Tíminn - 21.02.1984, Qupperneq 8

Tíminn - 21.02.1984, Qupperneq 8
Framkvæmdastjóri: Gísli Sigurðsson. Auglýsingastjóri: Steingrimur Gíslason. Skrifstofustjóri: Ragnar Snorri Magnússon. Afgreiðslustjóri: Sigurður Brynjólfsson. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson, Elías Snæland Jónsson. Ritstjórnarfulltrúi: Oddur V. Ólafsson. Fréttastjóri: Kristinn Hallgrimsson. Umsjónarmaður Helgar-Timans: Atli Magnússon. Blaðamenn: Agnes Bragadóttir, Bjarghildur Stefánsdóttir, Baldur Kristjánsson, Friðrik Indriðason, Guðmundur Sv Hermannsson, Heiður Helgadóttir, Jón Guðni Kristjánsson, Jón Ólafsson, Kristín Leifsdóttir, Samúel Örn Erlingsson (íþróttir), Skafti Jónsson. Útlitsteiknun: Gunnar Trausti Guðbjörnssson. i Ljósmyndir: Guðjón Einarsson, Guðjón Róbert Ágústsson, Árni Sæberg. Myndasafn: Eygló Stefánsdóttir. Prófarkir: Kristin Þorbjarnardóttir, Flosi Kristjánsson, Guðný Jónsdóttir Ritstjórn skrifstofur og auglýsingar: Siðumúla 15, Reykjavik. Simi: 86300. Auglýsingasimi 18300. Kvöldsímar: 86387 og 86306. j Verð í lausasölu 20.00, en 22.00 um helgar. Áskrift á mánuði kr. 250.00. Setning og umbrot: Tæknideild Tímans. Prentun: Blaðaprent hf. Stórtækir glæpa- menn á meðal vor Afbrot eru að færast yfir á þau svið sem áður voru óþekkt á íslandi. Framin eru skipulögð rán og hótað ofbeldi ef staðið er í vegi fyrir að afbrotamennirnir nái feng sínum. Bankarán var framið með þeim hætti, að sá sem þar var að verki var bersýnilega búinn að undirbúa það og var engum öryggisráðstöfunum við komið. Starfsfólk bankans varð að láta sér lynda að horfa á eftir ræningjanum út í myrkrið með feng sinn sem var allveruleg peningaupphæð. Réttum tverm vikum síðar berast næstu stórtíðindi af skipulögðu ráni og var þar á ferð vopnaður maður sem hótaði lífláti ef ekki yrði orðið við kröfum hans í einu og öllu. Ránið á nær tveim. milljónum króna við bankann á Laugaveginum var ekki tilviljun- arkennt kák, eins og svo mörg innbrot og þjófnaðir, sem framdir eru í „hefðbundnum stíl“ af meira eða minna drukknum mönnum eða undir áhrifum eiturefna, þegar kylfa er látin ráða kasti um hvernig til tekst og hvað hefst upp úr krafsinu. Fað sem er sýnu alvarlegast við þann verknað allan er að ræninginn var vel vopnaður og hótaði lífláti eða lemstrun ef staðið yrði í vegi fyrir honum. Haglabyssa, sem hlaupið hefur verið stytt á, er vel þekkt vopn meðal atvinnuglæpamanna erlendis og er háskaleg í höndum þeirra sem einskis svífast. Sem betur fer missti enginn höfuð eða limi vegna þessa tiltækis. En það er óskemmtileg reynsla fyrir leigubílstjóra að vera hótað lífláti af manni sem beindi byssuhlaupi að höfði hans. Starfsmenn Áfengisverslunar ríkisins sluppu einnig við lemstrun eða bana, en í átökum við annan þeirra hljóp skot úr byssunni og skotið var á bíl þeirra til að gera hann óökufæran. Þarna var því vissulega hætta á ferðum. Fengur ræningj ans var mikill, enda lagði hann sj álfan sig og aðra í mikla áhættu til að ránið mætti takast. Er hér um að ræða kaldrifjaðan verknað og betur skipulagðan en menn eiga að venjast hér á landi. Til að kóróna vel heppnað rán leiddi sú vafasama öryggisráðstöfun áfengisverslunarinnar, að taka ekki við ávísunum af viðskipta vinum sínum, til þess að þarna var mögulegt að grípa nær tvær milljónir króna í reiðufé. Varla hefði tekist að ná eins tilvöldum ránsfeng af starfsmönnum annarra fyrirtækja sem leggja dagveltuna í næturhólf. Ósvífni og skipulag einkennir þetta afbrot, og upphæðin sem rænt var er sú hæsta sem afbrotamaður af þessu tagi hefur komist yfir. Aðferðin er gamalkunn í útlöndum og hefur verið gerð slík skil í bókum og kvikmyndum, að það á ekki að þurfa að koma okkur á óvart þótt allt í einu sé staðið frammi fyrir þeirri staðreynd að fagmannlega sé staðið að glæpaverkum. Það er óhugnanlegt að sjá íslenska lögreglumenn í skotheldum vestum vopnaða byssum við störf sín. En sá tími er upp runninn, að sérþjálfuð sveit er til taks til að kljást við vopnaðan óaldarlýð og er það sannarlega ill nauðsyn. Fíkniefnasmygl og eiturefnasala verður æ algengari með hverju: árinu sem líður. Miklir fjármunir fara um hendur þeirra, sem við slíka iðju fást. Hið mikla magn sem tollverðir og lögregla gerðu upptækt af fíkniefnum á síðasta ári sýnir að á þessu sviði er einnig komið inn á nýjar brautir afbrota. Þær upphæðir sem nefndar eru í sambandi við sölu á eiturefnum sýna, að það er freistandi fyrir veiklyndar sálir og peingagráðuga menn að taka þá áhættu að eitra fyrir samlanda sína. Það dettur engum í hug annað en að margfalt meira magn fíkniefna komist á markað en það sem löggæslumenn ná að klófesta og gera upptækt. í sambandi við fíkniefnasmyglið er vert að hafa hugfast, að þeir sem flytja það til landsins eru í sambandi við atvinnuglæpamenn erlendis, sem sjá um útvegun eitursins og það út af fyrir sig sýnir á hvaða braut íslenskir afbrotamenn eru. Eiturlyfjasala og morðhótanir afbrotamanna eru tímanna tákn og verður löggæslan og reyndar þjóðfélagið allt að snúast gegn þeim ófarnaði með viðeigandi hætti. -O.Ó. Húsnæðis- vandræði og íbúafækkun Margt er það sem veldur byggðaröskun annað en at- vinnumöguleikar. Svo er til dæmis um Súðavík sem er fámennt byggðarlag sem leggur mikið af mörkum til þjóðarbúsins. Þar snýst til- veran að mestu um fisk enda berst þar mikill afli á land og er oft hörgull á fólki til að vinna fiskinn. Þrátt fyrir mikla atvinnu fer fólki fækk- andi í Súðavík og er það ekki síst vegna skorts á íbúðar- húsnæði. Þctta er vandi sem víða er við að glíma en það er bagalegt fyrir lítið en þróttmikið bæjarfélag að sjá á eftir vinnufæru fólki vegna þess að ekki er fyrir hendi viðunandi húsnæði á staðnum. Súðavík er einn þeirra staða sem erlent vinnuafl er við störf, enda er atvinna þar meiri en svarar til íbúafjöld- ans. í nýútkomnu tölublaði ís- firðings er viðtal við Heiðar Guðbrandsson í Súðavík þar sem meðal annars er vikið að húsnæðismálum og brott- flutningi fólks frá stað sem býður upp á meiri atvinnu en íbúarnir fá annað, á sama tíma og margir ganga um án atvinnu víða annars staðar. Hér fer á eftir hluti úr viðtalinu við Heiðar: - Fækkar nú fólki í Súða- vík? Það fækkaði um 26 manns í hreppnum frá árinu 1982 til 1983, sem er auðvitað mjög tilfinnanleg fækkun. íbúarnir eru nú tæplega 250. Verst er að fækkun fólks hefur aðal- lega komið niður á þeim , árgöngum sem eru á vinnu- markaði, en börn eru mörg hjá okkur. Nokkrar f jöl- skyldurágötunni - Hefur sveitarfélagið átt hlut að byggingu íbúðar- húsa? Já, segja má að síðustu tíu árin hafi íbúðarhúsnæði í Súðavík aðallega verið byggt fyrir frumkvæði sveitarfé- lagsins. Bæði hefur verið byggt samkvæmt lögum um leigu- og söluíbúðir og fyrir lán sem ætluð hafa verið til útrýmingar heilsuspillandi húsnæðis. Á þessum tíma hafa líklega verið byggð í þorpinu tíu einbýlishús og átta íbúðir í einu fjölbýlis- húsi. Athyglisvert er, a.m.k. í heilan áratug þar áður höfðu engin hús verið byggð í Súðavík. - Hvernig er þá húsnæðis- ástandið núna? Það er þannig að segja má' að nokkrar fjölskyldur séu á götunni. Ég er uggandi um að fólki fari enn fækkandi ef ekki verða byggðar fleiri íbúðir á næstunni. íbúðum í notkun hefur lítið fjölgað við tilkomu nýju húsanna, því að mjög mörg gömul hús hafa verið rifin, og t.d. var flutt úr síðasta torfbænum, Saura- koti, fyrir aðeins 4-5 árum. Sennilega hefði mátt koma í veg fyrir fólksfækkunina í fyrra ef staðið hefði verið að byggingu fleiri húsa, t.d. verkamannabústaða. Sífelltvantarfólk í fiskvinnsluna - Hvernig er atvinnuá- standið? Ég fullyrði að vegna fólks- fækkunarinnar blasir nú við mikill vandi í atvinnumálun- um. Hráefnisöflun hefur gengið vel undanfarið, enda er skuttogarinn Bessi eitt mesta aflaskip landsins, og hann leggur allan sinn afla upp hjá okkur. Þá leggja upp hjá okkur fimm rækjubátar. Rækjuvinnslan fór fram inni á Langeyri til 1982, en nú fer hún fram í frystihúsinu í Súðavík. Á sumrin stunda tveir rækjubátanna úthafs- rækjuveiðar og gengur vel. Okkur vantar því sífellt fólk í vinnsluna, og nú eru hjá. okkur tíu útlendar stúlkur í vinnu, flestar frá Ástralíu og Nýja Sjálandi. Sömu stúlk- urnar eru hér allt upp í tvö ár og þær hafa yfirleitt staðið sig vel. - Hvað heldur þú um framtíð Súðavíkur? Ég vona að það takist að koma barnaskólanum í lag og ljúka við barnaheimili sem er i byggingu. Forsenda þess að fólksfækkun haldi ekki áfram er þó að rétt verði staðið að byggingu íbúðar- húsnæðis. Það ermín skoðun að nálægð okkar við ísafjörð sé kostur, enda eru sam- göngur þangað greiðar lang- flesta daga ársins. Yfirleitt fæ ég ekki annað séð en Súðavík hafi alla burði fram yfir ýmis önnur pláss á Vestfjörðum til að geta eflst og dafnað, segir Heiðar Guðbrandsson að lokum. ísfirðingur þakkar honum fyrir greið og góð svör. „Viljum auka á pólitíska meðvitund jafnaldra okkar“ — sagði Hannes Karlsson, form. nýstofnaðs FUF félags á Húsavík. ■ „Þegar loks hillir nú undir lægri kosningaaldur tel ég að gera verði allt sem hægt er til að upplýsa unga fólkið um það hvað er í rauninni að gerast í lands- og bæjarmálum. Það verður varla gert nema að unga fólkið gangi í félagsskap þar sem þetta er efst á blaði. Við sem stóðum að stofnun þessa FUF félags viljum sem sagt auka á pólitíska meðvitund jafnaidra okkar“, sagði Hannes Karlsson, sem um síðustu helgi var kosinn formaður Félags ungra fram- sóknarmanna, sem þá var stofnað á Húsavík. Alls gerðust tuttugu ungmenni félagar á stofnfundinum. Fram kom að mikill hugur er í nýju stjórninni. Hannes sagði verkefnin raunar ótæmandi - spumingin væri helst sú á hvaða enda ætti að byrja. Auk Hannesar, sem starfar sem deildar- stjóri hjá Kaupfélagi Þingeyinga, voru kosnir í stjórnina: Jakob Sigurólason, Sveinn Aðalgeirsson, Benedikt Kristjánsson og Sigurjón Sigurðsson. -HEI

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.