Tíminn - 23.01.1986, Síða 9
8 Tíminn
Fimmtudagur 23. janúar 1986
Fimmtudagur 23. janúar 1986
ÍÞRÓTTIR
ÍÞRÓTTIR
Skíðamenn á fulla ferð:
Vertíðin að hefiast
|# ■ « j_BgtL _ » ■ / Ai '« | j _r ■■
- Keppt verður í samhliða svigi á Skíðalandsmótinu
Fyrsta stórsvigsmót skíðadeildar
Ármanns verður haldið í Bláfjöllum
laugardaginn 25. janúar næstkom-
andi og gefur mótið stig til Reykja-
víkurmeistaratitils. Keppt verður í
flokkum fullorðinna og 15-16 ára
flokki og hefst keppni kl. 11.00.
Skíðamenn hafa æft vel það sem af
cr vetri og má segja að með stórsvig-
inu hjá Ármenningum hefjist keppn-
istímabil okkar skíðamanna á fullu.
Helgina 1. og 2. febrúar vcrður
svo fyrsta bikarmót Skíðasambands
íslands haldið í Bláfjöllum. Þar
verða mættar til leiks okkar þrjár
sterkustu skíðakonur, þær Tinna
Traustadóttir, Snædís Úlrilfsdóttir,
báðar úr Ármanni, og Guðrún Krist-
jánsdóttir fra Ákrureyri. Allar hafa
þær æft vel undir tímabilið og því má
búast við hörkukeppni á bikarmót-
um skíðasambandsins í vetur.
í karlallokkieru hlutirnirhinsveg-
ar óljósari. Sterkasti skíðamaður
landsins Daníel Hilmarsson frá Dal-
vík cr erlendis og keppir þar á fullu
og stefnir sjálfsagt á að geta nælt sér í
nógu marga punkta til að vera gjald-
gengur í heimsbikarkeppnina í
skíðaíþróttum. Þcir skíðamenn sem
heima sitja eru nokkuð jafnir og því
er ógjörningur að spá um röð þeirra.
Styrkleiki skíðamannanna ætti þó
að vera orðinn nokkuð ljós þegar há-
punkturinn á tímabilinu rennur upp,
Skíðamót Islands sem haldið verður
hér sunnan fjalla þann 26.-31. niars
næstkomandi. Þar vcrður allt okkar
besta skíðafólk samankomið og
verður sú nýjung tekin upp á mótinu
að kcppa í samhliða svigi sem svo
sannarlega ætti að laða að áhorfend-
ur á þetta stærsta skíðamót vetrar-
ins.
MELTUVINNSLA
Ráðstefna um nýtingu á
slógi og aukaafla.
Miðvikudaginn 29. janúar 1986,
Ðorgartúni 6, 4. hæð.
Fundarstjóri: Dr. Grímur Þ. Valdimarsson.
DAGSKRÁ:
09.00 Afhending ráðstefnugagna -Kaffi.
09.30 Setning HalldórÁsgrímsson sjávarútvegsráðherra.
09.50 Nýting á slógi og aukaafla Sigurjón Arason
-Meltuvinnsla- Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins.
10.30 Kaffiveitingar
10.45 Notkun meltu semfóður . Ólafur Guðmundsson Rannsóknastofnun landbúnaðarins.
11.15 Reynslan af meltuvinnslu Ingvi Þorkelsson
hjá Glettingi í Þorlákshöfn Glettingurh.f.
11.45 Matarhlé - óformlegar umræður.
13.15 Reynslan af meltuvinnslu Einar Guðfinnsson hf.
áBolungarvík - Meltun um borð í togurum. -Þykking ámeltu. Bolungarvík.
13.45 Markaðshorfurfyrir LárusÁsgeirsson
meltu og reynsla Lýsis hf. Lýsi h.f.
14.15 Tímiog kostnaðurvið Haukur Már Stefánsson,
breytingar á fiskiskipum tilslógvinnslu. Landsmiðjan.
14.45 Kaffiveitingar.
15.00 Niðurstaða nefndar um Finnurlngólfsson
nýtinguáslógiog öðrumfiskúrgangi. Sjávarútvegsráðuneytinu.
15.30 Almennarumræður.
16.30 Slit.
Þátttaka í ráöstefnunni er opin öllum áhugamönnum um nýtingu
fiskúrgangs. Þátttöku þarf aö tilkynna fyrir föstudaginn 24. janúar til
Rannsóknastofnunar fiskiðnaðarins, í síma 20240. Þátttökugjald
er kr. 3000. Innifalið í þátttökugjaldi eru ráðstefnugögn, hádeg-
isverður og kaffiveitingar. Þátttökugjaldið óskast greitt við upphaf
ráðstefnunnar.
SJÁVARÚTVEGSRÁÐUNEYTIÐ
RANNSÓKNASTOFNUN FISKIÐNAÐARINS
Þessir knáu piltar voru að leika í Reykjavíkurmótinu í innanhússknattspy rnu í Laugardalshöll í gær. Mótið stendur nú yfir og er keppt í yngri
flokkum. í kvöld hefst þó keppnin í meistaraflokki með leik Vals og Víkings kl. 19.00.
Heimsmeistarakeppnin í knattspyrnu í Mexíkó-Alsír:
Verður engin aukaþjóð
- Alsírbúar ætla sér að gera góða hluti í Mexíkó eins og á Spáni - Lentu í riðli með bæði Brasilíu og
Spánverjum - Margir leikreyndir leikmenn í hópnum
Tíminn mun á næstu mánuðum kynna
þau 24 landslið er þátt taka í heimsmeistara-
keppninni í knattspyrnu, sem fram fer í
Mexíkó dagana 31. maí-29. júní.
Heimsmeistarakeppnin er ásamt Ólymp-
íuleikunum sú íþróttahátíð sem mestra vin-
sælda nýtur í heiminium með kynningunni
er vonast til að áhugamenn um keppnina fái
betri yfirsýn yflr liðin sem hefja keppni í
Mexíkó í lok maí.
Alsírbúar hafa ekki hgusað sér að vera
einhver aukaþjóð í heimsmeistarakeppn-
inni í knattspyrnu sem fram fer í Mexíkó á
næsta sumri. Þvertámóti. Þeirteljasigeiga
góða möguleika á að komast í aðra umferð
keppninnar þrátt fyrir að þurfa að eiga við
lið á borð við Brasilíu og Spán.
Bjarsýni Alsírbúa byggist mikið á góðri
frammistöðu landsliðs þeirra í heimsmeist-
arakeppninni á Spáni 1982 er liðið lagði
sjálfa Vestur-Þjóðverja að velli með tveim-
ur mörkum gegn einu og sigraði síðan
Chilebúa með þremur mörkum gegn tveim-
ur. Þrátt fyrir þessa tvo sigra komst liðið
ekki áfram, 2-0 tap gegn Austurríkismönn-
um varð þessi valdandi.
Rabah Saadane þjálfari landsliðsins seg-
ist vera ánægður með riðil þann er Alsír
lendir í en þar mæta þeir liðum Brasilíu,
Spánar og Norður-írlands. Fyrsti leikur
þcrirra cr gegn Norður-lrum og gæti það vel
orðið erfiðasta viðureign Alsírbúa þar sem
lið þeirra er óvanara spilamennsku Evrópu-
búa og hefur stíl er svipar meira til knatt-
spyrnustíls Suður-Ameríkubúa.
Lckhdar Belloumi er ein skærasta stjarna
Alsír í gegnum árin.
Knattspyrna er þjóðaríþrótt í Alsír og
nýtur hún geysilegra vinsælda eins og hjá
svo mörgum þjóðum Afríku. Hvarvetna má
sjá unglinga leika knattspyrnu og skiptir þá
litlu hvort leikið er með bolta úr leðri elleg-
ar bolta búnum til úr dagblöðum - sem
er reyndar oftar. Þessi „manía" fyrir knatt-
spyrnu á kannski sinn þátt í hversu margir
boltasnillingar eru í landsliði þeirra Alsír-
búa.
Aðalstjörnur liðsins eru Rabh Madjer,
sem leikur með Porto í Portúgal og er
markahæsti leikmaður deildarinnar þar,
Djamel Menad framherji, sem oft er kallað-
ur „hinn nýi Gerd Múller", og leikstjórn-
andinn Lakhdar Belloumi sem líklega er
frægastur þessara þriggja.
Saadane þjálfari hefurgert lista yfir fjöru-
tíu leikmenn sem allir eiga möguleika á að
komast í hóp þann er heldur til Mexíkó. Af
þessum fjörutíu eru alls ellefu leikmenn
sem leika með liðum í Evrópu t.d. Rachid
Harkouk sem leikur með Notts County á
Englandi. Helsta vandamálið hjá knatt-
spyrnusambandi þeirra Alsírbúa verður að
fá þessa leikmenn lausa í tæka tíð og mun
nefnd á vegum sambandsins fara til Evrópu
á næstunni til að ræða þau mál við viðkom-
andi félög. Árangurinn af þessum viðræð-
Bikarmeistaramót FSÍ
Bikarmeistaramót Fimleikasambands ís-
lands verður haldið í Laugardalshöll laugar-
daginn 25. janúar og sunnudaginn 26. janú-
ar. Keppt er í þremur flokkum stúlkna (A-
B-C) og í tveim hjá piltum (A-B).
Keppnin hefst kl. 14.30 á laugardeginum
og spreyta sig þá stúlkur í C-flokki. Stúlk-
urnar úr B-flokknum taka svo við kl. 17.20.
Á sunnudeginum hefst mótið kl. 13.30 og
keppa þá stúlkur úr A-flokki og piltar úr
bæði A og B flokkum.
Alls munu þátttakendur á þessu móti
verða um 100 talsins og koma frá 6 félögum:
Ármanni, Gerplu. Björk, KR, Fylki og
Stjörnunni. Úrslit í A-flokki verða notuð til
viðmiðunar við val á kcppendum f lands-
keppni við Skotland sem fram fer9. febrúar
næstkomandi í Laugardalshöll.
um gæti skipt sköpum í sambandi við undir-
búning og frammistöðuna í Mcxíkó.
Helsti styrkleiki alsírska liðsins liggur í
snjöllum skyndisóknum og miklum hraða
en varnarleikur liðsins er hins vegar veikur
og skilning meðal leikmanna hefur oft
skort.
Saadane segist ekki vita hvernig lið sitt
muni bregðast við þremurleikjum á stuttum
tíma í rafmögnuðu andrúmsloftinu í
Guadalajara en hitinn svo og fyrri reynsla af
heimsmeistarakeppni gætu þó átt eftir að
koma Alsírbúum til góða gegn - á pappír-
unum - sterkari andstæðingum.
Rabh Madjer er nú markahæsti leikmaður-
inn í Portúgal þar sem hann leikur við hlið-
ina á Gomes.
Sigurður kemur
til æfinga með landsliðinu í handknattleik
Siguröur Sveinsson kemur til
landsins um helgina og mun væntan-
lega byrja að æfa eitthvað nteð ís-
lenska landsliðinu í handknattleik
sem nú er að undirbúa sig fyrir al-
þjóðlegt handknattleiksmót með
fjórum liðum sem fram fer í Reykja-
vík í lok mánaðarins. í þetta mót
koma allir okkar sterkustu menn
utan Þorbergur Aðalsteinsson og
ekki er vitað unt Alfreð Gíslason.
Þess má geta að Flugleiðir munu
bjóða upp á sérstakan helgarpakka
fyrir fólk utan af landi í sambandi við
mótið.
Portsmouth heldur áfram
Aston Villaog Arsenal gerðu jafn- ford og Portsmouth ognáði oxford 3-
tefli 1-1 í 8-liða úrslitum enska deild- 1 sigri. Loks gcrðu QPR og Chelsca
arbikarsins í gærkvöldi. Þá léku Ox- 1-1 jafntefli.
Bikarkeppni HSÍ:
Víkingar mæta IR
Víkingur mætir ÍR í bikarkeppni
HSl en dregið var í keppninni um
síðustu helgi. Víst er að Breiðhylt-
ingar munu veita bikarmeisturunum
harða kcppni enda cru þar leik-
reyndir kappar á borð við Guðmund
Þórðarson, Bjarna Bessason og Ár-
sæl Hafsteinsson. Víkingar munu
hins vegar örugglega hafa hug á tvö-
Valur meistari
Valsstúlkurnar tryggðu sér
sigur á Reykjavíkurmótinu í
innanhússknattspyrnu í fyrra-
kvöld. Þær unnu alla sína
leiki með yflrburðum. Vals-
stúlkurnar unnu KR 6-2,
Fram 6-0 og Fylki 9-1. KR
varð í öðru sæti en Fram í því
þriðja.
Stjarnan vann Val
Stjarnan vann Val í 1. deild
kvenna í gærkvöldi í feluleik í
Seljaskóla. Lokatölur urðu
24-20 fyrir Stjörnunni. Erla
og Margrét gerðu 7 mörk
hvor fyrir Stjörnuna en
Oddný skoraði 6. Katrín og
Erna skoruðu 6 hvor fvrir
Val.
földum sigri í vetur og þeir hefja
keppnina sem sigurstranglegasta
liðið.
Alls tilkynntu 29 lið þátttöku í
keppninni en Hafnarfjarðarliðin FH
og Haukar ásamt Reyni frá Sand-
gerði sitja hjá í fyrstu umferð.
Annars vard drátturinn þessi:
Týr-KA
Fylkir-FH b
Ármann-Grótta
KR-Valur
ÍH-ÍA
ÍBK-Fram
Þróttur-Ármann b
Leiftur-Valur
ÍR-Víkingur
Selfoss-Njarðvík
HK-Þór-Vestmannaeyjum
Stjarnan-Afturelding
Breiðablik-HBÍ
Leikdagar eru óljósir og munu líklega
byggjast mest á samkomulagi liða þeirra er
mætast.
NBA karfan
Nokkrir leikir voru á dagskrá í
NBA-Rörfuboltadeildinni banda-
rísku á þriðjudagskvöldið. Knicks
sigruðu Warriors 121-114,eftirfram-
lengingu og Jazz unnu sigur á Nug-
fgets 117-114, þar þurfti einnig að
framlengja. Þá sigruðu Clippers
Spurs 97-96, Kings unnu Mavericks
119-110 og Rockets sigruðu Supcrs-
onics 100-96.
Heimsbikarkeppnin á skíðum:
Fyrsti sigur Bouvet
Frakkinn Didier Bouvet sigraði í
svigi í heimsbikarkeppninni á skíð-
um í fyrradag. Hann kom í mark á
samanlögðum tíma 1:33,03 en næst-
ur honum varð Svíinn Ingimar Sten-
mark og í þriðja sæti Svisslendingur-
inn Thomas Búrgler. Þetta er fyrsti
sigur Frakkans í heimsbikarkeppn-
inni.
Stenmark er nú í þriðja sæti í stiga-
gjöf heimsbikarkeppninnar en efstur
er brunkappinn Peter Wirnsbergcr
frá Austurríki. Annar er Marc Gir-
ardeilli frá Lúxemborg.
Enginn íslenskur
Alþjóðaknattspyrnusambandið
(FIFA) tilkynnti í gær hvaða 36 dóm-
arar muni sjá um dómgæslu í heims-
meistarakeppninni í Mexíkó næsta
sumar. Keppnin þar hefst 31. maí og
lýkur 29. júní.
Talsmenn FIFA sögðu við frétta-
menn að Mexíkaninn Javier Arriaga
myndi hafa yfirumsjón með dómur-
unum og Tommy Wharton myndi sjá
um undirbúning þeirra. Wharton
þessi er skoskur.
Dómararnir þurfa að vera komnir
til Mexíkó fyrir 24. maí og mega eng-
an leik dæma í heimalandi sínu eftir
1. maí.
Alls verða í Mexíkó nítján dómar-
ar frá Evrópu, sex frá S-Ameríku,
fjórir frá Norður- og Mið-Ameríku,
þrír frá Afríku, þrír frá Asíu og einn
frá Eyjaálfu.
Síðbúin jólaúrslit
Jólamót Kópavogs í innanhúss-
knattspyrnu var haldið í Digranesi í
Kópavogi milli jóla og nýárs. Knatt-
spyrnudeild ÍK sá uni mótið að þessu
sinni og var keppt í yngri flokkum
karla og kvenna.
Sigurvegarar í flokkunum urðu
eftirtaldir:
2. flokkur kvenna:
3. flokkur kvenna:
6. flokkur karla:
5. flokkur karla:
4. flokkur karla:
3. flokkur karla:
2. flokkur karla:
Sjarnan
Breiðablik
Breidablik
Breiðablik
Stjarnan
Stjarnan
ÍK
Þátt tóku lið frá ÍK, Breiðabliki,
Stjörnunni, Haukum, FH, UMFK,
Aftureldingu og Selfossi.
Tíminn 9
SÖLUSKATTUR
Viðurlög falla á söluskatt fyrir desember mánuð 1985,
hafi hann ekki verið greiddur í síðasta lagi 27. þ.m.
Viðurlög eru 4% af vangreiddum söluskattti fyrir hvern
byrjaðan virkan dag eftir eindaga uns þau eru orðin
20%, en síðan reiknast dráttarvextir til viðbótar fyrir
hvern byrjaðan mánuð, talið frá og með 16. febrúar.
Fjármálaráðuneytið, 20. janúar 1986.
Bjarnaborg
Tilboð óskast í húsið Hverfisgata 83, Bjarnaborg, ásamt leigulóðar-
rétti. Húsið er auglýst til endurbyggingar eða niðurrifs og skulu tilboðin
gerð í samræmi við sérstaka skilmála sem afhentir verða á skrifstofu
vorri, Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík.
Húsið verður til sýnis fyrir væntanlega bjóðendur föstudaginn 24. jan.
og fimmtudaginn 30. jan. nk. kl. 13.00
Tilboðin verða opnuð á skrifstofu vorri, miðvikudaginn 5. feb. nk. kl.
14.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 — Sími 25800
Laus staða
Staða fangavarðar við Vinnuhælið á Kvíabryggju
er laus til umsóknar.
Umsóknarfrestur er til 15. febrúar 1986.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri
störf sendist dóms- og kirkjumálaráðuneytinu.
Dóms- og kirkjumálaráðuneytið, 15. janúar
1986.
Til SÖIu
Til sölu af sérstökum ástæðum vélar í heimilisrafstöð.
Vélarnar eru B. Maier túrbína og AEG rafall 12,5 kwa,
hvoru tveggja í góðu ástandi.
Upplýsingargefur Lárus Sigurðsson í síma 97-5791
SPRAUTUKLEFI
Til sölu nýlegur sprautuklefi fyrir bíla, 34 fermetrar
alsjálfvirkur byggður úr áleiningum. Upplýsingar í
síma 75748.
ÖLL ALMENN PRENTUN LITPRENTUN
TÖLVUEYÐUBLÖÐ
• Hönnun
• Setning
• Filmu- og plötugerð
• Prentun
• Bókband
PRENTSMIÐJAN H F.
SMIÐJUVEGI 3, 200 KÓPAVOGUR
SÍMI45000
t
Bróðir minn,
Jónas Skúlason
bóndi, Hólsgerði í Ljósavatnshreppi,
andaðist á sjúkrahúsinu í Húsavík 21. janúar.
Fyrir hönd systkinanna,
Þorsteinn Skúlason