Tíminn - 21.02.1984, Page 4
Veraldarforlögin með krók á móti bragði bóksala:
INNKALLA BÆKIIR FRA BOKSOUIM
SEM ENOURSENDA KLOBBBÆKUR
■ Fjögur bókaforlög, Fjölvi,
löunn, Setberg og Vaka, sem
standa aö bókaklúbbnum
Veröld, hafa ákveðið að innkalla
allar umboðssölubækur sínar frá
þeim bóksölum sem verða við
tilmælum Félags bókaverslana
um að bóksalar endursendi for-
lögunum þær bækur sem boðnar
voru á allt að 30% afslætti frá
útsöluverði í nýjasta fréttablaði
Veraldar.
í frétt frá Veröld segir að
samkvæmt samningi bókaforlaga
og bókaverslana hafa forlög
heimild til að bjóða útsölubækur
sínar á allt að 30% afslætti í
bókaklúbbum um takmarkaðan
tíma og hafa bóksalar heimild til
að taka þær bækur úr sölu meðan
á tilboðstíma stendur. Hinsvegar
hafi bóksalar enga heimild til að
endursenda þær bækur og taka
þær þannig alfarið úr sölu.
Bókaforlögin fjögur sendu
bóksölum bréf á fimmtudag þar
sem tilkynnt var að þau hefðu
ákveðið að innkalla allar
umboðssölubækur og stöðva öll
viðskipti við þær bókaverslanir
sem endursenda þær 2Ö bækur
sem boðið var upp á með afslætti
í fréttabréfi Veraldar. í gær
höfðu um 20 bóksalar á höfuð-
borgarsvæðinu endursent um-
ræddar bækur, en bóksalar á
öllu landinu eru um 110.
Samkvæmt heimildum Tímans
stóðu þessi fjögur bókaforlög að
um 40% af nvium útgefnum
bókum á síðasta ári en um 50-
60% af allri bókasölu á árinu.
Þar af eru nær allar teiknimynda-
sögubækur og talsvert af
kennslubók'um.
-GSH
Enn engin
ákvördun um
brottvikningu
lögreglu-
mannanna:
„MÁLIÐ ER
ÍATHUGUN“
— segir William
Möller fulltrúi
lögreglustjóra
■ „Málið er í athugun og ég
reikna með að ákvörðun liggi
fyrir fljótlega upp úr helginni"
sagði William Möller fulltrúi lög-
reglustjóra í samtali við Tímann,
er við spurðum hann hvort lög-
reglumönnum þeim sem ríkis-
saksóknari hefur ákveðið að
höfða opinbert mál gegn yrði
vikið úr starfi meðan málið væri
í meðferð fyrir dómstólunum.
William vildi að öðru leyti
ekki tjá sig um þetta mál og sagði
hann í gærdag að þeim hefðu
enn ekki borist gögnin í málinu
en vissu um það eftir öðrum,
Ieiðum. -FRI
Akureyri:
)
4 ÁRA DRENG-
URFYRIRBÍL
■ Umferðarslys varð á Akur-,
eyri í gærdag, á Hörgárbraut
-við Sjónarhól í Glerárhverfi en
þar varð 4 ára drengur fyrir bíl.
Tildrög slyssins voru þau að
drengurinn mun hafa hlaupið
fyrir bíiinn sem var á leið
norður eftir brautinni. Var
drcngurinn þegar fluttur á
sjúkrahúsið en meiðsli hans
voru ekki talin alvarleg.
-FRI
Rannsoknardeild ríkisskattstjóra:
Hækkanir gjalda vegna
athugana námu 7.8 millj.
■ Alls kom á síðasta ári 651
mál til athugunar hjá rannsókn-
ardeild ríkisskattstjóra. Bók-
haldsskoðanir voru framkvæmd-
ar í 533 fyrirtækjum og voru 413
þeirra athugana afgreiddar með
athugasemd.
Hækkanir ríkisskattstjóra á
opinberum gjöldum vegna athug-
ana rannsóknardeildar námu á
síðasta ári samtals kr. 7.788.612
í 33 málum. Þar af nam hækkun
söluskatts kr. 4.910.920, hækkun
tekjuskatts kr. 2.623.516 og
hækkun útsvars kr. 254.176.
Skattsektir á síðasta ri, úr-
skurðaðar af ríkisskattanefnd
vegna mála frá skattrannsóknar-
stjóra námu samtals 379.000 kr.
í 6 málum.
-FRI
■ Nefndin, sem fjallar um
væntanleg þyrlukaup Land-
helgisgæslunnar, hefur skilað
áliti til dómsmálaráðherra. í
því felast fjórir möguleikar og
mun sá hagkvæmasti að dómi
forráðamanna gæslunnar vera
kaup á frönskum Dauphin
þyrlum, en meiningin er að
kaupa tvær. Með þeim tækja-
búnaði sem til þarf kosta þyrl-
urnar um 70 milljónir króna
hvor. Myndin er af þyrlu af
þessari tcgund.
Ljósnt. Jón Pálsson
Starfsmerm erlendra sendiráða í Reykjavík:
Sovéskum fjölgar en Kín
verjum fækkar úr 20 í 6
■ Komin er fram tillaga á
Alþingi um að umsvif crlendra
sendiráða hérlcndis verði tak-
mörkuð. Þar er ráð fyrir gert að
ríkisstjórnin setji reglur um tak-
markanir, m.a. varðandi fjölda
sendiráðsmanna og byggingu og
kaup fasteigna. Við mótun á
þessum reglum verði höfð hlið-
sjón af smæð íslensks samfélags
og af starfsemi og aðbúnaði að
íslensku utanríkisþjónustunni í
löndum sem íslendingar hafa
stjórnmálasamband við eða
starfrækja sendiráð. Flutnings-
maður er Hjörleifur Guttorms-
son.
í greinargerð er birt samantekt
sem utanríkisráðuneytið hefur
tekið saman um fjölda sendi-
ráðsmanna og fjölskyldna
þeirra. Til samanburðar er birt
sams konar skýrsla sem gerð var
árið 1979.
í yfirlitinu sést að Sovétríkin
hafa hér mestan fjölda erlendra
starfsmanna, eða 37 talsins, og
hefur þeim fjölgað um 2 frá því
fyrir 5 árum. Næst koma Banda-
ríkin með 22 erlenda starfsmenn,
einum fleiri en 1979. Frakkland
er hið þriðja í röðinni með 10
starfsmenn, en önnur ríki þaðan
af færri. Hefur í engu tilviki
nema hjá Sovétríkjunum og
Bandaríkjunum verið um að
ræða fjölgun erlendra starfs-
manna, og 6 sendiráð af alls 12
hafa fækkað erlendu sarfsfólki á
þessu tímabili. Sérstaka athygli
vekur hin mikla fækkun starfs-
manna hjá kínverska sendiráð-
inu, eða úr 20 í 6 starfsmenn.
Eitt sendiráð, hið pólska, hefur
hætt starfsemi á þessu tímabili
(1982), en eitt nýtt bæst í hópinn,
þ.e. Finnlandþann 1. marsl983.
Fjöldi erlendra starfsmanna
segir þó engan veginn alla sögu
um starfsmannahald sendiráð-
anna, því að hjá sumum þeirra
starfa íslendingar. Þannig störf-
uðu 19 íslendingar í sendiráði
Bandaríkjanna í ársbyrjun 1984,
en enginn íslendingur í sendiráði
Sovétríkjanna. Að þeim með-
töldum var svipaður heildar-
fjöldi starfsmanna hjá sendi-
ráðum þessara stórvelda. Starfs-
menn bandaríska sendiráðsins
töldust þá skv. upplýsingum
utanríkisráðuneytisins
22+19=41 talsins, en hjá so-
véska sendiráðinu 37. Þegar fjöl-
skyldulið er meðtalið er fjöldi á
vegum bandaríska sendiráðsins
74 og á vegum sovéska sendi-
ráðsins 80 manns.
Eins og flutningsmanni er tamt
lætur hann fylgja langa og ítar-
lega greinargerð með' tillögu
sinni, m.a. lög um aðild íslands
að alþjóðasamningi um stjórn-
málasamband og vinarsamning-
inn um stjórnmálasamband
ásamt með allskyns upplýsingum
um sendiráð á tilteknu árabili,
fjölda starfsmanna, fasteignir og
bílaeign. Fróðleikurinn rúmast
á 25 síðum.
Jafnframt hefur Hjörleifur
lagt fram fyrirspurn til utanríkis-
ráðherra um erlend sendiráð,
upplýsingastarfsemi og menn-
ingarstofnanir á vegum erlendra
aðila hérlendis. Óskað er skrif-
legs svars.
Spurningarnar eru:
1. Hve fjölmennt. er starfslið
erlendra sendiráða hér á landi
hvers um sig, erlendir og
innlendir ríkisborgarar, og
hversu margt fjölskyldulið
fylgir hinum útlendu starfs-
mönnum?
2. Hvaða erlendir aðilar, ríkis-
stjórnir eða aðrir, starfrækja
hér upplýsingastarfsemi,
fréttamiðlun og menningar-
stofnanir? Hve margir starfa
að slíku á vegum hvers aðila
og hvaða samningar hafa ver-
ið gerðir um þessa starfsemi?
3. Hverjar eru skráðar eignir
ofangreindra erlendra aðila
hér á landi, fasteignir, lóðir
og bifreiðar og hvaða húsnæði
hafa þeir á leigu?
■ Starfsmenn Sovéska sendiráðsins eru 37 talsins
•en starfsbræður þeirra í því bandaríska 22