Tíminn - 03.03.1984, Page 8
LAUGARDAGUR 3. MARS 1984
8
Útgefandi: Framsóknarflokkurinn.
Framkvæmdastjóri: Gisli Sigurósson. Auglýsingastjórl: Steingrfmur Gislason.
Skrifstofustjóri: Ragnar Snorri Magnússon. Afgreiðslustjóri: Sigurður Brynjólfsson.
Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson, Elfas Snæland Jónsson. Ritstjórnarfulltrúi: Oddur V.
Ólafsson. Fréttastjóri: Kristinn Hallgrímsson.
Umsjónarmaður Helgar-Tfmans: Atll Magnússon. Blaðamenn: Agnes Bragadóttir,
Bjarghildur Stefánsdóttir, Baldur Kristjánsson, Friðrik Indriðason, Guðmundur Sv
Hermannsson, Heiður Helgadóttir, Jón Guðnl Kristjánsson,
Jón Ólafsson, Kristfn Leifsdóttir, Samúel Örn Erlingsson (fþróttir), Skafti Jónsson.
Útiitstelknun: Gunnar Trausti Guðbjörnssson.
Ljósmyndlr: Guðjón Elnarsson, Guðjón Róbert Ágústsson, Árni Sæberg. Myndasafn:
Eygló Stefánsdóttlr.
Prófarklr: Kristin Þorbjarnardóttir, Flosi Kristjánsson, Guðný Jónsdóttir
Ritstjórn skrifstofur og auglýsingar: Sfðumúla 15, Reykjavfk. Slmi: 86300. Auglýsingasfml
18300. Kvöldsfmar: 86387 og 86306.
Verð f lausasölu 20.00, en 22.00 um helgar. Áskrift á mánuði kr. 250.00.
Setning og umbrot: Tæknideild Tfmans. Prentun: Blaðaprent hf.
Alþýðufylkingin
■ Eins og glöggt hefur komið í ljós, hefur verið mikill
klofningur í Alþýðubandalaginu síðustu misseri. Annars
vegar hafa verið ýmsir helztu verkalýðsleiðtogar flokksins
og eldri forustumenn, eins og Lúðvík Jósefsson. Hins
vegar hefur verið hópur þeirra, sem telja sig til mennta-
manna, og hefur dregið nafn af því.
Menntamannahópurinn hefur verið mun róttækari en
fyrrnefndi hópurinn og í raun ekki langt milli hans og
Fylkingarinnar, sem hefur verið eins konar sértrúarsöfn-
uður kommúnista. Leiðtogar menntamannahópsins hafa
verið þeir Ólafur Ragnar Grímsson, Hjörleifur Gutt-
ormsson og Svavar Gestsson.
Eftir stjórnarskiptin á síðastliðnu vori, töldu forustu-
menn menntamannahópsins, að nauðsynlegt væri að
reyna að stækka Alþýðubandalagið á þann veg, að ýmsir
sértrúarhópar eins og Fylkingin gætu starfað innan þess,
án þess að þurfa að leggja starfsemi sína niður. Fordæmið
hafði Ólafur Ragnarfrá Bretlandi, þar semTrotskysinnum
hefur verið heimilt að starfa í Verkamannaflokknum.
í framhaldi af þessari niðurstöðu hófust þeir Ólafur
Ragnar og Svavar handa um að breyta lögum Alþýðu-
bandalagsins á þann veg, að auðvelt yrði fyrir Fylkinguna
og önnur slík félög að starfa innan Alþýðubandalagsins.
Slík lagabreyting var samþykkt á landsfundi Alþýðu
bandalagsins á síðastliðnu hausti, þótt Lúðvík Jósefsson
og fleiri reyndari menn þess vöruðu við henni.
Fylkingin lét ekki lengi bíða að ganga í Alþýðubanda-
lagið eftir að þessi lagabreyting kom til framkvæmda.
Um líkt leyti og Fylkingin gekk í Alþýðubandalagið
hófust miklar deilur milli menntamannahópsins og hinna
hófsamari manna flokksins um afstöðuna til væntanlegra
kjarasamninga. Ásmundur Stefánsson og margir aðrir
verkalýðsleiðtogar lögðu áherzlu á að ná eins miklu og
unnt væri, miðað við erfitt efnahagsástand og hættu á
atvinnuleysi. Ólafur Ragnar Grímsson ogSvavarGestsson
vildu hins vegar láta stjórnast af hagsmunum
stjórnarandstöðunnar og nota kjarasamningamálið til að
koma í veg fyrir, að ríkisstjórnin næði tökum á verðbólg-
unni.
Þessi ágreiningur hefur að sinni leitt til mikils klofnings
í Alþýðubandalaginu. Meirihluti verkalýðsleiðtoganna
undir forustu Ásmundar Stefánssonar styður hina nýgerðu
kjarasamninga. Ólafur Ragnar Grímsson og Svavar
Gestsson hamast gegn þeim og beita Þjóðviljanum í áróðri
sínum. í Dagsbrún tókst þeim að koma fram vilja sínum,
þegar Fylkingarmaðurinn Pétur Tyrfingsson náði forust-
unni af Guðmundi J. Guðmundssyni.
Allar horfur eru á, að ýmsar breytingar eigi eftir að
verða á stefnu og starfi Alþýðubandalagsins, ef mennta-
mannahópnum tekst með aðstoð Fylkingarinnar að ná
fullum yfirráðum. Vafasamt er þá, að þingmönnum eins
og Garðari Sigurðssyni, Guðmundi J. Guðmundssyni,
Helga Seljan og Skúla Alexanderssyni takist að halda
sætum sínum.
Þá er ekki ósennilegt, að nafnbreyting geti verið í
vændum.
í því sambandi er vert að benda á, að þegar Héðinn
Valdimarsson gekk til samvinnu við Kommúnistaflokkinn
var nafninu breytt. Þá kom til sögu nafnið Sameiningar-
flokkur alþýðu - Sósíalistaflokkurinn.
Enn var nafninu breytt, þegar Hannibal Valdimarsson
og fylgismenn hans sameinuðust Sósíalistaflokknum. Þá
varð til nafnið Alþýðubandalagið.
í framhaldi af þessu kæmi ekki á óvart nú, þótt heiti
Alþýðubandalagsins yrði breytt og því gefið nafnið
Alþýðufylkingin.
Samið í óþökk
Alþýðubanda-
lagsins
Forysta Alþýðubandalags-
ins hefur reynt eftir mætti að
standa í vegi fyrir að kjara-
samningar megi takast.
Reynt er eftir megni að koma
í veg fyrir að samningarnir
séu samþykktir hjá verka-
lýðsfélögunum, en það hcfur
ekki tekist nema í tiltölulega
fáum tilvikum. í hvert sinn
sem félagsfundur fellir samn-
ingana slær Þjóðviljinn því
upp sem stórsigri. En minna
er látið þegar samningarnir
eru samþykktir, sem oftarer.
Alþýðubandalagið er að
missa tökin á verkalýðshreyf-
ingunni og er meira að segja
höfuðvígið fallið. Samning-
arnir voru samþykktir á
Norðfirði með miklum meiri-
hluta atkvæða.
Hamagangur Alþýðu-
bandalagsins í þessum mál-
um er augljós. Tilgangurinn
er að fella ríkisstjórnina og
koma í veg fyrir að efnahags-
stefna hennar nái fram að
ganga, því „verkalýðsflokk-
urinn“ nærist á verðbólgu og
óánægju. Stöðugleiki í efna-
hagslífi og atvinnuöryggi
grefur undan þeirri marxísku
hugmyndafræði sem flokkur-
inn boðar. Því verður að
magna upp ófrið í þjóðfélag-
inu.
Haukur Helgason fjallar
um samningana og hlut Al-
þýðubandalagsins í þeim
málum í DV og segir m.a.:
„Þeir alþýðusambands-
menn, sem mörkuðu stefn-
una í samningamálum fyrir
rúmri viku, unnu erfitt verk.
Einkum mæddi á alþýðu-
bandalagsmönnum. Flokks-
forysta Alþýðubandalagsins
reyndi að banna þeim að
semja. Hinir verkalýðssinn-
uðu settu þó raunverulegar
kjarabætur ofar flokksholl-
ustu. Þetta hefursíðarkomið
fram við atkvæðagreiðslu í
einstökum félögum. Þarhafa
margir alþýðubandalags-
menn óhlýðnazt dagskipan
Svavars Gestssonar, sem
heimtar nýja samninga.
Samningarnir hafa verið sam-
þykktir í Iðju, Verzlunar-
mannafélagi Reykjavíkur,
Verkakvennafélaginu Fram-
sókn og ýmsum smærri fé-
lögum. Samningarnir voru
hins vegar felldir í Dagsbrún,
þar sem Guðmundur J.
Guðmundsson gerðist
bandamaður Svavars, sem
þó er harla óvenjulegt í seinni
tíð.“
Bestu kjara-
bætur sem nú
koma til greina
„Verkalýðsmönnum er
Ijóst, að þessi samningar færa
verkafólki þær beztu kjara-
bætur, sem nú koma til greina
án þess að efnahag þjóðar-
innar sé stefnt í voða. Út úr
því varð mikill brestur í
Alþýðubandalaginu. í þeim
flokki munu þær deilur
standa lengi enn.
Margar launþegafjöl-
skyldur eiga í erfiðleikum
eftir kjaraskerðinguna í
fyrra. Allmargir hafa greitt
atkvæði gegn samningunum,
sumpart æstir upp af flokks-
forystu Alþýðubandalagsins
og Þjóðviljanum. Fólk hefur
greitt atkvæði gegn samning-
unum, af því að flokks-
maskína Alþýðubandalags-
ins hefur ginnt það til að trúa
þvt', að það geti náð ein-
hverju meiru. í bandalagi við
forystu Alþýðubandalagsins
hafa svo verið ýmsir „trotsky-
istar" og „maoistar", sem
halda, að eitthvað mætti fá út
úr ólgu.
Þessu hræðslubandalagi
hlýtur að mistakast, þegar á
móti standa heiðarlegir
verkalýðssinnar. Þess vegna
tókst þvt'hvorki aðeyðileggja
samninga ASÍ né BSRB.“
Síðar segir:
„Launþegar eiga ekki
samleið með forystu Alþýðu-
bandalagsins í tilraunum
hennar til að gera sér póli-
tískan mat úr erfiðri stöðu
þjóðarbúsins. Skynsamleg
viðbrögð margra alþýðu-
bandalagsmanna í verkalýðs-
hreyfingunni sjálfri ættu að
sýna launþegum, að þeir geta
eftir atvikum unað sænúlega
við það, sem fram hefur
gengið.
Það væri mikið óráð að
fara að stofna til vinnu-
deilna.“
Það á eftir að koma í ljós
hve djúpstæður ágreiningur-
inn um samningana er innan
Alþýðubandalagsins. Ljóst
er að margir verkalýðs-
leiðtógar innan flokksins hafa
óhlýðnast formanninum og
þeirri hirð sem næst honum
stendur og er hætt við að þá
mætist stálin stinn þegar upp-
gjör fer fram.
Aðstoðarmaður
Alberts?
Eins og bent er á hér að
framan er það óvenjulegt í
seinni tíð að Guðmundur J.
gerist bandamaður Svavars,
enda voru samningarnir í
Dagsbrún ekki felldir til að
þóknast honum sérstaklega.
En eftir að Fylkingin náði
frumkvæði á Dagsbrúnar-
fundinum varð Guðmundur
J. að sýna að enn væri hann
eldhress baráttumaður
verkalýðsins og að í forystu-
liði Dagsbrúnar væru menn
sem töggur er í. Hann samdi
því við Albert sem ekki þótti
mikið að gera smávinar-
greiða og sá Þröstur Ólafsson
um framkvæmdina.
HP segir svo frá því ráða-
bruggi: „Margir hafa velt því
fyrir sér hve hratt samkomu-
lagið milli Alberts Guð-
mundssonar og Guðmundar
J. Guðmundssonarformanns
Dagsbrúnar gekk fyrir sig.
Menn nefna þar einkum
gamla vináttu þeirra Alberts
og Guðmundar, en megin-
ástæðan er þó önnur. Þröstur
Ólafsson framkvæmdastjóri
Dagsbrúnar, var aðstoðar-
maður fjármálaráðherra í tíð
vinstri stjórnar og er því
öllum hnútum ráðuneytisins
kunnugur. Það var Þröstur
sem undirbjósamkomulagið,
benti Guðmundi J. á allar
ieiðir innan embættiskerfis-
ins og kom málinu á réttan og
skjótan hátt fyrir ráðherra
eins og vanur aðstoðarmað-
ur. Hraðinn var mikilvægur
fyrir þá Dagsbrúnarmenn,
því undirritunin mátti ekki
koma fyrir augu samráðherra
Alberts eða forystu Sjálf-
stæðisflokksins sem að öllum
líkindum myndu gera allt
sem í þeirra valdi stæði til að
stoðva málið. Þetta tókst, og
eftir sitja ráðherrar og þing-
menn Sjálfstæðisflokksins
með sárt ennið. Guðmundur
J. er hinsvegar orðinn hetja í
verkalýðsfélögum og Al-
þýðubandalagi og Þröstur
hefur mjög styrkt stöðu sína
bak við tjöldin sem verðugur
arftaki Guðmundar J. og
væntanlegur þingmaður..."
fréttir
Fjölgar loðdýra-
bændum í Eyjafirði?
— sameiginlegri fóðurframleiðslu
komið á fót
■ „Standsetning á fóðureldhúsi fyrir
hökkun á hcinum og fleira góðgæti
handa loðdýrum er í burðarliðunum. Að
þessu fyrirtæki standa nær 20 bændur í
Eyjaflrði og svæðinu austan Fnjóska-
dals“ sagði Hjalti Haraldsson,einn loð-
dýrabænda í Eyjaflrði, í samtali við
Tímann. Með stofnun þessa fyrirtækis
verður mun auðveldar fyririoðdýra-
bændur í Eyjaflrði að ná í fóður og má
reikna með að þeir sem þegar hafa leyfi
til loðdýraræktar, en hafa enn ekki sett
upp bú.fari senn af stað.
Hjalti sagði ennfremur að hingað
til hefðu verið fóðurframleiðslur að
Böggvinsstöðum við Dalvík og í Greni-
vík,en þeir sem að þeim standa ganga
inn í væntanlegt samstarf. Stofninn að
tækjum fóðureldhússins eru vélar frá
Böggvinsstöðum og húsnæðið sem notað
verður er gömul síldarverksmiðja á
Dalvík sem KEA leigir fyrirtækinu.
Ekki liggur enn Ijóst fyrir hver tækja-
kostnaður verður en hann verður mikill
að sögn Hjalta. Væntanlegirstofnfélagar
eru nær 20 talsins, eða 15 eða 16 bú sem
nú eru starfandi og svo leyfishafar sem
væntanlega fara af stað þegar auðveldara
verður að fá fóður.
Áætlað er að þarna verði framleidd
2600 tonn af loðdýrafóðri á ári og að
framleiðsla hefjist uppúr miðjum apríl.
Að þessum málum hefur verið unnið af
fimm manna undirbúningsnefnd undir
formennsku Úlfars Arasonar á Klöpp,
Svalbarðsströnd. Formlega verður geng-
ið frá stofnuninni innan fárra daga.
Hjalti kvað annars gott hljóð í
loðdýrabændum um þessar mundirenda
bjartara yfir en oft áður vegna hækkaðs
verðs á skinnum.
Þess má að lokum geta að 70-80% af
fæðu loðdýranna eru þorskbein en auk
þess selur, sláturúrgangur og fleira.
- b.