Tíminn - 08.03.1986, Síða 9
Laugardágúr 8. niársT986
Tíminn 9
tion), til að leysa hina fyrri af hólmi.
Hún er bandalag samvinnusamband-
anna sem lánasamlögin mynda í
hverju fylki landsins. Þannig eru yfir
90% af lánasamlögum landsins inn-
an hennar vébanda. CUNA er þjón-
ustustofnun fyrir aðildarsambönd
sín, útvegar þeim t.d. rekstrarvörur.
tryggingar, sérfræðiráðgjöf og upp-
lýsingaþjónustu og túlkar málefni
þeirra fyrir opinberum stofnunum.
Samvinnulánasamlög fyrirfinnast
nú um öll Bandaríkin, þvert og
endilangt. Eitt þjónár t.d. starfsliði
forsetans, annað starfsliði þjóð-
þingsins, þriðja starfsliði Sameinuðu
þjóðanna. Eitt stærsta samvinnu-
lánasamlagið í U.S.A. er meðal
starfsmanna General Motors. Þessi
þáttur samvinnustarfsins sem
óþekktur var í landinu fyrir 100 árum
en nú hinn umfangsmesti þeirra
allra.
Starfsemi samvinnutrygg-
inga hefur náð vemlegri út
breiðslu í Bandaríkjunum
Nú skipta yfir 18 milljónir Banda-
ríkjamanna við tryggingafélög sem
annað hvort eru rekin af samvinnufé-
lögum eða í nánu samstarfi við þau.
Samvinnufélag bænda í Ohio (Ohio
Farm Bureau Fedaration) sýndi t.d.
þá framsýni að skipuleggja ekki að-
eins rekstrarvörukaup á félagssvæði
sínu (undir firmaheitinu Country-
mark), heldur efndi það til
tryggingareksturs (Nationwide Ins-
urance Companies), sem þó er, eins
og öll gagnkvæm tryggingafélög, í
rauninni eign þeirra sem þar tryggja á
hverjum tíma. Þessi tryggingafélög
gerðust brautryðjendur þess að
bjóða lág iðgjöld þeim hópum trygg-
ingataka sem minnst áhætta fylgir.
Þau hafa allt til þessa starfað í sam-
vinnuanda, enda sitja ávallt fulltrúar
bænda og neytenda í framkvæmda-
stjórninni.
Samvinna um
íbúðarhúsnæði
Meðal fyrstu húsnæðissamvinnufé-
laga í Bandaríkjunum voru nokkur í
New York borg, hin elstu stofnuð af
innflytjendum frá Finnlandi, og sfð-
an hófu verkalýðsfélög að gangast
fyrir stofnun þeirra. Síðar hafa yfir-
völd alríkisins og einstakra fylkja
bæði boðið fram ódýr lán og skatt-
fríðindi til að stuðla að samvinnufé-
lagsskap um húsnæði, og vilja þau
þannig auka framboð af húsnæði
með hóflegum kjörum handa öldr-
uðum og handa fjölskyldufólki með
miðlungstekjur eða lægri. Eftir 1950
fór alríkisstjórnin að ábyrgjast veð-
skuldabréf húsnæðissamvinnufélag-
anna, og eftir 1960 hóf Húsnæðis-
stofnun ríkisins (Federal Housing
Administration) að greiða niður
fjármagnskostnað húsnæðissam-
vinnufélaga sem einungis þjóna fólki
undir tilteknum tekjumörkum.
Þá eru það ekki síst sveitarstjórn-
irnar sem beita úrræðum húsnæðis-
samvinnunnar þar sem þær reyna
að hindra niðurníðslu gamalla mið-
borgarhverfa.
Þar sem samvinnufélög gegna vax-
andi hlutverki sem eigendur íbúðar-
húsnæðis, hafa mikilvægar lána-
stofnanir breytt reglum sínum til
þess að greiða fyrir þjónustu við
húsnæðisamvinnufélög. Hinn nýi
Samvinnubanki hefur hér mjög
komið við sögu, svo og þær breyttu
reglur sem gera byggingarsjóði ríkis-
ins (Federal Home Loan Mortgage
Corporation) og Veðdeild alríkis-
stjórnarinnar (Federal National
Mortgage Association) kleift að
kaupa stofnbréf samvinnufélaganna.
Þess má geta, að Byggingarsam-
vinnufélagið Búseti myndi flokkast
undir húsnæðissamvinnufélög sem -
hér hefur verið minnst á.
Samvinnufélög um
verslun
Grundvallarhugmynd kaupfélags-
skaparins er að neytendur slái saman
innkaupum sínum af vörum eða
þjónustu. í Bandaríkjunum versla
kaupfélög einkum með matvörur,
lyfjavörur, sportvörur, húsgögn,
bækur, hljómplötur, fatnað, eða þau
útvega hóptryggingar, útfararþjón-
ustu, lögfræðiþjónustu, selja ferðir
gera sjónpróf og reka bílaverkstæði,
og er þá fátt eitt talið. Eitt stærsta og
arðsamasta kaupfélagið er REI í Se-
attle (Recreation Equipment, Inc-
orporated), sem hefurtíu búðiropn-
ar en starfar að öðru leyti sem póst-
verslun með sportvörur og er vant að
greiða ekki minna en 10% í tekjuaf-
gang af félagsmannaviðskiptum.
Greenbelt heitir annað kaupfélag
og starfar á þremur stórborgarsvæð-
um: Washington og nágrenni, Chic-
ago og nágrenni, og Baltimore ásamt
nálægum borgum. Félagsmenn eru
120.000. En fyrir utan ferðaskrif-
stofu, trygginga- og lögfræðiþjón-
ustu verslar félagið með nýtískuleg
innflutt húsgögn, einkum frá
Norðurlöndum, og til þeirra vísar
nafnið SCAN á verslunum félagsins,
enda eru þær fremstu dreifendur
norrænna húsgagna á Bandaríkja-
markaði í gegnum dótturfyrirtæki
NAF-NAE.
Neytendakaupfélag Berke-
leyborgar (Consumer’s Cooperative
of Berkeley) í Kaliforníu vestur,
rekur sjö stórmarkaði fyrir sína
100.000 félagsmenn, og er það
stærsta kaupfélag landsins á þessu
sviði. Nú er það að færa út kvíarnar
með sérverslunum á öllu San Fra-
ncisco-svæðinu.
Þegar allt er talið, reiknast kaupfé-
lög í Bandaríkjunum um 5.000 af
ýmsum stærðum og gerðum Það er
hins vegar Ijóst að markaðshlut-
deildir samvinnufélaga í smásölu-
verslun Bandaríkjanna er verulega
minni en gerist í V.-Evrópulöndum.
Námsmenn og
neytendasamvinnan
Við u.þ.b. 200 skóla, einkum á
lægra háskólastigi, eru félagsstofn-
anir með samvinnusniði, og eru fé-
lagsmenn samtals um 20.000. Þær
reka stúdentagarða, mötuneyti,
matvöru-, hljómplötu- og fornbóka-
verslanir og annað í þeim dúr. Einna
mest kveður að stúdentagörðunum
við Michigan-háskóla í Ann Arbor,
Kaliforníuháskóla í Berkeley, Tex-
as-háskóla í Austin og Oberlin Col-
lege í Ohio. (Harvard).
Félagsstofnanir stúdenta með
samvinnusniði eiga flestar rætur að
rekja til kreppuáranna, þegar mörg-
um var því aðeins fært að Ijúka
skólagöngu að kostnaði öllum væri í
hóf stillt. Hefur þetta skipulag reynst
mörgum hollt veganesti ásamt
vinnuframlagi félagsmanna. Með
því að halda niðri aðkeyptri hrein-
gerningu-, viðhalds- og matreiðslu-
þjónustu og ráða fremur félagsmenn
í ígripavinnu en utanaðkomandi
starfslið, hefur oft tekist að halda
búsetu á samvinnugörðum 20-50%
ódýrari en á öðrum stúdentagörð-
um, skv. upplýsingum bandaríska
samvinnusambandsins.
Einkafyrirtæki hafa með
sérsamiög
Mörg fyrirtæki í einkaeign taka sig
saman um að standa að samvinnufé-
lögum. Eitt elsta samvinnufélagið
þeirrar gerðar er fréttastofa AP
(Associated Press), sem dreifir frétt-
um sínum til blaðanna sem að henni
standa. Enn ntá nefna MBC (Mutual
Broadcasting Company), sem er
samvinnufélag útvarpsstöðva og
framleiðir fyrir þær dagskrárefni.
7000 járnvörukaupmenn eiga sér
líka samvinnufélag, Tru-Value, um
vöruútvegun, og er það öflugasta
fyrirtæki landsins á sínu sviði.
Sjálfseignarstof nanir nota
samvinnuformið
Það er einkar athyglisvert hvernig
sjúkrahús nota samvinnurekstur.
Houston Medical Center í Texas er
samheiti margra sjálfstæðra sjúkra-
stofnana sem reistar hafa verið á ein-
um stað. Nokkrar þeirra, allar sjálfs-
eignarstofnanir, mynduðu Orku- og
kælisamlagið, TECO (The Energy
and Cooling Cooperative). Eiga þær
í sameiningu stóra kyndistöð sem sér
aðildarspítölunum fyrir upphitun og
loftkælingu. Sumir sömu spítalarnir
stofnuðu einnig samvinnuþvottahús.
Og víðs vegar um Bandaríkin hafa
sjálfseignarsjúkrahús komið upp
margvíslegum samlögum um útveg-
un rekstrarvara og þjónustu.
Launþegar eiga
samvinnufélög
Sjálfstæðisyfirlýsing Bandaríkj-
anna var samin í Philadelphiu árið
1776, í samkomusal Trésmiðafélags-
itis þar í borg. Tæpum áratug áður
hafði félagið, upp úr verkfallsátök-
um, stofnað fyrsta framleiðslusam-
vinnufélag launþega í Bandaríkjun-
um, raunarmeð mjögeinföldu sniði.
Síðan hefur áhugi á framleiðslusam-
vinnufélögunt blossað upp, marg-
sinnis, en aldrei orðið úr nein stór-
felld hreyfing. í skógarhéruðununt í
norðvesturhluta Bandartkjanna eru
t.d. 14 krossviðarverksmiðjur með
þvílíku samvinnusniði sent haldið
hafa velli í nærri 40 ár og þar með
sýnt lífseiglu framleiðslusamvinn-
unnar, en fáir hafa tekið þær sér til
fyrirmyndar.
Samvinnubanki
Bandaríkjanna
Fátt hefur í seinni tíð breytt jafn
miklu fyrir samvinnustarfið í Banda-
ríkjunum og stofnun Samvinnu-
bankans (National Cooperative
Bank, NCB) 1980, í krafti laga sem
samvinnusambandið í Bandaríkjun-
um hafði unnið ötullega að að fá sett.
Ríkissjóður Bandaríkjanna lagði
fram verulcgt stofnfé í bankann, $
100 millj., að mig minnir.
Lögum samkvæmt ber bankanum
að starfrækja stofnlánadeild sam-
vinnufélaga og annast hún lánveit-
ingar til nýrrar samvinnustarfsemi,
hvort sem hinar nýju rekstrargreinar
taka lánin sjálfareðaeldri samvinnu-
félög taka þau til að fjárfesta í.ný-
mælunum, og þarf þá ekki að upp-
fylla eins strangar kröfur og til að fá
lán hjá bankanum sjálfum.
Þess má geta, að I.S.C. (Iceland
Seafood Corporation) gerðist lítill
hluthafi í þessum bankas.l. haust, en
bankinn hafði áhuga á viðskiptum
við I.S. (Iceland Seafood). Þar sem
I.S.C. uppfyllti það skilyrði að vera
meira en að hálfum hluta í eigu sam-
vinnufélags eða félaga, var fyrirtæk-
ið gjaldgengur lántaki. Bankinn
veitti því mjög hagstætt lán og síðan
er gert ráð fyrir endurgreiðslu á vöxt-
um sem tekjuafgangi í lok starfsárs-
ins.
Ég mun nú senn ljúka þessu erindi
mínu, en langar að lokum að minn-
ast með nokkrum orðum á einn lit-
ríkan bandarískan starfsbróður
minn, Jerry Voorhis að nafni, sem
lést fyrir einu og hálfu ári síðan í
hárri elli, vestur í Kaliforníu. Hann
gegndi forstjórastarfi í The Cooper-
ative League á 6. og 7. áratugnum.
Jerry var óvenjulegur maður, flug-
mælskur, mjög fróður.hugsjónaríkur
og mikill baráttumaður. Hann var
einn í forystusveitinni, þegar vindar
kalda stríðsins blésu sem mest á
fundum Alþjóðasamvinnusam-
bandsins. Var hann ötull málsvari
sinnar þjóðar, þegar fulltrúar Aust-
ur-Evrópulanda réðust á Bandarík-
in.
Má segja að það sé nokkur kald-
hæðni örlaganna, að það skyldi vera
demókratinn Jerry Voorhis sem féll
fyrirframbjóðanda repúblikana í 12.
kjördæmi Kaliforníu í kosningum til
fulltrúardeildarinnar árið 1946, eftir
10 ára farsæla setu á þingi. Sérstök
lög sem hann beitti sér fyrir bera
m.a. nafn hans. í kosningabarátt-
unni hafði andstæðingurinn óspart
notað þann blekkingaráróður, að
Jerry Voorhis væri í raun kommún-
isti, en sigurvegarinn í 12. kjördæmi
Kaliforníu var enginn annar en Ric-
hard Milhous Nixon, síðar forseti
Bandaríkjanna, sem þar með hóf
sína pólitísku vegferð.
Jerry Voorhis heimsótti ísland fyr-
ir mörgum árunt meðan hann var
forstjóri Bandaríska samvinnusam-
bandsins. Mér er sérstaklega minnis-
stætt, er við sátum saman á grænum
þúfunt Lögbergs á Þingvöllum á
sumar-sólskinsdegi, en hann fór þá
að rifja upp kosningarnar 1946 og
ósigur sinn fyrir Nixon. Honum
sveið sárt að falla, sérstaklega vegna
þess, að hann taldi sig hafa verið
beittan fölskum áróðri, - tilgangur-
inn hafði helgað meðalið til hins ýtr-
asta. - En Jerry bætti svo við: „En
þessi örlög og straumhvörfin sem
þeim fylgdu, áttu eftir að veita mér
mikla lífsfyllingu. í starfi nn'nu fyrir
samvinnuhreyfinguna í Bandaríkj-
unum og innan alþjóðasamvinnu-
sambandsins og fyrir þróunarlöndin,
fékk ég tækifæri til þess að starfa að
hugsjónum mannúðar og lýðræðis og
sjá ávöxt verka minna."
Eftir Watergate skrifaði Jcrry Vo-
orhis bók sem ber nafnið: „The
i Strangc Case of Richard Milhous
Nixon“. Efni hcnnar mundi nægja í
mörg Rótary erindi. -En það er önn-
ur saga og hér verður látið staðar
numið.
Erlendur Einarsson.
Spurningaleikur
Ferðaskrifstofan Útsýn, Austurstræti 17 sími 26611
Útsýnar
Nú fer hver að verða síðastur að tryggja
sér sæti í Páskaferðina til Costa del Sol
26. mars.
Aðeins 4 vinnudagar!
Erum að selja síðustu sætin!
Munið einnig ferðatilboð ársins: 33 daga
vorferð til Costa del Sol 6. apríl.
Verð frá 24.200.
50% barna-afsláttur
Svör
Su: - í hvaða borg er brúin, sem sést í auglýsingu? Svar:___________ N f
Má: - Á hvaða setningu endar auglýsingin? Svar______________________ nnr.
Þr: - Á hvaða farartæki eru börnin í myndinni? Svarj________________ Heimili:
Mi: - Hvað heitir báturinn, sem róið er í myndinni? Svan____________
Fö: - Hvaða útiíþrótt stundar pilturinn í myndinni? Svarj___________
Lau: - Hvað fann farþeginn í ferðinni? Svarj________________________ Simi:
Nú hafa nýju sjónvarpsauglýsingarn-
ar okkar birst ein á kvöldi í tvær vikur
og þúsundir spreytt sig á spurninga-
leiknum. Því gétið þið sent inn svörin
frá síðustu viku og séð hvað gerist!
Jafnframt birtum við nýjan spurn-
ingalista fyrir næstu viku. Sendið
þann lista inn að viku liðinni, merkt-
an „Spurningaleikur Útsýnar“ póst-
hólf 1418,121 Reykjavík.
Klippið hér