Tíminn - 14.02.1986, Side 11
Tíminn 11
Föstudagur 14. febrúar 1986
llllllllii ÍÞRÓTTIR
lllllllll
llllllllllllllllllll
Iþróttir
Umsjón:
ÞÓRMUNDUR
BERGSSON
Benfica lagði Porto
- í portúgalska bikarnum í fyrrakvöld
í fyrrakvöld var spilaði í bik- 1. Önnur úrslit:
arkeppninni í PortÚgal. Þetta VOru Acadetnica-Guimaraes .............. 1-0
leikir 1 fimmtu umferö og mesta at- Beienenses-Lixa.................... 4-0
hygli vekur að Benfica vann Porto 2- Sporting-Barreirense............... 2-1
Peniche-Varzim..................... 0-1
Norskur handknattleikur:
Ski vann Stavanger
- munurinn á liðunum nú aðeins tvö stig
í vikunni léku „íslendingaliðin" í
norska handknattleiknum innbyrðis.
Var leikurinn á heimavelli Fredriks-
borg Ski, liðs Gunnars Einarssonar.
Stavanger, lið Helga Ragnarssonar
kom í heimsókn sem efsta lið deild-
arinnar en fór heim með tap á bak-
inu. Ski sigraði 31-26. Stavanger er
enn efst í deildinni með 30 stig en Ski
er í öðru sæti með 28. Aðeins tvær
umferðir eru eftir í deildinni.
Unglingamót KR og Speedo:
Risastórt sundmót
Sunddeild KR og SPEEDO á ís-
landi halda unglingamót í sundi í
Sundhöll Reykjavíkur um helgina.
Mótið sem er eitt það stærsta hér á
landi í sundi verður bæði á laugardag
og sunnudag. Keppendur verða um
450 og verður keppt í 42 greinum í
fjórum aldursflokkum. Mótið hefst
kl. 12.00 á laugardag og stendur til
liðanna í bikarkeppni KKÍ í Hafnar-
firði í gærkvöldi. Vissulega unnu
Haukarnir sigur 90-75 en það þurfli
að hafa fyrir hlutunum í gær ólíkt því
sem gerðist fyrir viku er Haukar
löbbuðu yfir Keflvíkingana. Það var
ekki fyrr en eftir að um 10 rnín. voru
liðnar af síðari hálfleik sem hlutirnir
fóru aðganga hjá Haukunum. Pá var
staðan 57-55 þeim í vil. Næstu mín-
útur reyndust Keflvíkingum slæmar.
Þeir fóru illa með færin og Haukar
náðu fjölda hraðaupphlaupa sem
enduðu með körfu. Skyndilega var
staðan orðin 74-64 og eftir það var
bara spurning um hversu stór sigur
Haukanna yrði. Þegar uppvarstaðið
reyndust fimmtán stig skilja liðin að
og ætti það að duga Haukunum fyrir
seinni leik liðanna í Keflavík. Allt
getur þó gerst í körfuknattleik. Kefl-
víkingar misstu dálitla stjórn á sjálf-
um sér í lok leiksins í gær og hættu að
spila agað. Það boðar aldrei gott og
Haukarnir gengu á lagið.
Pálmar var daufur í dálkinn í byrj-
un í gær en í síðari hálfleik komst
hann aðeins í gang. Hann gerði flest
Spœnska bikarkeppnin:
Archibald skoraði
í fyrrakvöld var leikið í spænsku
bikarkeppninni í knattspyrnu. Þetta
voru fyrri leikirnir í átta liða úrslitum
keppninnar. Úrslit urðu þau að
Celta og Real Madrid gerðu jafntefli
í forinni á leikvangi Celta 0-0. Þá
sigraði Barcelona At. Madrid í Ma-
drid með tveimur mörkum gegn einu
og skoraði Steve Archibald annað
marka Barcelona. Loks gerði Saba-
dell og At. Bilbao jafntefli 1-1.
um kl. 19.00enbyrjarsíðankl. 09.00
á sunnudag og stendur fram til kl.
14.00.
stig Haukanna eða 24. Webster átti
góðan dag í vörn og allgóðan í sókn
og gerði 20 stig. Henning var í dauf-
ara lagi og skoraði til aðmynda ekki
körfu fyrr en í síðari hálfleik. Hjá
Keflvíkingum voru þeir Jón Kr. og
Hreinn bestir. Hreinn gerði 16 stig
en Jón gerði 14. Þá skoruðu Guðjón
og Sigurður sín 12 stigin hvor en voru
ósköp mistækir cr verulega reyndi á.
Seinni leikur liðanna verður í
Keflavík sunnudaginn 23. febrúar.
Archibald náði að skora mark á
Spáni.
Molar
■ Sovétmenn og Svíar spil-
uðu í vikunni þrjá leiki í ís-
hokký en þessi íþrótt er gífur-
lega vinsæl í báðum þessum
löndum. Sovétmenn voru Sví-
um yfirsterkari í öllum
leikjunum. Fyrsti leikurinn
vannst 2-1, annar fór 7-4 og sá
síðasti 10-2. Þess má geta að
það voru 10 þúsund manns í
skautahöllinni í Gautaborg
þar sem þriðji leikurinn fór
fram.
■ Rétt er að rúlla yfir úrslit-
in í NBA-körfuknattleiknum
í gær. Pistons unnu Knicks
113-99, Bucks unnu Pacers
103-97, 76ers sigruðu Bulls
106-98, Mavs lögðu Nuggets
117-110 og loks unnu Lakers
Suns 126-100.
■ Anderlecht hefur nú náð
Club Brugge að stigum í belg-
ísku 1. deildinni í knatt-
spyrnu. Anderlecht vann
frestaðan leik gegn Lierse í
gær 5-0 á útivelli. Bæði
Anderlecht og Club Brugge
eru nú með 39 stig eftir 25
leiki en næsta lið er Waregem
með 29 stig eftir 25 leiki.
■ Forráðamenn Ports-
mouth í 2. deild á Englandi
hafa ákveðið að senda lög-
fræðing sinn til Ítalíu til við-
ræðna við forráðamenn AC
Mílano um greiðslur fyrir
Mark Hateley. Mílanó er
orðið langt á eftir með
greiðslur fyrir kappann vegna
fjárhagserfiðleika félagsins.
Nú er hinsvegar von á að nýr
eigandi taki við AC Mílanó
og þá vonast forráðamenn
Portsmouth til að greiðslur fyrir
Hateley fari að berast. Ef
ekki verður staðið við þasr þá
á liðið heimtingu á að fá Hat-
eley aftur.
Norðmenn í kvöld
Rétt er að minna á að í kvöld verð- leikur í úrvalsdeildinni í körfuknatt-
ur fyrri leikur fsiendinga og Norð- leik. Njarðvíkingar fá ÍR-inga í
manna í handknattleik. Leikið verð- heimsókn í Ljónagryfjuna í Njarð-
ur í Laugardalshöil og hefst leikur- víkum kl. 20:00.
inn kl. 20:00. Þá er einnig í kvöld
Firmakeppni Fram í körfu
Firma- og félagahópakeppni Fram í körfuknattleik verður haldin i iþróttahúsi Alfta-
mýrarskóla laugardaginn 15. febrúar. 1 síðustu firmakeppni Fram sigraði lið Hagkaups
eftir spennandi keppni við lið lögreglunnar. Þátttaka í keppninni tilkynnist til Ómars í
síma 46597 eða til Björns í síma 45836. Ómar og Björn munu einnig veita nánari upplýs-
ingar um fyrirkomulag keppninnar.
„Ekkert mál,“ sagði Einar Bolk
son um leið og hann óð til búning:
herbergja eftir að Haukarnir har
höfðu sigrað Keflvíkinga í fyrri lei
Handknattleikur - aukakeppnin:
Óli fór á kostum
- er KR sigraði Hauka - Gerði 11 mörk - HK vann Þrótt
Ólafur Lárusson fór á kostum í
fyrrakvöld með liði sínu KR í auka-
keppni fjögurra liða um sæti í 1.
deild á næsta keppnistímabili. Ólaf-
ur leiddi KR-inga til sigurs gegn
Haukum 25-20. Hann gerði 11 mörk
í leiknum og var óstöðvandi. KR-
ingar hafa nú unnið alla þrjá leiki
sína í fyrri umferð keppninnar.
Þá léku HK og Þróttur í gær og
unnu HK-ingar 27-19 og fengu þar
með sín fyrstu stig í keppninni.
Sovétsigur á Svíum
- í handknattleik - Sovétmenn sterkir á réttum tíma
Sovétmenn eru greinilega að kom-
ast í sitt besta form í handknattleikn-
um fyrir HM í Sviss. Um daginn sigr-
uðu þeir Dani nokkuð örugglega í
Kaupmannahöfn og í fyrradag unnu
þeir Svía í Svíþjóð 28-21 þar sem
ekki var spurt að leikslokum. Það er
vaninn fyrir stórmót af HM gráðu að
Austantjaldsliðin nái að komast í sitt
besta form þegar mest á reynir í slík-
um keppnum. Sovétmenn eru nú að
nálgast sitt.
Robson orðinn heill
Bryan Robson fyrirliði enska
landsliðsins og Manchester United
eins og hann heitir fullu nafni hjá
enskum sjónvarpsþulum mun verða
orðinn góður af meiðslum sínum fyr-
ir landsleik Englands og ísrael þann
26. febrúar. Leikurinn verður í Tel
Aviv og verður fyrsti landsleikur
Robsons síðan hann meiddist í leik
gegn Tyrkjum á Wembley fyrir rúm-
um þremur mánuðum.
Pálmar Sigurðsson fór í gang gegn ÍBK er á reyndi. Hann skoraði 24 stig í gær. Tínwmynd: Ámi Bjama
Körfuknattleikur-Bikarkeppni KKÍ:
Haukar í strögli
- unnu sigur með 15 stigum eftir erfiða byrjun -Ætti að duga fyrir seinni leikinn