Tíminn - 27.04.1986, Page 18
18 Tíminn
Sunnudagur 27. apríl 1986
SAMBANDIÐ AUGLÝSIF)
„PUREVA“ slípi og skurðarskífur
frá KUSTAVIN LAIKKA OY, Finnlandi
Skurðarskífur fyrir málma:
Stærðir:
115x2,2x22 Kr. 43/- 100x3,5x16 Kr. 45/-
115x3,5x22 Kr. 50/-
125x3,5x22 Kr. 53/-
178x3,5x22 Kr. 69/-
230x3,5x22 Kr. 95/-
125x2,2x22 Kr. 46/-
178x2,5x22 Kr. 60/-
230x2,5x22 Kr. 82/-
230x2,0x22 Kr. 82/-
Skurðarskífur fyrir stein:
Stærðir:
100x2,5x16 Kr. 43/- 178x2,5x22 Kr. 60/-
115x2,5x22 Kr. 48/- 230x2,5x22 Kr. 95/-
125x2,5x22 Kr. 51/-
Stærðir:
100x5,0x16 Kr. 71/-
115x7,0x22 Kr. 78/-
125x7,0x22 Kr. 84/-
Slípiskífur fyrir málma:
178x7,0x22 Kr. 115/-
230x7,0x22 Kr. 134/-
Slípiskífur fyrir léttmálma:
Stærðir:
178x7,0x22 Kr. 95/- 230x7,0x22 Kr. 134/-
Slípiskífur fyrir stein:
Stærðir:
178x7,0x22 Kr. 126/- 230x7,0x22 Kr. 148/-
VIÐ BYGGJUM Á
REYNSLUNNI
DÝR AR
SAMBANDIÐ BYGGINGAVÖRUR
SUÐURLANDSBRAUT 32 - SIMI 82033
ÞRÍR
ÓÞURRKAÐIR
SALTFISKAR r.iir,
þó að það væri einhver nefnd lista-
manna sem stjórnaði því hverjir
sýndu hér og hverjir ekki yrði það
ekkert betra.
H: Ég er hræddur um að meðal-
mennskan yrði jafnvel enn meiri.
D. Það sem helst er að, er hvað
það eru fáar sýningar á íslandi
yfirleitt. Hér ætti alltaf að vera opin
Kjarvalssýning til dæmis, - þó sér-
staklega á aðalferðamannatíman-
um. Það koma sumur hér sem ferða-
manni á íslandi gefst enginn kostur
á að sjá sýningu. í fyrra var þó
óvenju gott sumar, en það var því
miður ekki okkur yngri mönnunum
að þakka.
K: Þctta er merkilegt, því að
myndlist á íslandi er fullkomlega
sambærileg við erlenda.
H: Það var Norðmaður sem rakst
á sýninguna hjá okkur í París. Hann
sagði eitthvað á þá leið, að í öllum
andsk... heimshornum rækist maður
á íslendinga sem væru tiltölulega
góðir í sínu fagi, hvort sem er
knattspyrna, myndlist, skák eða
handbolti og svo er þetta ekki nema
250.000 manna þjóð. Þetta er eins
og Bergen sagði hann og hló óskap-
lega.
K: Annars er sérstakt við ísland,
miðað við þær þjóðir sem lengi hafa
verið maríneraðar í myndlistinni, að
hér flæðir allt mögulegt yfir og á
hvaða gæðaplani sem er. Hér er öllu
hrært saman.
D: Hér erum við aftur komnir inn
á skrifstofufólkið. Það á að sjálf-
sögðu að sjá svo um, að öllu verði
ekki hrært í graut.
K: Það þarf ekki nema einn eða
tvo eldhuga til þess að drífa hlutina
í gang.
D. Og í rauninni baraeinn. Maður
sér nú bara hvað Ragnar í Smára
hefur gert. Ég leyfi mér að efast um
að á íslandi þrifist nokkur listmenn-
ing ef hans hefði ekki notið við.
Island lagt undir fót
D: Við erum alltaf til í að koma út
á land og sýna.
K: Nú, við Helgi sýndum í Búð-
ardal fyrir nokkum áruni og höfðum
góða reynslu af þvf.
H: Það er með skemmtilegustu
viðbrögðum sem við höfum fengið.
Fólk skoðaði myndirnar hátt og lágt
og voru sumir við í fjóra tíma.
D. Ég hef nú ekki sýnt í Búðardal,
þó ég sé ættaður úr Dölunum. En ég
var einmitt að vinna þarna sumarið
eftir að Helgi og Kiddi höfðu verið
með sýninguna og bændurnir spurðu
mig hvort ég þekkti nokkuð þessa
undarlegu menn. Þegar þeir urðu
þess vfsari, að við þekktumst nú
allir, tóku þeir mér varlegar á eftir.
H: Það eru fjögur ár síðan þetta
var, en þegar ég var þarna fyrir
skömmu voru þeir enn að býsnast
yfir sýningunni.
' D: Ég hef hins vegar sýnt á
Akureyri árið 1981 og þá var ég
skammaður alveg ógurlega mikið af
rauðsokkunum. Þær sögðu að ég
væri væminn og svona, en rauðsokk-
ur eru ekki væmnar. Mér fannst
þetta góð gagnrýni og er staðráðinn
í því, að sýna þeim myndirnar mínar
einhvern tímann aftur.
Að lokum, - hvað er á döfinni?
K: Mér hefur nú verið boðið að
vera með myndir mínar á sýningu á
Selfossi í gríðarlega stóru húsi, sem
er litlu minna en kaupfélagshúsið.
D: Hér gildir auðvitað gamla ís-
lenska reglan: maður þekkir mann
sem þekkir annan. Kiddi á lögheimili
á Selfossi. Bróðir hans Helga er
mjólkurbússtjóri í Búðardal og svo
á ég ættingja í Dölunum. Þar eru
allir skyldir og þess vegna eru allir
svo vel gefnir þar. Og spakari lok-
aorð færðu ekki.
-Þj
Frelsisstyttan
slapp
úr
helsi
Nýbónuð og lagfærð
frelsisstyttan er nú slopp-
in úr prísundinni. Hún
var mikið farin að láta á
sjá, en viðgerðin hefur
tekið rúmt ár.
Helsta breytingin á
þessari frægu styttu er
nýtt ljósker sem frelsis-
gyðjan nú heldur hátt yfir
mynni New York hafnar.
Einnig hafa verið gerðar
töluverðar breytingar á
styttunni að innanverðu.
Frelsisstyttan er 46
metrar á hæð og minnast
margir innflytjendur til
Bandaríkjanna, styttunn-
ar sem tákns nýs og betra
lífs. Frakkar gáfu stytt-
una Bandaríkjunum
1886, en Ronald Reagan
forseti Bandaríkjanna
mun tendra frelsisljósið
að nýju í kerti styttunnar
á þjóðhátíðardeginum 4.
júlí, á þessu ári.