Tíminn - 08.03.1986, Blaðsíða 18
18 Tíminn
Útboð
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar fyrir hönd Slökkvistöðvar
Reykjavíkuróskar eftirtilboðum í ranabifreið.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík.
Tilboðin verða opnuð á sama stað miðvikudaginn 26. apríl nk. kl.
11.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Ffíkifkjuv«gi 3 — Sími 25800
Til sölu
Tilboð óskast í eftirfarandi vegna Slökkvistöðvarinnar í Reykjavík.
Ford F 600 slökkvibifreið, árgerð 1962. Bifreiðin er með 171 ha. vél og
tvískiptu drifi. Dælan er þriggja þrepa champion lág- og háþrýstidæla.
Afköst3.000 l/mín viðsjökg/rúmcm2 , og 250 l/mín við70 kg/rúmcm2
miðað við 1,5 metra soghæð. Vatnstankur rúmar ca. 1.100 lítra.
Bifreiðin er til sýnis í Slökkvistöðinni í Reykjavík.
Tilboðin verða opnuð á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík,
fimmtudaginn 3. apríl 1986 kl. 14.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fríldrlcjuvagi 3 — Sími 25800
Útboð
Vegagerð ríkisins óskar eftirtilboðum í Efnisvinnslu 1-1986
á Vesturlandi (Bláhæð).
(Sprengingar og mölun 36.000 m3).
Verki skal lokið 1. ágúst 1986.
Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins í Borgarnesi
og Reykjavík (aöalgjaldkera) frá og með 10. mars n.k.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þann 24.
mars 1986.
Vegamálastjóri
Útboð
Vegagerð ríkisins óskareftirtilboðum í undirbyggingu Djúp-
vegar-Óshlíð III.
(Lengd 1760 m, skering 125.000 m3).
Verki skal lokið í síðasta lagi þann 1. september 1986.
Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins á ísafirði og í
Reykjavík (aðalgjaldkera) frá og með 10. mars n.k.
Skilaskal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þann 1. apríl
1986.
Vegamálastjóri
Útboð
Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í lagningu Snæfellsvegar,
Grundarfjörður - Mýrar.
(Lengd 2,0 km, fylling og burðarlag 60.000 m3, sprengingar 10.000
m3).
Verki skal lokið 15. ágúst 1986.
Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins í Borgarnesi og
Reykjavík (aðalgjaldkera) frá og með 10. mars n.k.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þann 24. mars 1986.
Vegamálastjóri
STAÐAR NEM!
Öll hjól eiga að stöðvast
Laugardagur 8. mars 1986
llllllHHll!
lllllllllllllllllllllllllllllllllll
SKÁK
Að tefla er
erfiðisvinna
Þáttur Jóns L. Árnasonar á Reykjavíkurskákmótinu
Jón L. Árnason. Hann átti margar af hressilegustu skákunum á síðasta
Reykjavíkormóti. Meira en hálfs árs fjarvera frá þátttöku í hinum alvarlegri
mótum kom þó scnnilega í veg fyrir að hann hlyti enn hærra sæti.
Eins og getið var um í skákþætti
Tímans fyrir viku síðan voru um 400
skákir tefldar á síðasta Reykjavíkur-
skákmóti, fjölmargar þeirra stór-
skemmtilegar á að horfa og margar
hverjar verða lengi í minnum hafðar.
Sterkustu erlendu meistararnir
fengu allir eitthvað fyrir sinn hatt í
þessu móti þó áberandi undantekn-
ing væri hinn viðfelldni bandaríski
stórmeistari Yasser Seirawan. Hann
átti lengi vel á brattann að sækja, en
vendipunkturinn hjá honum var í 8.
umferð er hann tapaði fyrir Jóni L.
Árnasyni. Jón átti sennilega eitt sitt
furðulegasta mót. Hann hafði ekki
tekið þátt í opinberri keppni í meira
en hálft ár og virkaði dálítið ryðgað-
ur en skákir hans einkenndust þó af
þeim ferskleika sem æfingalitlir
menn hafa oft til að bera framyfir
hina sem ferðast frá einu móti til
annars.
Jón lenti í tímahraki í svo til hverri
einustu skák og á síðustu mínútunum
tóku skákir hans oft örlagaríka
sveiflu. Honum gekk ekki sem best
með hvítu og tapaði þar þrívegis, en
með svörtu mönnunum varð liann
árangursríkari sigraði auk Seirawans
hinn sterka sænska meistara Harry
Schiissler. Skákin við Seirawan ein-
kenndist af flókinni stöðubaráttu þar
sem hvítur tók á sig, að því er virtist,
fremur lítilfjörlega peðaveikleika og
sótti hart að stöðu svarts en þar kom
að veikleikarnir fóru að segja til sín
og Jón sem átti vart meira en eina
mínútu á síðustu 15 leikina náði að
bæta stöðu sína með afar markvissri
taflmennsku. Þegar skákin fór í bið
eftir 46. leik hvíts var staða svarts
greinilega mun betri og biðstöðu-
rannsóknir leiddu í Ijós að hvíta tafl-
inu yrði ekki bjargað. Skemmtileg
og fremur óvenjuleg leikflétta gerði
svo út um örlög Seirawan í þessari
skák og raunar móti öllu. Hann vann
að vissu tvær síðustu skákir sínar en
náði ekki verðlaunasæti. Þessi skák
fer hér á eftir. Þetta var þriðja viður-
eign Jóns og Sierawan og ávallt hefur
Jón borið sigur úr býtum. Þeir áttust
fyrst við á World open í Fíladelfíu
1978, síðan í London 1981 og nú í
þriðja sinn á Reykjavíkurskákmót-
inu. Þessi skák er ekkert léttmeti að
neinu leyti, heldur dæmigerð barátta
á skákmóti nútímans. 63 leikir voru
leiknir þ.e. um 7 klst. fóru í tafl-
mennskuna og því til viðbótar
tveggja tíma biðskákrannsóknir plús
undirbúningur sem tekur skákmann-
inn aldrei minna en 3-4 klst. á dag.
Erfiðisvinna:
Hvítt: Yasser Seirawan
(Bandaríkjunum)
Svart: Jón L. Árnason.
Drottningarindversk vörn
1. d4 Rfó 2. c4 e6 3. Rf3 b6 4. Rc3
Bb4 5. Db3 c5 6. a3 Bxc3t 7. Dxc3 0-
0 8. e3 Bb7 9. b4 d6 10. Bb2 Re4 11.
Dc2 f5 12. Hdl Rbd7 13. Be2 a5.
(Áþekkar stöður hefur Jón marg-
oft varið á undanförnum árum. í
skák sinni við Browne í keppni
Norðurlanda og Bandaríkjanna kom
upp svipuð staða. Gegn Schussler,
tveim umferðum eftir þessa skák,
kom Jón á framfæri athyglisverðri
endurbót á eina einvígisskák Kasp-
arovs og Timman í fyrra: 1. d4 Rf6 2.
c4 e6 3. Rf3 b6 4. Rc3 Bb4 5. Bg5
Bb7 6. e3 h6 7. Bh4 g5 8. Bg3 Re4 9.
Rd2 Rxc3 10. bxc3 Bxc3 11. Hcl Bb4
12. h4 Rc6 13. d5 De7!? Manns-
fórnin gefur góða praktíska mögu-
leika enda vann svartur um síðir eftir
mikinn darraðadans í tímahraki.)
14. bxc5 bxc5 15. 0-0 Hf7!
(Dálítið dularfullur hróksleikur
en á f7 þjónar hróksi margháttuðu
hlutverki. Sjá 30 leik svarts!)
16. Bal Rb6 17. dxc5 Rxc5 18. Rd4
Dg5 19. Bf3 Bxf3 20. Rxf3 De7(?).
(Ónákvæmur leikur að mínu mati.
Betra var 20. - Dd8. Drottningin er
fyrir hróknum og skilur riddarann á
b6 eftir valdlausan. En þessi óná-
kvæmni kemur þó ekki að sök.)
21. Hbl Rca4!?
(Óvenjuleg riddarastaða, en
svartur á við erfiðleika að stríða eftir
21. -Dc7 22. Rd4! o.s.frv.)
22. Hb5 Dc7 23. Rd2 Rc5 24. Bd4
Rbd7 25. Hfbl h6 26. h3.
(Jón átti eftir 20 leiki til að ná.
tímamörkunum en var þegar orðinn
naumur á tíma. Það kemur þó á eng-
an hátt niður á taflmennsku hans.)
26. .. a4 27. Hlb4.
(Möguleikar hvíts liggja á b-lín-
unni en riddararnir varna hrókunum
inngöngu.)
27. .. Hc8 28. Rbl Dc6 29. Bxc5
Rxc5 30. Rc3 Ha7!
(Hugmyndin með 15. - Hf7?
Varla, en sú staðreynd að svartur á
þennan leik á hárréttu augnabliki,
sem Seirawan raunar yfirsást, sýnir
hversu útsmoginn 15. - HÍ7 var.)
Helgi Ólafsson
stórmeistari
skrifar um skák:
31. Ddl.
(Jón átti eftir röska mínútu til að
ná tímamörkunum. Ég held hann
fari þó langt með að hitta á besta
leikinn alveg frarn á biðskák. Bið-
leikurinn var hinsvegar, svo ein-
kennilegt sem það kann að virðast,
dálítið gallaður að flestra mati!)
31. .. Ha6 32. Re2 KH7 33. Rf4 De8
34. g4 Df7 35. De2 Hac6 36. f3?
(Seirawan var líka orðinn fremur
tímanaumur og byrjar nú að síga á
ógæfuhliðina. Eftir 36. gxf5 exf5
taldi Jón stöðu hvíts eilítið betri en í
raun er hún afar flókin með mögu-
léikum á báða bóga. „Sá sem teflir
betur vinnur- staða“.)
36.. . Df6! 37. Kg2 Hf8 38. Dd2 De5
39. Re2 Df6 40. Rgl.
(Ekki er þetta nú fagurt. Nú hrifs-
ar Jón til sín frumkvæðið."
40.. . h5! 41. gxf5 Dg5t 42. Khl Hxf5
43. De2 h4 44. e4?
(Veikir svörtu reitina skelfilega.
Ég fylgdist með Seirawan þegar
hann lék þessum leik og hann gretti
sig lítillega eftir að hafa ýtt á klukk-
una. En staða hans var þegar orðin
erfið.)
44.. . Hf6 45. Hbl Hg6 46. Hdl
(Hér fór skákin í bið og Jón gat
loks gefið sér tíma til að ígrunda bið-
leikinn. Flestir, þ.á.m. Jón voru á
því máli að sterkast væri 46. - e5.
Það kann að vera, en staðreyndin er
sú að biðleikur J óns tapar engu af því
frumkvæði sem hann hefur fyrir. Og
eftir bið teflir hann óaðfinnanlega.)
46.. . Df4!? 47. Hb2 Rb3!
(Ingi R. Jóhannsson krafðist þess
að Jón léki þessum riddaraleik þegar
biðskákin var sundurgreind. Riddar-
inn er afar ógnandi á b3.)
48. DH Hc5!
(Nýtir einn kostinn við að leika
ekki - e5, hrókurinn tekur þátt í
átökunum á kóngsvængnum.)
49. Hg2 Hxg2 50. Dxg2
(Þvingað. 50. Kxg2 er svarað með
50. - Rd2 sem vinnur taflið án erfið-
leika.)
50.. . Hxc4 51. Re2 Dh6 52. Dg4
(Og hér strandar 52. Hxd6 á 52. -
Hc2! o.s.frv. 52. .. d5! 53. Rf4 Rc5
54. Rg2dxe4 55.f4Hc2
(Sterkara en 55. - Rd3.)
56. Kgl Rd3 51. Hfl Kg8 58. Rxh4
(Meira viðnám veitti 58. f5 en
svartur vinnur þó örugglega eftir 58.
- exf5 59. Dxf5 Db6t 60. Kh2 Dd6t
61. Khl De5 o.s.frv.)
58.. . e3 59. Rg6 e2!
HMf
Vyf
1 11 1!
iíii iii HÉÍIIIIII
01 111411! 111A
111 11A jjlli
Hlllfi lll | |SSI
60. Dxe6t KH7 61. Rt8t Kh8 62.
Rg6t Dxg6! 63. Dxg6 exfl (D)t!
- og hér lagði Seirawan niður
vopnin. Lokin eru stílhrein því eftir
64. Kxfl Hclt ásamt 65. - Rxf4t fell-
ur drottningin.
Seirawn virðist hafa vaknað af
dvala við þetta tap, því hann vann
tvær síðustu skákir sínar í mótinu,
hélt síðan til Lugana á stórt opið mót
og þegar tefldar höfðu verið fjórar
umferðir var hann með hreint borð.