Tíminn - 26.01.1986, Síða 4
4 TímirírV
Sunnudagur 26. janu'ar i Óðfe
ÞAD SEM
FÓLK VILL
Rætt viö Rolf Johansen um sjónvarpsrekst-
ur, hvað oröið hafi um sjónvarpsstöðina
sem hann og Jón Ragnarsson voru með í
bígerð og hugsanlegar fimmtudagsútsend-
ingar
„Viö erum alvcg búnir að gefa
liugmyndina um sjónvarpsstöð upp á
bátinn," sagði Rolf Johansen, heild-
sali, þegar Tíminn forvitnaðist um
hvernig áformum Itans um rekstur
sjónvarpsstöðvar liði. „Þetta var
miklu dýrara en við hcldum í upphafi
og svo eru tekjumöguleikarnir
ekkert til þess að hrópa húrra fyrir"
bætti hann viö.
Rolf og félagi hans Jón Ragnars-
son vcitingamaður í Valhöll og eig-
andi Regnbogans voru meðal þcirra
sem gældu viö hugmyndina um
rckstur sjónvarpsstöðvar þegar frctt-
ist að brátt yrði cinkaréttur Ríkisút-
varpsins afnuminn.
Eins og menn muna varð uppi fót-
ur og fit þcgar fréttin barst út og
margir létu sig dreyma um að koma á
fót útvarpi. Flestir létu sér nægja að
hugsa til hljóðvarps en þó voru
nokkrir aðilar sem hugðu á sjón-
varpsrekstur.
Öflugastur þeirra er sjálfsagt ís-
film mcð sterka aðila á bak við sig;
Sambandið. Reykjavíkurborg, Ár-
vak og Frjálsa fjölmiðlun. En nú
virðist þctta fyrirtæki vcra að liðast í
sundur og því alsendis óvíst um
framhald þess cða hvort það muni á
cndanum hafa bolmagn til þess að
rcka sjónvarpsstöð.
Enginn lukkupottur
Þegar Rolf var spurður að því
hvað hcfði valdið því að þcir Jón
gáfu sjónvarpið upp á bátinn sagðí
hann að sú stöð sem þeim stóð til
boða og hefði náð yfirStór-Reykja-
víkursvæðið hefði kostað 12 milljón-
ir.
„Þá á eftir að setja hana upp,
koma yfir hana húsi og manna hana.
Síðan er allt efni sem á að sjónvárpa
eftir að viðbættri þýðingu. Einu
tekjumögulcikarnir sem eiga að vega
upp á móti þessum kostnaði eru aug-
lýsingar og mér sýnist að sá markað-
ur eigi eftir að verða ansi þröngur
þegar allir fara af stað með útvarps-
og sjónvarpsstöðvar.
Það gcngur kannski fyrir sterka
aöila eins og ísfilm sem hefur innan-
borðs aðila eins og Sambandið sem
gæti beint sínum auglýsingum á sína
stöð. En ég auglýsi ekki það mikið að
það standi undir hcilli sjónvarps-
stöð.
Það þýðir ekkert að vera að fara af
stað með svona stórt fyrirtæki nema
að sjá fyrir endann á því. Og það var
Itka annað en rekstrargrundvöllur-
inn sem fékk okkur til þess að hugsa
okkur um tvisvar. Nú cru tæknifram-
farir á þessum sviðum svo örar aö
maður þarf ekki ncma að blikka aug-
unurn til þess að sjá breytingu.
Sjáðu til dæmis Hótel Holt. Þeir geta
nú boðið upp á einar sjö sjónvarps-
dagskrár. Tíu fjölskyldur í sama
stigaganginum geta komið sér upp
skerm án þess að það kosti svo mikið
á hvcrn.
Þannig að þeir sem ætla sér í sjón-
varpsrekstur eru að renna algerlega
blint í sjóinn og hætta mun stærri
pcningafúlgum en ég mundi vilja
gera.“
Er þá draumurinn búinn?
Fimmtudags-sjónvarp
„Nei, ekki alvegþ sagði Rolf og
bætti við, „við sendum útvarpsstjóra
bréf þar scm við óskuðum eftir við-
ræðum um að fá leigðan útscnding-
artímann á fimmtudögum. Mcð
tækjum, dreifikerfi, mannskap og
öllu. Við höfum ekki fengið svar
ennþá en hann tók ekkcrt illa í þetta
þegar við ræddum við hann."
Og hvað ætlið þið að sýna á
fimmtudögum?
„Sama og stóð til að sýna í sjón-
varpsstöðinni. Létt og skemmtilegt
efni sem gerir menn ekki leiða.
Engilsaxneska spurningaþætti,
skemmtiefni, kvikmyndir og svo að
sjálfsögðu framhaldsþætti. Við
mundum byrja að senda klukkan 2
og halda áfram slcitulaust til mið-
nættis. Það er svo mikið af gömlu
fólki sem hefur ekkert við að vera á
daginn og vildi gjarnan hafa sjón-
varpið til þess að létta sér stundir.
Það er til alveg ógrynni af
skemmtilegu efni sem íslenska sjón-
varpið sýnir ckki."
Er þér illa við dagskrá sjónvarps-
ins?
„Ekkert ógurlega. En við getum
spurt okkur aö því hvernig stendur á
því að fólk er svona sjúkt í video-
leigurnar. Ef við skoðum dagskrána
á laugardögum þá byrjar hún á mynd
um kynlíf rottunnar, síðan kemur
tékknesk bíómynd og svo er endað á
gömlu, endursýndu efni. Þaðerekki
einu sinni horft á þessa þvælu. Fólk
fer miklu heldur út í búð og fær sér
Jeigða spólu.
Svo er íslenska efnið sem búið er
til ekkert sem bætir þetta. Sjáðu til
dæmis Draugasögu. Norðmenn urðu
bara reiðir þegar þcir sáu þessi ósköp
og vildu skrúfa fyrir allt samstarf
jNorðurlandanna til þess að hindra
áð annað eins kæmi fyrir aftur. Þetta
cr til þess að ergja fólk."
Ertu með einhverja „Murdock"
drauma. Kaupir stóran hlut í Helg-
arpóstinum um leið og þú ráðgerir
sjónvarpsstöð?
Sjónvarps-sjúklingur
„Nei, elskan, langt því frá. Strák-
arnir á Hclgarpóstinum komu til mín
og spurðu hvort ég vildi vera með og
ég spuröi hvað þeir vildu mikið. Þeir
sögðu fimm hundruð svo ég lét þá fá
fimm hundruð. En ég skifti mér
ekkert af því sem þeir eru að gera.
Með fyrirtækið okkar Jóns,
ísmann, þá er þetta bara leikara-
fyrirtæki. Einskonar hobbý.
Ég hef alltaf haft gaman af sjón-
varpi. Sumirsafna frímcrkjum, ann-
ar hefur gaman af einhverju öðru, en
mér finnst gaman að horfa á
sjónvarp. Það má segja að það sé far-
ið illa með tímann en ég geri þá ekk-
ert verra á meðan.
Ég er búinn að fá senda dagskrá
BBC frá Englandi í ein tíu ár, tutt-
ugu tíma á viku, og horfi alltaf á
hana. Þannigerað þaö er vinur minn
sem tekur alltaf upp fyrir mig og
kunningjana tíu spólur og sendir
okkur og við sendum honum svo til
baka íslensku dagskrána. Mér finnst
það léleg býtti en hann er hæstánægð-
ur.
Þannig að ég þekki BBC út og inn
og hef séð þar heilmikiö af efni sem
aldrei sést í íslenska sjónvarpinu,
því miður. Það hefur til dæmis ver-
ið þáttur í „Pepper Mill nr. 1“ í
nokkra mánuði sem Magnús
Magnússon sér um. Helvíti góðir
þættir. Hann fjallar alltaf um ísland í
hverjum þætti í 12 nrínútur eða svo.
Þetta ætti sjónvarpið að sýna.
Ég lánaði honum Bjarna Felixsyni
„The World Strongest Man" með
Jóni Páli núna um daginn. Svona efni
vantar í íslenska sjónvarpið. Ef ég
væri útvarpsstjóri mundi ég byrja að
sjónvarpa á hádegi á laugardögum
og sýna íþróttir allan daginn. Billi-
ardþætti, siglingar, veðreiðar og
hundakapphlaup. Ekki alltaf þenn-
an fótbolta og handbolta sem allir
eru orðnir hundleiðir á.“
Falcon Crest
Hvað er þá framundan hjá
fsmann?
„Við höldum áfram að flytja inn
video-spólur. Það er að koma ný
sending af Falcon Crest sem hefur
ekki verið fáanleg lengi því fólk vill
horfa hraðar á þetta efni en tekur að
framleiða það. Það sýnir að það er
eitthvað að dagskránni hjá Sjónvarp-
inu. En það eiga sjálfsagt eftir að
verða einhverjar breytingar á þess-
um markaði með breyttri tækni.
Þetta er ekki mjög stöðugt því um
leið og maður blikkar augunum er
komið eitthvað nýtt. Svo bíðum við
eftir svari frá útvarpsstjóra."
Býstu við að það verði jákvætt?
„Ég hcf talað við nokkra topp-
menn hjá Sjónvarpinu og þeir hafa
allir tekið vei í þetta. Ef ég væri út-
varpsstjóri þá væri ég ekki lengi að
leigja út tíma sem mér nýtist ekki.
Það er bara bissnissvit.
FIMMTUDAGS
SJÓNVARP?
Markús Örn Antonsson, útvarpsstjóri, spurður um hugmyndir Rolfs
Johansen um útsendingar á fimmtudögum.
Tíminn náði tali af Markúsi Erni
Antonssyni, útvarpsstjóra, og spurði
hann hvort ráðamenn útvarpsins
hefðu tekið ósk Rolf Johansen um
sjónvarpsútsendingar á fimmtudög-
um til umfjöllunar.
„Það er nú fleira sem blandast inn
í þctta," sagði Magnús, þannig að
það hefur ekki verið liægt að taka
þetta sérstaklega útúr. Ég hef sagt
Rolf frá því að meðal annars vegna
þeirra umræðna sem hafa verið um
Noröurlanda-sjónvarp og óviss-
unnar um hvernig menn hyggjast
taka á móti því hér og koma því
áfram til íslenskra notenda ef af því
samstarfi verður, þá sé ekki tíma-
bært að fjalla um þessa ósk hans
einhliða. En það verður litið á þessi
mál í samhengi fljótlega."
- En má þá búast fastlega við því
að það verði send út sjónvarpsdag-
skrá á fimmtudögum?
„Ég get nú ekki sagt til um það. Nú
þegar verið er að tala um Norður-
landa-sjónvarp á undirbúningsstigi
þá er verið að tala um 60 útscnd-
ingartíma á viku á tveim dagskrám.
En ég veit ekki hvernig það kemur til
með að líta út á endanum. Það er
hins vegar gert ráð fyrir þessum út-
sendingum í þeim áætlunum sem fyr-
ir liggja núna. En hvort það verður í
raunveruleikanum veit maður nátt-
úrlcga ekkert um eða hvort yfirleitt
verður af þessu samstarfi."
Hvenær má búast við því að það
komi á hreint?
„Það verður líklega núna í apríl".
En ef að þið finnið ekki not fyrir
fimmtudagana cr þá ekki erfitt að
hafna Rolf?
„Ég geri nú ráð fyrir því að það
yrði leitað eftir því hvort það væru
flciri aðilar sem hefðu áhuga á svona
samstarfi. Þó það beri náttúrlega að
meta það frumkvæði scm hann hefur
sýnt þá held ég aö það yrði ekki talið
eðlilegt að útsendingarbúnaði sjón-
varpsins væri ráðstafað án undan-
genginna auglýsinga á því að hann
væri laus til slíkra afnota".
En það er ekkert sem stendur í
vegi fyrir því að leigja út búnað sjón-
varpsins til utanaökomandi aðila á
fimmtudögum?
„Það cr í nýju útvarpslögunum
hcimild til þess og þar er það tekið
sérstaklega fram að slíkt sé mögu-
legt."