Tíminn - 22.03.1984, Blaðsíða 16

Tíminn - 22.03.1984, Blaðsíða 16
Opið virka daga 9-19. Laugardaga 10-16 H HEDD Skemmuveg' 20 Kopavogi Simar (91)7 75 51 & 7 80 30 Varahlutir Mikiö úrval Sendum um land allt Ábyrgð á öllu Kaupum nýlega bíla til niðurrifs SAMVINNU TRYGGINGAR 8c ANDVAKA ARMULA3 SIMI 81411 abriel W HÖGGDEYFAR Qjvarahlutir S?m7S.' Hamarshöfða 1 Ritstjórn 86300 - Auglýsingar 18300 - Afgreiðsla og áskrift 86300 - Kvöldsimar 86387 og 86306 Tillögur bankamálanefndar: BANKAEFT1RUTHI FÆRT IINDAN SEÐÍABANKANUM — fasteigriir takmarkist við visst hlutfall af eigin fé bankanna Fimmtudagur 22. mars 1984 ■ Meðal forystumanna beggja stjórnarflokkanna er mikill vilji til að fækka ríkisviðskipta- bönkum með því að sameina tvo Nýr vísitölugrundvöllur genginn í gildi: NEYSLUKÖNNUN GERÐMEÐAL LÁGTEKIUFÓLKS ■ Stjórnarfrumvarp um nýjan vísitölugrundvöll varð að lögum í gær er það var samþykkt í neðri deild með 27 samhljóða at- kvæðum. Páll Pétursson fram- sögumaður fjárhags- og við- skiptanefndar neðri deildar sagði að nefndin legði til að frumvarp- ið yrði samþykkt, en nokkrir nefndarmanna skrifuðu undir með fyrirvara. Áður en gengið var til atkvæða gaf Matthías Á. Mathiesen við- skiptaráðherra eftirfarandi yfir- lýsingu: Sem ráðherra hagstofu- mála mun ég gera ráðstafanir til að næstu neyslukönnun, sem lokið verði innan árs frá því hún er ákveðin, verði hagað þannig, að upplýsingar fáist um neyslu- samsetningu og tekjur þess fjórð- ungs fjölskyldna. ii‘m lægstar tekjur hafa. Jafnframtmegi innan hennar greina þann mun sem er á neyslugrunninum eftir lands- svæðum. Tryggt verður í þessu sambandi, að niðurstöður um þetta verði eins traustar og marktækar og heildarniðurstöður fyrir allar fjöiskyldur sem könnunin tekur til. eða fleiri. Óvíst er hvort tiliögur þar að lútandi sjá dagsins Ijós á því þingi sem nú situr eða hvort þær koma fram næsta haust, en tillögurnar eru þegar að mestu mótaðar, eftir því sem Tíminn kemst næst. Bankamálanefndin, sem Matthías Á. Mathiesen, við- skiptaráðherra skipaði fljótlega eftir að núverandi ríkisstjórn settist á valdastóla, mun á næst- unni skila ráðherranum drögum að frumvarpi að heildarlöggjöf um bankamál.Samkvæmt heim- ildum Tímans felur frumvarpið í sér verulegar breytingar á nú- gildandi löggjöf. I því mun til dæmis vera að finna hugmyndir sem stefna í þá átt að stemma stigu við útþenslu bankakerfisins. Ein leiðin til þess mun vera sú að gera viðskipta- bönkunum að halda verðmæti fasteigna sinna innan ákveðins hlutfalls af eigin fé bankanna, 50 til 75% til dæmis. Eins og málum er háttað núna eru fasteignir einstakra banka metnar á meira en 100% af eigin fé þeirra og verða þeim bönkum, ef hug- t myndin nær fram að ganga, 'nauðugir tveir kostir; að auka eigið fé, til dæmis með auknu Nýtt ferskfiskmat sett í gang fyrir misskilning: ??Þetta hefur nú verid leidrétt” segir sjávarútvegsrádherra ■ „Það var af ráöuneytisins hálfu aldrei ætlunin að taka upp nýtt matskerfi fyrr en eftir til- raunamat, sem sýndi fram á þann mismun sem væri á nýju reglunum og þeim gömiu. Við gáfum út bréf um það í febrúar eftir að fiskverð var ákveðið en síðan virðist eitthvað hafa gerst sem setti nýju aðferðina í gang á einstaka stöðum. Þetta hefur nú verið leiðrétt", sagði Halldór Ásgrímsson, sjávarútvegsráð- herra, í samtali við Tímann í gær. Eins og komið héfur fram í fréttum hafa sjómenn víða á landinu lýst sig óánægða með nýjar matsreglur, sem nýlega voru teknar í notkun á einstaka stöðum, til dæmis í Vestmanna- eyjum. Segjast sjómennirnir hafa fengið allt að 40 til 50% lægra verð fyrir fiskinn en sam- kvæmt þeim reglum sem í gildi eru samkvæmt þeirra skilningi. Halldór sagði að verið væri að undirbúa að taka upp nýjar mats- reglur og þangað til það yrði gert myndi umrætt tilraunamat fara fram samhliða hinu. Hann sagði ennfremur að mat yfirleitt væri betra það sem af er þessari vertíð en í fyrra til dæmis og það benti til að betur væri farið með fisk nú en þá. - Sjó. hlutafé, eða að selja hluta fast- eigna sinna. Þá mun nefndin leggja til að bankaeftirlitið verði fært undan yfirstjórn Seðlabankans, en búist er við að sú hugmynd mæti . verulegri andstöðu stjórnenda Seðlabankans. Eins og áður hefur komið fram í blaðinu, mun nefndin einnig leggja til, að bönkunum verði gefnar frjálsar hendur um vaxtaákvarðanir, sem talið er að leiði til verulega aukinnar sam- keppni þeirra í milli. Þó er gert ráð fyrir að hægt verði farið í sakimar í þeim efnum. -Sjó. ■ Starfsmenn í útsölum Áfengis- og tóbaksverslunum ríkisins höfðu nóg að gera við verðmerkingar í gær, en verslanimar vom lokaðar og tekur nýtt verð gildi frá og með deginum í dag. Tímamynd Róbert Tóbak hækkar um 20% og sterk vín allt að 25%! ■ „Þetta er svona breytiiegt af því að við erum að samræma verðið innkaupsverði, sem er mjög misjafnt eftir tegundum sem við tii skamms tíma seldum á sama verði. Einnig tökum við tíllit til styrkleikans þannig að sterkustu tegundirnar hækka mest“, sagði Ragnar Jónsson, skrifstofustjóri hjá Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins, í samtali við Tímann. Allar útsölur ÁTVR voru lok- aðar í gær vegna verðhækkana, sem að meðaltali eru nálægt 15 af hundraði á sterkum vínum og 20% á tóbaki. Eftir hækkun kostar vindlingapakki 53.20 en kostaði áður 44.10. Algengustu tegundir af Whisky kosta eftir hækkunina tæpar 700 krónur en kostuðu áður rétt um 600. Verð á hinum ýmsu Vodkategundum hækkar mjög misjafnlega, allt frá 3% upp í 25%, en það kemur til af því að styrkur þeirra er misjafn. TildæmisSmirnoff, sem er 40%, aðeins um 3%, en Vibarowa, semer45% um 25%. Minni breytingar voru gerðar á verði létta vína, flest standa þau í stað, einstaka hækka nokk- uð en önnur lækka í verði. - Sjó . Skákmótið í Neskaupstað: HELGIVANN LOMBARDY ■ Helgi Ólafsson mátaði Lombardy í 50. leik í 3. umferð alþjóðamótsins í Neskaupstað í gær. Þar með er Helgi kominn í efsta sæti á mótinu með 2,5 vinninga. Önnur úrslit í umferð- inni urðu þau að Róbert Harðar- son vann Benóný Benediktsson, McCambridge vann Dan Hanson, Jóhann Hjartarson og Schússler og Knesevic og Guð- mundur gerðu jafntefli. Skák Margeirs Péturssonar og Wed- bergs fór í bið. Að sögn Loga Kristjánssonar í Neskaupstað náði Helgi fljót- lega undirtökunum í skák hans og Lombardy. Lombardy notaði mikinn tíma í byrjuninni en náði aldrei að jafna taflið. Margeir hefur peð yfir í skák hans við Wedberg en ekki er talið að það ' dugi til vinnings. -GSH dropar Nýtísku fóstur- foreldri ■ Fyrirtækið Daito í Japan hefur sett á markað tölvustýrða vöggu, að því er segir í Búnað- arblaðinu Frey. Vaggan sem ber heitið Do-re-mi fer að vagga jafnskjótt og barnið sem liggur í henni fer að gráta. Jafnframt fer þá í gang segul- band með ævintýri eða hugg- unarorðum sem móðirin hefur talað inn á. Þegar barnið hættir að gráta hættir vaggan að rugga eftir 30 sekúndur. Tölvan tekur ekki mark á röddum fullorð- inna sem nærstaddir eru, held- ur einungis rödd barnsins í vöggunni. Verð þessa nýtísku fósturforeldris mun vera ná- lægt 8000 kr., en Dropar hafa hins vegar ekki hugmynd um hvar hægt er að kaupa vögg- Þetta hefur allt breyst ■ Þessi er fenginn að Iáni úr nýjasta tölublaði Hlyns: Svo var það bátsmaðurinn á ónefndu Sambandsskipi sem tók á móti nýjum messagutta. „Nú,“ sagði hann, „ég á von á því að það sé gamla sagan með þig. Sá heimskasti úr fjöl- skyldunni sendur til sjós“? Nei, nei“, sagði pilturinn, „þetta hefur breyst frá því að þú varst ungur!“. „Segja frá afmælinu mínu.... ■ Fréttaritarar dagblaðanna gera lítið af því að segja lesend- um frá eigin högum, en þeim mun meira af annarra. Hressi- leg undantekning á þessu varð í Morgunblaðinu í gær, þegar líta bar frétt frá Áma Helga- syni, fréttaritara blaðsins í Stykkishólmi. Hún byrjaði á þennan veg: „Um leið og ég þakka Morgunblaðinu og starfsfólki þess sérstök kynni og samstarf í meira en 40 ár þykir mér hlýða semlréttaritari að segja nokkuð frá afmæli mínu í gær, sem var svo stór- kostlegt að það verður mikill kapítuli í minni ævi.“ Krummi . . . ..átti nú líka afmæli í gær, þó ekki sé það í frásögur fær- andi. wsbsssbbmI

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.