Tíminn - 26.01.1986, Síða 26
26 Tíminn
Sunnudagur 26. janúar 1986
Indverski meinlæta-
maöurinn Ramand
Yogi dvelst fjórar
vikur grafinn í jöröu
sér til lækningar og
sáluhjálpar.
Sá sem hér liggur grafinn lifandi
með aðeins hendurnar upp úr jörð-
inni er indverskur meiniætamaður
að nafni Ramand Yogi og er 46 ára
gamall og býr í Knapur, á Indlandi.
Hann hefur dvalist á þennan hátt
neðanjarðar í allt að 28 daga
samfleytt án þess að neyta matar
eða drykkjar og án þess að í raun-
inni geta dregið að sér andann.
Vísindamönnum hefur verið það
ráðgáta hvernig meinlætamönnum
eins og Ramand Yogi tekst að
hægja svo á líkamsstarfsemi sinni
að þeim reynist unnt að lifa af
sjálfspyntingar sem þcssa.
Það hefur einnig gert mönnum
erfitt fyrir að slíkir menn cru gjarn-
an tregir til að gangast undir rann-
sóknir sem þeir telja ónauðsynleg-
ar og hafi ekkert gildi.
Einstaka sinnum hefur þó vís-
indamönnum tekist að vinna trún-
að þessara manna og fengið þá til
liðs við sig og vísindin.
Öruggustu tilraunirnar af þessu
tagi eru þær sem framkvæmdar eru
í sérstökum rannsóknarstofum þar
sem þeir, sem að rannsóknunum
standa, geta ráðið sem flestum
„breytum“ eins og það heitir á máli
vísindamanna.
Dr. Nigel Calder við Mcnningar-
vísindastofnunina í Kansas í
Bandaríkjunum tókst að fá Ra-
mand Yogi í lið með sér og Calder
og aðstoðarfólk hans hófst handa
við að koma upp vinnustofum þar
sem líkt er eftir þeim aðstæðum
sem eru úti í náttúrunni þar sem
Ramand Yogi lætur grafa sig lif-
andi.
Á rannsóknarstofunni í Nýju
Delhi var komið fyrir stóru loft-
þéttu járnbúri og Ramand Yogi
lokaður þar inni. Með því að festa á
líkama jógans ýmis mælitæki sem
hægt var að lesa af utan búrsins er
hægt að fylgjast nákvæmlega með
líkamsstarfsemi hans og ef eitthvað
fer úrskeiðis er bjölluhnappur und-
ir hægra fæti hans sem hann þarf
ekki annað en að þrýsta á og þá er
rokið til og búrið opnað.
Eftir nokkrar mínútur er Ra-
mand fallinn í djúpan trans og það
virtist engin áhrif hafa á hann þó
svo að súrefnið í kistunni færi ört
minnkandi.
Þremur tímum eftir að tilraunin
hófst var súrefnisnotkun jógans
komin niður í fjórðung þess sem
talið er að venjulegt fólk þurfi til að
geta haldið lífi.
Þremur klukkustundum seinna
eða þegar Ramand hafði dvalið í
loftleysi í um sex klukkustundir virt-
ist koloxíð í kassanum aukast til
muna og þá hafði andardráttur
mannsins tekið breytingum og
hann fór að anda örar en hann
hafði áður gert.
Stuttu seinna kom merki úr
„kistunni" þess efnis að nú þætti
jóganum nóg að verið og var hún þá
opnuð.
Áður en hinar eiginlegu
tilraunir hófust fylgdust
Calder og aðstoðarmenn
hans með RamandYogi í 28
sólarhringa þar sem hann
hafði látið grafa sig lifandi
og aðeins hendur hans
stóðu upp úr jörðinni.
„Svo virðist sem þeir jógar, sem
nú eru uppi, fari líkt að og fyrir-
rennarar þeirra í gegnum aldirnar
og sagnir eru til af. Það er fyrst og
fremst með því að rannsaka betur
transinn og áhrif hans á líkamann
sem unnt verður að leysa þær gátur
sem við er að glíma og gera það að
verkum að maðurinn getur lifað við
þær aðstæður sem meinlæta-
mennirnir kalla yfir sig,“ segir dr.
Calder.
Svo virðist sem þekkingin á eigin
líkama og sú þjálfun sem að baki
liggur geri það að verkum að
jógarnir nái að stjórna ósjálfráða
taugakerfinu þannig að þeir geti
Ramand Yogi og Dr. Nigel
Calder á tilraunastofunni í
Nýju Delhi, skömmu áður en
jóginn var lokaður inni í
„gröf sinni“.
Dr. Nigel Calder við störf
sín á Indlandi. Hér er hann
að koma fyrir rafnemum á
líkama meinlætamanns sem
stundar sjálfspyntingar.
haft áhrif á hjartslátt sinn og blóð-
streymi, efnaskipti og líkamshita
auk margs annars.
Það er talið sannað að meinlæta-
menn, sem fara líkt að og Ramand
Yogi, missi ekki meðvitund á með-
an á þessum tilbúna dauða þeirra
stendur.
Þess í stað koma þeir sér í sér-
stakt ástand með hugleiðslu og á
þann hátt lifi þeir „dauðann“ af.
Upphaflega er talið að þessi sið-
ur að láta grafa sig í jörðu, hafi
komið tilafþvíaðjógarhafi haftþá
trú að með því að nálgast dauðann
og yfirvinna hann hafi þeir læknað
sjálfa sig af meinsemdum og
kvillum. Með því að einangra sig
algjörlega með þessum hætti hafi
þeir flýtt fyrir og ýtt undir þá lækn-
andi krafta sem líkami okkar býr
yfir.
Aðferðir þessar eru þekktar víðar
en á Indlandi þó svo að þessi trú sé
útbreiddust þar í landi.
Vitað er um hópa fólks í Japan
sem hafa lagt stund á einangrun af
þessu tagi og sagnir til um að slík
einangrun án matar og drykkjar
hafi staðið f allt að 400 dögum.
í vestur Afríku er einnig vitað
um fólk sem lagt hefur stund á ein-
angrun af svipuðum toga og sú sem
Ramand Yogi stundar en þó að því
undanskildu að það fólk lætur ekki
grafa sig í jörðu heldur dvelst undir
vatni tímunum saman.
Niðurstöður Nigel Calder liggja
ekki enn fyrir en að hans sögn hafa
tilraunirnar sem gerðar voru undir
hans stjórn í samvinnu við jógann
Ramand Yogi varpað ljósi á ýmis-
legt sem ekki var vitað um líkams-
starfsemi manna sem beita sig álíka
harðræði og Ramand Yogi.