundason- ar mættu ekki um kvöldið vegna mis- skilnings en sveit Sigurðar hafði forustu í mótinu þegar spilamennska hófst um kvöldið. Ekki hefur enn verið ákveðið hvernig það mál verður leyst en staða efstu sveita eins og er er þessi: Ingibjörg Halldórsdóttir....... 276 Helgi Nielsen .................. 250 HansNielsen .................... 250 Guðlaugur Nielsen............... 227 Jóhann Jóhannssop .............. 222 Ragna Ólafsdóttir .............. 222 Elís R. Helgason................ 221 Aðaltvímenningur félagsins hefst næsta fimmtudag. Mótið verður með barometerformi og er hámarksþátttaka 48 pör. Örfá sæti eru enn laus og verður tekið við skráningu í síma 42571 (Sig- ríður) fram á mánudagskvöld. Bridgefélag Hafnarfjarðar Jólamót félagsins var haldið með pompi og prakt fimmtudaginn 29. des- ember. Spilaður var Mitchell tvímenn- ingur með þátttöku 28 para og var ákvcðið að allur aðgangseyrir skyldi fara í verðlaun til spilaranna. Veitt voru verðlaun fyrir tvö efstu sætin í hvorum riðli. Efstu skor hlutu eftirfarandi: N-S 1. Erla Sigurjónsdóttir - Dröfn Guðmundsdóttir 357 2. Gissur Ingólfsson - Helgi Ingvarsson 351 3. Gylfi Baldursson - Sigurður B. Þorsteinsson 347 A-V 1. Friðþjófur Einarsson - Halldór Einarsson 393 2. Björn Halldórsson - Hrólfur Hjaltason 340 3. Björn Ingvarsson - Ólafur Torfason 338 Bridgedeild Skagfirðinga Þriðjudaginn 3. janúar mættu sextán pör til leiks og spiluðu tvímenning í einum riðli. Hæstu skor hlutu þessi por: 1. Guðni Kolbeinsson - Magnús Torfason 272 2. Óli Andreason - Sigrún Pétursd. 238 3. Lilja Jónsdóttir - Stefán Gunnarsson 233 4. Bergur ísleifsson - Guðjón Sigurðsson 231 5. Björn Hermannsson - Lárus Hermannsson 226 Næstu tvo þriðjudaga verður spilaður tvímenningur en síðan hefst aðal sveita- keppni deildarinnar 24. jan. 1984. Bridgefélag Breiðholts Þriðjudaginn 3. jan. var spilaður eins kvölds tvímenningur með þátttöku 10 para. Úrslit urðu þessi: 1. Eiríkur Bjarnason - Halldór S. Magnússon 134 2. Anton Gunnarsson - Árni Alexsandersson 129 3. Steingrímur Þórisson - Helgi Skúlason 125 4. Leifur Karlsson - Hjálmar Pálsson 120 Meðalskor 108 Félagið óskar spilurum gleðilegs árs og þakkar samstarfið á liðnu ári. Spilarar sem eiga óskráð bronsstig í fórum sínum eru minntir á að síðustu forvöð eru að skila þeim næsta þriðjudag á keppnisstað og verður séð um að koma þeim til Bridgesambands íslands. Næsta þriðjudag hefst sveitakeppni félagsins, með fyrirvara um næga þátt- töku. Spilarar eru hvattir til að mæta vel og tímanlega til skráningar. Einnig er hægt að skrá sveitir hjá Baldri í síma 78055. Spilað er í Gerðubergi, keppnis- stjóri er Hermann Lárusson. Egilsstaðir: Pall Petursson Arskoguml3. s 97-1350 Sey&isfjörður: Svanur Sigmarsson Oððagotu 4e s 97-2360 Neskaupstaður: Sjöfn Magnusdóthr, Hliftargótu 13 Ymnusirm 7321. Hðimasimi 97-7628. Eskifjörður: Rannveig Jonsðottir Hatu9»25 s 97-6382 Reyðarfjörður: Manno Sigurb|Otnsson Heiðarvegi 12. s 97-4119 Fáskrúðsfjörður: 5on|a Anöresðottir Þmgholti s 97 5148 Stöðvarfjörður: Stelan Magnusson Undralanði s 97-5839 Djupivogur: Arnor Stetansson Garði. S 97-8820 Höfn: Kristin Sæbergsoottir Kirkjubfaut 46. s 97-8531 Vík: Ragnar Guðgeirsson Kirkjuvegi 1 s 99-7186 Hvolsvöllur: Bara Solmunðsðottir Solheimum. s 99-8172 Hella: Guðrun ArnaðOttir Þruðvang. 10 s 99-5801 Selfoss: Heiga Snorraðonir Tryggvaveg 5. S 99-1658 Stokkseyri: Moey Agustsðottir Imdarbetgi s 99-3283 Eyrarbakki: Regma Guðionsðotflr Stighusi s 99-3143 Þorlákshöfn: Frankim Beneðiktsson Skaiho'tsbraut 3 s 99-3624 Hveragerði: StemunnGiSlaoottir Breiðumork 11 s 99-4612 Vesfmannaeyjar: Sgurion jakobsson Heiðarluni 2 s 98-2776 Grindavik: Aða'heiðuf Guðmunosoottir Austurbfun 18 S 92-8257 Garður Kristjana Ottarsðottir Lyngbtaut6 s 92-7058 Sandgerði: SnjOlaug Sigtuscottir Suðurgotu 18 s 92-7455 Keflavik: EygkJ Knstiansdottif Dvergasteim s 92-1458 Ytri-Njarðvik: Esther Guðlaugsoonir Holagolu 25 s 92-3299 Innri-Njarðvík: Johanna Aðalsteinsðotlir Stapakoti 2. s 92-3299 Hafnarfjörður: Helga Thofstems Merkufgotu 13 S 52800 S v91-7.-j55 Garðabær: Sigrun Kristmannsðottir Hotstunði 4 s 43956 Akranes: Guðmunður BjOmsson Jaðarsbfaut9 s 93-1771 Borgarnes: Guðny Þorgeirsoottir Kveiöuilsgotu 12 s 93-7226 Hellissandur: SigurjOn Haiiootsson Munaðarholti 18 S 93-6737 Rif: Snæois Knstmsoottir Haanti 49 s 93-6629 Ólafsvik: Stetan Johann Sigurðsson • Engihhð 8 v 93-6234 Grundarfjörður: Johanna Gustatsðott- Fagurholstuni 15 s 93-8669 Stykkishölmur: Knstm HarðarOOttif Borgarflot 7 s 93-8256 Búðardalur: Soiveig Ingvaoottir Gunnarsbraut 7, s 93-4142 Patreksfjörður: ingibjOtg Haraklsðotiif Tungotuö s 94-1353 Bildudalur: Jona K Jonsdottir Tjarnarbraut 5. s 94-2206 Flateyri: Guðfun Kristjansðottir Bnmnesvegi 2 s 94-7673 Suðureyri: Lilja Bemoðusðottir Aðalgotu2 s 94-6115 Bolungarvik: Knstrun BeneOiktsðOttir Halnarg 115 s 94-7366 ísafjörður: Guömunður Svemsson Engjavegi 24 s 94-3332 Súðavik: Heiðar Guðbranosson Neðri-Grunö S 94-6954 Hólmavík: Guðbiorg Stelansoottir B'ottugotu 4 s 95 3149 Hvammstangi: EyjOltur Eyiollsson s 95-1384 Blönduós: Guðrun Johannsöottir Garðabyggð6 s 95-4443 Skagaströnd: Arnar Arnorsson. Sunnuvegi 8 s 95-4600 Sauðárkrókur: GuttOfmur Oskarsson Skagfirðmgabr 25. s 95-5200 og 5144 Siglufjörður: Fnðfmna SimonarOottir Aðaigotu21. s 96-71208 Ólafsfjörður: Helga Jonsöottir Hrannarbyggð 8 s 96-62308 Dalvik: Brynjar Fnðleitsson Asveg.9 s 96-61214 Hrisey: Auðunn Jonsson Hnseys.96-61766 Akureyri: Viðar Garðarsson Kamtagerði 2 s 96-24393 Húsavik: Hatiiði Jostemsson Garðarsbraut 53 s 96-41444 Kópasker: Þorhaila BaiOi.rsaottir Akurgerði 7. s 96-52151 Raufarhöfn: Ofeigur tngvi GyHason Sotvollum s 96-51258 Þórshöfn: Knstmn Johannsson Austurvegi 1 S 96-81157 Vopnafjörður: MatthilOur Oskarsðottir Hamrahlið 16 S 97-3212 NÝIR KAUPENDUR HRINGIÐ! BLADID KEMUR UM HÆL Í'twitm á hvert heimili AÐALSKRIFSTOFA - AUGLÝSINGAR - RITSTJÓRN SlÐUMÚLA 15 - REYKJAVlK - SÍMI 86300 LAUGARDAGUR 7. JANÚAR 1984 9 ÍÞRÓTTIR HELGARINNAR iþróttir Blak: ■ Á morgun hefst íslandsmótið í blaki að nýju, eftir jólafrí, en á sunnudag er aftur á móti athyglisverðasti leikur helgarinnar. Það er topp - viðureign íslands, bikar, haust og Reykjavík- urmeistara Þróttar við nýliða HK. Liðin eru nú tvö á toppnum, Þróttarar efstir og taplausir, en HK er í öðru sæti, hefur tapað einum lei.k gegn Þrótti. En leikir hclgarinnar: í dag í íþróttahúsi Glerárskóla á Akureyri: KA - Völsungur í 1. deild kvenna kl. 15.00. íþróttahús Hagaskóla: kl. 14.00 Fram-Víkingur 1. deild karla, ogkl. 15.20 Þróttur - Víkingur 1. deild kvenna. Á morgun: Skálaheiði Kópayogi: Klukkan 14.00 HK - Þróttur 1. deild karla, kl. 15.20 Breiðablik - HK 2 í 2. deild karla, kl. 16.40 Breiðabiik - Þróttur 1. deild kvcnna. Handknattleikur: Það sem hæst ber í handknattleiknum um helgina er Evrópuleikur FH og Tatabanya í Ungverjalandi á sunnudagsmorgun. Þar kemur í ljós hverja möguleika FH hefur gegn þessu sterka liði, sem er einkar sterkt á heimavelli. Síðari leikur liðanna er á laugardaginn kemur hcr heima, en KR leikur sína leiki þá um heigina einnig gegn Maccaby le Zion, á föstudag og sunnudag. Nánar verður fjallað um þessa leiki í næstu viku í Tímanum. Hér hcima er fyrstudeildarslagurinn í al- gleymingi, í dag tveir leikir, Haukar - Valur í Hafnarfirði klukkan 14.00, og á sama tíma í Höllinni Þróttur - Víkingur. í annarri deild í dag Breiðablik - Grótta í Digranesi klukkan 14.00, og á morgun á sama stað HK - Reynir klukkan 20.00. Þá leika líka Fram - ÍR í Höllinni klukkan 14.00. í fyrstu deild kvenna keppa í dag FH - Akrancs í Hafnarfirði klukkan 16.30, og Valur - KR í Höliinni klukkan 15.15. Á morgun í Höllinni Fram - Fylkir klukkan 15,15 og Víkingur - ÍR klukkan 16.30. Körfuknattleikur Öllum úrvalsdeildarleikjum helgarinnar er frestað vegna farar unglingalandsliðsins til Bandaríkjanna, svo og leikjum Þórs á Akur- eyri. Því eru aðeins tveir leikir í fyrstu deild kvenna, á morgun. Þá leika Haukar og fS í Hafnarfirði klukkan 15.30, og KR og ÍR í Hagaskóla klukkan 21.30. Þeir sem vildu fylgjast með þessum leikjum, skyldu þó hringja í viðkomandi hús og fá staðfestingu á tímasetn- ingunni, þar eð leikjunum á undan hefur verið frestað, Því gæti verið að leikirnir yrðu settir á þægilegri tíma, sá fyrri klukkan 14.00 jafnvel, og sá síðari allt eins klukkan 20.00. - SÖE Feðgar í fyrsta sinn íþróttamenn ársins ■ Þetta er í fyrsta sinn sem feðgar hljóta þennan grip, og eru útnefndir íþróttamenn ársins“, sagði Sigurður Sigurðsson fyrrum íþróttafréttamaður, og einn af frumhcrjum Samtaka íþróttafréttamanna. Hann afhenti Einari Vilhjálmssyni eintak af bók sinni „Komiði sæl“, en eintak af henni fengu allir tíu efstú í kjörinu áritað. ■ Úrslit í kjörinu i gær urðu þessi: 1. Einar Vilhjálmsson, UMSB Frjálsar íþróttir 60 atkv. 2. Ásgeir Sigurvinsson, Stuttgarl Knattspyrna 42 atkv. 3. Atli Eðvaldsson, Fortuna Dússeldorf Knattspyrna 34 atkv. 4. Bjarni Friðriksson, Ármanni Júdó 31 atkv. 5. Sigurður Lárusson, IA Knattspyrna 26 atkv. 6. Þórdís Gísladóttir, IR Frjálsar íþróttir 17 atkv. 7. -8. Kristján Hreinsson, UMSE Frjálsar íþróttir 13 atkv. 7.-8. Eðvarð Þ. Eðvarðsson, Njarðvík, Sund 13 atkv. 9.-10. Kristín Gísladóttir, Gerplu Fimleikar 11 atkv. 9.-10. Kristján Arason, FH Handknattleikur 11 atkvj| STJARNAN SKIN ENN Sigraði KR 22-18 í Digranesi ■ Stjarnan úr Garðabæ tók á móti KRingum í hinu nýja íþróttahúsi Kópa- vogsbúa við Skálaheiði í gærkvöldi. Móttökunum vilja KRingar liklega helst strax gleyma, því Garðbæingar lögðu gamla stórveldið með 22 mörkum gegn 18. Staðan var jöfn í hálfleik 10 mörk gegn 10. Fyrri hálfleikur var frekar jafn og var hvorugt liðið sérstakt ef frá eru taldir markmenn liðanna, Brynjar Kvaran og Jens Einarsson. Báðir vörðu þeir mjög vel. Jakob Jónsson var þó einna skástur en hann skoraði helming marka KR í hálfleiknum, 5 mörk. Sama jafnvægið var í upphafi síðari hálfleiks þangað til að staðan var orðin 15-15 en þá verður fyrst breyting á. Hannes Leifsson hafði jafnað fyrir Stjörnuna og skoraði síðan þrjú önnur mörk og staðan var orðin 18-15 fyrir þá bláklæddu. KRingar reyndu að minnka muninn aftur en það tókst ekki þrátt fyrir að þeirspiluðu maðurá mann undir lokin og Stjörnusigurinn var tryggður. Leikmenn Stjörnunnar spiluðu nokk- uð agað þennan góða kafla sinn á meðan ekkert gekk upp hjá KRingum. Þá var Hannes Leifsson drjúgur og' reyndar réðu mörk hans úrslitum. Auðséð er að Viðar Símonarson er á réttri leið með Stjörnuna. KRingar munu örugglega gera betur í Evrópuleikjum sínum um næstu helgi en þeir hafa nú fengið Gunnar Gíslason aftur til liðs við sig og lék hann með KR í gærkvöldi og skoraði eitt mark. Gunnar á örugglega eftir að styrkja KRinga mikið í næstu leikjum. Mörk Stjörnunnar: Hannes L. 9, MagnúsT. 5, Gunnlaugur J. 3, Eyjólfur B. 3, Björgvin E. 1 og Bjarni Bessa 1. Mörk KR: Guðmundur A. 6, Jakob J. 6, Jóhannes S. 3, Friðrik Þ. 2 og Gunnar Gíslal. BH ■ Einar Vilhjálmsson tekur við hinum veglega vcrðlaunagrip sem íþróttamaður ársins varðveitir í eitt ár, úr höndum Hermanns Gunnarssonar formanns Samtaka íþróttafrétamanna.Þessum grip hampaði Vilhjámur Einarsson faðir Einars flmm sinnum, og hver veit nema sonurinn jafni cða slái það met. - Tímamynd Róbert. nlaut 60 atkvædi af 60 mögulegum ■ Einar Vilhjálmsson spjótkastari var í gær útnefndur íþróttamaður ársins á íslandi 1983. Það voru Samtök íþrótta- fréttamanna sem lýstu kjörinu og sáu um það, eins og þau hafa gert á sama hátt frá árinu 1956. Einar hlaut 60 atkvæði af 60 mögulegum í kjörinu. I öðru sæti í kjörinu varð Ásgeir Sigurvinsson knatt- spyrnumaður, þriðji Atli Eðvaldsson knattspyrnumaður, fjórði Bjarni Frið- riksson júdókappi og flmmti Sigurður Lárusson knattspyrnumaður. Hermann Gunnarsson formaður Sam- rr......................í ■Urslit: ■ taka íþróttafréttamanna lýsti kjörinu og sagði meðal annars: „Kjöri íþróttamanns ársins er ekki ætlað að stuðla að stjörnudýrkun á íþróttafólki, því fer víðs fjarri. Hins vegar er verið að vekja athygli á gildi íþrótta fyrir land og lýð og við vitum að okkar unga og glæsilega æskufólk hefur að leiðarljósi þá íþróttamenn sem skara fram úr. fþróttir hafa margs konar hlutverki að gegna. Það er talað um almennings- íþróttir, keppnisíþróttir og afreksíþrótt- ir. Þessir þættir eru samtvinnaðir og nauðsynlegir hverjir öðrum. Það hefur verið gaman að fylgjast með stórlega aukinni þátttöku almennings í íþrótta- starfinu, einkum hafa sund og skíðastað- ir heillað til sín þúsundir landsmanna og fólk er þess betur meðvitað, að heilbrigð sál býr í hraustum líkama.“ Hermann lýsti síðan kjörinu, og taldi fyrst tíunda mann, þá níunda o.s.frv. Hann lýsti síðan Einar Vilhjálmsson íþróttamann ársins, fór nokkrum orðum um feril hans, og sagði síðan: „Ég hef verið svo lánsamur að geta fylgst með og kynnst Einari á síðustu árum, sannari íþróttamann og heilbrigð- ari félaga hefi ég ekki þekkt. Einar er reglumaður á áfengi og tóbak, fullkomin fyrirmynd æskufólks á öllum sviðum, hreinlyndur, heiðarlegur, ákveðinn og jákvæður og vinnur markvisst að öllu sem hann tekur sér fyrir hendur, Þetta er ekki orðagjálfur á stund sem þessari, heldur stór orð og sönn sem sæma þcssum unga og sanna afreksmanni." Einar Vilhjálmsson skar síðan fyrstu sneiðina af tertunni sem í boði var í hófinu, sem Volvofyrirtækið, umboðið hér Veltir hf, hafði allan veg og vanda af. Haraldur Hjártarson fulltrúi Veltis afhenti Einari bréf frá fyrirtækinu, þar sem honum var boðið að vera við útnefningu íþróttamanns Norðurlanda. Að lokum þakkaði Einar veittan heið- ur, hélt snjalla ræðu og lýsti því þrotlausa starfi sem forystumenn íþrótta inntu af hendi, og hann og hans líkar nytu góðs af. -SÖE

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.