Tíminn - 15.04.1986, Side 20
STRUWPARIMIR
meÓVlSA
VIKINGAR og Stjörnumenn
tryggöu sér sæti í úrslitaleik bikar-
keppni HSÍ í karlaflokki sem fram fer
þann 30 þessa mánaðar. Víkingar
unnu FH í Firðinum í gær með 23
mörkum gegn 21. Páll Björgvinsson
skoraði 10 mörk en Óskar Armanns-
son og Héðinn Gilsson gerðu 5 fyrir
> FH. Stjarnan rúllaði yfir Armenninga í
i* Höllinni 22-11. Hermundur Sigmunds-
son skoraði 5 fyrir Stjörnuna og Haukur
Haraldsson 4 fyrir Ármann.
Þriðjudagur 15. april 1986
Fullt fæðingaror-
lof til 121 föður
Þrír unglingar hætt komnir:
Skipbrotsmenn
á Rauðavatni
Þremur unglingum var bjargað af
þunnri ísskör á Rauðavatni á sunnu-
dagskvöld. Unglingarnir fóru út á
vatnið á lekum gúmbát, og lá við að
hann sykki undan þeim. Skömmu
áður tókst þeim að komast upp á
ísskör, þar scm þau hírðust þar til
lögreglan kom þeirn til hjálpar á
gúmbát og bjargaði þeim köldum og
hröktum í land.
Það var klukkan 19.40 að tilkynnt
var til lögreglunnar að ungmenni
væru í hættu á Rauöavatni í nágrenni
Reykjavíkur. Sóttur var gúmbátur
lögreglunnar, en hann var í lög-
rcglustöðinni á Hverfisgötu. Not-
hæfur gúmbátur var ekki í Árbæjar-
stöð lögreglunnar. Tveir lögreglu-
þjónar sigldu bátnum út á mitt
vatnið, þar sem unglingarnir höfðust
við. Lögregluþjónunum tókst að ná
þremenningunum yfir í lögreglubát-
inn og það var brunað í land. Fleiri
lögregluþjónar biðu þar og tóku á
móti skipbrotsmönnunum, sem
fluttir voru á slysavarðstofuna til
aðhlynningar. Engum varð þó meint
af volkinu.
Lögreglan kemur að skipbrots-
mönnunum þremur þar sem
þeir hafast við á næfurþunnum
ísnum. Lengst til vinstri á mynd-
inni sést farkostur þeirra, orðinn
loftlaus. Lögreglan þurfti hins-
vegar að sækja sinn bát niður á
Hverfisgötu, þar sem enginn bát-
ur er til í Árbæjarstöðinni.
Vafðir inn í teppi, eftir volkið.Þremenningarnir voru færðir á slysavarðstof-
una þar sem ástand þeirra var kannað. Tímamyndir Sverrir
Alls 121 faðirtók fullt fæðingaror-
lof árið 1984, eða 4,4% allra sem
tóku fullt fæðingarorlof það ár.
Mæðurnar voru 2.651. Til viðbótar
voru 3 sem tóku fæðingarorlof að
hluta á móti mæðrunum, en alls voru
bótaþegar tæplega 4 þús. þetta ár.
Einar Ágústsson
sendiherra látinn
Hlutfallið var mjög svipað á síðasta
ári - alls 123 feður sem tóku fæð-
ingarorlof, að því er fram kemur í
tímariti Tryggingastofnunar ríkisins.
Þeir pabbar sem tóku sér fæð-
ingarorlof voru á öllum aldri, frá 21
árs sá yngsti og upp í 55 ára sá elsti.
Flestir voru þó 32ja ára, eða alls 17
pabbar. Sex til 9 pabbar voru af
hverjum árgangi 25 til 33 ára, en alls
17 eldri en það.
í tímariti T.R. eru jafnframt upp-
lýsingar um ýmsar aðrar trygginga-
bætur. M.a. kemur fram að stöðugt
fjölgar þeim börnum sem greitt er
með, þó svo barnafjöldi standi nán-
ast orðið í stað frá ári til árs.
Alls voru það 10.733 foreldrar
sem fengu greiddan barnalífeyri eða
meðlög á árinu 1985 (fjölgun um 454
frá 1984) með 13.777 börnum (536
fleiri en 1984), eða um 19% af öllum
börnum undir 18 ára aldri í landinu.
Af þeim voru 5.913 einstæðir
foreldrar sem fengu greidd mæðra/
feðralaun með samtals 8.145
börnum, en það var fjölgun um 471
barn frá 1984.
- HEI
Einar Ágústsson sendiherra lést í
Kaupmannahöfn aðfaranótt laugar-
dags, á 64.aldursári.
Einar var fæddur 23. september
1922 að Hallgeirsey í A-Landeyj-
um, sonur hjónanna Ágústs Einars-
sonar, kaupfélagsstjóra og Helgu
Jónasdóttur kennara. Einar varð
stúdent frá M.R. 1941 og lauk lög-
fræðiprófi frá Háskóla íslands 1947.
Hann varð héraðsdómslögmaður
1951. Einar var skrifstofustjóri hjá
Sölunefnd varnarliðseigna og jafn-
framt starfsmaður fjárhagsráðs
þeirrar stofnunar frá 1947 til 1954 en
þá var hann skipaður fulltrúi í fjár-
málaráðuneytinu og var þar til 1957.
Einar var ráðinn sparisjóðsstjóri
Samvinnusparisjóðsins við stofnun
hans 1957 til 1963 og var jafnframt
fulltrúi forstjóra SÍS. Frá 1963 til
1971 var Einar bankastjóri Sam-
vinnubankans.
Einar sat á þingi fyrir Framsókn-
arflokkinn frá 1963 til 1978. Hann
varð utanríkisráðherra í stjórn Ólafs
Jóhannessonar 1971 og aftur í stjórn
Geirs Hallgrímssonar 1974-1978.
1980 var Einar skipaður sendiherra
í Danmörku og var jafnframt sendi-
herra íslands á Ítalíu, ísrael og
Tyrklandi.
Fyrir utan þingmennsku gegndi
Einar mörgum trúnaðarstörfum fyrir
Framsóknarflokkinn. Hann var for-
maður Framsóknarfélags Reykja-
víkur 1958-1961, í miðstjórn Fram-
sóknarflokksins frá 1960 og varafor-
maður flokksins 1967-80. Hann var
í framkvæmdastjórn llokksins frá
1968.
Einar Ágústsson var borgarfull-
trúi Framsóknarflokksins í Reykja-
vík 1962-71 og í borgarráði 1963-64.
f hafnarstjórn 1962-71, í stjórn
Landsvirkjunar og var formaður
utanríkismálanefndar Alþingis og
öryggismálanefndar.
Eftirlifandi kona Einars Ágústs-
sonar er Þórunn Sigurðardóttir. Þau
eignuðust þrjár dætur, en ein lést á
unga aldri, og einn son.
Þjóðarátakið:
20 milljónir komnar
„Við erum að ná tuttugustu
milljóninni inn núna, en ætlum
að fá a.m.k. fimm í viðbót,"
sagði Geirlaug Ottósdóttir hjá
Krabbameinsfélaginu. Söfnun-
inni er að mestu lokið í Reykjavík
en þó nokkuð á eftir að koma frá
landsbyggðinni. Söfnunin hefur
gengið mjög vel og ennþá er fólk
að hringja sem ekki var heima
um helgina og biðja um, að náð
sé í framlög til þess. Fólk getur
hringt í síma 91-21122 og beðið
um að náð sé í framlög til sín og
einnig er núna boðið upp á kredit-
kortaþjónustu, fólk gefur þá upp
númerið á kreditkortinu sínu í
síma. Eftir er að safna framlögum
frá fyrirtækjum, en einstaklingar
'í Reykjavík einni hafa gefið um
6,5 millj. króna,sem er aðmeðal-
tali 80 kr. á mann. Hæsta meðal-
tal úti á landi var í Mjóafirði eða
um 500 kr. á mann.
- ABS