Tíminn - 26.01.1986, Side 13
Sunntfdagur 26. janúar 1986
Tíminn 13
Revíuleikhúsið:
Skrítnar íslenskar skottur í Breiðholti
t>að var mikið um að vera þegar
Tíminn leit við á æfingu Revíuleik-
hússins á íslenska barnaleikritinu
Skottuleik í Breiðholtsskóla. Skott-
urnar þrjár sem þær Guðrún Al-
freðsdóttir, Guðrún Þórðardóttir og
Saga Jónsdóttir leika voru klæddar í
litríka búninga og biðu þess að
smiðshöggið væri lagt á leikmynd-
ina, sötruðu kaffi og hlógu. Brynja
Benediktsdóttir höfundur leikritsins
og leikstjórinn þaut um salinn og
fann til stórt segulband sem hún setti
í samband. Að því búnu vippuðu
skotturnar sér upp á svið og fóru að
syngja. „Ég er skotta, ég er skotta,
ég er lítil skotta." Við Brynja sett-
umst hlið við hlið og hófum spjaliið.
Ég samdi þetta leikrit fyrir
þessar 3 leikkonur Revíuleikhúss-
ins,“ sagði hún ákveðin, „og hafði í
huga þjóðsögurnar. Leikritið fjallar
um nútímaskottur, borgarskottur
sem notfæra sér það sem fólk fleygir.
Þeim finnst gaman að lifa, syngja og
dansa en það eina sem þær vantar er
húsnæði, og koma sér því fyrir eina
nótt í vinnupöllum borgarinnar."
Brynja segir að þær séu í sömu að-
stöðu og öll leikhúsin sem þurfa að
bjarga sér. „Kannski er þetta fram-
hald af stöðu okkar í leikhúsinu,"
segir hún og brosir, og segist sjálf
hafa farið í fataskápa og ruslatunnur
vina sinna og hirt þar ýmislegt fyrir
utan húsin þeirra svo þessi leiksýning
gæti orðið að veruleika. „Svo bauðst
okkur að sýna forsýningu á þessu
verki fyrir íslensku krakkana í Lux-
emborg og þau voru óskaplega hrifin
og stuðluðu að því að við gætum
haldið áfram með sýninguna.“
Karl Ágúst Úlfsson samdi söng-
texta, Jón Ólafsson (á rás 2) samdi
tónlistina, David Walters sá um lýs-
ingu, búningar eru eftir Unu Collins
og leikmyndin eftir Brynju Ben-
ediktsdóttur.
„Verkið verður sýnt allar helgar,"
segir Brynja og bætir því við að þau
séu mjög hrifin af þessu leikhúsi í
Breiðholtsskóla í neðra Breiðholti.
Inúk-hópurinn hafi í upphafi m.a.
sýnt í því.
Frumsýning var laugardaginn 18.
janúao
Litla skutta, stóra skotta og fína
skotta eru skrítnar skottur sem finnst
alveg óskaplega gaman að lifa
syngja, hlæja og dansa og skeinmta
litlum og stóruni krökkum á öllum
aldri. Tímamynd: Árni Bjarna.
Endurnýjun áskriftarkorta - Sinfóníuhljómsveit íslands
Fimmtudagstónleikar - SÍÐARA MISSERI
6. febr. Stj. Jean-Pierre Jacquillat: Einl. Nancy Weems, pí-
anó. Efnisskrá: Atli H. Sveinsson : Mozart: Kodaly.
20. febr. Stj. Klauspeter Seibel: Kór ísl. óperunnar: einsöng-
varar Carloff: Carmina Burana
6. mars Stj. Jukka Pekka Saraste : Einl. Janos Starker, selló.
Efnisskrá : Jón Leifs : Prokofief: Brahms.
20. mars Stj. Thomas Sanderling : Einl. Szymon Kuran, fiöla.
Efnisskrá : Beethoven : Szymanowski: Wagner.
3. apr. Stj. Frank Shipway: Einl. Martin Berkofsky, píanó. Efn-
isskrá : Rachmaninov : Sjostakovits.
17. apr. Stj. Páll P. Pálsson : Eins. Ellen Lang. sópran. Efnis-
skrá : Páll P. Pálsson : Sibelius
15. maí. Stj. Davíö Robertsson: Einl. Manuela Wiesler. Efnis-
skrá: Þorkell Sigurbjörnsson: Sandström: Prokofief.
22. maí. Stj. Jean-PierreJacquillat. Efnisskrá: Ravel: Berlioz.
Nýir áskrifendur velkomnir - Greiðslukortaþjónusta.
Endurnýið áskriftarkortin fyrir 31. janúar í Háskólabíói alla virka daga kl. 14.00-18.00.