Tíminn - 18.02.1984, Síða 1
Útvegsbankinn seidur og vextir gefnir frjálsir - Sjá bls. 2
Blað Tvö
1 blöð
1 í dag
Helgin 18.-19. febrúar 1984
42. tölublað - 68. árgangur
Sidumula 15-Postholf 370Reykjavik-Ritstjom86300-Auglysingar 18300- Atgreiðsla og askrift 86300 - Kvöldsimar 86387 og 86306
Tvöfalt vopnad rán í Reykjavík í gærkveldi:
RÆNINGINN KOMST UNDflN
MEÐ TÆPAR 2 MILUÓNIR
— Ógnadi starfsmönnum ÁTVR og leigubifreidastjóra með hlaupsagadri haglabyssu
— Leitin að honum hafði ekki borið árangur um miðja nótt
LÝSING LÖGREGLUNN-
AR Á RÆNINGJANUM
■ Vopnað rán var framið fyrir utan
Landsbankann að Laugavegi 77 upp úr
kl. 20 í gærkveldi, og tókst ræningjanum
að komast á brott í stolinni bifreið með
1.8 milljón krónur. Maður, vopnaður
haglabyssu, sem hlaupið á hafði verið
stytt ógnaði fyrst leigubílstjóra af Hreyfli
suður í Nauthólsvík og neyddi hann út úr
bíl hans, um kl. 19.30. Maðurinn er
síðan talinn hafa ekið að útibúi Lands-
bankans að Laugavegi 77, þar sem hann
náði að ræna 1.8 milljón króna af tveimur
starfsmönnum áfengisútsölunnar við
Lindargötu, sem voru við bankann í þeim
erindagjörðum að setja verslun dagsins í
næturhólf bankans. Maðurinn ógnaði
starfsmönnunum með haglabyssunni,
sem hann er talinn hafa stolið í innbroti í
verslunina Vesturröst í fyrrinótt. Skaut
hann að bifreið þeirra og komst síðan á
brott í stolnu leigubifreiðinni.
Tíminn hefur aflað sér frétta
um að leigubílstjórinn, Örn
Reynir Pétursson, bílstjóri á
Hreyfli hafi ekið manninum frá
Hótel Sögu og suður í Nauthóls-
vík, á afvikinn stað. Þar hafi
hann rekið byssuhlaup í hnakka
Arnar Reynis, neytt hann út úr
bifreiðinni og ekið á brott. Örn
Reynir hafi hlaupið að Loft-
leiðahótelinu, og látið lögregl-
una vita þaðan um atburðinn.
Skömmu síðar, eða laust upp
úr kl. 20 var tilkynnt um ránið að
■ Lögreglumaður með Konráð Konráðsson í frumyfirheyrslu á
vettvangi skömmu eftir að vopnaða ránið var framið. Til hægri
stendur Einar Ólafsson útsölustjóri í ÁTVR við I.indargötu.
Tímamynd: Sverrir.
Laugavegi 77, af tveimur starfs-
mönnum ÁTVR við Lindargötu.
Starfsmennirnir, þeir Pálmi Ein-
arsson og Konráð Konráðsson
höfðu að vanda lagt bifreið sinni
á gangstéttina fyrir framan
bankann, og var það Konráð
sem steig út úr bifreiðinni með
peningana, 1.8 milljón krónur. í
þann mund sem Konráð steig út
var skotið af haglabyssu í bretti
og dekk bílsins, og sprakk
dekkið. Konráð hugðist verjast
skotmanninum, sem þá sló til
hans með byssunni og annað
skot reið af við það. Konráð
gafst upp við svo búið og ræning-
inn náði peningapokanum og
komst á brott í stolnu leigubif-
reiðinni. Ræninginn reyndi m.a.
að gera sig torkennilegan með
því að mála á sig skcgg.
Allt lögreglulið borgarinnar
var kallað út til leitar að ræningj-
anum, um leið og tilkynnt hafði
verið um ránið, og var Víkinga-
sveit lögreglunnar í viðbragðs-
stöðu í gærkveldi.
Klukkustund eftir að ránið
hafði verið tilkynnt, fannst bif-
reiðin yfirgefin í porti bak við
Brautarholt 2, og voru fjármunir
og haglabyssa einnig á brott.
Lögreglan fékk mann með
sporhund til liðs við sig, og
leitaði hann ásamt lögreglusveit-
um á svæðinu í gærkveldi, en án
árangurs.
Mennirnir þrír sem ráðist var
á gáfu skýrslu hjá Rannsóknar-
lögreglunni í gærkveldi, og
reyndu þeir einnig að bera
kennsl á árásarmanninum í
myndasafni lögreglunnar, en sú
leit mun ekki hafa borið árangur.
Pegar blaðið fór í prentun í nótt,
hafði enn ekkert spurst til ræn-
ingjans. -HEl/AB
sagður 180-185 sentimetr-
ar á hæð og á aldrinum
35-40 ára, með yfirskegg
og sennilega með einhvern
gerfíhökutopp, jafnvel
málaðan. Hann var klædd-
ur í drapplitaða mittis-
blússu, dökkar buxur, og
með dökka húfu að því er
sagt er.
■ Leigubifreiðin R-320, fannst inn í húsporti bakvið Brautarholt 2 á tíunda tímanum í gærkveldi.en þá
var ræninginn á bak og burt. Tímamynd: Sverrir
■ Samkvæmt upplýsing-
um lögreglunnar er mað-
urinn sem Ieitað er að
vegna vopnaða ránsins í
hærra lagi, dökkhærður
með millisítt hár. Er hann