Tíminn - 26.01.1986, Side 10
lOTíminn
Sunnudagur 26. janúar 1986
Tíminn „fær sér í nös“ á
veitingastað í borginni
og kemst upp með það
ENGIN
VIÐBRÖGÐ
Texti: Gunnar Smári Egilsson
Um sí&ustu helgi var lokað á
Hótel Borg að kröfu lögreglustjór-
ans í Reykjavík. Ástæðan var
me&al annars sögð sú að helgina
á undan hefði þar farið fram neysla
fíkniefna. Tekjutap Borgarinnar
er áætlað allt a& 2 milljónum
vegna þessa.
Tímamynd: Róbert
t »mtw -v ■<■■•
Veitingamenn eru uggandi um að þeir
verði hengdir fyrir syndir annarra.
„ Verður aldrei hægt að útrýma
ósómanum “ segir fíkniefnalögregla
Þorsteinn Geirsson ráðuneytisstjórl í dómsmálaráðu-
neytinu skorar á almenning að taka höndum saman og út-
rýma ósómanum.
Tímamynd: Sverrir
Fólk virðist ekki kippa sér upp við
það að maður sem situr við sama
borð og það á veitingahúsi taki upp
hvítt duft, móti það í línu með rak-I
vélablaði, vefji upp þúsundkróna-
seðli og sjúgi duftið upp í nefið.
Þetta var allavega reynsla blaða-
manns er hann fór á einn skemmtistað
borgarinnar vopnaður lyftidufti í Iít-
illi öskju, rakvélablaði og síðasta
þúsundkrónaseðlinum sínum.
Ráðuneytið grípur í
taumana
Eins og heyrst hefur í fréttum hef-
ur dómsmálaráðuneytið sent veit-
ingamönnum bréf þar sem það hvet-
ur þá til þess að fyrirbyggja neyslu
fíkniefna í sínum húsum. Að öðrum
kosti eigi þeir á hættu að húsunum
verði lokað um lengri tíma.
f frétt frá dómsmálaráðuneytinu
er ástæða bréfsins tilgreind. Þar sgir:
„Af nýlegum skýrslum frá lögregl-
unni í Reykjavík kemur fram að
nokkur brögð hafi verið á því að veit-
ingahúsagestir hafi sjáanlega verið
undir áhrifum fíkniefna auk þess
sem að dæmi eru nefnd um að fíkni-
efna hafi verið neytt í veitingasölum.
Hefur ráðuneytið lagt á það áherslu
að gerðar séu af hálfu lögreglustjóra
viðeigandi ráðstafanir gagnvart við-
komandi veitingahúsum með
áminningum, takmörkunum eða
stöðvun veitingastarfsemi. Verði
fíkniefnaneysla látin viðgangast
varði það sviftingu opinberra starfs-
leyfa“.
Fyrstu aðgerðir lögreglustjóra eft-
ir að þetta bréf kom í hendur veit-
ingamanna var að loka Hótel Borg
um síðustu helgi. Þó aðalástæðan
hafi verið sögð sú að of margt fólk
hafi verið þar inni helgina á undan er
þess einnig getið að það hefði mátt
sjá á mörgum gestanna að þeir hafi
neytt einhverra annarra vímuefna en
áfengis.
„Mér finnst að það hafi verið kom-
ið aftan að okkur,“ sagði Jóhann
Steinsson veitingastjóri á Hótel Borg
þegar Tíminn hafði samband við
hann, „hér var ekki tekin skýrsla af
nokkrum manni helgina á undan og
eina sem lögreglan sagði var að hún
hefði þekkt nokkra kunna fíkniefna-
neytendur. En við höfum ekki þau
gögn í höndunum sem þeir hafa og
getum því ekki þekkt þetta fólk út úr
stórum hóp. Þeir verða því að láta
okkur í té myndamöppúr og við yrð-
um síðan að fletta þeim upp til þess .
að hindra það að einhverjir af góð-
kunningjum lögreglunnar slæðist
ekki með. Við erum engir sér-
fræðingar í fíkniefnum og ég per-
sónulega þekki ekki kannabislykt frá
lykt af „Half & Half“.
Þar til við verðum fræddir um
þessi mál finnst mér hálfeinkennilegt
að gera okkur ábyrga. Við vitum til
dæmis ekki hvernig við eigum að
taka á þessu máli nú um helgina.
Hins vegar voru of margir í húsinu
um þessa helgi og við munum passa
okkur á því að það komi ekki fyrir
aftur.“
Þegar Jóhann var spurður að því
hversu mikið tap Hótel Borgar væri
vegna þessara aðgerðasagði hann að
ómögulegt væri að segja til um það
því það færi eftir aðsókn sem gæti
verið ansi misjöfn.
Annar veitingamaður sem Tíminn
hafði samband við sagði að Borgin
hefði þarna orðið af um 1 1/2-2 millj-
ónum í brúttó-tekjur.
Hvererástæðan?
En hvað liggur að baki bréfi dóms-
málaráðuneytisins?
Að því má leiða getur að fíkni-
efnaneysla sé orðin það algeng að
fólk, og þar með taldir veitinga-
menn, sé hætt að kippa sér upp við
hana og láti eins og hún komi því
ekki við. Að hér sé ugi mál hvers og
eins að ræða; einkamál sem frekt er
að hnýsast í.
í þessari afstöðu hlýtur að felast
viðurkenning á fíkniefnum sem sjálf-
sögðum hlut er ekki tekur að sporna
gegn. Þetta viðhorf verður æði ann-
arlegt í Ijósi þess að mikill meirihluti
þjóðarinnar lítur á fíkniefni sem
greiða leið til glötunar og eitt alvar-
legasta vandamálið sem við er að
glíma í dag. Það ætti því varla að
vekja furðu þó ráðuneytið reyni að
finna leiðir til þess að snúa þessari
þróun við.
Þegar þessi mál eru hugleidd er
auðvelt að lenda í því að draga al-
i mennar ályktanir. Er spumingunni „Á
ég að gæta bróður míns“ nú æ oftar
svarað neitandi? Því þrátt fyrir að
þeir sem neyta fíkniefna gerist brot-
legir við lög þá var ástæðan fyrir
lögunum sú að gera fólki torveldara
að eyðileggja líf sitt. Ef afstaðaal-
mennings er orðin sú að því komi
ekki við og eigi ekki að skipta sér af
þó náungi þess sé að leika sér að
eldinum þá hefur hann beðið sið-
ferðilegt skipbrot.
„Aðfásérí ranann“
Til að sannprófa viðbrögð al-
mennings fór útsendari Tímans af