Tíminn - 03.03.1984, Blaðsíða 2
K-TILBOÐIN BRJOTA GEGN
ÁKVÆÐUM VERÐLAGSLAGA
— eftir að álagning var gefin frjáls, nema undanþágur fáist
■ „ÞaA cr rétt, að strangt til tekið ætti
þetta að vera hannað. En samkvxmt 24.
grein verðlags- og samkeppnislaganna
er hægt að sækja um undanþágur til
verðlagsráðs og eru nokkrar slíkar til-
greindar, svo sem ef menn með samning-
um geta náð fram meiri hagkvæmni og
lækkuðu verði", sagði Georg Olafsson,
verðlagsstjóri spurður hvort auglýsing í
blöðum í gær um K-tilboð væri ekki
bönnuð, eftir að álagning matvara og
ýmissa fleiri vöruflokka var gefln frjáls
frá og með dcginum í gær.
I tilkynningu Verðlagsstofnunar í til-
efni af því aðálagning hefurvcriðgefin
frjáls er bent á að samkvæmt 21. grein
verðlags- og samkeppnislaganna séu
hvers konar samráð um verð og álagn-
ingu bannað þegar verðlagning er frjáls,
þar á meðal sameiginlegir verðlistar
fyrirtækjaogfélagaeðasamtaka þeirra.
Georg sagði augljóst að búast megi
við einhverjum aðlögunarvandamálum.
K-tilboðin og önnur slík tilboð séu
meðal mála sem ræða þurfi um í verð-
lagsráði. Að óathuguðu máli kvaðst
hann þó telja að undanþágur til slíks
gætu komið til greina, svo lengi sem
lækkað vöruverð næðist með slíkri sam-
stöðu. „Við verðunt aðóska eftir upplýs-
ingum um þessi K-samtök og þeir verða
að fá undanþágur frá okkur vilji þeir
halda þessu áfram“, sagði Georg.
í auglýsingum, og jafnvel verðmerk-
ingum, verslana hefur til þessa verið
algengt að sjá auglýst „leyft verð“. Það
er hér eftir algerlega óheimilt, að sögn
Georgs. í auglýsingu K-samtakanna í
gær var hins vegar auglýst „Leiðbeinandi
smásöluverð". Georg var spurður hvað
í því fælist.
Hann sagði það einnig mál sem þurfi
að skoða nánar. Væntanlega sé þarna
miðað við það verð sem í gildi var áður.
Samkvæmt 23. grein laganna sé fram-
leiðendum og heildsölum bannað að
gefa bindandi verð á næsta sölustigi, en
það útiloki ekki að þeir geti gefið
leiðbeinandi verð. Smásalar megi hins
vegar ekki taka sig saman um að nota
það leiðbeinandi verð, heldurverði hver
UatctæMC !
FmsfíRimn£ 7«>r -jgg ’
tmsKnek^pje/&r. |
____________jk*d. 3
_________^FMOLfí Í/ ÍCOvJ.. 1
Íjssgsr KÓKé/t*LT~ fxfr. jí»
- ELbtióí&Uoe Zst. 3}U I
I & tttno'MBrúsu /£. iot Ss /l-s
-------------------—---------------i
| ^ VERSLUM ER KJARABÓT m
og einn þeirra að vega það og meta. Slík
verð séu víða heimiluð í þeim löndum
sem hafa frjálsa álagningu, en síðan sé
algengt að smásöluverslanir séu 10-20-
30% undir þessu leiðbeinandi verði.
-HEI
„EKKISPARAÐ
ÞAÐ SEM ÞAÐ
Ani AÐ GERA“
—segir forstöðumaður
Bifreiðaeftirlitsins
■ „Við höfum sent dómsmálaráðuneyt-
inu ákvcðnar tillögur um framkvæmd á
þessu en svar hefur ekki borist enn. Ég
vonast nú eftir að ákvörðun verði tckin þar
fljótlega" sagði Guðni Karlsson forstöðu-
maður bifreiðaeftirlitsins þegar liann var
spurður um hvernig þeir bílar verði auð-
kcnndir sem ekki þurfa lengur að koma til
skoðunar. Samkvæmt nýjum reglum um
bifreiðaskoðun þarf ekki að koma með þá
bíla til skoðunar á þessu ári sem eru skráðir
á árinu 1982 og síðar. Guðni sagðist ekki
vilja á þessu stigi segja hverjar þessar
tillógur væru cn ýmsar leiðir væru til, m.a.
að senda bíleigendum sérstaka miða.
„Ég hef nú satl að segja orðið fyrir
vonbrigðum ineð framkvæmd þessarar
nýju reglugerðar. Þctla hefur ekki sparað
það sem það átti að spara vegna þess að
þetta hefur ekki verið unnið til enda. En
við skulum vona að úr því v erði bætt" sagði
Guðni. -GSH
■ „Ég held að það sé nánast útilokað
að okkur takist að ná upp öllu því sein
iná veiða á vertiðinni. Nú eru komin á
land eitthvað um 400 þúsund tonn og ég
gæti trúað aö það næöust rúmlega 100
þúsund tonn í viðhót. Allt umfram það
fer að minnsta kosti f'ram úr mínum
vonum," sagði Andrés Finnbogason,
starfsmaður Eoðnunefndar, i samtali við
Tímann í gær.
Andrés sagði að loðnuveiði væri enn
nokkuð góð þótt ekki væri hægt að tala
um mokveiði eins og var í upphafi
vetrarvertíðarinnar. Frá klukkan 17 í
fyrradag til klukkan 17 í gær hefðu
fengist 18 þúsund tonn, sem yrði að
teljast góður sólarhringsafli, en það hins
vegar segði ekki alla söguna. „Það var
búin að vera nær stöðug bræla í þrjá
sólarhringa og þess vegna voru næstum
allir bátarnir búnir að losa og gátu farið
aftur út á miðin. Þessi afli skiptist því á
mjög tnarga báta," sagði Andrés.
Hann sagði að einn bátur að minnsta
kosti, Hilmir SU, væri búinn með sinn
viðbótarkvóta og fleiri væru í þann
mund að klára hann. Þeir þyrftu hins
vegar ekki að hætta.því að 60 þúsund
tonnum af viðbótarmagninu hefði verið
haldið utan við skiptinguna vegna þess
að ólíklegt þótti að flotanum tækist að
ná öllu því sem skynsamlegt þykir að
veiða.
. -Sjó.
Mótið er tvískipt, tvímenningur
og sveitakeppni og hófst tvímenn-
ingurinn í gærkvöldi nreð þátttöku
44ra para. Tvímenningnum lýkur
í dag en á sunnudag og mánudag
verður spiluð sveitakeppni með
þáttöku 32ja sveita og er það mesti
fjöldi sveita sem spilað hefur á
bridgemóti hérlendis.
Þetta er í þriðja sinn sem Bridge-
hátíð er haldin á Hótel Loftleiðum
og hefur Alan Sontag tekið þátt í
þeim öllum. Bridgesamband ís-
lands.Bridgefélag Reykjavíkur og
Flugleiðir hf standa að mótinu.
-GSH
■ Davíð Odssson borgarstjóri setti Bridgehátíð 1984 á Hótel Loftleiðum í
gærkvöldi. Á myndinni sést hann segja fyrstu sögnina fyrir Alan Sontag.
Tímamynd Arni Sæberg
Rætt við
starfsmenn MS
um sérkröfur:
■ „Við mættum kl. 6 í morgun og
bárum þá strax upp tillöguna sem var
cinróma samþykkt með mikilli ánægju.
Síðan hófu mcnn störf", sagði Olafur
Olafsson, trúnaðarmaður starfsfólks í
Mjólkursamsölunni, spurður hvernig
mál hefðu þróast þar í gær.
„Við vorum síðan með fund með þeim
kl. 11 - mjög ánægjulegan fund þar sem
andrúmsloftið var alveg gjörbreytt. Ég
er ekki að segja að við séum með neinn
samning í höndunum ennþá, en það var
samþykkt að halda annan fund á þriðju-
daginn. Það eru þarna ýmis mál sem
verið er að kanna t.d. í sambandi við
öryggismálin. Það er því óhætt að segja
að þarna sé orðinn mjög góður andi
enda aðrir menn frá Vinnuveitendasam-
bandinu en verið hafa“, sagði Ólafur.
„Já.það cr ntjög gott hljóð í okkur í
dag. Það er búið að viðurkenna fólkið
sem viðræðu- og samningsaðila og óhætt
að segja að það sé mjög ánægt", sagði
Ólafur.
-HEI
■ Að sjálfsögðu er það fyrsta flokks myndefni þegar Þröstur Ólafsson, fyrrum aðstoðarráðherra og núverandi
aðstoðarmaður Guðmundar Jaka í Dagsbrún og (kannski) tilvonandi arftaki hans sem föðurlegur leiðtogi verkalýðs
borgarinnar og margt fleira,cr að ýta bíl niðri í bæ. Eða hvað? Tímamynd Arni Sæberg
Bridgehátíð 1984:
FIMMTÁN ERLENDIR
SPILARAR ERU Á
MEÐAL ÞÁTTTAKENDA
Enn góð veiði á loðnumiðunum.
ÞÓ ÓLÍKLEGT AÐ
KVÓTINN FYLUST
■ Fimmtán erlendir spilarar taka
þátt í Bridgehátíð 1984 sem hófst
á Hótel Loftleiðum í gærkvöldi.
Þar á meðal eru Alan Sontag og
Mark Molson frá Ameríku en
Sontag er núverandi Heimsmeist-
ari í sveitakeppni, Tony Sowtern,
Steve Lodge, Tony Forrester og
Gus Calderwood frá Bretlandi, og
Hans Göthe og Tommy Gullberg
frá Svíþjóð.
„ANDRUMS-
L0FT1DER
ALVEG GJÖR-
BREYTT"