Tíminn - 29.02.1984, Side 1
!
íslendingaþættir fylgja blaðinu i dag
FJOLBREYTTARA
OG BETRA BLAÐ!
Miðvikudagur 29. febrúar 1984
51. tölublað - 68. árgangur
Siðumula 15 - P’osffltnofr 370 Reykiavik - Ritstiorn 86300- Augtysiimgar i S3(D*£ - Afrgreiðsta og askrift 86300 - Kvoidsimar 8638 7 og 86306
Samræmingasamningur Alberts við
dregur dilk á eftir sér:
FJARMAURAÐNERRA TEYGT SIG
LANGT ÚT FYRIR SITT VERKSVK)”
— segir Steingrímur Hermannsson,
boðað ríkisstjórnarfund um málið á föstudaginn
sem hefur
■ Samkomulagþaðsem Albert
Guðmundsson fjármálaráðherra
gerði í gær við Guðmund J.
Guðmundsson formann Dags-
brúnar, um leiðréttingu á
kjörum starfsmanna ríkisins í
Dagsbrún til samræmis við fé-
lagsmenn BSRB í hliðstæðum
störfum, virðist ætla að draga
dilk á eftir sér, því samráðherrar
Alberts hafa lýst sig andvíga
samkomulaginu, sagst vilja
hafna því, sagt það óþarft og þar
fram eftir götum. Vinnuveit-
endasamband íslands hefur lýst
þeirri skoðun sinni að fjármála-
ráðherra hafi með þessum samn-
ingi farið langt út fyrir sitt
verksvið. Björn Friðfinnsson,
formaður Sambands íslenskra
sveitarfélaga hefur sagt að hans
samtök séu örg yfir því að ekkert
samráð hafi verið haft við þau,
þótt svo að aðeins 147 félags-
menn Dagsbrúnar séu starfandi
hjá ríkinu, en 500 til 800 hjá
Reykjavíkurborg. Samningar
við félagsmenn Dagsbrúnar séu
því fremur annarra hlutverk en
fjármálaráðherra.
Albert Guðmundsson fjár-
málaráðherra sagði í samiali við
Tímann í gær að í sjálfu sér væri
ekkert um þennan samning að
segja, hann væri aðeins samræm-
ing á kjörum Dagsbrúnarmanna
í starfi hjá ríkinu, til jafns við
kjör BSRBmanna í hliðstæðum
störfum. Fjármálaráðherra sagð-
ist á þessu stigi ekki hafa upplýs-
ingar um það hvað þessi samn-
ingur kostaði ríkissjóð, og hann
vísaði því eindregið á bug að
hann væri með því að gera
þennan samning.ín samráðs við
nokkurn aðila.að launa rtkis-
stjórninni það að hún skyldi
ganga frá tryggingapakkanum
margumtalaða í fjarveru hans og
án samráðs við hann.
Steingrímur Hermannsson
forsætisráðherra sagði erTíminn
ræddi við hann í Stokkhólmi í
gær, að hann hefði aldrei kynnst
því í stjórnarsamstarfi að svona
ákvörðun væri tekin, án þess að
samráð væri haft við aðra í
ríkisstjórn. Hann sagði fjármála-
ráðherra hafa með þessu teygt
sig langt út fyrir sitt eigið verk-
svið og sagðist mundu halda
ríkisstjórnarfund um málið þeg-
ar hann kæmi heim af þingi
Norðurlandaráðs.
Ásmundur Stefánsson, forseti
ASI sagði í samtali við Tímann
að hann væri ánægður með þessa
ótvíræðu viljayfirlýsingu fjár-
málaráðuneytisins og sagðist
hann telja að þetta samkomulag
hlyti að veraopiðgagnvartöllum
öðrum sem störfuðu hjá ríkinu.“
Þórarinn V. Þórarinsson að-
stoðarframkvæmdastjóri sagði
m.a. „Það kemur á óvart að
fjármálaráðherra skuli sjá
ástæðu til þess að grípa með
þessum hætti inn í deilu, sem
augljóslega snýr lyrsl og fremst
að VSÍ."
Sjá nánar bls. 3
-AB
Island, Færeyjar
og Grænland:
ÆTLA AÐ TAKA
UPP SAMSTARF
UM SAMEIGIN-
LEGA HAGSMUNI
■ Óformlegur fundur Stein-
gríms Hermannssonar forsætis-
ráðherra, Pauki Elefsen for-
manns landsstjórnarinnar í Fær-
eyjum og Jonathan Motzfeldt
formanns landsstjórnarinnar í
Grænlandi fórfram í Stokkhólmi
í gær, þar sem forsætisráðherra
íslands lagði til að árlegir fundir
forsætisráðherra íslands og
formanna landsstjórnanna í
þessum löndum yrðu teknirupp,
þar sem sameiginlegir hagsmunir
landanna fyrst og fremst í sjávar-
útvegi yrðu ræddir.
Forsætisráðherra sagði í sam-
tali við Tímann í gær að þessari
tillögu hans hefði verið tekið mjög
jákvætt af formönnum lands-
stjórnanna og að þeir hefðu
báðir sagst mundu leggja til í
sínum stjórnum að þessi háttur
yrði hafður á. „Ég er mjög
ánægður með þær undirtektir,“
sagði Steingrímur, „því ég held
að það sé gott fyrir okkur að taka
upp slíkt samstarf. Það var
ákveðið að ég myndi bjóða til
fyrsta fundarins, og auk þess
ætlum við að ræða við Norðmenn
út af Jan Mayen, hvort þeir vilja
vera með á slíkum árlegum
fundi.“
-AB
■ Stilla eftir storm gæti þessi mynd heitið, en hún er tekin á Grundarf irði eftir fjögurra daga
óveður sem þar geisaði á dögunum. Tímamynd Ari Lieberman
Bjargráðasjóður:
Bætir kart-
öflubændum
skaðann að
hálfu leyti
■ Ríkisstjórnin hefur heimilað
ríkisábyrgð til handa Bjargráða-
sjóði upp á 30 milljónir króna, til
þess að bæta kartöflubændum
tjón sem þeir urðu fyrir af völd-
um uppskerubrests í fyrra, og er
ráðgert, samkvæmt því sem Jón
Helgason, landbúnaðarráðherra
upplýsti Tímann í gær, að bænd-
um þeim sem urðu fyrir tjóni,
verði bættur skaðinn að hálfu
leyti. Er hér eitthvað á annað
hundrað bændur sem um ræðir.
-AB
Akureyri:
Avísana-
misferli
upplýst
■ Rannsóknarlögreglan á Ak-
ureyri hefur upplýst ávísanamis-
ferli, þar sem maður falsaði 4
ávísanir að upphæð samtals
15.000 kr.
Að sögn Daníels Snorrasonar
hjá RLR á Akureyri var málið
þannig vaxið að fullorðinn mað-
ur stal veski, með ávísanahefti,
á skemmtistaðnum H-100 á Ak-
ureyri um síðustu helgi. Hann
skrifaði síðan út 4 ávísanir og
seldi þær. RLR komst á snoðir
um málið í gærmorgun og lauk
rannsókn þess í gærkveldi.
-FRI