Tíminn - 29.02.1984, Side 6
6______________
f spegli tímans
Wmmm
MIÐVIKUDAGUR 29. FEBRÚAR 1984
DONNA í DALLAS SEGIST BKUA FYRIR JR
— og hans líkum
f veröldinni
■ Susan Howard segist alls ekki hafa ætlað sér að verða fastaleik-
kona í Dallas-þáttunum. Hún hafði ieikið í þáttum, sem hétu
„Petrocelli“, en þeir voru lagðir niður, og Susan var á lausum kili.
Stjórnandi þeirra þátta fór að vinna við Dallas og orðaði það þá við
hana hvort hón vildi koma sem gestur í eins og einn þátt.
Susan var til í það og segist
ekki hafa séð eftir því. Það sé
alveg indælis fólk, sem hún vinni
með í Dallas og gaman að vinna
að þáttunum. Þegar hún byrjaði
sló hún reyndar þann varnagla,
að hún gæti ekki hugsað sér að
leika persónu, sem gerði nokkuð
Ijótt eða kvikindislegt, því að
hún er frelsuð, og segist ckki
vilja setja sig inn í hugsanagang
óguðlegrar persónu.
„Þegar ég kem heim úr kvik-
myndaverinu, þá biðst ég alltaf
fyrir, og ég get ekki gert að því,
að þótt JR sé auðvitað uppdikt-
uö persóna, þá verð ég að minn-
ast á hann í bænum mínum, og
biðja fyrir þeim sem líkjast
honum“, segir Susan í frásögn af
lífi sínu.
Ilún segist hafa gert mesta
glappaskot lífs síns þegar hún
giftist aðeins 17 ára. Hún hafi
auðvitað verið allt of ung, dekur-
dúkka og eigingjörn, og reynt,
alltaf að hafa sitt fram. „Líklega
er það mikið uppeldinu á mér að
kenna, því að í uppvextinum
fékk ég allt sem ég óskaði mér,
og pabbi minn sagði mér alltaf
að ég væri dásamleg og falleg.
Það var ekki fyrr en löngu seinna
- eftir að ég var farin að þroskast
- að ég leit í spegilinn og upp-
götvaði að hann hafði skrökvað
að mér. Ég var ekkert falleg! En
þá var ég farin að leika og gat
ekki hugsað mér neitt annað."
Nú er Susan Howard orðin 39
ára gömul, og er hamingjusöm í
hjónabandi sínu með Calvin
Chrane, sem vinnur að kvik-
myndagerð. Hann er líka guð-
hræddur og þau biðja saman,
segir hún, og þá hverfi erfið-
leikarnir eins og dögg fyrir sólu.
■ SusanHoward(Donna)ereiniósvikniTcxasbúinníDALLAS-þáttunum. Hún fæddist í borginni Marshall í Texas. Hér er hún ásamt
eiginmanni sínum Calvin Chrane. Þegar hún er ekki að leika í DALLAS er hún önnum kafin á búgarðinum, sem þau hjónin eiga í Texas, og
þar vilja þau búa í framtíðinni, segja þau.
PAVAROTTII
GAMANÓPERU
■ í gamanóperunni „Yes, Ge-
orgio“ leikur hinn heimsfrægi
tenórsöngvari Luciano Pavarotti
titilhlutverkið, og þykir takast
bráðvel upp - bæði með leik og
söng. Operan helur verið tekin
upp á videó-spólur og þannig
liorist víða um heiminn (Er
kannski hægt að fá hana leigða í
Kcykjavík?). M.a. er i myndinni
konsert, þar sem eru 150.000 ,
áhorfendur, og er þessum hljóm-
leikuni komið fyrir í söguþræð-
inum.
Aðalpersónan er auðvitað Ge-
orgio, sem er frægur tenórsöngv-
ari, en fær ilit í hálsinn. Það er
auðvitað það versta sem fyrir
tenórsöngvara getur komið, svo
allra ráða er beitt til að Georgio
geti batnað. Hann er sendur til
háls-sérfræöings, dr. Pamelu
Taylor, sem leikin er af Kathryn
Harold. Hún læknar söngvarann
og hann verður ástfanginn af
henni og syngur um ást sína, eins
og við á í óperum.
VALDAKONUNA
AFANNARRI
■ Kathryn Harold og Luciano Pavarotti sem Georgio og hálslæknir -
inn hans.
■ Faye Dunaway, sem við fengum nýlega að fylgjast með í hlutverki
Evu Peron, forsetafrúar Argentínu, í sjónvarpinu, hefur ekki
staðnæmst þar með í að túlka valdamiklar hefðarfrúr. Nú hefur hún
tekið að sér að fara með hlutverk ísabellu Spánardrottningu í ítölskum
sjónvarpsþáttum um Kristófer Kólumbus.
Faye er orðin 42 ára og stcndur á hátindi frægðar sinnar. Hún þykir
sóma sér vel í slíkum hlutverkum og bera drottningarskrúðann með
reisn. En trúlega er það ekki eingöngu glæsileiki hlutverkanna, sem
höfðar til hennar. Launin, sem hún fær fyrir ísabellu, eru ekkert slor,
eða u.þ.b. 28 millj. ísl. króna fyrir hálfsmánaðar vinnu!
FAYE
LEIKUREINA
viðtal dagsins
„HEFENGAN
TÍMATIL
ADKALKA“
segir Markús Þórðarson
„uppgjaf a skipstjóri“ og f lug-
vallarstjori á Rifi
■ „Þetta erágætt meðelli- Snæfellsnesi aftur í hljóð-
laununum. Það er svo mikið nemann sinn til að ræða við
að gera hjá mér að ég hef _
engan tíma til að kalka" og „ . . . . , „
að þessum orðum töluðum ■ Markus Þorðarson flug-
hleypur Markús Þórðarson vallarvórður a Rtfl.
flugvallarstjóri á Rifi á Tímamynd: Arm Sæberg.