Tíminn - 14.02.1986, Side 8
8 Tíminn
Föstudagur 14. febrúar 1986
Frumvarp um Útflutningsráð:
Viðskiptafull-
trúar í íslensk
sendiráð
Lagt hefur veriö fram á Alþingi
stjórnarfrurnvarp um Útflutningsráð
íslands. Það er í samræmi við yfirlýs-
ingar nýskipaðs utanríkisráðherra,
Matthíasar E. Mathiesen, um aukna
áherslu utanríkisráðuneytisins á
nánari tengsl þess við útflutningsat-
vinnuvegina.
Hlutverk Útflutningsráðsins skal
samkvæmt frumvarpinu vera að
koma á auknu samstarfi fyrirtækja,
samtaka og stjórnvalda í málum, er
lúta að eflingu útflutnings og veita
útflytjendum alhliða þjónustu og
ráðgjöf í því skyni að greiða fyrirog
auka útflutning á vöru og þjónustu.
Ennfremur skal ráðið vera stjórn-
völdum til ráðuneytis í málum sem
varða utanríkisviðskipti íslendinga.
Af hálfu stjórnvalda skulu eiga að-
ild að Útflutningsráði fulltrúar við-
skiptaráðuneytis, utanríkisráðu-
neytis, iðnaðarráðuncytis, landbún-
aðarráðuneytis, samgönguráðuneyt-
is og sjávarútvegsráðuneytis. Stjórn
þess skulu skipa átta menn, valdir til
tveggja ára í senn. Sölumiðstöð hrað-
frystihúsanna, Samband íslenskra
samvinnufélaga, Fluglciðir hf., Sölu-
samband íslenskra fiskframleiðenda
og Félag íslenskra iðnrekenda til-
nefna einn mann hver, viðskiptaráð-
herra og utanríkisráðherra tilnefna
einn mann hvor og einn stjórnar-
maður skal tilnefndur sameiginlega
af aðilum í Útflutningsráði, öðrum
en nefndir hafa verið. Sömu aðilum
verður einnig gert að tilnefna vara-
menn. Viðskiptaráðherra skal skipa
stjórnina samkvæmt tilnefningu of-
angreindra aðila.
Frumvarpið gerir ráð fyrir að Út-
flutningsráð starfræki skrifstofu sem
annast öll dagleg störf og þau verk-
efni sem stjórnin tekur ákvörðun
um. Jafnframt skal því heimilt að
ráða viðskiptafulltrúa til starfa í
sendiráðum, að höfðu samráöi við
viðskipta- og utanríkisráðuneyti. í
því sambandi scgir m.a. í greinar-
gerð að frumvarpinu: „Skipulagi
stofnunarinnar er hagað þannig að
það verði útflytjendur sjálfir sem
ráði mestu um gang mála. Jafnframt
er gert ráð fyrir nánum tengslum
stofnunarinnar við stjórnvöld, t.d.
að starfsmenn hennar geti starfað í
sendiráðum íslands erlendis, en af
slíku samstarfi hlýtur að veröa marg-
háttað hagræði og sparnaður. Við-
skiptaráðuneytið ber stjórnskipu-
lcga ábyrgð á starfsemi þessari enda
er það í verkahring þess ráðuneytis
að sinna utanríkisviðskiptum."
-SS
Staðfesting á aðalskipulagi Bessastaðahrepps, Frá vinstri: Sigurður Valur Asbjörnsson sveitarstjóri, Alexander
Stefánsson félgsmálaráðherra, Erla Sigurjónsdóttir oddviti, Hallgrímur Dahlberg ráðuneytisstjóri í félagsmála-
ráðuneyti.
Staðfest aðalskipulag
fyrir Bessastaðahrepp
Föstudaginn 3. janúar s.l. stað-
festi Alexander Stefánsson félags-
málaráðherra aðalskipulag fyrir
Bessastaðahrepp.
Samkvæmt samþykkt hrepps-
nefndar frá 5.11.1984, er stefnt að
því að íbúafjöldinn verði 1600 árið
1994 og 2150 árið 2004. Fyrstu 10
árin er m.ö.o. reiknað með meiri
fjölgun en á seinni áratugnum ca.
3,4% árlegri íbúafjölgun. Hin áætl-
aða öra íbúaþróun fyrri hluta
skipulagstímabilsins byggist á deili-
skipulagstillögum sem hafa verið
samþykktar fyrir ýntis svæði og
búið er að selja hluta af lóðunum.
Er reiknað með að þessi svæði
verði fullbyggð á næstu 10 árum.
Til að tengja saman byggðina er
hringvegur um nesið, sem fyrirhug-
að er að færa að sjó að vestanverðu
og lagfæra að öðru leyti. Var sú
vegagerð staðfest sérstaklega af
ráðherra 18.7.1984, sem hluti af
aðalskipulagi Bessastaðahrepps.
Um þessar mundir er búið að
leggja u.þ.b. helming þessa vegar.
Norðvestan við gatnamótin að
Bessastöðum og vestur á nesið er
fyrirhugaður miðbæjarkjarni og í
næsta nágrenni þéttari byggð að
einhverju leyti. Innan hringvegar-
ins, sem getið er um hér að framan
er auk miðbæjarins fyrirhugað að
hafa ýmsa sameiginlega starfsemi
s.s. skóla, ýmsarstofnaniroghugs-
anlega þéttari íbúðabyggð, auk
íþróttasvæða og starfsemi tengda
þeim.
Eins og aðalskipulagið ber með
sér, er lagt til að friða allstór svæði í
hreppnum, s.s. eins og strand-
lengjuna, Bessastaðanes og um-
hverfi Kasthúsa- og Bessastaða-
tjarna auk annarra svæða. Aðal-
skipulagið gerir m.ö.o. ráð fyrir
mjög dreifðri byggð, eða fyrst og
fremst einbýlishúsabyggð auk
verulegra opinna svæða. Sé miðað
við þennan þéttleika má ætla að
fullbyggður muni hreppurinn rúma
u.þ.b. 3000 íbúa.
Hér standa þau Sigurfinnur
Sigurðssun formaður Stjórnar-
nefndar málefna fatlaðra, Hall-
grímur Dahlberg ráðuneytisstjóri
félagsmálaráðuneytis, Alexander
Stefánsson félagsmálaráðherra,
Stefán Hreiðarsson forstöðumaður
Greiningar og ráðgjafarstöðvar
ríkisins, og Margrét Margeirsdóttir
starfsmaður þeirrar stofnunar,
fyrir utan húsið að Sæbraut 2.
Mynd-Sverrir.
Með auknu húsnæði batnar til
muna öll þjónusta við fjölfötluð'
börn. Sjúkraþjálfun er einn þeirra
þátta í starfsemi Greiningar-og
rágjafarstöðvarinnar sem nýtur
góðs af. A þessari mynd sést Anna
Þórarinsdóttir yfirsjúkraþjálfari
ásamt ungum herramanni.
Mynd-Sverrir.
z.i -4||w
ir&Mar J
Greiningar- og
ráðgjafarstöð
ríkisins í
nýju húsnæði
Fyrir nokkru var blaðamönnum
kynnt starfsemi Greiningar- og ráð-
gjafastöðvar ríkisins í tengslum við
opnun viðbótarhúsnæðis að Sæbraut
2 á Seltjarnarnesi, sem er beint and-
spænis svokölluðu Kjarvalshúsi.
Greiningar- og ráðgjafarstöðin er
ný stofnun sem starfar á vegum
félagsmálaráðuneytisins til þess að
þjóna fötluðum. Hún starfar eftir
lögum um málefni fatlaðra frá 1983
og er tilgangur hennar og urnfang
skilgreint í 16.gr. þeirra laga. Sam-
kvæmt þeim lögum er hlutverk
greiningarstöðvarinnar margvtsleg,
bæði bein þjónusta við fatlaða ein-
staklinga, ráðgjöf til meðferðar-
aðila, skráning fatlana og rannsókn-
ar- og menntunarstarfsemi.
Þessi nýja stofnun tekur til hluta af
skyldum Athugunar- og greiningar-
deildar Öskjuhlíðarskóla sem starfs-
rækt hefur verið undanfarin 10 ár í
Kjarvalshúsi. Starfsliðið verður
áfram hið sama auk þess sem ráðinn
hefur verið forstöðumaður. Þannig
hefur kjarni fagfólks sem býr yfir
mikilli þekkingu á eðli og inntaki
fatlana flust frá Athugunardeildinni
til Greiningarstöðvarinnar. Á sama
hátt fékk hin nýja stofnun í „arf“
lista með á milli 40 og 50 börnum sem
þangað hefur verið vísað á undan-
förnum 3 árum, en ekki hefur verið
unnt að sinna. Auk þess berast nýjar
tilvísanir stöðugt. A síðastliðnu ári
sóttu um 160 einstaklingar þjónustu
á Athugunardeildina og þarf mikill
meirihluti þeirra áframhaldandi
þjónustu á Greiningar- og ráðgjafar-
stöðinni, bæði til meðferðar og frek-
ari greiningar. Við eðlilegar starfs-
aðstæður er talið að um 180 börn úr
hverjum árgangi myndu leita til
stöðvarinnar.
Kjarvalshúsið verður notað áfram
sem athugunardeild þar sem reynt er
að sinna eldri börnum sem koma
daglega til dagvistunar um nokkurra
vikna skeið og eru í umsjá sér-
þjálfaðra fóstra og þroskaþjálfa, auk
athugana annarra sérfræðinga. í
Sæbraut 2 verður göngudeild þar
sem flestum yngri börnunum er sinnt
með reglulegum heimsóknum til fag-
aðila, þar sem barnið fær þjálfun og
foreldrarnir tilsögn. Þess má geta að
þá að viðbótarhúsnæðið leysi brýn-
asta vanda stöðvarinnar, þá er nauð-
synlegt að komið verði upp sérhönn-
uðu húsi undir starfsemina þegar til
lengri tíma er litið.
-SS