Tíminn - 03.03.1984, Page 6

Tíminn - 03.03.1984, Page 6
VIÐ VIUUM LÍTA ÚT EINS OG ■ Boy Gvorge „Ég l'ylgdi honum hiklaust hvert sem er, jafnvel til sjálfs helvítis", segir Tinna Howard, 14 ára stúlka, sem langar svo til að líkjast átrúnaðargoðinu sínu, að hún lagði það á sig að sitja í 2 klst. hjá hárgreiðslukonu sem fléttaði hár hennar í stíl Boy George. Hún setti ekki einu sinni fyrir sig kostnaðinn við gervihárið, sem var fléttað saman við, en það kostaði 40 sterlingspund! ■ Toyah „Mig langar til að líta eins brjálæðislega út og Toyah,“ segir Kay Ramsden. Hún er 17 ára og dreymir um að verða leikkona. Til að ná þessu brjálæðislega útliti varð hún að láta klippa hár sitt á annan hátt en hún er vön og förðunin er ekki heldur í hefðbundnum stfl, en henni fannst það borga sig. ■ „Kim Wilde er uppáhaldið mitt", segir 19 ára stúlka, Monica Lloyd, sem dreymir um að komast inn í hljómplötubransann eins og fyrirmyndin mikla. Þó að Kim sé ekki þekkt að furðuklæðnaði eða - förðun, fataðist förðunarmeistaranum ekki, þegar hann var að umbreyta Monicu í Kim. ■ Sagt er að það sé endanleg sönnun fyrir vinsældum popp- stjarna, ef aðdáendur þeirra taka upp á því að taka upp eftir þeim klæðaburð, hárgreiðslu og fas. Er skemmst að minnast þeirra áhrifa, sem Bítlarnir höfðu á hártískuna á sínum tíma. En þó að engin ein hljómsveit eða söngvari hafi síðan haft jafn almcnn áhrif á tískuna, eru þeir þó margir, sem eiga sér svo trygga aðdáendur, að þeir vilja allt til vinna að líkjast átrúnað- argoðunum sínum. Breskt vikublað bauð fyrir skemmstu lesendum sínum að- stoð við að ná sem mestri líkingu við eftirlætissöngvarann eða - söngkonuna sína. Ein stúlka ósk- aði eindregið eftir því að hljóta útlit Boy Georges, enda segist hún ekkert sjá undarlegt við það að karlar noti andlitsfarða, fyrst konur gera það. „Mér flnnst alveg dásamlegt hvað hann er sjálf- stæður, kímnigáfan hans er frá- bær og hann er rosalega hæfileikamikill," segir hún. Hennar eftirlætiseign er bréf, ritað eigin hendi af George sjálf- um til hennar persónulega. Þar að auki á hún meira en 80 myndir af honum og 4 úrklippu- bækur, sem fjalla um hann. Það var því lítilvæg fórn til að líkjast þessum einstæða snillingi, að augabrúnirnar þurfti að raka af henni áður en málaðar voru á hana eftirlíkingar í stíl Boy Ge- orges! Önnur stúlka óskaði eindregið eftir þvi að gerast eftirmynd Toyah. „Toyah er stórkostleg, hún er svo dramatísk", sagði hún. Sjálf segir Toyah það vera aðalatriðið að vera alltafá undan öðrum á tískusviðinu. Það segist hún sjálf sjá vandlega um, enda vilji hún umfram allt ekki líta út eins og neinn annar. Það er því ekki víst, að hún sé mjög hrifin af þessu uppátæki aðdáanda síns, sem vill ekki aðeins líkjast henni í útliti, heldur að öllu öðru leyti líka! Þriðja stúlkan vildi líkjast Kim Wilde og það þótti cinna þyngsta þrautin. Kim segist nefnilega vilja vera hún sjálf og ekki kæra sig um áberandi föt eða snyrt- ingu. Svo ótrúlega vildi þó til, að einna auðveldast reyndist að líkja eftir Kim. Reyndar kom í Ijós, að þær eiga margt sameigin- legt, Kim Wilde og unga stúlkan. Þær eru báðar upprunnar af sömu slóðum og stúlkan hyggst ganga sömu skólabraut og Kim, enda hefur hún líka hug á að leggja tónlist fyrir sig, ekki þó sem söngvari, heldur hyggst hún vinna í stúdíói. viðtal dagsins ■ „Það voru nú ekki margir trúaðir á þetta fyrirtæki í upphafi, ég hef fengið það framan í mig að ég ætti skilið að fá bjartsýnisverðlaun Suðurnesja fyrir þetta til- tæki“, sagði Þórður Stefáns- son eigandi gistihússins við Bláa lónið þegar blaðamaður ræddi við hann á dögur. m. Bláa lónið svokallaða er eins og flestir vita stöðuvatn, heitur sjór sem kemur upp á yfirborðið við aflstöðina í Svartsengi. Þar hjá reisti Þórður Stefánsson veit- ingamaður gistihús, sem tók til starfa síðast liðið haust. Um- hverfið er ólíkt því sem gerist um önnur gistihús eða hótel á landinu, og sennilega í heimin- um. Annars vegar svart hraunið og hins vegar aflstöðin, spúandi voldugum gufustrókum til himins og lónið, þar sem menn geta baðað sig allan ársins hring og valið sér þann hita sem þeir æskja með því að velja sér stað í lóninu. „Nema þegar norðanátt er eins og núna," segir Þórður, „en það er mjög sjaldgæf átt hér". Hvernig hefur aðsóknin verið? „Hún var í lágmarki fyrst, en síðan hafa menn uppgötvað möguleika staðarins og aðsóknin ■ Þóröur Stefánsson. Timamynd Árni Sæberg. A HEIMIUSBRAGINN” AHERSLU „LEGG — rætt vid Þórð Stefánssonr sem rekur gistihús vid Bláa lónid

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.