Tíminn - 15.04.1986, Síða 2
2 Tíminn
Þriðjudagur 15. apríl 1986
Borgarnes:
Tveir átta ára
drengir drukkna
Tveir átta ára gamlir drengir
frá Borgarnesi drukknuðu á
laugardag. Drengirnir fóru að
heiman frá sér um morguninn.
Nokkru eftir hádegi var leitað til
lögreglunnar í Borgarnesi og
hún beðin um að svipast um eftir
drengjunum. Þeir fundust síðan
látnir seinna um daginn í Bæjar-
vogi, um tvo kílómetra frá Borg-
arnesi.
Drengirnir hétu Vilberg Egils-
son til heimilis að Þorsteinsgötu
5 og Bjarki Ólafsson til heimilis
að Borgarbraut 34.
Nú er talið ljóst að drengirnir
hafi farið á lekum plastfleka út
á fjörðinn og stríður straumur
hafi hrifið flekann með sér.
Líklegt þykir að drengirnir hafi
fallið af flekanum, á leið hans út
fjörðinn.
Viðamikil æfing björgunar-
sveita stóð yfir í Borgarfirði um
helgina. Leitað var til þeirra og
aðstoðuðu sveitirnar við leit að
drengjunum. Tværeinkaflugvél-
ar frá Borgarnesi leituðu einnig.
Drengirnir fundust síðan um
klukkan 17.30.
Arnarflug:
Áætlunarflug
til Hamborgar
Arnarflug hóf beint áætlunarflug
til Hanibórgar í Þýskalandi á 10 ára
afniælisdcgi flugfélagsins, 10. apríl
s.l.
í fyrstu áætlunarferö Arnarllugs
til Hamborgar voru með í ferðinni
Matthías Iijarnason samgönguráö-
herra og um 40 aðrir gestir. I»á
voru einnig flutt 5 fonn af ferskum
flski mcö flugvélinni beint á físk-
markaöinn í Ilaniborg.
Á myndinni sést flugvallarstjór-
inn í Hamborg, Richard
Schleichen, taka á móti Matthíasi
Bjarnasyni á flugvellinuin í
Hainborg.
Tímaniynd Róbert
12 milljónir úr Tryggingasjóöi fiskiskipa:
Sjávarútvegshús
rísi í Reykjavík
„Sú hugmynd hefur verið á lofti
nokkuð lengi hjá þessum samtökum
innan sjávarútvegsins að koma upp
húsi þar sem þau gætu verið öll undir
sama þaki,“ sagði Kristján Ragnars-
son framkvæmdastjóri Landssam-
Hringormurinn
veldur sundrungu
Stjórnarfrumvarp um selveiðar
við Island var afgrcitt frá neðri deild
Alþingis til hinnar efri í gær. Þetta
er í þriðja skiptið sem frumvarp um
Ráðuneyti
iokarsvæðum
„t>að er ekki á valdsviði hafnar-
nefnda að setja reglur um fiskveiðar.
I»ær eiga að setja reglur um það sem
lýtur að rekstri hafnanna sem slíkra
og þar af leiðandi hefur hafnarnefnd
á Bakkafirði farið út fyrir valdsvið
sitt með því að skipta sér af veiðum
á Bakkaflóa,“ sagði Árni Kolbeins-
son hjá Sjávarútvegsráðuneytinu,
Sjávarútvegsráðuneytið ákvað að
banna dragnótaveiðar á ákveðnum
svæðum innan hafnarsvæðisins, þar
á meðal á gamla hafnarsvæðinu, og
kemur það bann í kjölfar deilna á
milli Bakkfirðinga og Þórshafnar-
manna. Bannsvæðið nær frá Fossá
að Saurbæjartanga, frá Saurbæjar-
tanga að Skarfatanga og frá Skarfa-
tanga að Svartnesi.
Jóhann Jónasson, formaður hafn-
arnefndar á Þórshöfn, sagði að sér
fyndist þetta fáránleg framkvæmd
hjá ráðuneytinu. „Þetta er engin
friðun, það er ekki verið að loka
neinu að ósk fiskifræðinga, það er
verið að loka svæðum fyrirvaralaust
að ósk einstakra heimamanna á
Bakkafirði. Það er fáránlegt að ein-
hvcr hafnarnefnd úti á landi geti haft
samband suður til Reykjavíkur og
beðið um lokun á svæði út frá
höfninni, jafnvel þótt það svæði sé
10-20 mílur frá henni.“
- ABS
þetta efni kemur til kasta þingsins á
þcssu kjörtímabili. Áður hefur það
ekki hlotið endanlega afgreiðslu og
óvíst er hvort það verður að logum
nú.
í upphafi fundar neðri deildar í
gær tilkynnti deildarforseti að einn
þingflokkanna hefði farið fram á
stutt fundarhlé. Það voru Alþýðu-
bandalagsmenn sem brugðu sér frá
sem snöggvast til að ræða afstöðuna
til sclveiðifrumvarpsins. í atkvæða-
grciðslu nokkru síðar um breytingar-
tillögu varðandi gildistöku frum-
varpsins kom fram að ekki hafði
náðst samstaða urn afstöðu þing-
tlokksins, því þeir Geir Gunnarsson,
Hjörleifur Guttormsson og Svavar
Gestsson voru andvígir því að vænt-
anleg lög tækju þegar gildi, en
Garðar Sigurðsson, Guðmundur J.
Guðmundsson, Guðrún Hcigadóttir
á öndverðri skoðun. Steingrímur J.
Sigfússon var fjarstaddur.
Af stjórnarliðum voru þeir Frið-
jón Þórðarson. Ólafur Þ. Þórðarson
og Pálmi Jónsson andvígir því að
frumvarpið yrði að lögum þegar í
stað. Það cr því Ijóst að sem áður
klýfur hringormurinn jafnt flokka
sem stjórn eða stjórnarandstöðu.
-SS
Samtök áhugamanna um selveiöihlunnindi:
Gagnrýna sel-
veiðifrumvarp
Frumvarp um selveiðar. sem nú
liggur fyrir Alþingi hlaut harða
dóma á stofnfundi samtaka áhuga-
manna um seiveiðihlunnindi senr
stofnuð voru á sunnudag. Fundur-
inn taldi fulla þörf á heildarlöggjöf
um sel og selveiðar, sem taki fullt
tillit til verndunarsjónarmiða og.
skynsamlegrar nýtingar selastofn-
anna. í fréttatilkynningu frá sam-
tökunum segir: „Mikið skortir á að
frumvarpið gegni því hlutverki og
er það viðurkennt af mönnum sem
studdu það áður en hafa skipt um
skoðun eftir að hafa kynnt sér öll
sjónarmið."
Meðal þess sem samtökin gagn-
rýna, er að selveiðar verða felldar
undir sjávarútvegsráðuneytið,
verði frumvarpið að lögum. Ný-
kjörinn stjórnarformaður samtak-
anna, Jón Benediktsson, sagði í
samtali við Tímann í gær að með
því væri allt komið á eina hendi,
færu selveiðarnar til sjávarútvegs-
ráðuneytisins. Þá eru menn ósáttir
við stytta „skothelgi" sem frum-
varpið felur í sér. -ES
bands íslenskra útgerðarmanna þeg-
ar Tíminn spurði hann um þá hug-
mynd að koma upp sérstöku sjávar-
útvegshúsi í Reykjavík. Þegar
Tryggingasjóður fiskiskipa verður
lagður niður um miðjan maí er
áætlað að 12 milljón krónur renni til
undirbúnings byggingar sérstaks
sjávarútvegshúss.
Kristján sagði að hugmyndin um
að verja þessum peningum til hússins
hefði komið frá útvegsmönnum,
þarna væri verið að ráðstafa fé úr
þeirra sjóði og eftirstöðvar væru
þetta miklar vegna þess að útgjöld-
um hefði verið stillt í hóf.
Kristján sagði að enn væri málið á
umræðustigi og þetta framlag væri
hugsað til þess að ýta málinu af stað.
Utanríkisráðherra
í sveitarstjórn?
Næstkomandi föstudag hefst mál-
flutningur í máli Miðneshrepps gegn
utanríkisráðherra vegna ógreiddra
byggingarleyfisgjalda. Hreppurinn
krefst þess að slík gjöld verði greidd
af nýju flugstöðvarbyggingunni en
utanríkisráðherra hefur neitað með
tilvísun til sérstöðu varnarsvæða.
„Það eru greidd fasteignagjöld af
eignum íslendinga innan varnar-
svæðanna þannig að fordæmin eru
fyrir hendi," sagði Ólafur Ragnars-
son lögfræðingur Miðneshrepps í
samtali við Tímann. Hann sagði að
neitun ráðherra byggðist á því að
hann færi samkvæmt sérstökum lög-
um með mál allra ráðuneyta innan
varnarsvæða og sveitarstjórnarvald
að auki.
„Þetta er í raun prinsipmál um
það hvort að ráðherra fari með
sveitarstjórnarvald innan þessara
svæða,“ sagði Ólafur.
Krafan um byggingarleyfisgjaldið
nemur nú um einni milljón króna
með vöxtum og gert er ráð fyrir að
fasteignagjöld muni skila einhverju
til viðbótar. - SS
Hann benti þó á, að þeir hefðu sótt
um lóð til borgarinnar fyrir einu og
hálfu ári síðan í þessum tilgangi og
þá óskað eftir því að fá úthlutað stað
einhversstaðar í sjávarlínunni, við
Skúlagötuna eða í Laugarnesinu, en
engin viðbrögð væru enn komin við
þeirri umsókn. - BG
Annir á
Alþingi
Nú er ekki nema rúm vika
þar til Alþingi lýkur störfum
að sinni og 108. löggjafar-
þingið heyrir sögunni til.
Samkvæmt venju aukast ann-
ir dag frá degi og kapp er lagt
á að afgreiða þau mál sem
mestu þykja skipta. Þar vega
óskir ríkisstjórnarinnar eðli-
lega þyngst.
Fundurinn í neðri deild Al-
þingis í gær bar svipmót þessa
annatíma. Átta lagafrum-
vörp voru send forseta efri
deildar til fyrirgreiðslu, sem
þýðir að efri deild mun fjalla
aftur um þessi mál vegna
breytinga sem á þeim urðu í
meðförum neðri deildar.
Þetta eru frumvarp um veð,
Siglingamálastofnun ríkisins,
eftirlit með skipum, siglinga-
lög, verkfræðinga, sakadóm í
ávana- og fíkniefnamálum,
almannatryggingar og sel-
veiðar við ísland.
Meðal þeirra frumvarpa
senr efri deild mun að öllum
líkindum brátt afgreiða sem
lög má nefna frumvarp um
talnagetraunir og sveitar-
stjórnarlög. - SS
Heildarkvótinn ekki aukinn
Hagsmunaaðilum í sjávarútvegi
voru í gær kynntar niðurstöður úr
endurmati Hafrannsóknarstofnunar
á ástandi fiskistofnanna við landið,
en í dag á að liggja fyrir ákvörðun
um það hvort heildaraflakvótinn í ár
verður aukinn eða ekki. Hafrann-
sóknarstofnun taldi ekki ástæðu til
að leggja til aukningu þorskaflakvót-
ans, enda niðurstöður endurmatsins
ekki í veigamiklum atriðum frá-
brugðnar þeim sem fram komu í
haust.
Heildar þorskaflamarkið er sarn-
kvæmt reglugerð 300 þús. tonn á
þessuári. Vegna breytingasem gerð-
ar voru á kvótakerfinu er sóknar-
mark nú mun algengara en áður og
miðað við sveigjanleika í kerfinu og
millifærslumöguleika er talið að
heildaraflinn geti farið upp í 340 þús
tonn. Hagsmunaaðilar þrýstu ekki á
um aukningu kvótans á fundinum í
gær og mun sjávarútvegsráðherra
ekki leggja til slíka aukningu á
ríkisstjórnarfundi í dag. -BG