Tíminn - 18.02.1984, Side 12
12
LAUGARDAGUR 4. FEBRÚAR 1984
heimilistíminn
umsjón: B.St. og K.L.
■ Undanfarna viku hefur
stödd hér á landi danska vaxtar-
ræktarkonan Lisser Frost Larsen.
Lisser er leikfimiskennari að mennt,
en síðustu 4 ár hefur hún alfarið
snúið sér að þeirri líkamsrækt, sem
á ensku nefnist „body building", en
hefur á íslensku verið nefnd vaxtar-
rækt. Sjálfri finnst Lisser best eiga
við það nafn, sem svíar hafa gefið
íþróttinni, „kroppbygger11
Þessa vikudvöl á Islandi hefur Lisser
notað til að leiðbeina gestuni Líkams- og
heilsuræktarinnar, Borgartúni 29,
Reykjavík, um líkamsrækt, mataræði og
rétta notkun vítamína. Við hittum Lisser
að máli og leituðum ráða hjá henni um
þessi atriði.
Leiðbeiningarnar
lagaðar að hverjum
einstaklingi fyrir sig
Lisser sagðist hafa það fyrir sið að láta
hvern einstakling fá sínar eigin leiðbein-
ingar sem miðast við sérþarfir hvers og
eins. Hún tekur einkum konur upp á
arma sína og eftirfarandi upplýsingar
eiga við um þær konur, sem ekki hafa
stundað líkamsrækt, kannski svo árum
skiptir.
I upphafi fær konan leiðbeiningar
æfingar, sem ætlað er að þjálfa alla
aðalvöðva líkamans. Farið cr hægt af
stað og harðsperrur og strengir eiga ekki
að fylgja enda cnginn mælikvarði á að
rétt sé að farið, að sögn Lisser. Að
fjórum vikum liðnum er síðan gerð
úttekt á árangrinum. Þá er t.d. farið að
velta vöngum yfir hvaða líkamshluta sé
mest þörf á að laga til og æfingar
skipulagðar með tilliti til þess. Þá leggur
hún einnig áherslu á rétt mataræði. Hún
segist að vísu aldrei skrifa upp ntatseðla
fyrir konurnar, heldur gefa þeim leið-
beiningar, sem þær vinni síðan eftir.
Aukin orka —
en ekki meira hungur
Lisser segir það algengan misskilning,
að vaxtarrækt, sem stunduð er með
lóðum, leiði óhjákvæmilega til úttútn-
aðra vöðva. Þetta sé síður cn svo rétt.
Þó ekki væri annað, séu konur ekki nógu
sterkar til að fást við þá þyngd lóða, sem
með þarf til að byggja upp eitthvert
vöðvabúnt!
Hins vegar örvi vaxtarræktin blóðrás-
ina, auki súrefnisstreymi til heilans,
bruni fíkamans verði hraðari, þyngdar-
minnkun komi fram og húðin strengist
jafnframt. Auk alls þessa fái vaxtarrækt-
arfólk aukna orku, sem geri því kleift að
vera miklu athafnasamara en clla. Vegna
þessarar Orkuaukningar, finni fólk síður
til svengdar og taki sér allt annað frekar
fyrir hendur en að sitja lon og don við
matarborð.
Algengt segir Lisser það vera, að 2-3
mánuðum eftir að kona hafi hafið þjálf-
un í vaxtarrækt, komi maður hennar í
sömu erindagerðum. Þá sé hann farinn
að finna að hann hafi ekki við hinni
atorkusömu konu sinni og verði því að
byggja sig upp líka.
Lesið vel
innihaldslýsingar
með matvælum
Sem áður segir, skrifar Lisser ekki
niður ákveðinn matseðil fyrir hverja
konu. Hún ráðleggur öllum að lesa vel
upplýsingar þær um innihald, sent standa
á umbúðum um matvæli. Þar megi sjá,
hversu mikið sé af próteini, fitu og
kolvetnum í innihaldinu. Af próteini
þarf kona jafnþyngd sína, umreiknaða í
grömm, á hverjum degi. Þannig þarf t.d.
kona, sem vegur 60 kg, 60 g af próteini
á dag. Kolvetni er óhætt að innbyrða í
náttúrlegu formi án takmarkana. En gát
verður að hafa á fitunni.
Við vaxtarrækt eru notuð margvísleg lóð. Hér er Lisser á þeimavelli
(Tímamyndir Ámi Sæberg)
■ Lisser Frost Larsen
sýnir árangur fjögurra
ára vaxtarræktar
VAXTARRÆKTLEIEHR
EKKIHL
ÚnÚINAÐRA VDÐVA
— en eykur hins vegar orku
Við erum það
sem við borðum
Mikilvægur þáttur í vaxtarræktinni er
rétt mataræði, og reyndar þurfa allir að
hafa það í huga, hvort sem þeir eru í
þjálfun eða ekki. „Við erum það sem við
borðum," segir Lisser og gefur okkur
nokkuð góð ráð í sambandi við hollt og
gott mataræði. Ekki vill hún gefa ein-
hverja cina alhæfa uppskrift, sem allir
eiga að fara eftir í blindni, enda er bruni
líkamans ákaflega mismunandi frá einni
konu til annarrar.
Þeim kpnum, sem ekki gera sér grein
fyrir því, hvort líkami þeirra brennir
hægt eða hratt, gefur hún það ráð, að
skrifa niður hjá sér daglega neyslu
próteins, fitu, kolvetnis og hitaeininga í
eina viku og fylgjast með því, hvort þær
hafa þyngst, lést eða staðið í stað að
vikunni liðinni. Þannig eiga þær að geta
fengið yfirsýn yfir, hvort þær hafa neytt
of mikils eða lítils miðað við bruna
líkamans.
má ekki
stjórna lífi konunnar
Lisser leggur ríka áherslu á, að kona
í kúr, megi ekki gera of mikið veður út
af honum. Sé henni t.d. boðið í veislu á
meðan á kúrnum stendur, sé henni
óhætt að borða það, sem fyrir hana er
borið, þegjandi og hljóðalaust. Kúrinn
megi alls ekki stjórna lífi konunnar.
Sumar konur, sem kannski eru vanar
að borða mikil sætindi, kvarta undan
þreytu og höfuðverk, þegar þær fara í
kúr. Þeim ráðleggur Lisser að fá sér
teskeið af hunangi út í kaffi eða te og
hverfi þá einkennin.
Nokkrar uppástungur
að heppilegum mat
Morgunmatur:
1 sneið af grúfu brauði
4-5 sneiðar af 20% mjólkurosti
eða kotasæla
100-150 g nýir ávextir
‘/: greipaldin
kaffi/te/ávaxtasafí
skyr
Lisser mælir ekki með eggjum í
morgunmat, þar sem í hverju eggi séu 6
g af fitu, og réttara sé að fá fituna í
öðrum réttum.
Mjólkurafurðir segir hún hafa þann
leiða sið að setjast á sitjandann og verði
að hafa það hugfast.
Hádegisverður:
Ví kjúklingur, grillaður eða steiktur á
grind, án pöru
salt, gúrkur
eða skinka, gúrka.
Skerið flysjaða gúrku í fernt að endi-
Iðngu og vefjið skinkusneiðum utan um
hverja gúrkusneið.
eða Vi ds. túnfískur í vatni
eða eggjakaka úr 2 eggjum og 2 eggja-
hvítum
Með þessu er gott að hafa salat, t.d.
blandað saman:
lauk, hreðkum, gufrótum, maís og sítr-
ónu
eða 100 g rækjum, salatblöðum, tómöt-
um, ananas og smá eplabitum.
Konur, sem verða að neyta nestis á
vinnustað, geta óhræddar tekið með sér
hvaða kalt kjöt sem er, t.d. leifar frá
kvöldinu áður.
Með öllu þessu má drekka te, kaffi,
ávaxtasafa, hitaeiningasnauða gosdrykki
og sódavatn. Agætt er að setja sítrónu-
sneið í sódavatnið til að gefa því aðeins
bragð.
Siðdegis:
Þá er óhætt að fá sér ávöxt, hvaða
ávöxt sem er, nenia banana.
Kvöldmatur:
U.þ.b. 200 g af hvaða kjöti sem er,
grillað eða steikt á rist eða pönnu án
smjörs eða smjörlíkis (óhætt að gera
sósu úr fitunni, sem rennur út á pönn-
unni)
eða soðinn fiskur, hvaða tegund sem er
eða kjúklingur eins og um hádegið
eða grænmetisgratín
Með þessu má borða hrásalat og eina
bakaða kartöflu eða 1-2 soðnar kart-
öflur eftir stærð. Eða soðin hrísgrjón.
Mörgum þykir þetta fullþurrt, og þá er
ágætt að væta í þessu með sýrðum rjóma
eða skyri, sem Lisser er mjög hrifin af.
Þá má borða með þessu soðið grænmeti.
Best er að salta matinn eins lítið og
hægt er að komast af með, þar sem saltið
bindur vatn og fitu í líkamanum. Mörg-
um þykir hins vegar gott að gefa matnum
aukið bragð með sinnepi.
Þá leggur Lisser mikla áherslu á að
maturinn megi ekki vera of Ijúffengur.
Sé hann það, er meiri hætta á að fólk
borði meira en það þarf til að verða satt.
Vítamin
Vítamín segir Lisser nauðsynlegt að
taka alltaf stöðugt, og þá ekki síst, þegar
fólk er í þjálfun. Daglegan skammt
ráðleggur hún:
1 töflu fjölvítamín
1 töflu E vítamín (500-1000 mg) E
vítamín vinnur úr próteininu
2 töflur C vítamín (300-500 mg)
2 töflur B vítamín (u.þ.b. 200 mg)
6 töflur steinefni
1 töflu járn
Þeim konum, sem vilja léttast, bendir
Lisser á að taka Ino Cholintöflur.
Ekki má gleyma
þeim sem vilja þyngjast
Oftast er rætt um vandamál þeirra
kvenna, sem berjast við að ná af sér
óæskilegum kílóum. En þær konur eru
líka til. sem vilja og þurfa að þyngjast.
Þeim ráðleggur Lisser að neyta prótein-
auðugra drykkja á milli mála, þær þurfa
að fá tvöfalda líkamsþyngd sína, um-
reiknaða í grömmum af próteini dag-
lega. Þá er vaxtarræktarþjálfun þeirra
hagað á annan hátt en þeirra, sem þurfa
að grennast.