Tíminn - 21.02.1984, Page 20
Opiö virka daga
9-19
Laugardaga 10-16
H
HEDD
Skemmuvegi 20 Kopavogi
Simar (91)775-51 & 7 80 30
Varahlutir
Mikiö úrval
Sendum um land allt
Ábyrgö á öllu
Kaupum nýlega
bíla til niðurrifs
5AMVINNU
TRYGGINGAR
&ANDVAKA
ARMULA3 SIMI 81411
-is ^SMabriel
H HÖGGDEYFAR
UQJvarahlutir .SESff
Ritstjorn 86300 — Auglysingar 18300- Afgreiðsla og sskrift 86300 - Kvoldsimar 86387 og 86306
Leigubílstjóri fann yfirgefna bifreið hins vopnaða ræningja:
LBGUBÍLAR LEITUÐU BIF-
REHMRINNAR í TVO TÍMA
— „Þetta rán hefði ekki verið framið ef við hefðum haft tölvukerfi það sem við
erum að hugsa um að koma okkur upp“ segir framkvæmdastjóri Hreyfils.
■ Það mun hafa verið ieigu- bílstjóri sem fann yfirgefna bif- reið hins vopnaða ræningja þar sem hann hafði horfið frá henni í Brautarhotlinu en strax og uppvíst var um hvað gerst hafði fyrir utan Landsbankann á Laugaveginum fór stór hópur leigubílstjóra í að leita bifreiðar- innar og stóð sú leit yfir í tæpa tvo tíma. Þessar upplýsingar fengust hjá Einari Geir Þorsteinssyni framkvæmdastjóra Hreyfils en hann sagði jafnframt í samtali við Tímann að ef þeir hefðu verið búnir að fá tölvukerfi það í bíla sína sem þeir eru að hugsa um að koma upp hefði þetta rán aldrei verið framið. „Helstu þættir þessa kerfis eru þeir að móðurtölva sér um að velja bíl í hverja ferð og tekur þá þann bíl sem næst er ákvörð- unarstað og hefur tölvan jafn- framt nákvæmar upplýsingar um hvar hver bíll er staddur í borg- inni“, sagði Einar Geir í samtali við Tímann. Hann sagði einnig að meðal þess sem kerfið hefði væri neyð- arsendir og ef hann færi í gang frá einhverjum bílanna hefði hann algjöran forgang innan kerfisins sem ýtti öllu öðru frá á meðan væri verið að sinna neyðar- sendingunni. Sagði Einar að ef þetta hefði verið til staðar á föstudagskvöldið hefði strax ver- ið hægt að girða af svæðið þar sem upptök ránsins voru, þ.e. í Nauthólsvík. í máli hans kom ennfremur fram að góð reynsla væri af þessu tölvukerfi og nefndi hann það sem dæmi að í Bærum í Noregi, þar sem Hreyfilsmenn kynntu sér kerfið, hefði komist upp um eiturlyfjahring með aðstoð þess. -FRI
Fraktflugvél
Flugleida í
erfidleikum:
VÖRUPALLAR
BRUTU MILLIÞIL
í FLUGTAKI
■ Boeing-fraktflugvcl Flug-
leiða lenti í erfiðleikum á Kcfla-
víkurflugvelli er hún Var á leiö úl
með tóma vörupalla innanborðs.
Þeir runnu til í flugtakinu og
brutu niður milliþil fyrir snyrt-
ingu í vélinni.
Að sögn Sæmundar Guðvins-
sonar blaðafulltrúa Flugleiða
hélt vélin fluginu áfram og sótti
vörur þær sem hún átti að sækja.
Hér er um eldri Boeing vél
fyrirtækisins að ræða, þá scm
sérhönnuð er fyrir fraktflug auk
farþegaflugs og sagði Sæmundur
að sennilega þyrfti að fá þetta þil
sent að utan og á meðan það væri
ekki komið yrði vélin eingöngu
notuð áfram í fraktflugi.
Ffann hafði ekki nákvæmar
upplýsingar um hvc mikið tjón
væri um að ræða en Ijóst að það
væri töluvert því þessi þil væru
dýr í innkaupum.
y „Eg veitekj
en þeir hafi nóg plass
í þrónum'S segir skip-
stjórinn á Erni KE
■ „Okkur finnst það liart að fá
ekki að landa þessum slatta þeg-
ar svona stendur á. Ég veit ekki
betur en þeir hafi nóg pláss i
þrónum og þetta verður aðeins
til að valda okkur óþörfum snún-
ingum,“ sagði Örn Erlingsson,
skipstjóri á loðnubátnum Erni
KE, þegar Tímamenn hittu hann
um borð í bátnum við Ægisgarö
í Reykjavík í gær.
Örn kom til Reykjavikur af
loðnumiðunum laust eftir mið-
nættið í fyrrinótt með 250 tonn
af loðnu, sem er rétt tæplega
hálffermi, og bilað spil. Þegar
beðið var um að fá löndunarpláss
kynnt að því miður væri það ekki
hægt og voru engar ástæður til-
greindar.
„Ég veit ekki hvað veldur en
þykir sennilegt að þeir vilji halda
að sér höndum þangað til
hrognatakan byrjar fyrir alvöru
- hafa þá nóg þróarrými. En
alveg ótækt að geta ekki losnað
við 250 tonn hér í Reykjavík.
Við þurfum að fara með þetta
upp á Skaga og síðan koma til
Reykjavíkur aftur til að láta gera
við spilið,“ sagði Örn.
„Við höfum tekið þá ákvörðun
að taka ekki á móti loðnu í bili
og í því sambandi gengur e.itt yfir
Þriðjudagur 21. febníar 1984
Vopnaði ræn-
inginn enn laus:
LÖGREGLAN
BJARTSÝNÁ
AÐMÁLIÐ
UPPLÝSIST
■ „Við höldum áfram rann-
sókn þessa máls og það er ekki
mikið meira sem við getum
sagt á þessu stigi“, sagði Þórir
Oddsson vararannsóknarlög-
reglustjóri rfkisins í samtali við
Timann er við spurðum hann
um ránið fyrir utan útibú
Landsbankans að Laugavegi
77.
Hinn vopnaði ræningi sem
tókst að komast undan með
tæpar 2 milljónir kr. sem hann
náði af starfsmönnum ÁTVR
er enn ófundinn.
Þórir sagði að yfirheyrslur
hefðu staðið í málinu alla helg-
ina en þeim hefðu borist ýmsar
upplýsingar og vcrið væri að
kanna þær.
Aðspurður um hvort hagla-
byssa sú sem notuð var í ráninu
væri sú sama og sú sem stolið
var úr Vesturröst nóttina áður
sagði Þórir að hann gæti ekki
staðfest það.
Hvað varðaði líkurnar á að
þetta mál uþplýsist sagði þórir
að þeir væru bjartsýnir á það.
-FRI
■ Örn Erlingsson, skip-
stjóri, um borð í bát sínum
Erni KE við Ægisgarð í
Reykjavík í gær. Báturinn
fékk ekki löndun á 250 tonn-
um af loðnu þrátt fyrir að
spilið væri bilað og gera ætti
við í Reykjavík.
Tfmamynd Róbert.
alla,“ sagði Jón S. Jónsson. fram-
kvæmdastjóri Fiskimjölsverk-
smiðjunnar hjá Kletti, þegar
Tíminn spurðist fyrir um þetta
mál.
Jón sagði að því væri ekki að
leyna að þróarrými væri fyrir
hendi, en aftur á móti vildu
menn geyma rýmið þar til.loðna
til hrognatöku fer að fást, en við
henni er búist á allra næstu
dögum að sögn Jóns.
Jón var spurður hvort ekki
væri ástæða til að afgreiða báta
sem væru bilaðir og þörfnuðust
viðgerðar. Hann sagði að þegar
hefðu haft samband við sig
nokkrir skipstjórar og beðið um
löndun á sömu forsendu en því
miður væri ekki hægt að verða
við óskum þeirra. -S.ió.
'
dropar
Furðulegt
ferðalag
■ I nýjasta tölubiaði Víkur-
blaðsins sem út kemur á Húsa-
vík gefur að líta eftirfarandi
fréttafrásögn: „Nýlega kom í
heimsókn í Lundarbrekku í
Bárðardal maður nokkur á
Land Rover bíl sínum. Hann
drap á bílnum í hlaðinu, fór
sjálfur inn i bæ, fékk kaffi og
spjallað um stund við liúsráð-
endur.
Heyra menn þá í bíl Sem
kemur óvanalega leið meðfram
húsvcgg og upp tröppur vestan
■■■■RHnnm
húss. Bresta þeir þá á fætur og
athuga hver kominn er. Sjá
þeir þá fyrrnefndan gestabíl
fastan með annað afturhjól á
lofti utan á tröppunum.
Hafði honum leiðst biðin,
startaði sér sjálfur í gang og
ekið ca. 20-25 metra. Fyrst
meðfram húsvegg og sloppið
þar naumlega við einn bíl.
Snarbeygt við húshorn, rekist
þar á símastaur og nánast rifið
þar af sér annað frambrettið.
Því næst fariö í gegnum girð-
ingu og síöast upp tröppurnar
sem fyrr sagöi. Trúlcga langað
í kaffi.“
Skattheimta
yfir
gröf og dauða!
■ Og hér er önnur fréttafrá-
sögn úr sama blaði: „Fyrir
nokkrum inánuöum sagði Vík-
urblaðið frá krónumálinu
svokallaðað þegar Félagsheim-
ili Húsavíkur var gert að greiða
eina krónu til ríkisins eða
hljóta verra af. Þótti þetta
dálítið kúnstugt hjá innheimt-
unni og töluvert á sig lagt til
þess að cndurheimta téða
krónu.
Nú hefur annað mál rekið á
fjörur Víkurblaðsins og slær
það krónumálinu hinu fyrra
algjörlega við. Fyrir skömmu
barst bréf frá Sýsluskrifstof-
unni til konu nokkurrar, á
skráð heimilisfang licnnar á
Húsavík, þ.e.a.s. það heimilis-
fang sem prentað var á inn-
heimtuseðilinn því þetta var jú
rukkun. A seðli þessum stóð
að konan skuldaði eina krónu
í opinber gjöld og til þess að
losna við allan óþarfa inn-
heimtukostnað væri best fyrir
hana að koma og greiða krón-
una hið snarasta.
Þó þetta bréf sé merkilegt
vegna upphæðarinnar, sem
sýnir að innheimtumenn ríkis-
ins ganga hart fram gegn þeim
sem skulda eina krónu, þá er
það enn merkilegra fyrir þær
sakir, að konan, sem átti að
greiða þessa upphæð lést fyrir
u.þ.b. þrem árum.“
Krummi.. .
...veit nú fyrst hvað skatturinn
getur verið nálegur...!