Tíminn - 29.02.1984, Qupperneq 5
MIÐVIKUDAGUR 29. FEBRUAR 1984
Alþjódlegt skákmót Kefst í dag í Grindavík:
HW FYRSTfl fl ÍSLANM
UTflN HÖFUDBORGARINNAR
■ Skákvertíðinni sem hófst á íslandi
með Búnaðarbankamótinu er ekki lokið
með Reykjavíkurmótinu, í dag kl. 16.00
hefst skákmót í félagsheimilinu Festi í
Grindavík, og er það í fyrsta sinn sem
slík mót eru haldin utan Reykjavíkur.
Bæði íslenskir og erlendir skákmenn
verða meðal keppenda og er mótið af
styrkleikagráðunni 8, en það þýðir að
það er nægilega sterkt til að gefa áfanga
að titlum stórmeistara og alþjóðameist-
ara. Keppendur eru 12 og því tefldar 11
umferðir en mótið er lokað.
Stigahæsti skákmaður mótsins verður
Bandaríkjameistarinn Larry Christians-
en, sem tefldi á Reykjavíkurmótinu, en
auk hans verða tveir erlendir stórmeist-
arar með, þeir sr. Lombardy frá Banda-
ríkjunum og Júgóslavinn Knezevic, sem
setið hefur í mánuð að tafli á íslandi.
íslendingarnir sem þátt taka eru þeir
Jóhann Hjartarson, sem á möguleika að
ná síðasta áfanganum að stórmeistara-
titlinum á mótinu, Helgi Ólafsson , Jón
L. Árnason, Haukur Angantýsson, Elv-
ar Guðmundsson, Björgvin Jónsson og
Ingvar Ásmundsson, en langt er nú um
liðið síðan síðastnefndi hefur tekið þátt
í alþjóðlegu móti, en Ingvar hefur um
árabil verið í hópi sterkustu skákmanna
hérlendis, og sá ásamt öðrum um skák-
skýringar í tengslum við þau tvö mót
sem eru nýafstaðin, með miklum ágæt-
um. Auk þeirra sem hér hafa verið
nefndir keppa á mótinu L. Gutman frá
ísrael og Vincent McCambridge frá
Englandi.
Það er tímaritið Skák og hinn stórhuga
ritstjóri þess, sem hefur veg og vanda af
mótinu, en fyrirtæki á Suðurnesjum hafa
lagt sitt af mörkum til að mótið gæti
orðið að veruleika og sömuleiðis Grinda-
víkurbær, sem gengst í ábyrgð ef um
halla verður að ræða af mótshaldinu,
sem verður að telja ólíklegt. Meðan á
mótinu stendur munu keppendur búa í
hinu nýja gistihúsi Bláa lónið við
Svartsengi.
í gær var dregið um töfluröð og eigast
þessir við í fyrstu umferð:
Haukur Angantýsson og Christiansen,
Ingvar Ásmundsson og Jóhann
Hjartarson, Jón L. Árnason og McCam-
bridge, Björgvin Jónsson og Lombardy,
Helgi Ólafsson og Gutman og Knezevic
og Elvar Guðmundsson.
-JGK
■ Keppendur og starfsmenn Grindavíkurmótsins fýrir utan gistihúsið við Bláa lónið. Tímamynd Ámi Sæberg.
Ný útvarpslög
EINKARÉTTUR RÍKIS-
ÚTVARPSINS AFNUMINN
Leikflokkurinn
á Hvammstanga:
GULLNA HLIB-
IÐ FRUMSÝNT
á 20 ára
dánardægri
Davíðs Stefánssonar
■ Frá æfingu á Gullna hliðinu. *
■ Menntamálaráðherra hefur lagt
fram frumvarp til útvarpslaga og er þar
sú höfuðbreyting á miðað við núgildandi
einkaréttur Ríkisútvarpsins verði af-
numinn og fleiri aðilar fái leyfl til að reka
hljóðvarps- eða sjónvarpsstöðvar að
uppfylltum vissum skilyrðum. I öllum
aðalatriðum er frumvarpið eins og út-
varpslaganefnd gekk frá því og í athuga-
semdum er tekið fram að frumvarpið
kunni að taka breytingum í meðförum
Alþingis.
1 3. grein frumvarpsins er kveðið svo
á um að útvarpsréttindanefnd, en hana
á að kjósa af Alþingi, geti veitt sveitar-
félögum eða félögum sem til þess eru
stofnuð, tímabundið leyfi til útvarps til
viðtöku almennings á afmörkuðum
svæðum. í frumvarpinu er útvarp skil-
greint bæði sem hljóðvarp og sjónvarp.
Tekið er fram að útvarpsstöðvar sem
leyfi fá skulu í öllu halda í heiðri
lýðræðislegar grundvallarreglur. Þeim
ber að virða tjáningarfrelsi og stuðla að
því að fram komi í dagskrá rök fyrir
mismunandi skoðunum í umdeildum
málum.
Útvarpsstöðvar sem leyfi fá fyrir þráð-
lausum útsendingum hafa heimild til að
afla fjár með auglýsingum, en útvarps-
stöð sem fær leyfi til útsendingar um
þráð er óheimilt að birta auglýsingar í
dagskrá, en getur innheimt afnotagjöld.
Þá er leyfi til útvarps um þráð háð því
skilyrði að viðkomandi sveitarstjórnir
heimili lagningu þráðar um lönd sín.
í frumvarpinu er ekki að finna nema
óverulegar breytingar á l'agaákvæðum
um Ríkisútvarpið.
OÓ
■ Leikflokkurinn á Hvammstanga
frumsýnir Gullna hliðið eftir Davíð Ste-
fánsson hinn 1. mars n.k., en það er 20
ára dánardægur Davíðs Stefánssonar.
Það er mikið átak fyrir áhugaleikhóp
að setja á svið svo viðamikið verk sem
Gullna hliðið. Ekki færri en 40-50 manns
munu hafa lagt þar fram krafta sína, sem
áætla má að samsvari um 10. hverjum
fullorðnum manni í þessu um 600 manna
byggðarlagi. Leikstjóri er Þröstur Guð-
bjartsson, og gerði hann einnig leik-
mynd. Er Gullna hliðið fjórða verkið
sem Þröstur leikstýrirhjá leikflokknum.
Leikhópurinn á Hvammstanga hyggst
fara með sýningar á Gullna hliðinu í
nágrannabyggðir. Næstusýningarverða:
Hofsósi íaugardaginn 3. mars, Miðgarði
4. mars, Hvammstanga miðvikud. 7.
mars, Skagaströnd laugardaginn 10.
mars, Blönduósi sunnudaginn 11. mars,
Búðardal laugardaginn 17. mars og
Varmalandi sunnudaginn 18. mars. Síð-
ustu sýningarnar eru fyrirhugaðar á
Hvammstanga 23. og 25. mars n.k.
Lestunar-
áætlun
Skip Sambandsins munu
ferma tii íslands á næstunni
sem hér segir:
Hull/Goole:
Jan .........
Jan .........
Jan .........
Jan .........
Rotterdam:
Jan ........
Jan ........
Jan ........
Jan ........
Antwerpen:
Jan ........
Jan ........
Jan.........
Jan ........
Hamborg:
Jan ........
Jan.........
Jan ........
Jan.........
Helsinki/Turku:
Helgafell........
Hvassafell.......
6/3
19/3
2/4
16/4
7/3
20/3
3/4
17/4
. 8/3
. 21/3
. 4/4
. 18/4
. 9/3
. 23/3
. 6/4
. 20/4
. 5/3
. 26/3
Larvik:
Francop .................12/3
Francop .................26/3
Francop ................. 9/4
Gautaborg:
Francop .................13/3
Francop .................27/3
Francop .................10/4
Kaupmannahöfn:
Francop .................14/3
Francop .................28/3
Francop .................11/4
Svendborg:
Francop ................. 1/3
Francop .................15/3
Francop ................ 29/3
Francop .................12/4
.Árhus:
Francop ................. 2/3
Francop .................16/3
Francop .................30/3
Francop .................13/4
Falkenberg:
Helgafell................14/3
Mælifell.................20/3
Gloucester Mass.:
Jökulfell................13/3
Skaftafell...............27/3
Halifax, Canada:
Skaftafell...............28/3
SKIPADEILD
SAMBANDSINS
Sambandshúsinu
Pósth. 180 121 Reykjavík
Simi 28200 Telex 2101
Fyrstu Opel-bílarnir voru
smíöaðir 1898. Síðan eru 86
ár og meira en 20 milljónir
Opel-bíla. Reynsla, sem
kemur þér til góða. Reynsla,
sem þú færð í kaupbæti,
þegar þú velur Opel.
HÖFÐABAKKA 9 SÍMI 687300 GÆÐAEFTIRLIT MEÐ GÆÐAVÖRUM
i