Tíminn - 26.01.1986, Síða 2
2Tíminn
Sunnudagur 26. janúar 1986
c
o
<f,)
05
/O
'0
n
1
(o
<
C
'0
”D
ö)
0
c
0
(0
w
'6)
LU
'C
s03
E
cn
05
C
c
D
O
c
o
</)
w
a
c
0)
05
■
<
■ ■
c
o
’öT
E
D
I
(/)
c
05
E
h
*o
_C0
JD
5_
05
O)
0
I
Herra og frú „cool“
timamyndir-Róbert
Félagar í blaðamannafélaginu fögnuðu
því um síðustu helgi að þeim hefur
áskotnast afdrep þar sem þeir geta í
framtíðinni útkljáð sín mál. Fyrirhugað
er að nýta húsnæðið í framtíðinni til
félagsfunda og námskeiða auk þess
sem heit mál verða tekin fyrir á opnum
fundum.
Um síðustu helgi mættu blaðamenn af
öllum blöðum í afdrepið sem hefur það
volduga nafn „The lcelandic
Pressclub“. Lítið fór fyrir heitum málum
en þeim mun meir um góðlátlegt hjal yfir
glasi af appelsínusafa.
A myndinni hér að ofan má sjá Fríðu
Björnsdóttur, starfsmann félagsins,
Kára Jónasson á útvarpinu, Eirík Jóns-
son á DV og ritstjórann okkar á Tíman-
um hann Helga Pé. Síðan má sjá Magn-
ús Jónsson á Morgunblaðinu á bak við
ritstjórann.
0PNUÐ
Söngbók Gunnars Þórðarsonar
var frumsýnd í Broadway síðastlið-
inn laugardag við mikinn fögnuð.
Þar öðluðust nýja lífdaga fyrir-
brigði á borð við Hljóma, Trúbrot,
ðe lónlí blú bojs og dúettinn Þú og
ég. Og öll voru lögin eftir Gunnar
Þórðarson.
Þetta er viðamesta sýning sem
sett hefur verið upp í Broadway og
það hefur verið mikið tilstand að
safna santan kröftum til þess að.
standa að henni. Meðal þeirra sem
koma fram eru ErlingurBjörnsson
og Gunnar Jökull sem hvorugur
hefur komið á svið í háa herrans
tíð.
Það eru um fjörutíu lög flutt á
sýningunni og öll í svipuðum út-
setningum og þau voru í þegar þau
slóu ígegn. Gamliraðdáendurgeta
því fellt tár yfir „Bláu augunum
þínum" og fleiri „ellismellum".
Myndirnar hér til hliðar voru
teknar uppí Broadway á frumsýn-
ingardaginn. 8se
Skálað fyrir vel heppnaðri syningu. T.f.v. Pálmi Gunnarsson, Páll Þorsteinsson kynnir,
Egill Ólafsson, Gunnar Þórðarson, Shady Owens, Rúnar Júlíusson og Gunnar Jökull.
Söngbókarhöfundurinn
ásamt foreldrum sínum
og konu. T.f.v. Faðir
Gunnars, Þórður
Björnsson, leigubílstjóri,
móðir Gunnars Guðrún
Guðbjörnsdóttir, Gunnar
sjálfur Þórðarson og
kona hans Toby
Herman
SÖNG-
BÓKIN
Zia Mahmoud
einn af þekktustu
spilamönnum
heims á Bridge-
hátíðinni '86.
Undrandi á fjölda sterkra
bridgemanna
Á bridgemótinu sem haldið var að Hótel
Loftleiðum nú í vikunni mátti sjá mörg
þekkt nöfn úr hópi bridgespilarar í heim-
inum.
Einhver þekktasti spilarinn að öðrum ól-
östuðum er Pakistaninn Zia Mahmoud en
hann gerir ekkert annað en að ferðast
heimshorna í milli og taka þátt í mótum.
í Lundúnum er hann á samningi við ák-
veðin spilavíti þar sem fólk borgar um 30
þúsund krónur fyrir það eitt að setjast niður
með honum og taka í spil en síðan er lagt
undir og í mörgum tilvikum allt að 12 þús-
und krónum á punkt.
Zia segir að sér og fleiri erlendum kepp-
endum sem hann hafi talað við hafi komið á
óvart hversu mikið sé af frambærilegum
bridgespilurum á íslandi.
„Maður bjóst við einni til tveimur sveit-
um sem væru góðar en þær sem á eftir kæmu
væru mun lakari en svo virðist ekki vera.
Hér eru margar sveitir sem telja verður
mjög góðar.
Skipulagning þessa móts er líka til fyrir-
myndar og reyndar betri en ég hef áður
kynnst. Útreikningar liggja strax fyrir en
víða annars staðar vill verða misbrestur á
því.
Ég vil líka nota tækifærið og koma á
framfæri þökkum fyrir einstaklega hlýjar
móttökur sem eru þannig að þær ylja manni
um hjartaræturnar,“ sagði Zia að lokum.