Tíminn - 21.02.1984, Qupperneq 3
Hæstiréttur þyngir dóma yfir tveim sfbrotamönnum:
FANGELSISVISTIN LENGD OG
BREYTT í ÓSKILORDSBUNDNA
■ Hæstiréttur þyngdi fyrir skömmu
dóm yfir tveim mönnum sem í undirrétti
fengu 12 mánaða og 6 mánaða skilorðs-
bundið fangelsi fyrir ýmsar sakargiftir. í
Hæstarétti var annar maðurinn dæmdur
í 10 mánaða óskilorðsbundið fangelsi og
hinn í 15 mánaða óskilorðsbundið fang-
elsi.
Mennirnir tveir voru dæmdir fyrir
ýmis brot, m.a. þrjár líkamsárásir,
þjófnaði og fleira. Báðir mennirnir hafa
langan brotaferil að baki en þau brot
sem þeir voru dæmdir fyrir nú voru flest
framin árið 1981.
í dómi Hæstaréttar segir að fram hafi
komið, að annar maðurinn hafi ekki
verið kærður fyrir nein ný brot síðan
hinir áfrýjuðu dómar gengu og hann
stundað vinnu síðustu missiri. Eigi þykir
þó fært að fresta fullnustu refsingarinnar
með skilyrðum þegar litið er til langs
brotaferils ákærða og þess að hann er
nú sakfelldur fyrir mörg brot, þar á meðal
alvarlegar líkamsárásir.
Dómana kváðu upp hæstaréttardóm-
ararnir Þór Vilhjálmsson, Guðmundur
Jónsson, Halldór Þorbjörnsson, Magnús
Þ. Torfason og Sigurgeir Jónsson. í
sératkvæði Sigurgeirs Jónssonar og Guð-
mundar Jónssonar segir að með tilliti til
þess hversu alvarleg brot er um að ræða
svo og með tilliti til brotaferils ákærðu
og fjölda brotanna telja þcir refsinguna
hæfilega ákveðna 18 mánaða fangelsi
og 24 mánaða fangelsi.
Síðan segir að við flutning málsins hafi
komið í Ijós að annar maðurinn hafi
stofnað heimili og læknast af vímuefna-
og drykkjufísn og verjandi taldi að um
algera stefnubreytingu á lífsháttum væri
að ræða. Það sé því skoðun dómaranna
að sérstökum vamaðaráhrifum refsingar
sé ekki stofnað í hættu með skilorðsbind-
ingu refsidóins, enda séu hagsmunir
ákærða miklir sem bundnir eru því að
til fangelsisvistar hans komi ekki svo
sem högum hans er nú háttað.
Samkvæmt því beri að fresta fullnustu
refsingar mannsins og hún niður falla að
5 árum liðnum ef hann heldur almennt
skilorð.
-GSH
iusafjáruppboði Bæjarfógetans í Kópavogi:
■ Ef að líkum lætur verður Dísar-
fellið aflient nýjum eigendum í
Grikklandi áður en langt um líður.
Dísarfellið
selt á tólf
milljonir
■ Skipadeild Sambandsins er að
ganga frá samningum um sölu á m.s.
Dísarfelli, 2000 tonna flutningaskipi
sem var smíðað 1967 og keypt til
landsins 1971, til skipafélags í Grikk-
landi. söluverðið er um 12 milljónir
króna.
Axel Gíslason, framkvæmdastjóri
Skipadeildarinnar, sagði í samtali
við Tímann, að salan á Dísarfellinu
væri liður í því að endurnýja flota
deildarinnar. Nú væri verið aðsmíða
fyrir hana frystiskip, sem væntanlega
yrði afhent í október næstkomandi.
Þá væri verið að athuga möguleika á
því að kaupa notað gámaskip sem
hentaði fyrir flutninga Sambandsins.
-Sjó.
■ „800 krónur fyrsta; 800 krónur
fyrsta, annað og ... þriöja." Og fyrir
þessa upphæð fékk maður nokkur 42
pör af barnastígvélum,“ sjálfsagt barn-
margur Skaftfellingur" hcyrðist í einum
viðstöddum.
Það var létt yfir fólki á uppboði sem
bæjarfógetinn í Kópavogi hélt í gær þar
sem boðinn var upp varningur úr þrota-
búi Verslunarfélags Kópavogs hf. í
hálfköruðum kjallara í Hamraborg 3
hafði verið hlaðið upp ýmsum varningi í
stiga og á gólfi fyrir framan. 1 horninu
stóð gína með brosi á vör og margir
viðstaddra renndu hýru auga til hennar.
Menn fóru sér hægt í boðunum:
byrjuðu á 50 krónum þegar pokar með
barnafötum, nokkrum pörum af buxum
• í yfirstærð og 20 pör af vindjökkum voru
boðnir upp. Og allt fór þetta á svipuðu
verði, milli 600 og 1200 krónur. En fleiri
hlutir.voru á boðstólum:
Einhver sagði að þetta væru tilvaldar
púnsskálar", sagði Jón Eiríksson aðal-
fulltrúi bæjarfógeta og uppboðshaldari
um leið og hann hélt upp stórri plastskál
á fæti. Ogskálin fórá650krónur, líklega
kostar meira að fylla hana.
„Er ekki einhver orðinn þreyttur"
sagði Jón og lyfti upp stólkolli. Og til að
njóta hvíldarinnar betur fylgdu með
nokkrar litlar eftirprentanir í römmum.
En viðstaddir voru greinilega hinir
sprækustu, stóllinn og myndirnar seldust
aðeins á 300 krónur.
Og þá var röðin komin að aðalnúmer-
inu, gínunni. margir buðu í upphafi en
þegar boðin hækkuðu heltust menn úr
lestinni. Að tokum voru aðeins tveir
bjóðendur eftir, maður og kona sem
hækkuðu boðin til skiptist.
„Það er að fara af henni brosið"
kallaði einhver þegar boðin voru yfir
5.000 krónur. En maðurinn og konan
létu sig hvergi: 6.000, 6.100, 6.200,
6.250... Að lokum bauð konan fastmælt
7.200 krónur og þá lét maðurinn loks
undan.
Og einn af öðrum hurfu hlutirnir af
gólfinu og úr stiganum. Þegar blm.
Tímans yfirgaf kjallarann, stóð gínan
ein eftir úti í horni og var búin að fá
brosið aftur.
-GSH
■ Jón Eiríksson heldur á lofti vindjakka en 20 slíkir seldust sainan í pakka á 1100 krónur. Til vinstri sést gínan á heiðursstaðnum.
Tímamynd Ámi Sæberg
BHM FÆR 4.5%
LAUNAHÆKKUN
■ Samningur til eins árs, um 4.5%
launahækkun frá 1. mars n.k. tókst á
milli Launamálaráðs ríkisstarfsmanna
innan BHM og fjármálaráðherra f.h.
ríkissjóðs sl. laugardag, og gerir samn-
ingurinn jafnframt ráð fyrir því að
samningsaðilar muni standa sameigin-
lega að samanburðarathugun á kjörum
starfsmanna hjá öðrum en ríkinu, er
gegna hliðstæðum störfum að því er
varðar ábyrgð, menntun og sérhæfni.
Þorsteinn A. Jónsson, varaformaður
Launamálaráðs sagði í samtali við Tím-
ann í gær, að ráðið hefði fjallað um
samninginn sl. föstudag og síðan yrði
annar fundur nú á fimmtudag, þar sem
samningurinn yrði endanlega staðfestur.
Aðspurður hvort þeir væru ánægðir með
þennan samningsagði Þorstein: „Já, það
má segja það, og það sem við erum
sérstaklega ánægðir með og gerum okk-
ur vonir um að eitthvað komi út úr, er
þessi nefnd sem á að framkvæma kjara-
rannsóknir. Við teljum að slík kjara-
rannsókn eigi eftir að koma öllum aðild-
arfélögum til góða “
Þorsteinn sagði að stefnt væri að því
að áfangaskýrsla þessarar nefndar myndi
liggja fyrir um næstu áramót, þar sem
búið væri að kanna hinn beina launaþátt.
en verkinu sem slíku þyrfti ekki endilega
að vera lokið fyrir þann tíma.
-AB
SVEIT ÚRVALS
SIGURVEGARI
■ Sveit Úrvals sigarði nokkuð örugg-
lega í úrslitakeppni Reykjavíkurmótsins
í bridge, sem haldin var um helgina.
Fjórar sveitir spiluðu til úrslita og sigraði
sveit Úrvals alla andstæðinga sína, og
hlaut 48 stig. I öðru sæti varð sveit Ólafs
Lárussonar með 31 stig en sveit Sam-
vinnuferða endaði í 3. sæti með 30 stig.
Mesta athygli vakti leikur sveita Úr-
vals og Samvinnuferða en þessar sveitir
voru fyrirfram taldar sigurstranglegast-
ar. Úrval vann leikinn 15-5 og eftir það
var titillinn nær tryggður.
Sveit Úrvals skipuðu Karl Sigurhjart-
arsson, Ásmundur Pálsson, Hjalti
Elíasson, Guðlaugur R. Jóhannsson og
Örn Arnþórsson.
-GSH
■ Sveit Úrvals talið frá vinstri: Örn Arnþórsson, Hjalti Elíasson, Karl Sigurhjartar-
son, Gulaugur R. Jóhannsson og Ásmundur Pálsson.
Tímamynd Róbert.
Reykjavfkurmótið í bridge:
HVER VILL KAUPA 42
PÖR AF BARNASTÍG-
VÉLUM ÁÁTTA HUNDRUÐ?
— „Sjálfsagt barn-
margur Skaftfell-
ingur“, heyrðist í
einum viðstöddum