Tíminn - 08.01.1986, Síða 5

Tíminn - 08.01.1986, Síða 5
Tíminn 5 Miðvikudagur 8. janúar 1986 ÚTLÖND El Salvador: Útvarpshlustendur beðnir um að benda á nokkur skotmörk ■ Vinstrisinnaðir skæruliðar sem látnir voru lausir fyrir dóttur Duarte forseta El Salvadors sem skæruliðar rændu í fyrra. Hún reyndist nijög „arðbært skotmark“ þar sem skæruliðar fengu um hundrað félaga sína látna lausa í skiptum fyrir hana. Nú vona skæruliðar að útvarpshlustendur bendi þeim á fleiri heppileg skotmörk. San Salvador-Reuler ■ Útvarpsstöð vinstrisinnaðra skæruliða í E1 Salvador hefur beðið hlustendur um að koma með uppá- stungur unt skotmörk fyrir árásir eða skemmdarverk. Útvarpsstöðin bað hlustcndur sína í fyrradag um að senda ábend- ingar sínar í tiltekið pósthólf í Mexí- kóborg undir dulnefni til þess að koma í veg fyrir að herinn í E1 Salva- dor eða erlendar leyniþjónustur gætu haft upp á bréfriturum. Útvarpsþulurinn sagði m.a.: „Lít- ið í kringum ykkur í nágrenninu eftir stöðum sem væru bestu skotmörkin fyrir skæruliðahópa. Athugið hvað ntargir óvinir eru þar og hvers konar byssur þeir hafa. Segið okkur frá mannvirkjum sem hægt er að vinna skemmdarverk á. Sendið nákvæmar upplýsingar. í alþýðustríði eru upp- lýsingar frá alþýðunni lykillinn að sigri okkar. Skrifið okkur.“ Skæruliðar í El Salvador segjast hafa fellt rúntlega sex þúsund stjórn- arliða á seinasta ári. Samkvæmt út- varpsstöð þeirra, Venceremos, eru þeir tilbúnir til að berjast við stjórn- arherinn í mörg ár enn. Talsmenn hersins hafa ekki viljað tjá sig um þessar upplýsingar skæru- liða sem eru í andstöðu við fullyrð- ingar hersins um að skæruliðar séu í varnarstöðu. Borgarastríðið í El Salvador hefur: nú staðið í sex ár. Það er talið að fleiri en 55.000 menn hafi látist í átökum skæruliða og hersins á þessu tímabili. Flestir hinna föllnu eru óbreyttir borgarar. Eiturótti veldur verðlækkun á tei Colombo-Reuter ■ Útflutningsverð á tei lækkaði í Sri Lanka í gær vegna ótta tekaup- enda við að teið væri eitrað þar sem skæruliðar Tamila segjast hafa eitrað hluta af teinu sem hefur verið búið til útflutnings. Þrátt fyrir ítarlega athugun á stór- um hluta tesins hafa enn ekki fundist nein merki um eitur og stjórnvöld segja útilokað að teið hafi verið eitr- að. ■ Breskir tollverðir lögðu hald á nteira magn eiturlyfja á seinasta ári en nokkurn tíma áður. Söluverðmæti eiturlyfjanna, sem tollverðirnir náðu, er metið á um 107 ntilljónir punda (rúnil. sex milljarða ísl. kr.) á eiturlyfjamarkaðinum í Bretlandi. Þeir lögðu hald á 79 kíló af kókaíni er sem 125% aukning frá’ árinu 1984 og 348 kíló af heróíni sem er 11% aukning. Richard Lawrence yfirmaður Eiturhótanir eru ekki eina áfallið sem teiðnaður Sri Lanka verður nú fyrir. Ákvörðun verkalýðssambands Ceylons um þriggja mánaða bæna- herferð fyrir friði á Sri Lanka kem- ur sér li'ka mjög illa þar sem hún mun stytta mjög raunverulegan vinnu- tíma. Stjörnvöld hafa hótað því að skerða laun verkamanna vegna bæn- anna en verkalýðssambandið hefur hótað því á móti að lengja þá bæna- tímann úr hálfum degi í heilan. rannsóknardeildar tollsins segir ýmislegt benda til þess að bandaríski markaðurinn fyrir kókaín sé mettað- ur og glæpahringir kókaínsmyglara snúi sér því í auknum mæli til Evr- ópu í leit að nýjum mörkuðum. Mikið af eiturlyfjum, sem komi til Bretlands, sé fýrst smyglað til annarra Evrópu- ríkja áður en þau séu flutt til Bretlands. Því sé mikilvægt að auka alþjóðlega samvinnu í baráttunni gegn eiturlyfjunum. ítalskir læknar í verkfalli Róm-Reuter ■ ítölsk sjúkrahús veita nú að- eins neyðarþjónustu eftir að um hundrað þúsund læknar hófu þriggja daga verkfall í gær til að krefjast hærri launa. ítalskir læknar kvarta yfir því að þeir séu með lægstu laun af öll- um læknum í Evrópu. Þeir krefj- ast þess að laun þeirra verði hækkuð til samræmis við laun lækna í öðrum löndum. Læknarnir eru í níu mismun- andi fagfélögum og í árlegum launaviðræðum við ríkisvaldið eru þeir settir í hóp með hjúkrun- arfólki, sjúkraliðum og öðru starfsfólki sjúkrahúsanna. Lækn- ar vilja að sérstaða þeirra innan heilbrigðiskerfisins verði viður- kennd og lögum verði breytt þannig að samið verði við þá sér- staklega. Læknar segja laun hjá ríkinu svo léleg að margir læknar á opin- berum sjúkrahúsum neyðist til að taka einkasjúklinga til að vinna sér inn aukatekjur. Eiturflóð í Bretlandi London-Rcuter: Selir þefvísir á olíu og gas Moskva-Reuter: ■ Sovéskir sjávarlíffræðingar hafa þjálfað seli til að leita að olíu- og gaslindum á sjávarbotni samkvæmt sovéska blaðinu Sovietskaya Ross- iya. Blaðið skýrði frá því í gær að líf- fræðingarnir hefðu þjálfað selina til að finna staði þar sem olía eða gas læki á sjávarbotninum. Selirnir væru líka orðnir leiknir við að safna sýnis- hornum af neðansjávargróðri og gætu jafnvel tekið myndir með sér- stökum myndavélum sem væru fest- ar á þá. Samkvæmt blaðinu geta selirnir kafað niður á allt að sex hundruð metra dýpi og haldið niðri í sér andanunt í eina klukkustund. Kínverskt stífluslys Hongkon}>-Reutcr: ■ Fjörutíu og átta manns létust í Guangxi-Zhuanghéraði í Kína er stífla brast í síðastliðnum mánuði. Þeir sem létust voru að vinna við byggingu stíflunnar. Er slysið átti sér stað voru fimmtíu og fimm manns þar sem mörg tonn eðju runnu niður. Nærstöddum tókst að bjarga sjö þeirra en aðrir fórust. Frétt þessa efnis birtist í dagblaðinu Wen Wei Po sem er hliðhollt stjórn- völdum í Peking og gefið út í Hongkong. sfllAUSAR STÖEXJR HJÁ IM'I REYKJAVIKURBORG íþrótta og tómstundaráð vill ráða starfsfólk að nýrri félagsmiðstöð sem innan skamms tekurtil starfa í Vest- urbænum. Um er að ræða almennt unglinga- og æskulýðsstarf og menntun og reynsla á sviði uppeldismála æskileg. Upplýsingar veitir skrifstofa íþrótta- og tómstundaráðs í síma 15937 og 16262. Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds Reykjavík- urborgar, Pósthússtræti 9,6. hæð á sérstökum umsókn- areyðublöðum sem þar fást fyrir kl. 16.00, mánudaginn 20. janúar 1986. Fjölbrautaskóli Suðurnesja Koflavik Slml 92-310» FS - vorönn Dagskóli. Stundaskrár verða afhentar gegn greiðslu innritunargjalds, kr. 1.200, föstudaginn 10. janúar kl. 10- 13. Nýnemar komi kl. 10. Kennsla hefst skv. stundaskrá mánudaginn 13. janúar. Öldungadeild. Allir nemendur öldungadeildar komi til fundar í skólanum fimmtudaginn 9. janúar kl. 18.30. Ný- nemar komi kl. 18. Innritunargjald er kr. 3.200. Réttindanám vélstjóra. Nemendur komi í skólann föstudaginn 10. janúar kl. 14. Innritunargjald er kr. 3.200. Flugliðabraut. Nemendur komi til fundar skv. tilkynn- ingu í bréfi. Innritunargjald er kr. 5.000. Réttindanám skipstjóra. Nemendur komi skv. um- tali. Námsfiokkar. Auglýstir síðar. Innritun í námskeið um skattaframtöl er hafin. Starfsnám. Auglýst síðar. Skólameistari Bændur athugið! Ákveðið er að skipta framleiðslu á mjólk og kindakjöti sem bændum er tryggt fullt verð fyrir á milli framleiðenda í hinum einstöku héruðum landsins samkvæmt sérstök- um reglum. Því verður ekki í framtíðinni unnt að gera ráð fyrir að framleiðsluréttur á blönduðum búum færist á milli bú- greina þó ónotaður réttur sé fyrir hendi í annarri grein- inni, nema í undantekningartilvikum. Nú er framleiðendum á blönduðum búum gefinn kostur á að sækjatil Framleiðsluráðs um að breyta hlutföllum í bú- marki sínu, enda verði slíkar umsóknir vel rökstuddar. Umsóknarfrestur er til loka janúarmánaðar 1986. Allar umsóknir um breytingar verða teknar til úrskurðar af bú- marksnefnd Framleiðsluráðs. Gera verður ráð fyrir að allar samþykktar breytingar verði bindandi fyrir framleiðendur um nokkurt skeið. Þær þurfa að fá staðfestingu landbúnaðarráðuneytisins til að fágildi. Jafnframt er vakin athygli þeirra bænda sem ekki hafa skipt búmarki sínu að tilkynna um skiptingu þess á milli búgreina nú þegar. Bændum er bent á að hafa samráð við héraðsráðunauta um þetta efni. Framleiðsluráð landbúnaðarins Frá Æfingaskóla Kennaraháskólans Handmenntakennara (smíðar) og íþróttakennara vantar að skólanum nú þegar. Nánari upplýsingar á skrifstofu skólans og hjá skólastjóra í síma 31781. Skólastjóri

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.