Tíminn - 26.01.1986, Side 3
Sunnudagur 26. janúar 1986
Tíminn 3
Dansaðá
Hótel KEA á Akureyri hefur tek-
ið gagngerum breytingum síðustu
mánuði. Það má með sanni segja að
þar sé komið nýtt vín á gamlan belg,
því að lítið er orðið eftir af gamla
hótelinu nenia útveggirnir. A
„garnla" KEA voru iðulega böll um
helgar og meiningin er að í nýju sal-
arkynnunum verði stiginn dans á laug-
ardagskvöldum í framtíðinni. KEA
böilin voru samastaður „eldi" kyn-
slóðarinnar, svona frá þrítugu og
uppúr og þegar fyrsta ballið var hald-
ið eftir breytinguna, virtist þessi
breiði og síungi hópur halda tryggð
við staðinn.
Tíðindamaður ræddi við fjölda-
marga samkomugesti og voru þeir í
Sigurður Björnsson framkvæmdastjóri Sinfóníunnar býður Ungfrú
heimi Hólmfríði Karlsdóttur að endurtaka steðjaleikinn eftir magnað-
ar undirtektir áhorfenda.
Vínarstemmning
í síðustu viku sveif vínar-
stemmning yfir vötnunum í Há-
skólabíói. Sinfóníuhljómsveit ís-
lands lék þá Vínartónlist undir
stjórn Gerhard Deckert eftir Jo-
hann Strauss og Robert Stolz. Ein-
söngvari á tónleikunum var þýska
messó-sópran söngkonan Katja
Drewing.
Sérstakur heiðursgestur á tón-
leikunum var Ungfrú heimur
Hólmfríður Karlsdóttir sem lék á
steðja með hljómsveitinni við það
mikinn fögnuð áheyrenda að þeir
linntu ekki látum fyrr en hún hafði
endurtekið spilið.
Mikil gleði skein af gestum tón-
leikanna og ekki minnkaði fjörið
þegar þeir fóru og fengu sér aust-
urrískt miðnætursnarl í Átthagasal
Hótel Sögu eftir tónleikana.
Myndirnar hér á síðunni voru
teknar á fimmtudag í síðustu viku
þegar tónleikarnir voru frumfluttir
en vegna mikillar aðsóknar varð að
endurtaka þá á laugardaginn.
gse
Rúnar Bjarnason slökkviliðsstjóri var mættur á tónleikana ásamt
konu sini Guðlaugu.
Hjónin Margrét Matthíasdóttir og Ásbjörn Magnússon skála fyrir
Vínarstemmningunní í HáskÓlabtÓÍ. Tímamyndir: Ami Bjama
hæsta máta Iukkulegir með staðinn.
Það má scgja að það séu sérstaklega
þrjú atriði sem skara frarnúr á þess-
um skemmtistað. í fyrsta lagi hefur
það kraftaverk gerst að þó að hljórn-
sveitin þenji tól og tæki af öllum lífs
og sáiarkröftum er í hinum enda sal-
arins hægt að eiga samræður án þcss
að æpa sig hásan eins og landlægt er á
íslenskum skemmtistöðum. í öðru
lagi er loftræstingin mjög góð og síð-
ast en ekki síst var skynsamlegum
fjölda hleypt inn í danssalinn. Öll
eru þessi atriði til fyrirmyndar öðr-
um veitingamönnum.
Hótelstjórar KEA eru þau hjónin
Kristján Jónasson og Ólöf Matthías-
dóttir. Mér tókst að króa Kristján af.
eitt augnablik og spyrja hann um
framtíðina hjá Hótelinu.
„Það er mikill hugur í okkur,"
sagði Kristján. „Þetta hefur verið
gífurleg endurbygging og henni er
ekki lokið, við getum nú boðið uppá
mjög góða ráðstefnu og fundarað-
stöðu sem hægt er að sníða cftir mjög
mismunandi þörfum. Veitingastað rek-
um við að sjálfsögðu, í hluta nýja sal-
arins. Þar leggum við áherslu á topp-
mat og þjónustu. Öll herbergin eru
ný, og sífellt bætast fleiri við, þau
verða hundrað þegar viðbygging-
unni við hótelið verður lokið. Þau
verða búin öllum nútíma þægindum
eins og best gerist annarsstaðar á
landinu. Nú ég er bjartsýnn á sumar-
ið það er þegar töluvert búið að
bóka," sagði Kristján að lokum og
var þotinn með það sama. Samkomu-
gestir dönsuðu fram eftir nóttu og
skemmtu sér hið besta eins og mynd-
irnar bera vitni um HIH/AK
Dansinn dunaði fram eftir nótfu undir stjórn hljómsveitarinnar París-
ar.
Það var glatt á hjalla og mikið hlegið á þessum fyrsta dansleik eftir
endurbæturnar á hótelinu. Menn sögðu ekki gleðilegt ár við hvern
annan heldur „gleðilegt KEA“.
HVAÐER
MEIBÓK?
■ Metbók er ný 18 mánaða sparibók
sem tekur við af 18 mánaða spari-
reikningum.
■ Metbók mætir óskum þeirra
sparifjáreiqenda, sem vilja fylgjast
með stöðu sparifjár síns með innfærsl-
um í sparibók í stað skírteina,
kvittana og yfirlita á lausum blöðum.
■ Metbókin stendur svo sannarlega
undir nafni - því 18 mánaða spari-
reikningar gáfu 7,04% vexti umfram
verðtryggingu á
síðasta ári.
■ Enginn spari-
reikningur gaf
jafnháa ávöxtun
miðað við
binditíma.
BUNAÐARRANKIISLANDS
TRAUSTUR BANKI