Tíminn - 22.03.1984, Blaðsíða 6

Tíminn - 22.03.1984, Blaðsíða 6
6 FIMMTUDAGUR 22. MARS 1984 Útgefandi: Framsóknarflokkurinn. Framkvæmdastjóri: Gísli Sigurðsson. Auglýsingastjóri: Steingrimur Gíslason. Skrifstofustjóri: Ragnar Snorri Magnússon. Afgreiðslustjóri: Sigurður Brynjólfsson. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson, Elías Snæland Jónsson. Ritstjórnarfulltrúi: Oddur V. Ólafsson. Fréttastjóri: Kristinn Hallgrimsson. Umsjónarmaður Helgar-Timans: Atli Magnússon. Blaðamenn: Agnes Bragadóttir, Bjarghildur Stefánsdóttir, Baldur Kristjánsson, Friðrik Indriðason, Guðmundur Sv . Hermannsson, Heiður Helgadóttir, Jón Guðni Kristjánsson, Jón Ólafsson, Kristín Leifsdóttir, Samúel Örn Erlingsson (íþróttir), Skafti Jónsson. Útlitsteiknun: Gunnar Trausti Guðbjörnssson. Ljósmyndir: Guðjón Einarsson, Guðjón Róbert Ágústsson, Árni Sæberg. Myndasafn: Eygló Stefánsdóttir. Prófarkir: Kristin Þorbjarnardóttir, Flosi Kristjánsson, Guðný Jónsdóttir Ritstjórn skrifstofur og auglýsingar: Siðumúla 15, Reykjavik. Simi: 86300. Auglýsingasimi 18300. Kvöldsímar: 86387 og 86306. Verð í lausasölu 20.00, en 22.00 um helgar. Áskrlft á mánuði kr. 250.00. Setning og umbrot: Tæknideild Tímans. Prentun: Blaðaprent hf. Endurskoðuð stefna á gömlum grunni ■ Sú stefna í landbúnaðarmálum, sem Framsóknarflokkur- inn mótaði fyrir 60 árum, reyndist landbúnaðinum mikil lyftistöng á næstu áratugum. Kjarni hennar var að styrkja bændur til að taka aukna þekkingu og tækni í þjónustu sína, án þess að það leiddi til of mikils rekstrarkostnaðar við búreksturinn. Þetta var m.a. gert með því að tryggja landbúnaðinum hagstæð lánskjör. Landbúnaðurinn hefur þá sérstöðu að skila yfirleitt ekki skyndiarði en jöfnum og öruggum á lengri tíma. Þess vegna er það viðurkennd regla um allan heim, að landbúnaðurinn eigi að njóta iengri lána og lægri vaxta en flestar atvinnugrein- ar aðrar. Á stjórnarárum Sjálfstæðisflokksins og Alþýðuflokksins á árunum 1960-1971 var landbúnaðarstefnunni gerbreytt. Lánskjör voru gerð óhagstæðari og ýtti þetta og annað mjög undir stóraukinn rekstrarkostnað búanna, sem leiddi til hærra útsöluverðs á landbúnaðarvörum. Til þess að vega gegn þessu voru teknar upp útflutningsbætur og niður- greiðslur. Utflutningsbætur höfðu ekki verið að ráði áður. Það var því orðið ljóst, þegar dró að lokum viðreisnartíma bilsins, að þörf var orðin fyrir breytta stefnu í landbúnað- armálum. í grein, sem birtist í Tímanum 24. ágúst 1969, voru dregin saman nokkur meginatriði hinnar endurskoðuðu stefnu, sem þyrftu að koma til sögunnar. Þar sagði á þessa leið: „1. Dregið verði úr rekstrarkostnaði búanna með lengingu stofnlána og lækkun vaxta. Rekstrarlán verði aukin. Greiddir verði niður ýmsir kostnaðarliðir, t.d. áburður. 2. Löggjöf um ýms framlög til landbúnaðarins verði endurskoðuð og þetta fé gert hreyfanlegra samkvæmt tillögum bændasamtakanna þannig að það renni þangað hverju sinni, sem þörfin er mest. 3. Samtök bænda hafi forustu um að skipuleggjaframleiðsl- una þannig, að markaðsmöguleikar nýtist sem bezt á hverjum tíma, reynt verði að komast hjá langvarandi offramleiðslu í einstökum greinum og kappsamlega verði unnið að markaðs- leit. 4. Efld verði hvers konar rannsókna- og tilraunastarfsemi í þágu landbúnaðarins, búnaðarfræðsla aukin á öllum stigum og auknar kröfur gerðar til þekkingar bænda í samræmi við tækniþróun nútímans. 5. Hafizt verði skipulega handa um félagsræktun og ýmsan félagsbúskap, þar sem því verður við komið, jafnhliða því, sem treyst sé og efld sú samvinna bænda, sem þegar er fyrir hendi.“ Þótt Framsóknarflokkurinn ætti aðild að ríkisstjórnum á áttunda áratugnum, var ekki pólitísk aðstaða til að koma þessum sjónarmiðum fram. í meginatriðum hefur verið fylgt þeirri landbúnaðarstefnu, sem mótaðist á „viðreisnar árun- um“ 1959-1971. Afleiðingin hefur orðið vaxandi niðurgreiðslur og útflutn- ingsbætur. Nokkur breyting varð þó á þessu, þegar Steingrímur Hermannsson var landbúnaðarráðhera á árunum 1978-1979. Þá var hafizt handa um að draga úr offramleiðslu og verður ekki annað sagt en að bændastéttin hafi brugðizt vel við og þegar náðst verulegur árangur. Jafnhliða var hafizt handa um nýjar atvinnugreinar í sveitum og þannig unnið gegn fólksflótta. Stefnan í atvinnumálum þarf jafnan að vera í endurskoðun. Því valda breyttir tímar og breyttar aðstæður. Þetta gildir ekki síður um landbúnaðinn en aðrar atvinnugreinar. Landbúnaðarstefnan þarfnast nú endurskoðunar, en hægt er að byggja þá endurskoðun að verulegu leyti á þeim grunni, sem lagður var fyrir sextíu árum. Þ.Þ. skrifað og skrafað Loforð og efndir ■ Eitt af höfuðmálum ríkis- stjórnarinnar er að koma skaplegu lagi á húsnæðismál- in og var markið sett hátt í því efni. Mjög hefur verið á því klifað af stjórnarand- stæðingum að ekki hafi verið staðið við gefin loforð og margvíslegar umræður hafa spunnist hvernig gangi að efna loforðin og í sambandi við afgreiðslu fjárlaga og síð- ar lánsfjárlaga hafa stjórnar- andstæðingar dregið í efa að eins miklu fjármagni verði veitt til húsnæðismálakerfis- ins og til hafi staðið. Félagsmálaráðherra hefur aftur og aftur verið krafinn sagna um hvernig hann hafi staðið við heit sín og hvort hann muni gera það. S.l. þriðjudag svaraði Alexander Stefánsson fyrirspurn um húsnæðismálin og er eftirfar- andi byggt á svörum hans: • Húsnæðismálin fengu sérstaka meðferð í byrjun valdaferils ríkisstjórnarinnar á s.i. ári og fljótlega var farið að rétta hlut húsbyggjenda sem orðið höfðu illa úti í verðbólgunni. • Fyrstu aðgerðir voru bráðabirgðalög urrt frestun hluta greiðslu afborgana vaxta og verðbóta, sem þýddi í raun lengingu lána. Rúm- lega 3000 aðilar notfærðu sér þetta á s.l. ári. • Ríkisstjórnin gerði sam- komulag við viðskiptabanka og sparisjóði um sérstök skuldbreytingalán til hús- byggjenda, þar sem skamm- tímalánum var breytt í allt að 8 ára lán. Pessi skuldbreyting nam 150-160 millj. kr. • Ríkisstjórnin ákvað að veita sérstök viðbótarlán til að létta vanda húsbyggjenda og húskaupenda á árunum 1981-82-83 með því að hækka afgreidd lán um 50%. 4800 lántakendur hafa fengið út- borguð þessi viðbótarlán sem greidd voru í desember og janúar s.l., samtals að fjár- hæð 290 millj. kr. • Ríkisstjórnin ákvað að frá og með 1. jan. s.l. skyldu öll lán frá Húsnæðismála- stofnun ríkisins hækka um 50%. Jafnframt yrðu nýbygg- ingalán til þeirra sem byggja eða kaupa í fyrsta sinn greidd í tveim hlutum, fyrri hluti mánuði eftir fokheldisstig, seinni hluti sex mánuðum frá útborgun fyrri hluta. • Ríkisstjórnin lagði fram frumvarp að nýrri húsnæðis- löggjöf, sem nú er til með- ferðar á Alþingi og vonast er til að verði að lögum fyrir þinglok. Par eru mjög þýð- ingarmikil nýmæli, meðal annars stefnubreyting í fjár- öflun til húsnæðismála, sem kemur til með að draga úr óvissu um fjármögnun kerfis- ins. Brotist úr sjálfheldunni í fjárlögum var samþykkt að öll lán hjá Byggingasjóði ríkisins hækkuðu um 50%, lánstími yrði lengdur og lánin afborgunarlaus fyrstu tvö árin. Þetta eykur fjárþörf Húsnæðismálastofnunar ríkisins verulega, en hér er um að ræða málaílokk, sem verið hefur í algerri sjálf- heldu, sem mikils er um vert að brjótast úr, sérstaklega fyrir ungt fólk sem er að hefja lífsstarfið. Með þessu er einnig að því stefnt, að jafna aðstoð ríkisins við þá sem byggja eigið húsnæði og þá sem fá svonefnt félagslegt húsnæði í verkamannabú- stöðum. í nýafgreiddum lánsfjár- lögum segir að fjárþörf íbúð- arlánasjóðanna sé mjög mikil á þessu ári vegna á- kvörðunar ríkisstjórnarinnar um hækkun lána til íbúða- byggjenda. Samkvæmt fjár- lagafrumvarpi er framlag ríkissjóðs 400 millj. kr. Láns- fjáröflun til sjóðsins er fyrir- huguð þannig að 690 millj. kr. verði aflað hjá lífeyris- sjóðum og 200 millj. kr. verði aflað með sérstakri útgáfu skuldabréfa. Að auki er gert ráð fyrir lánsfjáröflun eins og undanfarin ár, það er 45 millj. kr. af skyldusparnaðar- fé ungmenna og 115 millj. kr. lántöku hjá Atvinnuleysis- tryggingasjóði. Alls nemur því lántaka byggingarsjóð- anna 1.050 millj. kr. Ríkis- stjórnin stefnir að því að ná samningum um að banka- "kerfið fjármagni svonefnd framkvæmdalán húsbyggingakerfisins að fjár- hæð alls 115 millj. kr. án beinnar milligöngu húsnæðis- lánasjóðanna. Útlán íbúðarlánasjóðanna 1984 eru áætluð 1.572 millj. kr, sem skiptist þannig að Byggingarsjóður ríkisins lán- ar 1.166 millj. kr og Bygging- arsjóður verkamanna 406 millj. kr. Ljóst að meira f jármagn þarf til húsnæðismála Húsnæðismálastjórn mun að sjálfsögðu byggja sína út- lánaáætlun á samþykktum fjárlögum og lánsfjárlögum, en ljóst er að meira fjármagn þarf til húsnæðismála, ekki síst til Byggingasjóðs verkamanna. En með tilliti til efnahagsvandans í þjóð- félaginu var ekki hægt að ganga lengra á þessu ári, jafnhliða þeim stórtæku að- gerðum sem ríkisstjórnin framkvæmdi til að bæta stöðu húsbyggjenda, sem hvað verst urðu úti í óðaverðbólgu undanfarinna ára. Með samþykkt nýja hús- næðisfrumvarpsins skapast nýr grundvöllur, ný stefna, til að fjármagna húsnæðis- kerfið í samvinnu við banka og lífeyrissjóði. Jafnframt er unnið að undirbúningi nýrrar tveggja til þriggja ára áætlun- ar á byggingum félagslegra íbúða, það er verkamanna- bústaða og leiguíbúða. Hér kemur glöggt fram að mikið hefur verið gert til að létta undir með húsbyggjend- um og að staðið vexður við þau fyrirheit sem gefin hafa verið. En það tekur sinn tíma og mikið fjármagn að rétta við lánakerfi húsnæðismála eftir langvarandi sleifarlag á þessum sviðum undanfarin ár. fréttir • Sullir í fólki mun algengari en talið var: Kalkaðir sullir voru algengir í gömlu fólki ■ „Vissulega hafa sést kalkaðir sullir í fólki, aðallega gömlu fólki undanfarna tugi ára, en auðvitað miklu sjaldnar upp á síðkastið, og það er mjög óvenjulegt að sjá kalkaða sulli í ungu fólki, en um það höfum við engar tölur," sagði Sig- urður Ólason yfirlæknir röntgendeildar Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri í samtali við blaðið í gær, er undir hann var borin fregn í blaðinu íslendingi á Akureyri, þess efnis að sullur sé mun algengari en áður var talið og jafnframt segir í fréttinni að greinst hafi kalkaður sullur í rösklega fertugri konu á Akur- eyri í fyrra. „Vissulega getur fólk tekið sulli, sem kalkast og einangrast í líkamanum og drepist þar," sagði Sigurður, „hvort það gerist fer sjálfsagt eftirýmsu, m.a. hvaða líffæri sullurinn tekur sér bólfestu og hvar í viðkomandi líffæri. Ef maður les ritgerðir gömlu læknanna sem höfðu með þetta að gera í gamla daga að það voru ekki allir sullir sem ullu vand- ræðum, en hitt er annað mál að finnist kalkaður sullur í ungu fólki, þá er ómögulegt að útiloka að viðkomandi gangi með ókalkaða sulli líka. Það gefur bara merki um það að hann hafi smitast af sullaveiki. Það réttlætir ekki að sé ■ „Samningarnir voru samþykktir í félaginu, með tilliti til stöðu þjóðarbús- ins og í þeirri von að bjartari tíð kynni að skapast, ef hart væri að sér lagt, enn um stundarsakir", segir í samþykkt fé- lagsfundar Verslunarntanna félags Aust- urlands, en þar voru samningarnir sam- þykktir með 144 atkvæðum gegn 19. Nokkrir tóku ekki afstöðu. Þá kom fram á fundinum að félagsmenn voru almennt óánægðir með kjör sín en samþykktu samningana í von um betri tíð eins og fyrr segir. A fundi stjórnar Verslunar- verið að ræða um einstök tilfelli, en sýnir að það verður að koma þessum hunda- hreinsunarmálum í viðunandi horf." -JGK. mannafélagsins nýverið var rædd launa- könnun sem skrifstofa félagsins vann en í henni kemur fram að staða kvenna í félaginu er mjög slæm. Með örfáum undantekningum er þeim raðað í neðstu launaflokkana. Þá kom fram að lægstu launaflokkarn- ir sem eru mjögfátíðir á Stór-Reykjavík- ursvæðinu eru þeir langfjölmennustu á landsbyggðinni. Verslunarmannafélag Austurlands harmar þessa stöðu lands- byggðarinnar og skorar á Landssamband íslenskra Verslunarmanna að vinna að lagfæringum á þessu misræmi. -b Verslunarmannafélag Austurlands: Samningarnir samþykkt- ir með 144 á móti 19

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.