Tíminn - 23.01.1986, Blaðsíða 11
Tíminn 11
Fimmtudagur 23. janúar 1986
Jón Helgason
prófessor
Með Jóni Helgasyni prófessor er
hniginn að foldu einn niesti fræði-
manna-öidungur og eitt mesta ljóð-
skáld íslands á þessari öld, á 87da
aldursári sínu.
Hann var fæddur 30. júní 1899 á
Rauðsgili í Borgarfirði, sonur Helga
Sigurðssonar og Valgerðar Jónsdótt-
ur. Hann var bráðþroska og
námgjarn, varð stúdent frá Mennta-
skólanum í Reykjavík á sautjánda
ári, sigldi samsumars til náms í
Kaupmannahöfn og átti þar heima
alla stund síðan. Hann varð doktor
frá Háskóla íslands 1926 fyrir bók
sína um Jón Ólafsson frá Grunna-
vík, forstöðumaður Árnasafns í
Kaupmannahöfn árið eftir, og
prófessor í íslenskri tungu og bók-
menntum við Kaupmannahafnar-há-
skóla þrítugur að aldri 1929. Þegar
hin nýja Árnastofnun í Kaupmanna-
höfn var sett á laggir árið 1956 var
Jón sjálfkjörinn fyrsti forstöðumað-
ur hennar. og gegndi liann þessum
embættum uns hann hlaut að láta af
þeim fyrir aldurs sakir.
Þegar á námsárum sínum tók Jón
að fást við rannsóknir og útgáfu
handrita. Upphafið var það að hann
var ráðinn aðstoðarmaður norsks
fræðimanns við að búa til prentunar
Ólafs sögu helga hina miklu, sem svo
er nefnd. í reynd sá Jón algerlega um
þetta verk. Það tók hann rúma tvo
áratugi, og mættu ýmsir æðikollar nú-
tímans gera sér ljóst að slík verk eru
ekki hrist út úr erminni, ef vel á að
vinna. En um útgáfu Ólafssögunnar
hefur og verið sagt að hún hefði verið
gott ævistarf eins manns. Og jafn-
framt vann Jón margt annað á þess-
um árum. Hann tók öll sín próf á
unguin aldri og hlaut háan embættis-
frama, eins og ég gat um. Hann bjó
til prentunar Heiðrekssögu (1924),
Ljóðmæli Bjarna Thorarensen í
tveimur bindum (1935) og tvö bindi
íslenskra miðaldakvæða (1936).
Hann ritaði sígilt verk um málið á
Nýja testamenti Odds Gottskálks-
sonar (1929) og norræna bók-
menntasögu á dönsku. Nordisk litt-
eraturhistorie (1934). Er þó margt
ótalið sem hann vann á þessum
árum, og fjöldi verka stórra og
smárra sem hann innti af höndum
síðar á ævinni, allt til þess er kraftana
þraut á síðast liðnu ári.
Jón var brautryðjandi nýrra að-
ferða við útgáfu íslenskra handrita.
Hann gerði þá kröfu að hverja út-
gáfu skyldi vanda svo vel að þar
þyrfti helst ekki framar um að bæta,
þar kæmi fram öll nauðsynleg vitn-
eskja sem í handritunum og um þau
væri að finna. Allir starfsmenn
Árnastofnana í Kaupmannahöfn og
Ingibjörg
Hannesdóttir
Fædd 19. ágúst 1893 ——3—■— —~
Dain 15. januar 1986
Lífið manns hratt fram hleypur
hafandi enga bið!
í dauðans grimmar greipur,
gröfin tekur þar við.
Oft koma mér þessi orð skáldsins
Hallgríms Péturssonar í hug, þegar
leiðir skiljast. Þegar gamlir vinir og
kunningjar hverfa, en við sem gömul
erum orðin hjörum enn og höldum
ferðinni áfram æðrulaust, uns röðin
kemur að okkur.
Og þegar við lítum til baka, er eins
og allt hafi hlaupið svo hratt. Mér
koma líka í hug oft þessar hendingar
Einars Benediktssonar:
Mér gleymast árin mín tug eftir tug,
mér tíminn finnst floginn sem
örvarflug
og allt sem ein augnablikssaga.
Og nú er þessi saga á enda hjá
þeirri kunningjakonu minni, sem
mig langar til að minnast með örfá-
um orðum.
Ingibjörg Hannesdóttir var fædd
19. ágúst 1893. Hún lést 15. jan. sl.
Var hún þá á nítugasta og þriðja
andursári. Hún fæddist á Grunna-
sundsnesi við Stykkishólm. Foreldr-
ar hennar voru Hannes Kristjánsson
og Einbjörg Þorsteinsdóttir. Hún
ólst upp á fjölmennu heimili og í
stórum systkinahópi.
Hinn 18. desember 1925 giftist
hún Flosa Jónssyni bónda á Hörðu-
bóli í Miðdölum í Dalasýslu. Hinn
átjánda desember sl. áttu þau því
sextíu ára hjúskaparafmæli. Þau
eignuðust tvo sonu: Sigurð bílstjóra í
Kópavogi og Hannes kennara í
Reykjavík. Þau áttu einn fósturson,
Guðmund Jónsson, bróðurson
Flosa, nú bónda á Emmubergi á
Skógarströnd.
Þetta er aðeins þurr upptalning og
segir næsta fátt um hina framliðnu,
sem nú er kvödd hinstu kveðju. En
það sem máli skiptir eru þó mann-
kostir einstaklingsins, framkoma og
einkenni öll. Það er nú orðið æði
langt síðan kynni okkar Ingibjargar
hófust, líklega sextíu og þrjú ár. Ég
ólst upp á Hörðubóli. Ég man það
næsta vel ennþá, þegar nýja kaupa-
konan kom í sláttarbyrjun árið 1923.
Mér varð starsýnt á þessa glæsilegu
og brosmildu stúlku. Hún varð fastar
bundin þessum stað en hana mun
hafa grunað, er hún kom þangað sem
kaupakona. Árið 1925 giftist hún,
eins og áður er frá greint, bóndanum
Flosa Jónssyni. Þar bjuggu þau allt
til ársins 1952, að þau fluttust til
Revkjavíkur.
Eg hygg að telja megi Ingibjörgu
hamingjumanneskju, hún hafði
góða heilsu fram yfir nírætt og lifði
hamingjusömu hjónabandi í sextíu
ár. Synir hennar og fóstursonur eru
vel metnir heiðursmenn. Þetta er
vissulega mikil hamingja. Glaðlyndi
hennar og jákvæð viðhorf til lífsins
entust henni til hinstu stundar. Ég
þakka af heilum hug fyrir gömul og
góð kynni. Flosa Jónssyni, sonum
þeirra og fóstursyni, votta ég inni-
lega samúð mína.
Ágúst Vigfússon.
Reykjavík eru lærisveinar Jóns.
flestir beinlínis, aðrir óbeint. Auk
þeirra útgáfuverka sem hann hefur
unnið sjálfur hefur hann annast rit-
stjórn eða yfirumsjón mikilla safna
af fræðiritum. íslenskum textum og
Ijósprentunum sem út hafa komið í
Kaupmannahöfn um margra áratuga
skeið, og skipta þessar bækur mörg-
um tugum binda. Sjálfur á ritstjórinn
furðulega nrikinn þátt í öllurn þess-
um verkum. Útgefendur sem unnið
hafa undir handleiðslu Jóns hafa
komið frá mörgum löndum, og hafa
áhrif hans og aðferðir við útgáfur
þannig borist út um allan heim þar
sem stunduð eru íslensk og norræn
fræði.
Árið 1939 koni út kvæðabók Jóns,
Úr landsuðri, og með þeirri bók
hlaut hann þegar sess með höfuð-
skáldum íslands. Ljóðin voru aftur
gefin út með viðaukum og nokkrum
úrfellingum 1948. Síðar birti Jón
safn þýðinga sígildra erlendra kvæða
(1962 og 1976). Margir hafa harmað
að hann skyldi ekki leggja meiri
stund á skáldskapinn síðar á ævinni,
svo glæsilega sem hann hleypti úr
hlaði. En þetta er skiljanlegt, svo
hlaðinn sem hann var af.embættis- og
útgáfustörfum. Og það er víst að
kvæði hans hin bestu munu lifa með-
an íslensk tunga er töluð. Hann var
einnig meistari í mcðferð óbundins
máls og vandaði málfar sitt, bæði
mælt og ritað, að hætti 19du aldar
manna, svo sem Sveinbjarnar Egils-
sonar og Konráðs Gíslasonar. Hann
þoldi illa að heyra bögumæli og erl-
endar slettur og brást þá stundum við
af mikilli þykkju. Hygg ég að í ritum
hans séu fáar setningar að finna sem
ekki hefðu getað staðið í einhverju
fornritanna. I þessu efni var hann
öðrum rithöfundum til fyrirmyndar
og hafði mikil áhrif á aðra höfunda,
allt frá Halldóri Laxness til minni
bóga.
Jón Helgason var tvíkvæntur.
Fyrri kona hans var Þórunn Björns-
dóttir frá Grafarholti í Mosfellssveit,
og eignuðust þau þrjú börn sem öll
lifa föður sinn. Síðari kona hans,
sem lifir eiginmanninn, var Agnete
Loth, magister og lektor við Arna-
stofnun í Kaupmannahöfn.
Jónas Kristjánsson
Kveðja frá Félagi íslenskra fræða
Jón Helgason prófessor er allur.
Drjúgum starfsdegi er lokið. Mikill
vísindamaður á sviði íslenskra fræða
er kvaddur.
Islensk fræði eru forn mennta-
grein, ein sú elsta sem stunduð er
með þessari þjóð. Svið fræðanna er
líka vítt og þeim fátt óviðkomandi er
lýtur að andlegri og verklegri menn-
ingu, tungu, bókmenntum og listum,
daglegu lífi þjóðarinnar fyrr og
síðar. Þjóðcrnisvitund og sjálfstæði
íslenskrar þjóðar er með einum eða
öðrum hætti grundvölluö á þekkingu
hennar á þessum fræðum, ást hennar
og virðingu fyrir þeim andlegu verð-
mætum sem tengja hana saman og
veita henni þor til að bera reist höfuð
í samfélagi þjóða.
Jón Helgason vann þjóð sinni mik-
ið og ósérhlífið starf á sviði íslcnskra
fræða. Vísindastörf hans og fyrir-
lestrar. Ijóð hans og Ijóðaþýðingar,
ræður, ritgerðir og bækur ætlaðar al-
menningi um Eddukvæði og íslensku
handritin eru drjúgur skerfur til
sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar.
Þeirri baráttu lýkur aldrei. Varð-
veisla þjóðernis, tungu og menning-
ar lítillar þjóðar cr eilíf barátta.
Honum var ungum falið að veita
handritasafni Árna Magnússonar
forstöðu. Þær ströngu kröfur sem
hann gerði til nákvæmni og vandaðra
vinnubragða við vísindalegar útgáf-
ur íslenskra handritatexta eru nú
fyrirmynd þeirraröflugu útgáfustarf-
semi sent stunduð er í stofnununum
tveimur, í Kaupmannahöfn og
Reykjavík, og kenndar eru við nafn
Árna Magnússonar.
Jón Helgason var fyrirlesari eins
og þeir verða bestir. Þurr fræði og
samtíningur öðlaðist líf í framsetn-
ingu hans og hann flutti mál sitt af
innlifun og kynngi sem lét fáa
ósnortna cr á hlýddu. Þeirrar listar
fcnguni við í Félagi íslcnskra fræða
að njóta er hann sótti okkur heim.
Ljóð orti hann sem greypt eru í
vitund þjóðarinnar.
Félagi íslcnskra fræða var mikill
heiður að telja Jón Helgason í sínum
röðum og vottar minningu hans
djúpa virðingu og aðstandendum
hans innilega samúð.
Sigurgeir Stcingrímsson.
BUTASALA
Nú er hægt að gera góð teppakaup
Okkar árlega bútasa/a og afsláttarsala stenduri yfir.
Teppabútar af öllum mögulegum
stærðum og gerðum með miklum
afslætti og f/ö/margar gerðir
gó/fteppa á ótrúlega góðu verði.
BYGGINGAVORURI
HRINGBRAUT120 Simar
Byggingavörur 28600
Gólfteppadeild 28603
Timburdeild ,28604- ^
Málningarvörurogverkfæri 28605
Flísaroghreinlætistæki. 28430 J