Tíminn - 07.01.1984, Qupperneq 16

Tíminn - 07.01.1984, Qupperneq 16
Opiö virka daga 9-19. Laugardaga 10-16 H HEDD Skemmuvegi 20 Kopavogi Simar (91)7-75-51 & 7 80 30 Varahlutir Mikiö úrvál Sendum um land allt Ábyrgö á öllu Kaupum nýlega bíla til niðurrifs SAMVINNU TRYGGINGAR &AHDVAKA ARMULA3 SIMI 81411 K!TST)orn8b300- Auglysingar 28300- Afgreiðsla og askrift 86300 - Kvoldsimar 86387 og 86306 Kreditkort: GEFfl FJÖGURRA DAGfl GJALDFREST ■ „Við gáfum þennan frest eingöngu vegna anna hjá okk- ur sjálfum. Skilin eru ekkert verri núna en verið hefur,“ sagði Gunnar Bæringsson, framkvæmdastjóri Kredit- korta, þegar hannvarspurður hvers vegna fyrirtækið hefði gefið handhöfum kreditkorta tveggja daga frest til að gera reikningsskil, en gjalddagi átti að vera 5. þessa mánaðar og frestur var gefinn ti! 7., sem þýðir í raun fjögurra daga frestur, því 7. cr laugardagur og ckki þarf að borga fyrr en á mánudag. Gunnar sagði. að Krcditkort sf væri búið að gera upp við öll íyrirtæki eins og ráð var fyrir gert. Hins vegar hcfði verið svo mikið að gera hjá íyrirtækinu undanfarna daga að það hefði ekki koniið út reikningum til korthafa á rétt- um tíma. -SJO. Lögreglan í Reykjavík lýsir eftir sjötugum manni: Ekkert spurst til hans sidan aðfaranótt miðviku- ■ Lögreglan í Reykjavík lýsir eftir 70 ára gömlum manni, Kristjáni Jenssyni, Álftamýri 10 Rvík. Kristján er 175 sm í hæð, þrekvaxinn. gráhærður og notar gleraugu. Hann var klæddur í brúnan mokkajakka. gráar bux- ur og í svörtum skóm. Hann var með brúna mokkahúfu og mcð brúnar mokkalúffur. Kristján sást síðast við heimili sitt um kl. 02,oo s.i. miðvikudag. Peir sem geta gefið upplýsingar um ferðir Kristjáns cftir þann tíma vinsamlegast láti lögregluna vita. Stjórn Lögmannafélagsins vill að Lög- réttufrumvarpið verði lagt fyrir Alþingi: TELUR FORDÆMIS- GILDI HÆSTflRÉTT- flRDOMfl MINNKANDI ■ „Á undanfurnum áruni hef- ur verið gripið til þess ráðs að fjölga dóniurum í Hæstarétti í því skyni að auka afköst réttarins ug stytta þar með tímann sem inál þurfa að bíða málflutnings. Þetta úrræði hcfur ekki reynst bæta úr vandanum. I'ar að auki befur það leitt til þess að for- dæmisgildi dóma réttarins hefur minnkað. Finnast dæmi þess að sömu lögfræðilegu álitaefnin fá inisnmnandi úrlausnir eftir því hvaða dómendur skipa dóm hverju sinni" segirm.a. íályktun sem stjórn Lögmannafélags Is- lands samþykkti nýlega og sendi dómsmálaráðherra. í ályktuninni er athygli dóms- málaráðherra vakin á að stjórn Lögmannafélagsins telji brýnt að hið fyrsta verði gerðar úrbætur í róttarfari. Alvarlegustu vanda- málin eru talin þau að meðferð dómsmála taki of langan tíma, einkum í Hæstarétti og þurfti venjulcgt einkamál að bíða í allt að eitt og hálft ár frá því það er, tilbúiö til málflutnings og þar til það fæst flutt. í öðru lagi er bent á afleiðingar þær sem fjölgun dómara í Hæstarétti hefur í för með sér og raktar voru hér að framan, og í þriðja lagi að í réttarfari annara vestrænna ríkja þekkist ekki sú skipun, sem gildir hér á landi að dómarar fari með vcigamikil störf á sviði stjórri- sýslu. Sýnist það og kunna að fara í bága við 6. grein Mannrétt- indasáttmála Evrópu að hafa þennan hátt á. í ályktuninni segir ennfremur að í ofangreindum efniim hafi aðeins verið bent á eina hald- bæra leið sem sé fólgin í því að stofna millidómsstig, Lögréttu, með dómendum sem cinungis hafa dómsstörf með höndum. Fyrir liggur frumvarp um þetta efni sem réttarfarsnefnd hefur samið. Stjórn Lögmannafélags- ins telur að ekki megi lengur dragast að ráðast í þær umbætur sem í frumvarpinu felast og skor- ar á dómsmálaráðherra að hann flytji frumvarpið á því þingi sem nú situr. GSH DAUFT YFIR AUCr LYSINGUM A RAS II ■ „Þetta hefur verið licldur dauft hjá okkur núna fyrstu dag- ana cftir áramótin. En það er ekkert öðru vísi en við bjugg- unist við því reynslan er sú að það er lítið auglýst fyrstu dagana í janúar yfirleitt. Það fer ekki að lifna yfir aftur fyrr en uni eða eftir 20.,“ sagði Helga Margrét Reindards, auglýsingastjóri rás- ar II hjá Ríkisútvarpinu. Fimmtíu þúsundum stolið úr bifreið ■ Fimmtíuþúsund krónum í peningum var stolið úr bifreið scm stóð við Merkurteig á Akra- nesi í gær. Peningarnir voru í svartri handtösku. Ekki hcfur enn tekist að upp- lýsa þjofnaðinn og vill lögreglan á Akranesi beina því til bæjar- búa, og þá ekki síst til foreldra og umráðamanna barna og ung- linga að, að hafa augun hjá sér ef þeir veita því athygli að börn og unglingar hafa óvenju mikla peninga undir höndum. GSH Hún sagði að það væri langt í frá að ástæða væri til að örvænta um að auglýsendur vildu ekki auglýsa á rásinni, en sem kunn- ugt er eiga auglýsingar að standa undir kostnaði við rekstur hennar. „Það var mjög mikið auglýst í desember, sem kannski er ekki marktækt. En við höfum talið hæfilegt að auglýsa í fjórar mínútur á klukkustund og þaðer allt útlit fyrir að við náum því meðaltali þó að undanfarna daga hafi aðeins verið auglýst í eina til tvær mínútur," sagði Helga Margrét.’ - En var ekki gert ráð fyrir að auglýsingar yrðu í níu mínútur á klukkustund? „Það var bara hámark sem sett var til að auglýsingarnar yrðu ekki yfirþyrmandi. En það var aldrci neitt takmark að nýta það hlutfall til fulls." -Sjó. T* abriel HÖGGDEYFAR varahlutir SSr1 Laugardagur 7. janúar 1984 . >' ' ■ ‘ ' v,^ ív'*- "y ' i'> ' ,. ' > ~ '<v' t ■ ■ Þau eru svolítið hátt uppi þessa dagana börnin í Nönnufelli eftir alla snjókomuna undanfarið, ef marka má þessa mynd sem Róbert Ijósmyndari Tímans tók i gær. dropar Snjallir menn I hjá IBM? ■ Eins og kemur fram í frétt- um þessa dagana hefur IBM á Islandi gefið Kennaraháskóla j Islands að gjöf fimm tölvur i ásamt hugbúnaði fyrir samtals 1.3 milljónir króna, og er þetta j allt gefið skilyrða og kvaða- j laust af hálfu gefanda. Illar : tungur segja að þarna sé fyrir- tækið að undirbúa garðinn fyr- ir framtíðina, því búast megi við að skólinn sem slíkur á- netjist tækjum Irá fyrirtækinu þegar fram í sækir og til stækk- unar horfir, og annað hitt að nemendurnir venjist þcssum sömu tækjum og vilji halda áfram að kenna á þau þegar út í skóla er komið. I raun sé þetta því lítil fjárfesting fyrir IBM þegar frammí sækir, en auðvitað taka Dropar ekkert inark á þvílíku tali, og samgleðj- ast skólanum með þessa höfð- inglegu gjöf. Hótelþjónusta færir út kvíarnar Með aukinni samkeppni reyna hótelin að brydda upp á nýjungum til að laða að fleiri viðskiptavini, eins og algengt er á hinum ýmsu sviðum við- skiptalífsins. Ekki er þó víst að allir séu jafnánægðir með aukna þjónustu sem eitt liótel í þéttbýliskjarna á Vesturlandi er nú farið að veita. Þannig hafa Dropar heyrt að starfs- menn hótelsins fylgist vendi- lega með því að gestgjafar stígi ekki upp í bifreiðar sínar að lokinni máltíð ef vín hefur verið haft um hönd við það tækifæri, án þess að láta lög- regluna á staðnum samvisku- lega vita af því, svo engin hætta sé á að ekkert fari úr- skeiðis. Munu viðskiptamenn hótelsins misánægðir með þessa auknu þjónustu, og langs að bíða að sumir þeirra líti inn á nýjan leik, sérstaklega ef ökulcyfissvipting hefur fylgt í kjölfarið. Krummi .. . ...er á því að stundum gangi samkeppnin út í öfgar

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.