Tíminn - 23.01.1986, Síða 16
SIGURÐUR SVEINSSON kemur væntanlega til
landsins um helgina og byrjar aö æfa meö íslenska landsliöinu í
handknattleik fyrir HM í Sviss. Siguröur er búinn að eiga viö meiðsl aö
stríöa um langa hríö og óvíst hvort hann nær sér verulega á strik. Þaö
er þó vonandi því aö íslenska liðiö vantar vinstri handar skyttu til aö
bakka upp Kristján Arason í sókninni. Landsliöið er nú aö undirbúa
sig fyrir alþjóölegt mót sem byrjar í næstu viku.
Fjórðungur homma
er haldinn AIDS
- segir í skýrslu frá landlækni
Engin kjötsala
„Einn hefur dáið og einn
er með greinileg
forstigseinkenni en sjö aðr-
ir með vægar eitlastækkan-
ir. Þá eru átta sem hafa
greinst með veiruna í blóð-
inu,“ sagði Ólafur Ólafsson
landlæknir í samtali við
Tímann í gærdag, vegna
skýrslu sem embættið hefur
sent frá sér vegna AIDS á
íslandi.
í skýrslunni sem
landlæknisembættið hefur
sent frá sér kemur fram að
fimmtíu og einn kynhverfur
karlmaður hefur komið til
rannsókna hér á landi,
vegna hins banvæna sjúk-
dóms AIDS. 27,5 prósent
þeirra hafa greinst með
veiruna HTLV III í blóði
sínu. P>á hafa fimmtíu eit-
urlyfjasjúklingar, sem
sprauta sig í æð komið til
rannsókna og hefur veiran
fundist í blóði tveggja.
í hópi blæðara hafa ellcfu
manns komið til rannsókna
og þar hefur enginn greinst
með veiruna í blóði sínu.
Sömu sögu er að segja um
1900 manna hóp blóðgjafa
sem hafa verið rannsakaðir
hér á landi.
Þegar prósentuhlutfall
kynhverfra manna á íslandi
sem greinst hafa með veir-
una í sér er borið saman við
önnur Norðurlönd, Evr-
ópu, Kanada og Bandarík-
in, kemur í Ijós að við ís-
lendingar erum með næst
hæstu tíðnina. Mest er tíðn-
in meðal bandarískra kyn-
hverfra karlmanna, eða
53,6 prósent. Næstir í röð-
inni eru íslendingar með
27,5 prósent.
Það skal tekið fram að
úrtak allra landa er mjög
lágt. Til dæmis voru ekki
rannsakaðir nema 840
manns í Bandaríkjunum.
Tölur þær sem stuðst er
við í skýrslunni eru frá 15.
janúar síðastliðnum.
- ES
Beðið stimpils
lækna NATO
Lítið þokast enn varðandi
aukna sölu á íslensku kjöti til
varnarliðsins á Keflavíkur-
flugvelli. Að sögn Jóns H.
Bergs, forstjóra Sláturfélags
Suðurlands var í haust óskað
eftir að dýralæknar varnar-
liðsins tækju út hið nýja og
fullkomna sláturhús félags-
ins, sem þá var tekið í notkun
áHvolsvelli. Dýralæknarþeir
sem hér um ræðir hafa hins
dýra-
vegar aðsetur í Danmörku og
hafa ekki lagt leið sína hingað
ennþá.
Yfirmenn varnarliðsins
fóru hins vegar í skoðunar-
ferð í sláturhúsið á sínum
tíma og leist að sögn ágæt-
lega á allar aðstæður og
kvaðst Jón því ekki eiga von á
miklum athugasemdum frá
dýralæknunum.
-HEI
Hitað upp fyrir ræðukeppni. Þessi vesalings bíll varð fyrir barðinu á nemum Fjölbrautaskólans í Garðabæ, þegar þeir voru að koma sér í rétta skapið fyrir mælsku-
keppni við MR sem fer fram í kvöld. Hvort höggin verða jafn þung þegar í pontu er komið skal ósagt látið. Tímamynd: Sverrir
Samstarfsráöherrar
Norðurlanda:
Aukið samstarf
í sjávarútvegi
Ákveðið hefur verið að
koma á fót embættis-
ntannanefnd til að vinna að
auknu samstarfi milli
Norðurlandanna í rann-
sóknarstarfi á sviði sjávar-
útvegs. Halldór Ásgríms-
son sjávarútvegsráðherra,
sem er nýkominn af fundi
samstarfsráðherra Norður-
landa, þar sem fjárhags-
áætlun fyrir 1987 var á
dagskrá, sagði í samtali við
Tímann í gær að samþykkt
hefði verið að veita fé til
rannsóknarstarfsemi, fiski-
ræktar og ýmissa annarra
ntála sem tengdust sjávar-
útvegi. Halldór sagðist
telja að mikil nauðsyn væri
á að auka samstarfið á
þessu sviði, við gætum ým-
islegt lært af nágrönnum
okkar í slíkri samvinnu og
þeirafokkur. „Sannleikur-
inn er sá að hinar Norður-
landaþjóðirnar vilja auka
fjármagn til samnorrænna
verkefna og við meguni
passa okkur á að verða ekki
útundan í því starfi. Það er
auðveldara að tryggja fjár-
magn ef við erum saman í
þessu, en ef við erum sitt í
hvoru lagi,“ sagði Halldór
ennfremur.
-BG
Árið 1985 mesta slysaárfrá upphafi í umferðinni:
Um 130 fleiri slös-
uðust en árið 1984
- 2500 ungmenni eiga eftir aö slasast
í umferðinni fram til aldamóta!
Tæplega 900 manns slösuð-
ust í umferðinni á síðasta ári,
samkvæmt bráðabirgðaskrán-
ingu umferðarslysa hjá lögregl-
unni, og er það mesti fjöldi sem
slasast hefur á einu ári frá upp-
hafi bílaaldar.
Árið 1985 urðu slys með
meiðslum í umferðinni 595
samkvæmt bráðabirgðaskrán-
ingunni, af þeim voru 23
dauðaslys. í þessum slysum
slösuðust 889, þar af létust 23,
375 hlutu alvarleg meiðsli og
514 minni háttar meiðsli. Sam-
bærilegar tölur frá arinu 1984,
sem var mesta slysaárið fram
að því, eru 762 slasaðir, í 527
slysum, þar af létust 27, 419
hlutu alvarleg meiðsl og 343
minni háttar meiðsl.
„Við hljótum að þurfa að
staldra við, hvert og eitt, ekki
aðeins umferðaryfirvöld, og
hugleiða þessi mál,“ sagði Óli
H. Þórðarson, framkvæmda-
stjóri Umferðarráðs þegar
Tíminn bar þessar slysatölur
undir hann.
„Ef við lítum 14 ár fram á
veginn, til aldamóta, má sam-
kvæmt tölfræðinni búast við að
336 deyi í umferðarslysum hér á
landi, en á undanförnum árum
hafa að jafnaði látist 24 árlega í
umferðarslysum. Og tölfræðin
sýnir líka að aldurshópnum 17-
20 ára er afar hætt í umferð-
inni. Þaðan koma 23-24% af
því fólki sem slasast. Það má bt
ast við að 2500 ungmenni slasist
í umferðarslysum fram að alda-
mótum og allt að 60 láti lífið.
Og þessi hugsun verður enn
óhugnanlegri þegar litið er til
þess að allt þetta fólk er fætt og
er á meðal okkar nú.“
- GSH