Tíminn - 24.03.1984, Page 10
LAUGARDAGUR 24. MARS 1984
LAUGARDAGUR 24. MARS 1984
I { 1 'l 'I '1 'l
ÍÞRÖTTIR
HELGARINNAR
■ Landsflokkaglíman er um helgina
Blak:
■ í dag lýkur íslandsmótinu í blaki, ef undan
cr skilinn einn leikur í 1. deild kvenna.scmgæti
reynst afdrifaríkur, ÍS-Breiðablik. En í dag er
leikið í öllum deildum. í fyrstu deild karla leika
Frant og Víkingur í íþróttahúsi Hagaskóla
klukkan 11.00, oger það úrslitaleikur um fall í
aðra deild. Klukkan 12.20 keppa Þrótturog ÍS
og er það eins konar forleikur þessara liða, þvf
þau leika til úrslita í bikarkeppninni innan
tíðar. Klukkan 13.40 keppa Breiðablik og KA
í 1. deild kvenna ogklukkan 15.00 Víkingur og
Völsungur í 1. deild kvenna. Þessir leikir eru
allir í íþróttahúsi Hagaskóla. í annarri deild
karla leika Samhygð og Þróttur frá Neskaup -
stað á Selfossi klukkan 14.30, og er það úrslita-
leikur Suðausturlandsriðils annarrar deildar,
tvö efstu liðin mætast.
Badminton
■ Um helgina er unglingameistaramót íslands
á Akranesi. Keppni hefst í dag árdegis, og
úrslitakeppnin hefst árdegis á morgun. Keppt
er í öllum greinum, ogöllum flokkum unglinga
frá 10-18 ára.
Glíma:
■ Landsflokkaglíman er í dag. Glímt veröur
frá klukkan I7.(H) ídag í íþróttahúsi Vogaskóla.
Alls taka 25 glímumenn þátt, og er það nokkur
aukning. Útlit er fyrir spennandi glímu.
Borðtennis:
■ íslandsmótið í borðtennis er í Laugardals-
höll um helgina. Keppnin hefst klukkan 14.00
í dag, og keppni veður haldið áfram klukkan
13.00 á morgun.
Handknattleikur:
■ Úrslitakeppni er í fullum gangi um helg-
ina. Úrslitakeppni í efri og neðri hluta I.
deildar hófst í gærkvöld og verður áfram haldið
í dag og á morgun. Sama gildir um efri hluta
annarrar deildar og þriðju deild.
Úrslitakeppni efri hluta 1. deildar er f
íþróttahúsi Seljaskóla. Þar leika í dag klukkan
14.(X) FH og Stjarnan, og klukkan 15.15 Valur
og Víkingur. Á morgun hefst keppni klukkan
20.00, þá leika Vfkingur og FH og Stjarnan og
Valur klukkan 21.15. Úrslitakeppni neðri hluta
I. deildar er á Akureyri, þar leika í dag klukkan
12.00 KR og Haukar, og klukkan 13.15 Þróttur
og KA. Á morgun klukkan 11.00 keppa
Haukar og Þróttur og klukkan 12.15 KA og
KR. Úrslitakcppni efri hluta annarrar deildar
er í Vestmannaeyjum. Þar keppa klukkan
14.00 í dag Fram og Breiðablik, og klukkan
15.15 ÞórogGrótta. Á morgun keppa klukkan
II. 00 Grótta og Fram, og klukkan 12.15
Breiðablik og Þór. í þriðju deild karla er nú
keppt á Varmá í Mosfellssveit. Þar verður keppt
í dag og á morgun. Leikjaröð í dag er fyrst
Þór-ÍA, og svo Ármann-Týr, og svo Ármann-
Þór. Tímasetning hefur ekki borist.
í 1. deild kvenna er iokaumferð um helgina.
Tveir leikir voru í gærkvöld, en í dag lcika
Fylkir og Fram í Seljaskóla, og á morgun KR
og Valur í Seljaskóla, líklega klukkan 18.45.
Körfubotti:
B f dag keppa Grindavík og Fram í 1. deild
karla klukkan 12.(H) í Njarðvík. Klukkan 14.00
keppa Njarðvík og KR í 1. dcild kvcnna. í
Borgarnesi mætast í tvígang Skallagrímur og
Þór, klukkan 14.(H) í dag og á sama tíma á
morgun, það cr í 1. deild karla.
Skíði:
B Bikarmót i alpagreinum fuilorðinna á
skíðum er á Siglufirði um helgina. A Olafsftrði
verður bikarmót í göngu og að auki er þar
bikarmót í stökki fullorðinna og unglinga, svo
og trimmganga.
Wmm
— í sigurleik Víkinga gegn Stjörnunni, 23-21
B Ásgeir Sigurvinsson á fullri ferð með Stuttgart. Það mun mikið mæða á Ásgeiri og félögum á næstunni í baráttunni um
Þýskalandsmeistaratitilinn.
ERFID OG SKEMMTUfG
KEPPNI FRAMUNDAN
segir Asgeir Sigurvinsson, sem ætlar ad
taka vftin fyrir Stuttgart á næstunni
Frá Gísla Á. Gunnlaugssyni íþróttafréttamanni Tímans í V-Þýskalandi.
I Gengi VFB Stuttgart hefur verið heldur misjafnt
að
undanförnu. Eftir fjögurra vikna hlé frá keppni vegna frestunar
leikja og hlés á deildarkeppninni vegna landsleikja, tapaði liðið
mikilvægum stigum í baráttunni um v-þýska meistaratitilinn í
leikjum sínum gegn Mönchengladbach (0-2) og Leverkusen
(2-2), og var auk þess slegið út úr átta liða úrslitum bikarkeppn-
innar af Werder Bremen (0-1). Eftir hlcið var leikjadagskrá
Stuttgart mjög erfið, fímrn kappleikir frá 10. til 24. mars. Á
þriðjudagskvöldið síðasta lék Stuttgart gegn Bayer Uerdingen
og sigraði 4-0 eins og greint var frá hér í blaðinu. Ásgeir
Sigurvinsson átti frábæran leik með Stuttgart, og fékk l.einkunn
síðastliðinn fímmtudag. Við hringdum í Ásgeir og spurðum
hann um gengi liðsins að undanförnu, og hvernig honum litist á
framhaldið.
„Það kom loksins að því að við ynnum
á þriðjudagskvöldið, er við sigruðum
Úerdingen hér heima. Hið langa hlé á
deildarkeppninni kom liðinu ákaflega
illa, við duttum út úr allri leikæfingu og
vorum ekki undir það búnir að mæta
hinu mikla álagi sem fylgir því að leika
svo marga kappleiki á stuttum tíma.
Fyrstu þrír leikir okkar eftir hléið voru
allir gegn erfiðum liðum. Þeir voru
leiknir á sjö dögum og við höfðum
hreinlega ekki kraft til að standast þá
þolraun. Sigurinn á þriðjudagskvöldið
var því afar mikilvægur til að stappa
stálinu í leikmenn, glæða keppnisandann
í liðinu og endurheimta sjálfstraustið.
Þetta er ekki hvað síst mikilvægt
vegna þess að við leikum gegn Köln á
laugardag, en Kölnarliðið er afar erfitt
heim að sækja. Þeir berjast nú eins og
Ijón um rétt til keppni í UEFA-keppn-
inni á næsta ári, hafa tapað nokkrum
leikjum á heimavelli að undanförnu, og
munu því vafalaust mæta grimmir gegn
okkur, þar sem þeir mega ekki tapa
mörgum stigum til að missa af möguleik-
anum á Evrópusæti.
Köln hefur einnig harma að hefna
gegn okkur, við unnum báða leikina við
þá í fyrra með 2-1, og sigruðum þá svo í
haust, svo þeir vilja vafalaust jafna
eitthvað um metin.
Svo má ekki gleyma því að þessi
leikur, eins og reyndar allir leikir um
þessar mundir, hefur úrslitaþýðingu, ef
við ætlum að reyna að vera með í
keppninni um meistaratitilinn. Við verð-
um að minnsta kosti að ná jafntefli í
Köln, og helst að sigra, til að halda í við
keppinauta okkar, Hamburger Sport-
verein, Bayern Múnchen og Borussia
Mönchengladbach."
- Nú hefur þér sjálfum gengið vel í
undanförnum leikjum, ertu í góðu formi
um þessar mundir?
Já, ég held að ég sé í allgóðu formi.
Mér hefur gengið nokkuð vel í leikjum
okkar að undanförnu, þótt liðið hafi
stundum leikið fremur illa sem heild og
þegar liðið leikur illa og tapar leikjum
sem hefðu getað unnist, þá er maður
alltaf óánægður, jafnvel þótt maður
sjálfur hafi átt góðan Ieik.“
- Nú tókst þú vítaspyrnu í fyrsta
skipti eftir langt hlé?
„Já, ég hef ekki tekið víti frá því í
fyrra, þá klikkaði ég, lét verja hjá mér.
Síðan hafa ýmsir spreytt sig á að taka
þessi fáu víti sem við höfum fengið
dæmd, en með misjöfnum árangri. Svo
mér var falið að reyna að nýju. í þetta
sinn tókst það. ágætlega, markmaðurinn
fór í vitlaust horn, og skotið var fast og
hafnaði ofarlega í markhorninu hægra
megin. Ætli ég muni ekki reyna aftur
við næsta víti sem við fáum.“
- Hvernig líst þér á möguleika ykkar
á að hreppa meistaratitilinn?
„Þetta er erfið keppni framundan.
Við eigum erfiða leiki á útivöllum gegn
Bayern Múnchen, Werder Bremen og 1
FC Köln, en hin liðin eiga erfiða leiki
eftir. Bayern á eftir að leika í Mönchen-
gladbach og Hamborg, og við eigum
Hamborg eftir á heimavelli, þannig að
allt getur gerst. Þetta verður vafalaust
hörð og skemmtileg barátta á endasprett-
inum, og ómögulegt að segja um hvernig
henni lyktar. Hvert stig sem tapast úr
þessu getur reynst ansi dýrmætt þegar
upp verður staðið,“ sagði Ásgeir Sigur-
vinsson að lokum. _ GÁG
B Stjarnan mátti þola tap í fyrsta leik
sínum í úrslitakeppni 1. deildar gegn
Víkingi, sem háður var í Seljaskóla í
gærkvöldi. Leikurinn endaði 23-21 eftir
að staðan hafði verið 14-12 í hálfleik,
Víkingum í vil. í þessum leik vakti mesta
athygli stórmarkvarsla Birkis Sveinsson-
ar sem hafði komið inná fyrir Brynjar
Kvaran.
Stjarnan náði aðeins forystu í upphafi
leiksins 1-0, 2-1, 3-2 og 4-3. En þá
slokknaði draumur Garðbæinga næstum
því. Víkingar tóku yfirburðarforystu og
var hún stærst 14-8. En vonir Stjörnunn-
ar voru ekki alveg úti því þeir náðu að
minnka niður í tvö mörk gegn núverandi
íslandsmeisturum.
I síðari hálfleik náðu Víkingar fjög-
urra marka forystu 19-15. í kjölfarið
fylgdi góður Stjörnukafli og þeir náðu að
jafna 20-20. Þá var heldur betur fjör í
húsinu sem var fullt af áhorfendum og er
í raun of lítið fyrir svona stórkeppni.
Stjörnumönnum tókst ekki að halda
haus og sigruðu Víkingar 23-21 og voru
það Víkingar sem skoruðu síðasta
markið.
Birkir Sveinsson var valinn maður
leiksins af þeim Karli Jóhannssyni,Stein-
ari J. Lúðvíkssyni og Gunnsteini Skúla-
syni sem skipuðu dómnefnd. Birkir stóð
sig mjög vel og máttu Stjörnumenn
þakka honum fyrir að sigur Víkinga yrði
ekki stærri. Gunnar Einarsson og Eyjólf-
Keflvfkingar
gefa út
meistarablað
B Knattspyrnuráð Keflavíkur hefur
gefið út „Meistarablað", í tilefni af því
að 20 ár eru nú liðin frá því Keflvíkingar
urðu síðast Islandsmeistarar í knatt-
spyrnu. Blaðið er myndarlegt, 80 blað-
síður að stærð, og er í því sagt frá
meistaraliðum Keflvíkinga, þeir urðu
meistarar 1964, 1969, 1971 og 1973 og
bikarmeistarar 1975, og ýmsum sögu-
legum viðburðum í knattspyrnulífi Kefl-
víkinga. Blaðið er gefið út í 2 þúsund
eintökum, og munu leikmenn ÍBK, sem
nú eru á förum í æfingaferð til Totten-
ham ganga í hús í Keflavík um helgina
og selja blaðið.
í kvöld mun knattspyrnuráðið efna til
meistarafagnaðar í Stapanum. Allir leik-
menn sem leikið hafa með meistaralið-'
um ÍBK mæta í hófið, og verða þjálfar-
arnir sem stjórnað hafa Keflvíkingum til
sigurs, Óli B. Jónsson (1964), Hólmbert
Friðjónsson (1969), Einar Helgason
(1971) og þeir Jón Jóhannesson og
Guðni Kjartansson (1975). Jóe Hooley
(1973) kemst ekki til landsins.
- SÖE
Teitur Þórðarson skoraði
Franska bikarkeppnin:
JSŒNDINOAUÐIN
FÓRU BÆÐI AFRAM
— Teitur skoraði gegn Sochau
B Teitur Þórðarson jafnaði 1-1 fyrir lið
sitt í Cannes í síðari leik liðsins við
Sochaux í 16 liða úrslitum frönsku bikar-
keppninnar. Cannes, sem leikur í ann-
arri deild í Frakklandi, er því komið
áfram í 8 liða úrslit, því fyrri leikurinn
gegn fyrstudeildarliðinu sigraði Cannes
3-0. Sá var leikinn í Cannes.
Karl Þórðarson og félagar í Laval
komust einnig í 8 liða úrslit, sigruðu
Rouen 3-1 í síðari leiknum, en fyrri
leikinn vann Rouen 1-0. - SÖE
ur Bragason voru bestu útimenn Stjörn-
unnar. Hjá Víkingum stóðu Viggó Sig-
urðsson. Steinar Birgisson og Sigurður
Gunnarsson sig mjög vel í annars nokk-
uð góðu liði.
Mörk Víkings skoruðu: Viggó Sig-
urðsson 6, Steinar Birgisson 5, Sigurður
Gunnarsson 5, Karl Þráinsson 3, Guð-
mundur Guðmundsson 1, Hilmar Sig-
urgíslason 1 og Guðmundur B. Guð-
mundsson 1.
Leikinn dæmdu Rögnvaldur Erlings
og Stefán Arnaldsson.
Úrslitakeppnin í 1. deild
FH-SIGUR GEGN VAL
— sigruðu 24-21
B FH-ingar bættu einum sigrinum við
í safnið í gærkvöldi með því að sigra Val
í fyrsta leik liðanna í úrslitakeppni 1.
deildar. Leikurinn endaði með sigri FH
24-21, eftir að FH hafði haft forystu í
hálfleik 10-8. Leikurinn var jafn lengi
vel og náðu FH-ingar ekki öruggri
forystu fyrr en seint í síðari hálfleik.
FH-ingar náðu strax forystu 2-0 en
Valsarar svöruðu fljótt fyrir sig og jöfn-
uðu 2-2. Aftur náðu Hafnarfjarðarstrák-
amir að komast yfir 3-2. Þá náðu
Valsmenn góðum leikkafla og náðu
þriggja marka forystu 7-4. FH-ingar
vöknuðu aftur og náðu að skora fjögur
mörk og staðan var orðin 8-7. Staðan var
10-8 í hálfleik eins og áður kom fram.
í upphafi síðari hálfleiks náðu Vals-
menn aftur að jafna 10-10. Tölur voru
jafnar upp í 15-15 en þá náðu FH-ingar
að skora þrjú mörk. Valsmenn náðu sér
aldrei eftir þessa skotárás og sigruðu
því FH-ingarnir örugglega 24-21.
Kristján Arason og Hans Guðmunds-
son voru bestu menn FH í leiknum í
gærkvöldi sem háður var í Seljaskóla.
Atli Hilmarsson var í gæslu mest allan
leikinn en skoraði samt 5 mörk. Lið Vals
var frekar jafnt en þó sýndi markvörður
þeirra Elías Haraldsson ágætan leik. Þá
átti Stefán Halldórsson góðan kafla í
síðari hálfleik.
Mörk FH skoruðu: Kristján Arason 9
(5), Atli Hilmarsson 5, Hans Guð-
mundsson 5, Pálmi Jónsson 2, Þorgils
Óttar 2 og Guðmundur Magnússon 1.
Mörk Vals skoruðu: Stefán Halldórs-
son 7 (4), Jón Pétur Jónsson 4, Þorbjörn
Jensson 3, Ólafur H. Jónsson 2, Jakob
Sigurðsson 2, Þorbjörn Guðmundsson
1, JúlíusJónsson 1 og Björn Björnsson 1.
-BH
Skarnírþurftú
MÍN EKKI MEД
T
I
I
I
I
I
| — sagði Valur Ingimundarson j
_B „Mín þurfti ekki med í þessum u~'“ • ' - - -
I leikjum, það er nóg af mönnum sem geta
ffyllt initt skarð“, sagði Valur Ingimund-
Iarson, stigaskorarinn mikli hjá Njarðvík,
sem ekki gat leikið með félögum sínum
Igegn Val í úrslitum úrvalsdeildarinnar í
jkörfuknattleik, eftir að félagar hans
|höfðu krækt í íslandsmeistaratitilinn i
Ikörfubolta í fyrrakvöld.
Margir áhangendur Njarðvíkinga og
Iaðrir körfuknattleiksunnendur óttuðust
að hið nýja fýrirkomulagá úrvalsdeildar-
Ikeppninni, úrslitakeppnin kæmi í veg
jfýrir að Njarðvíkingar sem hafa leikið
best allra lið í úrvalsdeildinni í vetur,-
mundu ná titlinum. þar eð Valurf
Ingimundarson meiddist í lok úrvals-|
deildarkeppninnar. Svo varð þó ekki,.
félagar Vals náðu að tryggja sér íslands-|
meistaratitilinn af miklu harðfylgi gegnl
hinu vaxandi liði Valsmanna.
„Þetta var frábært hjá strákunum, ogl
sýnir að það er nóg af góðum körfuknatt-:
leiksmönnum í Njarðvík. Það hefði þó|
óneitanlega verið gaman að geta leikið.
með þeim í úrslitunum“, sagði Valurl
Ingimundarson.
- BL/SÖE*
■ Fáum hefur líklega orðið það meira gleðiefni
að Njarðvíkingar urðu íslandsmeistarar í körfu-
knattleik, en Gunnari Þorvarðarsyni, þjálfara
liðsins. Það má einnig lesa úr svip hans, er hann
lítur bikarinn fagra á myndinni hér að ofan, en
hann heldur um gripinn ásamt Júlíusi Valgeirssyni
fyirliða liðsins. Á myndinni hér til hliðar sjást
aðdáendur Njarðvíkur kasta hetju úrslitakeppn-
innar, Sturlu Örlygssyni hátt í loft. Sturla lék stórt
hlutverk í báðum leikjunum gegn Val, og skoraði
sigurkörfuna í báðum leikjunum, þremur sekúnd-
um fyrír leikslok í leiknum á þríðjudag, og sex
sekúndum fyrír leikslok í fyrrakvöld. Njarðvíking-
ar stóðu sig vel, og frá ámaðaróskir frá Tímanum.
-SÖE/Tímamyndir Róbert
„LflGMARKSUNDIRBUNINGUR
— hjá A-landslidinu fyrir B-keppnina segir
Bogdan - verður að endurskipuleggja
deildakeppnina
v
B „Þelta er algjör lágmarksundirbún-
ingur sam áætlaður er fyrir íslenska
landsliðið fyrir næstu B-heimsmeistara-
keppni, það er á hreinu að við náum ekki
helmingi þess tíma og leikja sem önnur
lið sem undirbúa sig undir þessa keppni, og
róðurinn verður þess vegna mjög erfið-
ur. Við munum heldur ekki ná toppár-
angri, cins og margir ætlast áreiðanlega
til af okkur fyrr,cn í B-keppninni, þá er
miðað við að liðið verði á toppi“, sagði
Bogdan Kowalczyk landsliðsþjálfari í
handknattleik meðal annars á blaða-
maanafundi í vikunni, sem haldinn var
vegna nýafstaðinna landsleikja hjá hand-
boltalandsliðunum og áframhaldandi
æfingadagskrá karla og kvennaliðanna.
íslenska karlalandsliðið mun hefja
æfingar strax eftir að úrslitakeppninni er
lokið, en æfingar liggja nú niðri vegna
hennar. Liðið mun æfa stíft í þrjár vikur
í maí, síðan verður tveggja mánaða
árleg hvíld handknattleiksmanna í júní
og júlí. í ágúst mun liðið koma saman til
æfinga, sem verða í þrjár fyrstu vikurnar
af ágúst, síðan farið í
æfingaferð til V-Þýskalands 23. ágúst,
þar sem leikið verður við v-þýsk félags-
lið. Hugsanlega koma þá tveir leikir hér
heima við Dani. sem ekki er ákveðið,
Frakkar koma hingað að líkindum í
nóvember, og leikið verður hér heima
við Svía í byrjun desember. Svisslend-
ingar koma líklega hingað milli jóla og
nýárs. En sem stendur miðast undirbún-
ingurinn við Norðurlandamótið, sem
haldið verður í Finniandi í október, og
kemur það á milli þeirra landsleikja sem
hér eru áður nefndir.
Bogdan sagði að íslendingar væru
algerir áhugamenn í handknattleik, að
líkindum þeir einu. Það hamlaði æfinga-
sókn og uppbyggingu að handknatt-
leikurin hér væri fjárvana, menn væru
mjög bundnir í sinni vinnu, og því yrðu
jafnvel landsliðsæfingar oft að víkja hjá
mönnum. Þetta sagði Bogdan að veikti
stöðu íslands þegar að B-keppninni
kæmi.
Bogdan sagði að mörgu mætti um
kenna, svo sem einskis nýtu íslandsmóti,
þar sem litlu máli skipti hvernig hver
einstakur leikur færi í forkeppninni, ef
Alsjálfvirk- einföld -
lið væru annaðhvort meðal hinna fjög-
urra efstu eða fjögurra neðstu. „Það er
algert skilyrði að stigin fylgi liðum í
úrslitakeppnina, ef óbreytt leikfyrir-
komulag helst," sagði Bogdan. „En það
cr hægt að gera þetta ööruvísi, með því
að Ijúka deildakeppninni fyrir jól, og
hafa síðan tveggja og hálfs mánaðar hlé
fram á úrslitakeppni, þá geta liðin bygg(
sig markvisst upp fyrir báða hluta keppn-
innar", sagði landsliðsþjálfarinn. „Það
verður að laga íslandsmótið, megin or-
sökin fyrir því að menn ná ekki betri
einbeitingu í landsleikjum, eða æfingum
í tengslum við landsliðið, er að hér er
léleg deildarkeppni, leikirnir skipta engu
máli, menn komast upp með aðæfa lítið,
og jafnvel spila heilt mót æfingarlausir.
Þetta er eðlilegt, umbunin er engin. Það
verður að bæta alla hluti í þessu, og að
sjálfsögðu verðum við að fá alla sterk-
ustu mennina til að vera með í landsliðs-
æfingum, eins og „útlendingana" þrjá,
það er dýrt en það verður að vera, enda
er unnið að því", sagði Bogdan Kowal-
czyk.
- SÖE.
4 ENDURBÆTT
DISKFILMA
ODAK
Ljósmyndun verður leikur
einn.fyrir hvem sem er.með
Kodak Diskmyndavélinni.
Hún hugsar fyrir öllu, þú
smellir bara af.
Cr
Vel á minnst, hefur þú
hugsað fyrir íermingar-
gjöfinni?
Kodak Dlskur 3600
Kodak Diskur 4000
Kodak Diskur 6000
Kodak Dtskur 8000
1990 kr
2400 kr.
3200 kr
4200 kr.
HfiNS PETERSEN HF
BANKASTRÆTÍ GLCSIBÆ AUSTURVERI UMBOÐSMENN UM LAND ALLT
umsjón: SamúeJ Öm Eriingsson
STÓRMARKVARSLA BIRKIS
NÆGÐISTJÖRNUNNIEKKI
F