Tíminn - 15.04.1986, Side 5
Þriðjudagur 15. apríl 1986
Tíminn 5
Japanar taka þátt
í stjörnustríðinu
Samkvæmt heimildum munu japönsk stjórnvöld bráðlega tilkynna
um þátttöku sína í geimvarnaráætlun Bandaríkjastjórnar
Japönsk stjórnvöld hyggjast nú taka þátt í draumsýn Reagans Bandaríkja-
forseta.
Fujifjall, Japan-Reuter
Samkvæmt heimildum innan jap-
anska viðskiptalífsins og innan ríkis-
stjórnarinnar munu þarlend stjórn-
völd bráðlega skýra frá þátttöku
sinni í geimvarnaráætlun Banda-
ríkjastjórnar (SDI).
Japanar hafa enn ekki farið sömu
braut og flest stórríki Vestur-Evrópu
og tilkynnt formlega um þátttöku
sína í hinni svokölluðu „stjörnu-
stríðsáætlun1- Bandaríkjastjórnar er
miðar að því að koma upp geim-
vopnum sem skotið geta niður eld-
flaugar.
Hinsvegar sagði Yoshihiro Inay-
ama, formaður hinnar áhrifamiklu
Keidanren viðskiptasamsteypu, í
samtali við fréttamann Reuters að
stjórnvöld myndu bráðlega tilkynna
formlega um þátttöku sína í áætlun-
inni.
Víst þykir að japönsk iðnaðarfyr-
irtæki geti verulega styrkt rannsókn-
ir á geimvopnum þar sem þau eru
mörg hver komin langt í rannsókn-
um sínum á leisertækni og háþróaðri
rafmagnstækni.
Keidanren viðskiptasamsteypan
er talin eiga mikilla hagsmuna að
gæta í þessu sambandi en fyrirtækið
Sony er m.a. aðili að þessari sam-
steypu. Fyrirtæki á borð við Mitsu-
bishi, Hitachi og NEC hafa einnig
verið nefnd í sambandi við verkefni
þau er bjóðast taki japönsk stjórn-
völd þátt í SDI.
Nokkuð hefur verið deilt um það
í Japan hvort landið ætti að taka þátt
í „stjörnustríðsáætlunum" Reagans
Bandaríkjaforsetaen heimildirsegja
það nú vera einungis spurningu um
tíma hvenær þjóðinni verður til-
kynnt um þátttökuna.
Breyting framundan
á breskum sunnudegi?
Flest bendir til að frjáls verslun á sunnudögum verði
bráðlega leyfð í Englandi og Wales
Lundúnir-Reuter
Þrátt fyrir andstöðu margra
þingmanna íhaldsflokksins var gert
ráð fyrir því í gærkvöldi að tillaga
ríkisstjórnarinnar bresku, er heimil-
ar frjálsa verslun á sunnudögum,
yrði samþykkt í neðri deild þingsins.
Lögin þurfa þó síðan að koma
Ríki Evrópubandalagsins (EC)
ákváðu á neyðarfundi í gær að fækka
verulega í sendinefndum Líbýu-
manna í löndunum tólf sem aðild
eiga að bandalaginu. Einnig var
ákveðið að skerða ferðafrelsi stjórn-
arerindreka Líbýustjórnar í þessum
löndum.
Þetta var haft eftir Leo Tindemans
utanríkisráðherra Belgíu eftir fund
þann sem utanríkisráðherrar
Evrópubandalagsríkjanna héldu í
gær. Þar var tilkynning gefin út þar
sem Líbýustjórn var tengd við
hefndarverkastarfsemi í löndum
Evrópu, þ.e.a.s. var sögð hafa stutt
við hefndarverkastarfsemi í
evrópskum borgum. Þá var Líbýu-
stjórn fordæmd fyrir að hóta að
skjóta á evrópsk skotmörk verði af
árás Bandaríkjahers.
fyrir nefnd þar sem þau verða rædd
nánar og breytingar gerðar ef nauð-
synlegt þykir.
Allt bendir þó til að hin tvö
hundruð ára gömlu lög og reglugerð-
ir er banna mest alla verslun á hinum
kristna hvíldardegi muni brátt verða
úr sögunni í Englandi og Wales.
Tilkynning þessi var gefin út í lok
neyðarfundarins sem haldinn var til
að reyna að koma í veg fyrir að
Bandaríkjaher gerði árás á Líbýu.
Tilkynningin þótti bera vott um
að Evrópubandalagsríkin væru fús
til að vinna skipulega með Banda-
ríkjastjórn gegn hefndarverkum.
Bandaríkjastjórn varðist allra
frétta í gærdagaf hugsanlegum hern-
aðaraðgerðum gegn Líbýu. Tals-
maður stjórnarinnar sagði fréttir um
að stjórnvöld væru að ákveða hvort
af aðgerðunum yrði ekki á rökum
reistar. í gærmorgun var þó vitað að
Reagan Bandaríkjaforseti átti fund
með nokkrum helstu samstarfs-
mönnum sínum en talsmaðurinn
sagði þær viðræður helst hafa staðið
í sambandi við heimsókn Yasuhiro
Nakasone forsætisráðherra Japans.
Margsinnis hefur verið reynt að
breyta lögum þessum er þykja all-
skondin t.d. má ekki selja biblíur á
sunnudögum en sala klámrita er
leyfð. Reyndar hafa tuttugu breyt-
ingartillögur verið bornar fram á
þingi síðan árið 1950 en lögin hafa
einungis gerst flóknari og tvíræðnari
með árunum.
Thatcher, sem sjálf er kaup-
mannsdóttir, ku vera fylgjandi af-
námi á öllum höftum á sunnudags-
verslun, svipað og er í Skotlandi.
Þrátt fyrir skrýtin lög er samt sem
áður mikil andstaða við áætlun
stjórnvalda um frjálsa verslun á
sunnudögum.
Yfirvöld kirkjuhreyfinga á Eng-
landi hafa brugðist illa við fyrirhug-
uðum breytingum og nýlega af-
hentu þau Douglas Hurd innanríkis-
ráðherra undirskriftir 800.000 ein-
staklinga. Þetta fólk skrifaði undir
skjal þarsem hinn hefðbundni enski
sunnudagur var ekki sagður vera til
sölu.
Verkamannaflokkurinn og verka-
lýðsfélögin eru einnig á móti hinum
nýju tillögum. Ekki er þó ástæðan
mikil trúrækni hcldur er hér um að
ræða umhyggju fyrir starfsfólki
verslana. Verkamannaflokkurinn
heldur því fram að aðstæður starfs-
fólksins muni versna til muna við
sunnudagsopnunina og hafa verka-
lýðsfélögin tekið undir þessa gagn-
rýni.
Þrátt fyrir mikla andstöðu er þó
búist við að lögin fari í gegn og telja
margir þetta nauðsynlegt skref í
frjálsræðisátt.
Evrópubandalagið fordæmir Líbýustjórn:
Aðgerðir í aðsigi
Fækkað verður í sendiliði Líbýumanna í
Evrópu - Bandaríkjastjórn verst allra frétta
Haag-Reuter
FLUGLEIÐIR
Hluthafafundur
Almennur hluthafafundur verður haldinn fimmtu-
daginn 15. maí 1986 í Kristalsal Hótel Loftleiða og
hefst kl. 15:30.
Dagskrá:
Tillaga um útgáfu jöfnunarhlutabréfa, þannig að
núverandi hlutafé verði þrefaldað.
Verði tillagan samþykkt breytast samþykktir fé-
lagsins samkvæmt því.
Aðgöngumiðar og atkvæðaseðlar verða afhentir á
aðalskrifstofu félagsins frá og með 12. maí nk. frá
kl. 08:00-16:00.
Afhending atkvæðaseðla lýkur kl. 14:00 fundar-
dag.
Stjórn Flugleiða h.f
Tilkynning
frá Lánasjóði íslenskra námsmanna,
til námsmanna á íslandi og umboðs-
manna námsmanna erlendis.
Af tæknilegum ástæðum hefur því miður dregist
að afgreiða námslán fyrir apríl og maí mánuð.
Miðað er við að skuldabréf vegna þessara lána
verði send til námsmanna og umboðsmanna í lok
þessarar viku.
Reykjavík 14. apríl 1986
Lánasjóður íslenskra námsmanna
fmmm r m / ■
Felagsmala-
fulltrúi
Egilsstaðahreppur auglýsir eftir félagsmálafulltrúa með
menntun á félgsmálasviði í nýtt starf sem felur m.a. í
sér mótun starfssviðs og aðferða.
Ráðið verður í starfið sem fullt starf frá 1. ágúst 1986.
Laun samkvæmt launakerfi BSRB.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf
skulu hafa borist fyrir 10. maí 1986 til sveitarstjóra
Egilsstaðahrepps, sem veitir allar nánari upplýsingar.
Sveitarstjóri
Sóknarfélagar
Starfsmannafélagið Sókn auglýsir orlofshús í
Ölfusborgum, Húsafelli og Svignaskarði.
Umsóknarfrestur er til 25. apríl.
Þeir sem áhuga hafa á skiptiferðum til Ðanmerkur
hafi samband við skrifstofuna sem fyrst.
Starfsmannafélagið Sókn
1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 I l l
HfliR f bvður þér þjónustu sina við ný- rC
byggingar eða endurbætur eldra húsnæðis
Við sögum i steinsteypu fyrir dyrum, gluggum, stigaopum, lögnum
m - bæöi i vegg og gólf. ■
Ennfremur kjarnaborum viö fyrir lögnum i veggi oy golf.
Þvermál boranna 28 mm til 500 mm. ■
Þá sögum við malbik og et þu þarft að láta fjarlægja reykhafinn þá
tókum við það að okkur. ■
Hifir leitast við að leysa vanda þinn fljott og vel, hvar sem þu ert |
I busettur á landinu. 1
■ Greiðsluskilmálar við allra hæfi ■
SlfB?™ Fífuseli 12
H 109 Reykjavík
IIIIIII F sími 91-73747
- Bílasími 002-2183
KRANALEIGA • STEINSTEYPUSÖGUN • KJARNABORUN
-■